Morgunblaðið - 10.09.1955, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.09.1955, Blaðsíða 7
| Laugardagur 10. sept. 1955 MORGUNBLAÐIÐ B 11 u. — —--——-— -» ífirlitsmynd af allsherjarfundi kjarnorkuráðstefnunnar í Genf. Hana sóttu 1400 fulltrúar, 3000 áheyrnarfulltruar og yfir 900 fréttamenn. Er þetta ein stærsta og þýð« ingarmesta alþjóða-ráðstefna, sem nokkru sinni hefur verið haldin. Kjarnorkuráðstefnan í Genf Eftir IHagnús Magnússon Mannkyninu var lífsnanðsyn að finna nýjan orkugjafa Til að ve/ta öllum þfóðum söimt Isfss kilyrði og tíðkasf á Vesturlöndum þarf mesri en venjulegar orkulindir gefa Dr. Homi Bhabha forseti ráðstefnunnar. Aðalritarar ráðstefnunnar voru próf. Vavilov frá Rússlandi og próf. G. Whitemann frá Banda- ríkjunum. prófessor við tsekniháskólann íágúst í Þjóðabandalagshöllinni, EINS og kunnugt er, var hald- in 8.—20. ágúst í Genf ráð- Btefna á vegum Sameinuðu þjóð- anna um friðsamlega notkun kjarnorkunnar. Tildrög þessarar ráðstefnu voru þau, að 8. desem- ber 1953 hélt Eisenhower Banda- ríkjaforseti ræðu á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna, þar sem hann lagði til, að þau ríki, sem fengjust við kjarnorkurann- sóknir, færu að gefa af birgðum sínum af úraníum og öðrum slík- um efnum til alþjóðastofnunar, sem sett væri á stofn á vegum Sameinuðu þjóðanna, Starf þess- arar stofnunar yrði að fmna leið- ir til að þessi efni yrðu notuð tii friðsamlegra þarfa mannkynsins. 4. desember 1954 samþykktj alls- herjarþing Sameinuðu þjóðanna samhljóða ályktun um alþjóða- samvinnu um friðsamlega notk- un kjarnorku. í ályktuninni var getið um frumkvæði Eisenhowers Bandaríkjaforseta og sú von lát- in í ljós, að alþjóða kjarnorku- stofnun í tengslum við Samein- uðu þjóðirnar, yrði komið upp hið fyrsta til að greiða fyrir notk- Un kjarnorku í friðsamlegum til- gangi um allan heim og efla al- þjóðasamvinnu um rannsóknir og hagnýtingu kjarnorku í þágu mannkynsins. Meðan mál þetta var fyrir allsherjarþinginu, tilkynntu Bandaríkin 15. nóvember 1954, að þau vildu gefa 100 kg. af kjarnakleyfu efni til að nota í tilrauna-kjarnorkuofna, sem hyggja ætti í ýmsum löndura. Næsta dag bauð Bretland 20 kg. í sama tilgangi. Seinna bættu Bandaríkin 100 kg. við. RÁÐSTEFNAN UNDIRBÚIN Allsherjarþingið ákvað einnig, að haldin yrði alþjóða tæknileg ráðstefna í Genf ekki seinna en í ágúst 1955 á vegum Sameinuðu þjóðanna, til að kanna leiðir til eflingar friðsamlegra nota kjarn- orku sem aflgjafa og ræða önnur svið, svo sem líffræði, læknis- fræði, varnir gegn geislun og grundvallarvísindi, þar sem al- þjóðasamvinna gæti komið að mestum notum. Öllum 60 með- limaríkjum Sameinuðu þjóðanna og þeim 24 ríkjum, sem eru með- limir í sérstökum stofnunum tengdum Sameinuðu þjóðunum, en ekki í þeim sjálfum, var boð- in þátttaka. Ráðgefandi nefnd um þessa ráðstefnu, sem í áttu sæti full- trúar frá Brasilíu, Kanada, Frakk landi, Indlandi, Sovétríkjunum, Bretlandi og Bandaríkjunum kom saman í janúar 1955. Ákvað hún, hvað tekið skyldi fyrir á ráðstefn unni og hvernig henni skyldi hagað. Ritari Sameinuðu þjóð- anna, Dag Hammarskjöld, skip- aði svo, í samráði við nefndina, prófessor Homi Bhabha, heims- frægan eðlisfræðing, forstöðu- mann Tata rannsóknarstöðvarinn ar í Bombay og forseta indversku kjarnorkunefndarinnar, forseta ráðstefnunnar. Varaforsetar voru svo útnefndir: B. de Mattos, for- seti kjarnorkunefndar Brasilíu, W. B. Lewis forstöðumaður kjarn orkurannsóknarstöðvar Kanada, F. Perrin, yfirmaður kjarnorku- rannsókna Frakka, D. V. Skobelt- zyn, yfirmaður eðlisfræðideildar Moskvuháskóla, Sir John Cock- croft, yfirmaður kjarnorkurann- sóknarstöðvar Breta i Harwell, I. Rabi, prófessor í eðlisfræði við Columbia háskólann í Bandaríkj- unum. Aðalritari ráðstefnunnar var útnefndur W. G. Whitman, • Massachusetts (M.I.T.) í Banda- ríkjunum. Annar aðalritari var svo prófessor Vavilov frá vísinda- félaginu í Moskvu. Frá upphafi var því alþjóðlegur visindablær á ráðstefnunni. STÆRSTA RÁÐSTEFNA Á VEGUM S.