Morgunblaðið - 10.09.1955, Blaðsíða 16
Veðurúfiii í dag:
AUhvass N-NV. Skúrir.
tfgnnMðMft
205. tbl. — Laugardagur 10. septembcr 1955
Aðferðir kommúnisfa
Sjá grein á blaðsíðu 9.
Unnið að byggingu
63 nýrra raðhúsa
Samtal við Gísla Halldórsson, arkitekt
MORGUNBLAÐIÐ hefur átt
tal við Gísla Halldórsson,
arkitekt um það, hvernig bygg-
ing raðhúsanna miði áfram, og
var frásögn hans á þessa leið:
TAFIR OG ORSAKIR ÞEIRRA
Það hafa spunnist ómaklegar
ádeilur út af því, að bygging 45
raðhúsa við Bústaðaveg og Rétt-
arholtsveg hafi tafist um of. Það
er rétt, að tafir hafa orðið, en
til þess hafa legið orsakir, sem
byggjendum húsanna voru óvið-
ráðanlegar. í fyrsta lagi má nefna
verkfallið í vetur sem leið. í
öðru lagi frost, sem töfðu og
trufluðu, og í þriðja lagi hefur
verið svo mikill skortur á mann-
afla, að ekki hafa fengist svipað
því nægilega margir menn til
vinnu við húsin.
Fyrstu 45 húsin eru að verða
fokheld, og er byggingu þeirra
hraðað eins og aðstæður frekast
leyfa.
(þróftaþing
C3 IIÚS í BYGGINGU
Gisli Halldórsson tók enn-
fremur fram, að nú væri verið
að vinna við 63 raðhús, sem (^j'
bæjarráð samþykkti í júní s. 1.
ingu raðhúsanna hraðað svo
sem unnt er. Bæði Þjóðviljinn
og Alþýðublaðið hafa birt
árásargreinar á meirihluta
bæjarstjórnar vegna þess, hve
byggingarnar gengju seint
en ekki hafa þessi blöð
viljað tilgreina neinar ástæð-
ur fyrir töfunum. Verkfallið
hefur t. d. aldrei verið nefnt
á nafn, ekki heldur skortur á
vinnuafli, sem öllum er þó (
kunnugt um. Ummæli G. H.
hér að ofan taka af öll tví-
mæli um það, hvemig bygg-
ingu raðhúsanna miðar, og
hverjar eru orsakir þeirra
tafa, sem átt hafa sér stað.
ÍÞRÓTTAÞING ÍSÍ verður sett í
dag kl. 2 síðdegis að Hlégarði í
Mosfellssveit. Þingið mun standa
laugardag og sunnudag. Tekinn
verður fyrir á því fjöldi mála er
snerta íþróttahreyfinguna i land-
inu.
Þingið sitja fulltrúar héraðs-
sambandanna víðsvegar á land-
inu. Hafa þeir verið að koma í
bæinn að undanfömu. — Vegna
þess að fundir eru haldnir að
Hlégarði, sem er um 15 km út úr
bænum, verður þingfulltrúum
séð fyrir fari og verður lagt af
stað frá skrifstofu ÍSÍ kl. 2 í dag.
Harðasfa umferðbi
15. UMFERÐ skákmótsins í
Gautaborg var tefld í gær og var
hún sú harðasta fram til þessa.
Aðeins einni af 10 skákum lauk.
Var það Unzicker sem vann
Sliwa, allt hitt voru biðskákir.
leikfélag Reykjavíkur sýnir
leikrif effir Agnar Þórðarson
Sfarfsemi télagsins hefsf um næsfu mánaðamóf
TJÓRN Leikfélags Reykjavikur átti viðtal við fréttamenn í
gær, en félagið er nú í þann veginn að hefja starfsemi sína.
að byggja skyldi. Verið er að Hefst starfsemin með því að teknar verða upp leiksýningar á leik-
steypa grunn og kjallara, og'ritjnu „inn og út um gluggann“, í byrjun október, en eins og
verður steypuvinnu haldið knnnugt er Var það leikrit sýnt í vor í Iðnó.
áfram eftir því sem veður
leyfir. Nú vinna 60—70 manns ISLENZKT LEIKRIT
jLeikurinn er gamanleikur í fjór-
að staðaldri við húsin með
þeim vinnuvélum, sem tiltæk-
ar eru.
Þessi hús eiga að verða fok-
held á næsta hausti. Fyrr getur
það ekki orðið, því engir bygg-
ingameistarar eða byggingarfélög
vildu taka að sér að hafa þau
íokheld fyrr. Byggingarfélagið
Bær h. f. sér um smíði húsanna.
