Morgunblaðið - 24.09.1955, Síða 16
Veðurúflif í dag:
A-kaldi. Skúrir.
217. tbl. — Laugardagur 24. september 1955
Útvarpsfóqliifarmenn j
f
á Vestfjörðum. Sjá grein á bls. 9.
Þurrkvikan hefir forSað veru*
legu hruni í búsfcíni bænda
Þé óvísf sé, hvernig gengur að féðra
gripina á hröktum heyforða
SELJATUNGU, 23. sept.
HÉR HEFIR nú brugðið til votviðra aftur eftir viku þurrk, sem
kom þó mánuði of seint. Slætti er og að Ijúka hjá bændum,
enda langt liðið á septembermánuð og jörð öll tekin að sölna.
Nokkrir eiga hey úti ennþá, aðallega í sæti, en það eru helzt
þeir, sem slegið hafa getað á engi núna eftir þurrkvikuna. Vonir
etanda til að þetta hey náist inn fljótlega, ef ekki rignir því
meira. —■
Óperan „Töframaðurinn
44
ÞURRKVIKAN
BJARGAÐI MIKLU
Mjög hefir ástand með hey-
skap breytzt hér síðan á fyrstu
dögum mánaðarins og má
fullyrða að þurrkvikan hafi
forðað verulegu hruni í bú-
stofni bænda hér um slóðir.
Enginn veit hinsvegar ennþá,
hvernig gengur að fóðra grip-
ina á hinum mjög hrakta hey-
forða, en þar treysta bændur
á að fóðurbætirinn bæti veru-
lega úr. Telja má að gefinn
verði helmingi meiri fóður-
bætir á vetri komanda en und-
anfarið hefir verið gert,
SKEIÐARETTIR
í dag eru hinar landfrægu
Skeiðaréttir haldnar og sækja
bændur úr Flóa og Skeiðum fé
sitt þangað, er nú kemur af af-
rétt eftir langt og erfitt sumar.
Svo virðist sem Skeiðaréttir séu
nú í vitund fólksins hér að end-
urheimta sína gömlu frægð, en í
mörg ár lágu þær að heita mátti
niðri sökum fjárfellanna, sem
meinaði Flóamönnum að nota af-
rétti sína. Nú er hinsvegar nýr
fjárstofn kominn, hraustur og af-
urðagóður, sem vakið hefir nýjar
vonir í hugum þeirra, er hans
njóta. Áreiðanlega hefir síðast-
liðin nótt verið lengi að líða í
huga fjölda barna og unglinga,
sem talið hafa stundirnar, bar til
lagt yrði af stað í Skeiðarétt, til
þess þar að sjá, hvort vinirnir,
sem í afréttinum hafa dvalið,
hafi mætt, en að sjálfsögðu skipt-
ast þar á uppfylltar óskir og
brostnar vonir svo sem annars-
staðar í hinu daglega lífi.
SLÁTRUN HAFIN
f þessari viku hófst slátrun
dilka í sláturhúsi S.Ó. Ólafssonar
& Co. á Selfossi. Hefir þegar ver-
ið slátrað þar nokkrum hundruð
dilkum og reynast þeir í meðal-
lagi vænir. Dilkar þessir hafa
gengið í heimahögum í sumar.
— G. S.
Sjö vistmenn brátt
á Kvíabryggju
Shirnla sjóróðra ov búskap
NÚ dveljast 5 vistmenn á hæli því, sem Reykjavíkurbær hefur
komið upp fyrir óskilvísa barnsfeður á Kvíabryggju á Snæ-
íellsnesi. Sitja þeir þar og vinna fyrir áföllnum meðlögum sínum
á Dagsbrúnartaxta, sem þeir hafa trassað að greiða undanfarin ár
og mánuði. Liggja háar upphæðir á sumum þeirra, allt að 40—50.000
krónum. Tveir barnsfeður bíða farar vestur í fangahúsinu hér í
bæ og verða vistmennirnir því alls 7 talsins á næstunni.
