Morgunblaðið - 09.09.1955, Síða 1
16 síður
42. árgangur
204. tbl. — Föstudagur 9. september 1955
Frentsmíðja Morgunblaðsim
VliITA RÖSSA 00 ÞJQÐVERJA
TRVGCSR FRIOiV í
sngði Adenouer, þegnr hnnn
kom til Moskvu í gær
MOSKVU, 8. sept. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
ADENAUER kanslari Vestur-Þýzkalands kom í dag til
Moskvu ásamt föruneyti sínu. Hyggst ráðherrann ræða
við Sovétstjórnina um sameining Þýzkalands og önnur
vandamál landsins, sem nauðsynlegt er að leysa hið bráðasta.
Bulganin forsætisráðherra Sovétríkjanna tók á móti kansl-
aranum á flugvellinum. Margir helztu leiðtogar Rússa voru
í fylgd með Bulganin, en þó vár Krusjeff þar hvergi sjáan-
legur. Stjórnarerindrekar í Moskvu eru þó þeirrar skoðun-
ar, að hann verði í rússnesku nefndinni sem á að ræða við
Adenauer og sérfræðinga hans.
DEUTSCHLAND, DEUTSCH- •----------------------------
LAND UBER ALLES
— í MOSKVU
Þegar Adenauer steig út úr
flugvélinni í Moskvu, var leikið
Deutschland,, Deutschland úber
alles, og skömmu síðar mátti
heyra Internationalinn. — Aden-
auer flutti ræðu á flugvellinum,
sem fór fyrir ofan garð og neðan
hjá fréttamönnum, þar sem þeim
var haldið í hæfilegri fjarlægð
frá flugvélinni. Ræðunni var út-
varpað í Moskvuútvarpið í dag
Grikkir styðja Atlantshafsbanda-
lagið og breyta ekki utanrikis-
„ ,.. , ’ stefnu sinni
Herlog i
Tyrklandi
RÆÐA ADENAUERS
og 'fýlgdi þýðing á henni.
Kanslarinn sagði m. a.: — Það
er von mín, að við komu mína
hingað geti hafizt nýtt tímabil
vináttu og eðlilegra samskipta
milli Ráðstjórnarríkjanna og
Vestur-Þýzkalands. Ég er sann-
færður um, að Rússar og Þjóð-
verjar hafi gagn af góðri sam-
vinnu landanna. Vinátta þessara
tveggja þjóða tryggir friðinn í
Evrópu, — öllum heiminum,
sagði kanslarinn að lokum.
Lítið atvinnu
leysi í
Bretiandi
LUNDUNUM, 8. sept. — Aldrei
hafa eins margir verið við vinnu
í Bretlandi og nú. Þar eru um 23
milljónir vinnandi manna og
fjölgaði þeim um 300 þús. á s.l.
ári. —
• Tala atvinnulausra hefir
lækkað mjög upp á síðkastið og
er ástandið í atvinnumálum
landsins gott. — Reuter.
Fleiri námsmenn til
Bandaríkjanna
en áður
WASHINGTON, 6. sept. — Nú í
haust munu fleiri námsmenn
koma til Bandaríkjanna til náms
við bandaríska skóla en nokkru
sinni fyrr. Er tala þeirra álitin
vera um 35 000.
Um það bil 25% þessa náms-
fólks fær styrki frá Bandaríkj-
unum eða frá einkastofnunum,
aðrir koma á eigin kostnað eða
eru kostaðir af stjórnum þeirra
ríkja, er þeir koma frá.
Kolaframleiðsla
Evrópu ekki
nægileg
EKKI er útlit fyrir, að það dragi
úr kolaskortinum í Evrópu á
næstunni. Meiri líkur virðast
fyrir, að hann aukist og kola-
verð hækki. Kolanefnd Efnahags
nefndar Evrópu (ECE) komst að
þessari niðurstöðu á fundi, sem
nefndin hélt í Genf fyrir skömmu
Samkvæmt tölum, er fyrir
nefndinni lágu, er útlit fyrir að
kolaframleiðsla Evrópulanda á
ársfjórðungnum, sem lauk með
júní verði um Vz milljón smá-
lesta undir eftirspum. Kola-
skorturinn kemur harðast niður
á þeim löndum, sem ekki eru í
kolasamtökum Evrópulanda, eða
stálsambandinu.
Hin aukna eftirspurn eftir
koksi og kolum stafar fyrst og
fremst af auknum þörfum járn-
og stáliðnaðarins í Evrópu.