Tilboð þeirra var næst lægst, en
það var tekið fram yfir lægsta
tilboðið vegna þess, að Bygginga-
félagið Bær h. f. vildi skuldbinda
sig til að gera húsið fokhelt fjór-
um mánuðum fyrr en lægstbjóð-
andi. í samningnum við félagið
er svo ákveðið, að það
greiða 500 kr.
Þar næst, eða um miðjan októ- j um þáttum og leikstjóri Gunnar
ber, tekur Leikfélagið til með-, Hansen, og mun hann einnig
ferðar nýtt íslenzkt leikrit og er
Agnar Þórðarson höfundur þess.
Uppvaxundi
kappor
UM þessa helgi gista tveir knatt-
spyrnuflokkar frá Akureyri Hafn-
arfjörð. Eru það 2. og 4. fl., en
í þeim síðartalda eru drengir 10—
skuli j 13 ára. Þeir keppa við Hafnfirð-
dagsektir fyrir j inga á íþróttavellinum í dag kl.
hvern þann dag, sem bygging : 4,30 og á morgun kl. 2.
dregst fram yfir það, sera samið I Vaknandi áhu ; er fyrir knatt.
er um. Allt er gert sagði Gisli1 ; Hafnarfirðinum. Fram
að lokum, til að hraða byggmgu ta þesga hafa þejr - firðinum l;tið
husanna sem mest og er vonandi spreytt si á knattspyrnu> en átt
að i vetur komi ekki neitt fynr, afbragðs handknattleikslið.
eins og í fyrra, sem a ovæntan
Síðustu 3 vikur hefur Albert
Guðmundsson knattspyrnukappi
þjálfað hafnfirzka drengi og er
heimsókn Akureyringanna einn
Eins og sést af ummælum liðurinn í þá átt að örva knatt-
Gísla Halldórssonar, er bygg- spyrnuiðkun í Hafnarfirði.
liátt verði til að tefja smíði hús-
anna.
Brezkur togari strandar
norðan á odda Langaness
IFYRRINÓTT strandaði brezki togarinn Daniel Quare yzt og
norðan á Langanesi, við Svínalækjartanga. Skipsmönnum öll-
um, 20 talsins, var bjargað í varðskipið Þór. Talið var óhægt um
vik að bjarga skipinu, þar sem allmikill leki virtist kominn að því.
Togari þessi, sem er frá Grims-
by, GY-279, er um 300 smálestir,
smíðaður 1936. Hann sendi út
neyðarkall um kl. 1,30. Ekki var
hvasst á þessum slóðum, en
rnyrkur og niðaþoka. Var enn
þoka þegar leið fram á morgun,
en .þá kom varðskipið Þór á vett-
vang. Lögðu varðskipsmenn út
báti um kl. 8 og björguðu allri
skipshöfn togarans.
LITLAR VONIR
UM BJÖRGUN SKIPS
Brezka varðskipið Pincher var
um þetta leyti fyrir Vestfjörðum,
en það lagði einnig af stað til
strandstaðar. Var ætlunin að
gera tilraun til að draga togar-
ann aftur á flot, en þó var útlit
fyrir björgun skipsins ekki væn-
legt. Það er skammt frá landi á
stórgrýttum flösum og er trúlegt
að það hafi skemmzt illa í botn-
inn, enda var kominn leki að skip
inu. Þegar leið á daginn versnaði
í sjóinn, þó enn væri veður frekar
stillt. Má því búast við að erfitt
verði síðar að bjarga skipinu.
verða leikstjóri tveggja annarra
leikrita félagsins í vetur. Leik-
ritinu hefur ekki ennþá verið
gefið nafn, en það fjallar um
nútíma viðfangsefni, og gerist
að mestu leyti í Reykjavík.
LEIKENDUR
Hlutverkaskipting hefur ennþá
ekki verið endanlega ákveðin,
þar sem æfingar eru ekki ennþá
hafnar, en leikendur verða 14.
Þessir leikarar hafa verið á-
kveðnir: Þorsteinn Ö. Stephen-
sen, Brynjólfur Jóhannesson,
Helga Bachmann, Árni Tryggva-
son, Einar Þ. Einarsson, Nína
Sveinsdóttir, Margrét Magnús-
dóttir, Áróra Halldórsdóttir og
Knútur Magnússon.
LEIKSKRÁIN FYRIR
VETURINN EKKI
ÁKVEÐIN
Leikskrá vetrarins er ekki
ennþá endanlega ákveðin, en
gert er ráð fyrir að sýnd verði
a m. k. fimm leikrit. Einar Páls-
son mun eins og að undanförnu
starfa hjá félaginu í vetur og
annast leikstjórn a. m. k. eins
leikrits og ef til vill fleiri. Að-
göngumiðaverð verður það sama
og verið hefur hjá félaginu.
