Morgunblaðið - 04.09.1955, Side 16
VeBurúflit í dag:
S-kaldi. Rigning.
200. tbl. — Sunnudagur 4. scptember 1955
ReykjðYÍknrbréf
á bls. V.
IViilljónafyrirtækið 818 greiðir útsvar á borð
við 3-4 láglaunamenn
Þannig eru ákvœði
um útsvarsgreiðslur
samvinnufélaga
F'ÓGETARÉTTUR Reykjavíkur kvað upp í fyrradag
* úrskurð þess efnis, að Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga, stærsti og voldugasti auðhringur hér á
landi skyldi aðeins greiða 30 þús. kr. í útsvar. Niður-
jöfnunarnefnd hafði lagt á Sambandið 1,6 milljón
króna, en ekki var talið heimilt skv. núgildandi lög-
um að leggja veltuútsvar á SÍS, eins og allar aðrar
heildsölur og verzlanir.
1,6 MILLJ. KR.
ÁLAGNING
Sambandi íslenzkra samvinnu-
íélaga var gert að greiða til bæj-
arsjóðs Reykjavíkur fyrir árið
1954 kr. 1.600.000.00. — Útsvar
þetta kærði SÍS til Ríkisskatta-
nefndar, sem lækkaði útsvarið
um 400 þúsund krónur eða í 1,2
millj. kr. Nokkum hluta þessa
útsvars hafði SÍS greitt, en þeg-
ar það neitaði að greiða mikinn
hluta þess, höfðaði bæjarsjóður
fógetaréttarmál gegn Samband-
inu.
VELTUÚTSVAR
Við rannsókn á því, hvort gera
skyldi lögtak fyrir upphæðinni,
tók fógeti til ýtarlegrar athug-
unar, hvernig útsvar bæri að
leggja á þetta félag. Kom það í
ljós, að meginhluti alls útsvars-
ins var veltuútsvar, eins og tíðk-
ast að lagt sé á yfir höfuð öll
verzlunarfyrirtæki. Tekjuútsvar
af viðskiptum við utanfélags-
menn nam aðeins um 30 þúsund
krónum af heildarútsvarinu.
Það sem hér kom aðallega til
álita var hvort heimilt væri að
lögum að leggja á samvinnufélög
veltu og eignaútsvar.
Lenfi við Landipílaiann raeS sjúka konu.
i
U*
Hirðing á miðviku-
dafff en heyið ruddi
AMIÐVIKUDAGINN í vikunni, sem var að líða, var ágætis
þurrkur og björguðu bændur þá inn miklu af heyjum, en því
miður var þetta orðinn hinn mesti ruddi. Gunnar í Seljatungu í
Flóa taldi að heyfengur bænda myndi nú að magni til nema um
helmingi af venjulegum heyskap, en heyið væri miklu verra.
Hann sagði, að sumum bænd-
um hefði jafnvel tekizt í mið* |
vikudagsþurrkinum að alhirðív
tún sín, en það væri allt mikið
skemmt hey. Þennan dag hefði
jafnvel verið betri þurrkur ofar
í Árnessýslu, svo sem Biskups-
tungum og Hrunamanna- og
Gnúpverjahreppum. Enda þurftu
þeir á því að halda, því að á-
standið þar var jafnvel enn þá
verra en í lágsveitunum. I
HAIN ILLA SPROTTIN
Á fimmtudaginn rigndi svo um
morguninn. Voru skúrir. Létti
upp skömmu eftir hádegi og gerði
þerri, en svo skammvinnan, að
ósenniiegt er, að hann hafi kom-
ið að miklu gagni. Það er nýtt
vandamál fyrir bændurna, þó
brygði til betri tíðar, að háin er
yfirleitt illa sprottin, sakir kuld-
anna.
NIÐURSTAÐA DOMSINS
Fógetarétturinn taldi eftir ýt-
arlega athugun á lagaákvæðum
um skattlagningu samvinnufé-
laga, að það mætti ekki leggja
veltuútsvar á SÍS. Var þetta
byggt m. a. á þeirri lögskýringu,
að í lögum frá 1919 var það
ákvæði um útsvarsskykiu kaup-
félaga, að það skyldi vera sem
hæfa þætti eftir árlegri veltu og
arði. En þegar ný lög voru sett 1 ■*£
um útsvarsskyldu samvinnufé- Slclll'ílÖ
laga 1921, þá er aðeins sagt, að |
þau greiði útsvar af „arði“ síð-
asta árs, sem leiðir af skiptum
við utanfélagsmenn.