Norræn leikhúsaráð-
defna í Reykjavík
næsta vor
Á KOMANDI vori, verður haldin
hér í Reykjavík Norræn leik-
húsaráðstefna, sem er hin 6. í
röðinni. Ráðstefna þessi er hald-
in annað hvert ár, og var síðast
í Stokkhólmi.
Þátttakendur ráðstefnunnar
verða leikhússtjórar, leikstjórar,
leikarar, leikritahöfundar og
leiktjaldamálarar. Er þetta í
fyrsta skipti er Norræn leikhúsa-
ráðstefna er haldin hér á landi.
Hefur Þjóðleikhúsið í tilefni af
þessu ákveðið að efna til tveggja
leiksýninga í Þjóðleikhúsinu með
an á ráðstefnunni stendur. Leik-
ritin hafa ekki verið ákveðin
ennþá.
GENF, 6. sept. — Níu bandarískir
borgarar búsettir í Rauða Kína,
hafa nú fengið heimild til að
snúa heim aftur. Sex þessara
Bandaríkjamanna eru konur.
Var þetta tilkynnt í Genf í dag,
en þar hafa fulltrúar landanna
tveggja undanfarið ræðst við um
heimfararleyfi til handa borgur-
um beggja þessara landa.
~ ISTANBUL, 8. sept. — Her-
sveitir fóru um götur stærstu
borga Tyrklands í dag vegna ó-
eirðanna sem efnt var til út af
Kýpurmálinu. — Eins og menn
muna, réðist lýðurinn á Grikki
sem búsettir eru í borgum þess-
um, brenndu hús þeirra og aðrar
eignir.
^ Heriög hafa verið sett í
borgum þessum, og er mönnum
bannað að vera utan dyra eft.ir
kl. 23 í Ismír og Istanbul.
^ Tyrkneska þingið hefir verið
kallað saman úr sumarleyfi tii
að ræða óeirðirnar og Kýpur-
deiluna.
Hluflaust belti á
Gazasvæðinu
★★★ LUNDÚNUM, 8. sept. —
Öryggisráð SÞ samþykkti í einu
hljóði á fundi sínum í dag, að
skora á Egypta og ísraelsmenn að
hætta vopnaviðskiptum á Gaza-
svæðinu. Einnig var Öryggisráðið
samþykkt tillögum formanns
vopnahlésnefndar SÞ Burns þess
efnis, að hlutlaust belti verði
látið skipta löndum ísraelsmanna
og Egypta á Gazasvæðinu.
— Reuter.
Akranesbátar með
góðan afla
AKRANESI, 8. sept. — í dag er
afbragðssíldveiði hjá síldveiði-
bátunum hérna. 18 bátar komu
inn með alls 1776 tunnur, svo að
aflinn í dag er nálega 100 tunn-
ur á bát til jafnaðar. — Fjórir
aflahæstu bátarnir eru: Bjarni
Jóhannesson með 201 tunnu,
Skipaskagi 155, Heimaskagi 140
og Farsæll með 140. Síldin er
ekki langt undan, því að einn
bátanna, Ásbjörn, fékk 50 tunn-
ur grunnt á Sviðinu. Síldin er
ýmist söltuð eða fryst. — Oddur.
Akranes vann
Akureyri 4:2
f GÆRKVÖLDI fór fram hér á
íþróttavellinum knattgpyrnu-
kappleikur milli Akurnesinga og
Akureyringa.
Leikar fóru þannig, að Akur-
nesingar unnu með 4:2. Akur-
nesingar höfðu yfirburði í fyrri
hálfleik, sem þeir unnu með 4:1,
en í síðari hálfleik sóttu Akur-
eyringar sig mjög og náðu þá
öðru marki sínu.
Ágóði leiksins er kom í hlut
Friðriks voru kr. 15.700 er búið
var að greiða ferðakostnað Akur-
eyringanna.
Óvináfta Grikkja og Tyrkja úf af Kýpur
sfefnir þó vörnum Atlantshafsríkjanna
við austanvert Miðjarðarhaf í voða
LUNDÚNUM, 8. sept. — Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter-NTB
STEFANÓPÓLUS, utanríkisráðherra Grikkja, sem setið hefir
Lundúnaráðstefnuna um Kýpur, sagði í dag á blaðamanna-
fundi, að Grikkir gætu ekki séð annað en það væri sanngirniskrafa,
að Kýpurbúar fengju að ákveða sjálfir framtíð sína. Grikkir hefðu
ekki krafizt annars á Lundúnaráðstefnunni, og fyndist þeim farið
inn á hættulega braut, ef stórþjóðir hygðust skella skolleyrum
við kröfum smáþjóða. Slíkt yrði engum til góðs nema kommún-
istum.