Þ. Ráðstefnan hófst svo í Genf 8. sem Sameinuðu þjóðirnar hafa tekið við og gert að aðsetri sínu í Evrópu. Geysimikið undirbún- ingsverk hafði verið unnið. Lagð- ar höfðu verið fram 1067 vísinda- legar og tæknilegar skýrslur og ritgerðir, samtals um 16,000 vél- ritaðar síður. Allt þetta þurfti að flokka niður og prenta. Þetta var stærsta ráðstefna, sem Sam- einuðu þjóðirnar höfðu staðið fy: :r og stærsta vísindaráðstefna, sem nokkru sinni hefur verið haldin. 73 þjóðir tóku þátt i henni, þar á meðal allar þjóðir, sem eru meðlimir Sameinuðu þjóðanna, og auk þeirra td. Albania, Vestur-Þýzkaland, Ung- verjaland, Spánn, San Marino og Vatikanið. Fulltrúar voru um 1400 og yfir 3000 áheyrnarfull- trúar, margir sendir af iðnaðar- fyrirtækjum. Yfir 900 fréttarit- arar fvlgdust með störfum ráð- stefnunnar. Fundir vorú haldnir tvisvar á dag, þrjá tíma í hvort skiptL Ómögulegt var að flytja allar rit- gerðirnar og voru útdrættir úr 450 fluttir. Hverjum manni var skammtaður ákveðinn tími til flutnings erindis síns. Fyrstu þrjá dagana voru allsherjar fundir, þar sem rædd voru almenn atriði í sambandi við notkun kjarnorku og flutt yfirlitserindi. Þar var rætt um orkuþörf heimsins næstu 50 ár og orkuþarfir einstakra landa, um reynslu við kjarnorku- ver og kostnað við byggingu þeirra, ennfremur um hagfræði- leg og lögfræðileg atriði. Síðan var rætt um hlutverk kjarnork- unnar næstu 50 árin, öryggis- og heilsuverndarmál og notkun geislavirkra ísótópa í læknis- fræði, líffræði, landbúnaði, iðn- aði og tækni, og loks um það, hvernig bezt er að ganga frá geislavirkum úrgangsefnum kjarnorkuvera. Á fjórða degi skiptist ráðstefnan í þrjár deildir. HINAR ÞRJÁR DEILDIR Fyrsta deildin fjallaði um eðlisfræðileg atriði. Þar voru flutt erindi um kjarnaeðlis- fræði og kjarnaklofnun, kjarn- orkuofna til rannsókna og sem aílgjafa, mælingar og útreikn- ínga á ýmsum stærðum, sem þýðingu hafa í þessum málum. Önnur deildin tók fyrir efnaf ræðileg, málmfræðileg og tæknileg atriði. Þar var rætt um birgðir af úraníum og þóríum í heiminum, aðferðir við ieit og vinnslu þessara efna, sem eru undirstaða fyrir framleiðslu kjarnorku. Enn- fremur voru flutt erindi um meðhöndlun geislavirkra efna, áhrif geislunar á ýmis efni, framleiðslu sérstakra efna, sem þýðingarmikil eru í sam- bandi við kjarnorku, svo sem þungs vatns, og mörg önnur atriði sem mikilvæg eru við starfsemi kjarnorkuvera. Þriðja deildin fjallaði um líffræði, læknisfræði og geisla- virka ísótópa. Þar var rætt um notkun geislavirkra ísótópa til lækninga, sjúk- dómagreininga og rannsókna á sjúkdómiun, áhrif geislunar á lifandi verur, m. a. erfða- fræðiieg áhrif. Erindi voru flutt um notkun geislavirkra ísótópa í landbúnaði, líffæra- fræði, lífefnafræði og vísinda rannsóknum yfirleitt, enn- Framh. á bla. 11 1860 1866 1870 1876 » 880 1886 1890 1886 1900 1906 1910 1915 1920 1925 1930 1935 1990 |9« 1950 . 1955 Línurit þetta sýnir hina sívaxandi orkuframleiðslu heimsins. Árið 1860 var orkuframleiðslan 1,1 þús. milljón megawattstundir, en 1953 var hún orðin 23,4 þúsund milljón megawatt-stundir. Athugið vel, að i byrjun þessa tímabils, var nær öll orkan fengin úr kolum (skástrikað). Nú verður kolanotkun hlutfallsiega minni með hverju ári. Við hefur bætzt vatnsorka, sem enn er þó aðeins lítill þáttur og framleiðsla jarðgass og oiíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.