M tvöleytið í gær veittu vegfarendur um Hringbrautina þvl
athygli, að stór þyrilvængja úr bandaríska flughernum á
Keflavíkurflugvelli settist skyndilega á túnið hjá Landsspítalan-
um. En þyrilvængja þessi var að koma ú'r mjög áríðandi sjúkra-
flugi. Hafði hún meðíerðis veika konu vestan af Snæfellsnesi.
úr Þenicy
-* KONA I BARNSNAUÐ
| í gærmorgun kom beiðni til
! Slysavarnafélagsins um sjúkra-
flug. Var þess óskað, að kona f
I barnsnauð yrði flutt frá Arnar-
stapa á Snæfellsnesi. Hafði kon-
an það sem nefnt er „fæðingar-
eitrun".
SKATTANA VERÐA
AÐRIR AÐ BERA
Skv. þessu telur fógetarétt-
urinn að ekki sé heimilt að
leggja útsvar á Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga, nema
skv. árlegum arði af viðskipt-
um við utanfélagsmenn. Skv.
þessu átti SÍS að greiða í út-
svar aðeins 30 þúsund krónur.
Tekjuskattur þessa milljóna-
félags mun einnig vera hlægi-
lega lágur.
I SUMAR var um 130 fjár flutt
út í Þerney á Kollafirði. Var þetta
sauðfé af bænum Álfsnesi, í Mos-
fellssveit og frá Sogahlíð í Reykja
vík, sem grunað var að hefði tek-
ið garnaveiki.
Nú nýlega var dilkunum um 50
talsins úr eynni slátrað. Ekki
varð neitt vart við garnaveiki við
þá slátrun, enda mun það sjald-
gæft, að garnaveiki komi fram
þegar í dilkunum. En fullorðnu
fé úr Þerney verður slátrað í að-
alsláturtíðinni og kemur þá betur
í ljós, hvort féð var sýkt.
ERFIÐAR ABSTÆÐUR
Slysavarnafélagið snéri sér til
flughersins í Keflavík um aðstoð.
Var það öllum ljóst, að aðstaðan
að þessu sinni var mjög erfið,
bæði hvassviðri, lágskýjað, þoka
og rigning. En leiðangurinn gekk
vel fyrir það. Þyrilvængjan sett-
ist við Arnarstapa kl. 12,15 og var
komin af stað með hina sjúku
konan kl. 12,35. Á túnið við
sjúkrahúsið var komið kl. 2 síð-
degis. ‘
Var þessi leiðangur merkilegur
fyrir það, að hann sýndi hvers
þyrilvængjurnar eru megnugar,
þrátt fyrir illviðri.
Verkakonur í Keflavik og fíkra
nesi fá 13 aura hækkun
Ætli kartöfluuppskeran
verði ekki í meðallagi?
ÆJARBÚAR, sem farið hafa í kartöflugarða sína að undanförnu
»» og sem Mbl. hefur haft tal af, skýra frá því að útlitið sé ekki
eins slæmt og óttazt hefur verið. Víst er, að uppskeran er lítil
miðuð við tímann, en ef kartöflurnar fá að liggja enn í 10 daga
eða hálfan mánuð virðist sem uppskeran verði sæmileg.
VERKFALL verkakvennanna í
Keflavík og á Akranesi leyst-
ist kl. 7 í gærmorgun. Hafði það
þá staðið frá 18. ágúst hjá verka-
konum í Keflavík, samúðar-
vinnustöðvun hjá Verkalýðs og
sjómannafélagi Keflavíkur frá
21. ágúst, vinnustöðvun verka-
kvenna á Akranesi frá 22. ágúst
og samúðarverkfall annarra
deilda Verkalýðsfélags Akraness
frá 28. ágúst.