ENGIN STEFNUBREYTINC ’ herra Grikkja lýsti því yfir
Róðherrann bætti því viS, að
Grikkir hefðu á engan hátt
breytt stefnu sinni í utanríkis-
málum, þótt þetta leiSindamál
hefði komið upp. Þeir vildu
halda áfram nánu samstarfi
sínu viS önnur Atlantshafsríki
og efla samtökin eftir megni.
FORÐIZT OFBELDI!
Þá hvatti ráðherrann Kýpurbúa
að forðast ofbeldi og hermdar-
verk, þótt samkomulag hefði ekki
náðst í Lundúnum.
ÓÁNÆGÐUR BISKUP
Makaríos erkibiskup á Kýpur
messaði yfir 20 þús. þjóðernissinn-
Ristir
grunnt?
• LUNDÚNUM, 8. sept. —
Síðustu fréttir herma, að
Stefanópólus, utanríkisráðh.
Grikkja, hafi lýst því yfir í
Lundúnum síðdegis í dag, að
uppþotin í Tyrklandi sem
beint hefir verið gegn Grikkj-
urn þar í landi hafi engin áhrif
á vináttu Tyrkja og Grikkja.
Ráðherrann bætti við, að
Grikkir óskuðu eftir því, að
Balkanbandalagið yrði ekki
leyst upp.
• Þykja þessi ummæli eríska
utanríkisráðherrans benOa H
þess, að óvinátta TyrKja og
Grikkja út af Kýpur risti ekki
eins djúpt og haldið hefir
verið.
• Páll Grikkjakonungur er
nú á ferð um Júgóslavíu í
boði Títós. Lýsti hann því yfir,
að allt yrði gert til þess að
treysta aftur vináttu Grikkja
og Tyrkja. Tító tók undir
þessi ummæli konungsins,
enda er Júgóslavia þriðja rík-
ið í Balkanbandalaginu.
í dag, að Grikkir mundu
ekki taka þátt í fjórðu flota-
æfingu Atlantshafsbanda-
lagsins á Miðjarðarhafi sem
eiga að vera í lok mánaðar-
ins. Ástæðan er sú, að þeir
vilja ekki flotasamvinnu við
Tyrki. Þá vilja Grikkir, að
aðalstöðvar Atlantshafs-
bandalagsins sem eru í
Ankara verði fluttar þaðan.
Fulltrúar Atlantshafsbandalags-
ins í París komu saman til skyndi-
fundar í morgun til að ræða deilu-
mál Grikkja og Tyrkja.
um í dag og lýsti yfir, að Kýpur-
búar mundu ekki láta sér lynda
stjórnarbót Breta á eynni. Bisk-
upinn er, eins og kunnugt er, leið-
togi Grikkja á eynni.
ÓVINÁTTA TVEGGJA
ATLANTSH AFSÞJÓÐA
Þess má loks geta, að
snurða hefur hlaupið á vin-
áttu Grikkja og Tyrkja út
af Kýpur. Varaforsætisráð-
RockeieUers-
stofnunin
veitir styrki
HIN kunna Rockefellerstofnun I
Bandaríkjunum hefur nýlega
veitt einstaklingum og stofnun-
um frá 33 þjóðlöndum styrki til
rannsókna og náms á sviði vís-
inda, tækni og þjóðfélagsmála.
Styrkir þeir, sem veittir hafa
verið á öðru misseri þessa árs,
nema meira en 5.600,000 dollur-
um.
Stærsti styrkurinn, sem narn
rúmlega 848 þús. dollurum, var
veittur 5 læknaskólum í Suður-
Ameríku og mun styrkurinn
verða notaður til þess að endur-
bæta tæki og byggja fleiri deild-
ir við skólana.
Annar stór styrkur, um það
bil 500 þús. dollarar var veittur
Princeton háskólanum og mun
hann notaður til þess að safna
skýrslum um efnahagslega þró-
un í þeim löndum, sem skammt
eru á veg komin í iðnaðarfram-
leiðslu.
Soldáninn
99hlustaðuré4
LUNDÚNUM, 8. sept. — Faurð
forsætisráðherra Frakka heldur
stjórnarfund á sunnudag eða
mánudag og verður rætt um af-
stöðu Ben Jússeís til stórnar-
bóta Frakka í Marokkó. Sér-
stakur sendimaður stjórnarinn-
ar hefir undanfarið dvalizt á
Madagaskar, þar sem soldáninn
er í útlegð og „hlustað hann“.