KEYNST VEL
Hæli þetta hefir þegar reynzt
mjög vel, þar sem það hefir kom-
ið fjölmörgum óskilamönnum til
þess að greiða meðlög sín. Af
þeim 17, sem bærinn bað um að
sakadómari úrskurðaði á Kvía-
bryggju í fyrstu atrennu greiddu
allir nema einn skuldir sínar.
Hann fór vestur. Síðan bárust
sakadómara um 30 úrskurðar-
beiðnir í annarri atrennu og
hækkaði þá vistmannatalan í sjö.
Á einn vistmaðurinn m. a. 8
börn með sex konum sem bærinn
liefir greitt með.
Bæjaryfirvöldin hafa skýrt frá
því, að mjög hafi gengið betur að
innheimta meðlög óskilvísra
barnsfeðra, eftir að hælið tók til
r.larfa,
VONANDI AUTT
Telja ráðamenn það óskandi að
hælið verði í framtíðinni sem
mannfæst, helzt autt, en allir
greiði skúldir sínar. Alls hefir
bæjarsjóður tapað um hálfri
þriðju milljón undanfarin ár á
óskilvísum barnsfeðrum.
EIGNAST BÁT
Vistmenn stunda nú heyskap
af kappi fyrir vestan. Þá hafa
þeir og unnið að því að bæta veg-
inn frá þjóðveginum til hælisins,
en það er um 2 km. leið. Hælið
eignast brátt trillubát og verða þá
sjóróðrar hafnir. Alls eru 5 starfs
menn á hælinu og er forstjórinn
Ragnar Guðjónsson.
AÐ NORÐAN?
Akureyri og fleiri bæjarfélög
hafa beðið um að mega senda
sína óskilamenn á þennan ágæta
stað og hraða með því innheimtu
barnsmeðlaga. Ekki mun enn
hafa verið tekin ákvörðun um
hvort svo verður.
Beflifn-lítrínn hækk-
ar um 3 aura
BENZÍN-lítrinn hækkar frá
og með deginum í dag um 3
aura, þannig að hann kostar
nú kr. 1,75. Hliðstæð hækkun
verður á ljósaoiíu og hráoliu.
Hinsvegar hækkar togaraolía
og smurningsolíur ekki.
Hækkun þessi stafar ein-
göngu af farmgjaldahækkun
og hækkun á olíuverði er-
lendis, en engin hækkun hefir
orðið á benzíni og olíum á
þessu ári vegna launahækk-
ana.
Söngvararnir í óperunni: Magnús Jónsson, Þuríður Pálsdóttir, Einai' Pálsson leikstjóri og Krist-
inn Hallsson.
Gjaldeyrisálafl;
eða uppbætur
á útfluttar land-
búnaðarafurðir
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið,
að beita sér fyrir uppbótum á
útflutt kjöt, gærur og ull af
þessa árs framleiðslu, hliðstæðum
þeim, sem bátaútvegurinn fær á
útfluttar fiskafurðir, annaðhvort
með gjaldeyrisálagp eða útflutn-
ingsuppbótum.
Enginu afli
Keflavíkurbáta
KEFLAVÍK, 23. sept. — Afli
báta var lítill sem enginn í dag,
þrátt fyrir bezta veiðiveður.
Nokkrir bátar komu ekki inn
vegna þess að þeir fengu ekkert.
Einn bátur er nú hættur veið-
um. Fer hann í byrjun næstu
viku til Þýzkalands, en þar verð-
ur sett í hann ný vél. Er þetta
m.b. Nonni. Eigandi hans er
Hreggviður Bergmann, Keflavík.
—Ingvar.
Iðimemaþingið
Mildl hrifning
í Leikhúsi Heimdallar
Töframaðurinn eftir Mozart
frumsýndur í gærkvöldi
IGÆRKVÖLDI var fumsýning í Leikhúsi Heimdallar á óper-J
unni Töframaðurinn eftir W. A. Mozart. Sjálfstæðishúsið vap
þétt skipað áhorfendum, sem tóku óperunni forkunnar vel. —
Söngur þeirra Kristins Hallssonar, Magnúsar Jónssonar og Þuríðac
Pálsdóttur vakti geysi hrifningu. j
sett í dag
13. ÞING Iðnnemasambands ís-
lands verður sett í Hamarshús-
inu við Tryggvagötu kl. 2 í dag.