Höfðu samningafundir staðið
samfleytt í 37 tíma þá er verk-
fallið leystist. Fengu verkakon-
urnar 13 aura kauphækkun, eða
7.83 á tírnann í almennri dag-
vinnu. Er það 13 aurum hærra
en kaup sem greitt er í Reykja-
vík og víða annars staðar. i
Af hálfu verkafólks á Akra- [
nesi voru samningar undirritaðir,
í gærmorgun, en samninganefnd
verkakvennanna í Keflavík.
frestaði undirritun. Voru haldnir 1
fundir í félagi vinnuveitenda,
verkakvenna og verkalýðs- og
sjómannafélaginu í Keflavík í,
gær um samningana.
í gær fóru allir bátar á Akra-
nesi og á Suðurnesjum aftur á
sjó eftir verkfallsstöðvunina.
I*ess ber þó að gæta að hinir
nýju samningar verkakvenna á
Akranesi og í Keflavík eru að
því leyti óhagstæðari miðað við
samninga verkakvenna í Reykja-
vík og viðar, að vinni konur á
Akranesi í matar eða kaffitíma
fá þær aðeins greiddan þann
tíma, sem þær vinna, en vinni
konur í Reykjavík hins vegar
eitthvað fram í matar eða kaffi-
tíma fá þær allan tímann greidd-
an. Að því er snertir Keflavík fá
konur þar matartímann greidd-
an á tvcföldu cftirvinnukaupi,
þar sem konur í Reykjavík fá
hann greiddan á tvöföldu nætur-
vinnukaupi. *
Þessi tvö atriði hafa allmikla
þýðingu yfir aðal annatímann,
þegar mikU eftir- og næturvinna
er unnin.
SÓLARLEYSI OG RAKI
Að vísu má búast við, að upp-
skeran sé mjög mismunandi
bæði eftir stæði garðanna og eft-
ir tegundum. Sumarið hefur ver-
ið óhagstætt aðallega vegna sól-
arleysis og einnig er raki jarð-
vegsins of mikill. Mun uppsker-
an því vera bezt þar sem þurr-
lendast er.
1
SEXFÖLD UPPSKERA
Einn garðeigandi var á þeirri
skoðun að uppskeran hjá hon-
um við prófun hingað og þangað
um garðinn myndi verða þetta
sexföld. Það er að sjálfsögðu lítil
uppskera, en svo virðist sem
þær eigi nokkurn tíma fyrir sér,
grösin eru yfirleitt ekkert farin
að falla, en þau eru nokkuð
hrakin.
MIKILL VÖXTUR
í SEPTEMBER
Annar garðeigandi sagðist hafa
fundið undir allmörgum grösum
10 vænar kartöflur, en undir
xnörgum var hins vegar talsvert
ininna. Hann kvaðst ekki vera'
mjög svartsýnn á uppskeruna,
því að reyndin væri sú, að kart-
öflurnar gætu vaxið feykimikið
í september. — Ætli við fáum
ekki meðaluppskeru út úr þessu,
sagði hann. Það þýðir ekkert að
bera hana saman við uppskeruna
siðustu tvö ár, þegar hún var
langt yfir meðallag.
Vegna hins sífellda raka var
erfitt um vik i sumar, að sprauta
garðana til varnar myglunni. —
Hafa menn verið varaðir sér-
staklega við henni, að nú kunni
hún að æða um allt. En svo virð-
ist að minnsta kosti enn sem
komið er, að ekki hafi borið sér-
lega mikið á myglunni.
Visisiiugar í DM
í GÆR var dregið í 5. flokkí
Happdrættis DAS. Vinningar
voru tveir: Chevrolet-bifreið,
sem kom á nr. 15.044, sem var
seldur í Neskaupstað. Og Vespu-
bifhjól, er kom á nr. 39,830, sem
var seldur í umboðinu Austur-
stræti 1.
Já, þetta er mynd af Öxarárfossi þótt ótrúlegt sé. Þannig leit hann út í fyrradag, þegar ljósmyndar*
inn var á ferðinni á Þingvöllum. Það er heldur fátítt yfirleitt að sjá svo mikið vatnsmagn í Öxará,
en í sumar hefur hún víst oftast verið svo vatnsmikil enda ekki óeðlilegt vegna hinna miklu rign-
inga, sem verið hafa í sumar. — Ljósm. H. T.