UNDIRBÚNINGUR UNDIR
STARFSEMINA
Um þessar mundir er verið að
mála Iðnó innanhúss, en eins og
kunnugt er var húsið málað að
utan í vor. Þá hefur einnig verið
breytt ljósaútbúnaði og ýmsar
breytingar farið fram á sviði, og
skipt um fortjald. í ráði var að
skipta um sæti í húsinu, en af
því gat ekki orðið að þessu
sinni.
FJÁRÖFLUN TIL
HÚSBYGGINGAR
Félagið hefur sótt um lóð til
bæjarstjórnar til byggingar nýs
leikhúss og eru nú uppi ráða-
gerðir um fjáröflun í því skyni,
svo sem bílahappdrætti. Er fé-
lagið þegar búið að fá leyfi fyrir
happdrættinu og standa vonir til
þess að það geti hafizt í haust.
Tvær deildir á hinni dönsku bókasýningu: Ævinjinningar og bæk-
ur um heimilishald. Sýningin er sett upp á óvenjulegan og smckk-
legan hátt.
Kynni okkar af dönskum
bókmenntum hafa aukizt
5000 maiuu hafa sótf hina merfcilep
yfirlitssýningu í Listamannasfcálanum
IGÆRDAG höfðu 5000 manns skoðað hina dönsku bókasýningu
í Listamannaskálanum. Hefur sýning þessi tekizt afbragðs vel
og er nú ljóst, að hún hefur mikla þýðingu í þá átt að kynna
okkur íslendingum danskar bókmenntir og bókaútgáfu almennt.
Nú er sýningu þessari að ljúka. Stendur hún yfir aðeins í dag og
á morgun. Sem kunnugt er standa tvær bókaverzlanir hér í bæn-
um, Bókaverzlun ísafoldar og Norðri, að henni.
Fréttamaður Mbl. gekk um
stund út á bókasýninguna í gær
og ræddi við þá Oliver Stein og
Grím Gíslason, verzlunarstjóra,
um sýninguna.
YFIRLIT YFIR ALLA
BÓKAÚTGÁFU DANA
Þeir skýrðu frá því að margir
sýningargestir hefðu látið í Ijósi
ánægju sína yfir því, að þarna
væri yfirlit yfir næstum alla
bókaútgáfu Dana. Munurinn er
sá, að bókaverzlanirnar hafa und
anfarin ár lítið meira flutt inn af
erlendum bókum en það sem þær
töldu öruggt að seldist. Með þessu
móti hafi bðkaútgáfan færzt í
vissar skorður, sem í rauninni
gerðu bókamönnum erfitt um vik
að fylgjast með nýjungum.
Á þessari bókasýningu
gegndi allt öðru máli. Það var
næstum allt tékið með, svo að
sýningargestvua hefur í fyrsta
skipti gefizt tækifæri til að
velja og hafna. Og við höfum
komizt að því, sögðu þeir Oli-
ver og Grímur, að mikill á-
hugi hefur verið fyrir ýmsum
bókum, sem okkur hefði ella
varla dottið í hug að flytja
inn. Sérstaklega kom það okk-
ur á óvart, hve mikil eftir-
spurn er eftir ljóðabókum.
Sjáið t.d. hérna er sérstök út-
gáfa af ljóðum helztu nýlifandi
Ijóðskálda Dana. Safnið nefnist
„Gyldendals nyklassiske lyrik-
serie“. Þar eru t.d. úrval kvæða
eftir Sophus Claussen, Ludvig
Holstein, Johannes V. Jensen,
Axel Juul, Johannes Jörgensen,
Tom Kristensen, Poul la Cour,
Per Lange, Nils Petersen, Helge
Rode og Hans Hartvig Seedorf.
Þetta safn hefur notið mikilla
vinsælda sýningargesta og hefur,
fjöldi fólks pantað þær.
BARNABÆKUR
OG FERÐASÖGUR T
Það kom einnig á óvart, hvð
dönsku bama- og unglingabæk-
urnar seldust vel. Ferðasögubæk-
ur hafa að sjálfsögðu verið eftir-
sóttar, einkum bækur Aage Kar-
up Nielsens. Einnig bækur um
heimilishald, útsaumsbækur og
handbækur og svo æfisögur. Af
skáldsagnahöfundum er Martin
A. Hansen vinsælastur.
Þannig fórust forstöðumönnum
sýningarinnar orð.
Stöðugur straumur sýningar-
gesta hefur verið inn í Lista-
mannaskálann og eru nú aðeina
tveir sýningardagar eftir. Sýn-
ingunnilýkur á sunnudagskvöld
og verða bækurnar þá sendar aft-
ur til Danmerkur.
Lítill affi frillubáta
AKRANESI, 9. sept. — 4 trillu-
bátar reru héðan í dag. — Afli
þeirra var 350—650 kg á bát. —
Afli trillubáta hefur verið mjög
lítill í allt sumar. — Oddur.