Búizt er við að 35—40 fulltrúar
sæki þingið frá öllum iðnnema-
félögunum í sambandinu. Eru
þau alls 9 talsins.
Á þinginu verður rætt um
hagsmunamál iðnnema, og þá
einkum um launamál þeirra og
Iðnskólaríiálið.
Þingið stendur í tvo daga, laug
ardag og sunnudag. Forseti sam-
bandsins er nú Ingvaldur Rögn-
valdsson.
Meistaramót
Reykjavíkur
í frjálsíþróttum
í DAG klukkan 2 e. h. hefst aðal-
hluti Meistaramóts Reykjavíkur
í frjálsíþróttum á íþróttavellin-
um. — Mótið heldur svo áfram
n.k. mánudag kl. 6,15.
Keppnisgreinar í dag: 400 m
grindahlaup, 200 m, 800 m, 5000
m hlaup, kúluvarp, spjótkast,
hástökk og langstökk.
Mánudagur: 110 m grind, 100
m, 400 m, 1500 m hlaup, stangar-
stökk, þrístökk, sleggjukast og
kringlukast.
Happdrætti IÍR
og Armanns
í GÆRKVÖLDI var dregið í
happdrætti KR og Ármanns. —
Þessi númer hlutu vinningana:
Bifreiðin kom á nr. 30848. Flug-
far til Norðurlanda á nr. 1949.
Skipsferð tii Kaupmannahafnar
á nr. 40322.
Aðeins var dregið úr seldum
miðum.
Særðist á böfði
í GÆR vildi það slys til að mað-
ur einn féll í götuna á Njáls-
götunni og skarst hann nokkuð
á höfði. — Var hann fluttur í
sjúkrahús og þar gert að sárum
hans sem ekki voru hættuleg.
♦æskuverk SKÁLDSINS
Þriðja og síðasta viðfangsefnl
Leikhúss Heimdallar á þesstl
leiksumri er eitt af yndislegustu
verkum Mozarts, gætt miklum
gáska og kátínu. Verk þetta, sem
er eitt af æskuverkum tónskálda
ins, hefir á undanförnum árum
verið sýnt víða á meginlandí
Evrópu við feikna vinsældir. Á!
frumsýningunni í gærkvöldl
benti allt til þess að sama raun
yrði á hér á landi. f
ÓSPART HTLLTIR
TÚLKUN söngvaranna var með
ágætum svo og leikur hljómlist-
armanna undir forystu Björnj
Ólafssonar.
í leikslok voru söngvararniJI
hylltir óspart ásamt leikstipran-
um Einari Pálssyni, Birni Ólafs-
syni og Fritz Weishappel, sem
hafði æft söngvarana. BárusJ
þeim fjóldi blóma.
Næsta sýning óperunnar verð-
ur n. k. sunnudag. i,
Flutningapramma með
fveimur jarðýtum hvolfir
á ísafjarðardjúpi
SÁ EINSTÆÐI atburður gerðist norður á tsafjarðardjúpi i
fyrrakvöld, að flutningapramma hvolfdi þar með tvær
jarðýtur. Höfðu þær verið fluttar út í prammann á Eyrl
í tsafirði. Tók hann þá skyndilega að hallast og hvolfdi
síðan á nokkrum sekúndum áður en nókkrum vörnum yrði
við komið. Var pramminn 60 m. frá landi. En mjög aðdjúpt
er þarna og Iiggja ýturnar þarna á 10 faðma dýpi. Björg-
unartilraunir voru ekki hafnar i gærkvöldi er blaðið hafði
fregnir þaðan að vestan.
Ýtur þessar hafa verið notaðar við vegagerð í sumar yfir
fjallið milli ísafjarðar og Mjóafjarðar. Átti nú að flytja
þær út í Ögursveit til vegagerðar á þeim slóðum. Áður
höfðu verið fluttar þangað vörubifreiðar og önnur vega-
gerðartæki.
Ýturnar voru vátryggðar en gert er ráð fyrir að unnt
reynist að bjarga þeim.
Talið er að flotholt hafi bilað á annari hlið flutninga-
prammans. Veður var ágætt er þetta gerðist.