Morgunblaðið - 14.10.1955, Side 1
16 síður
„Einar Olafsson
Heldur stjórn
Faures velli?
Forsætisráðherrann mun leggja
fram lausnarbeiðni sina, verði
" \ hafsnauð út af írlandi
Mikill leki. Úvíst um björgun
ÍSLENZKT skip, Einar Ólafsson, 300 tonna flutningaskip héðan úr
Reykjavík, var statt í hafsnauð út af írlandi, þegar síðast fréttist. Mikill leki
var kominn að skipinu. Þrjú kanadisk herskip og margar flugvélar voru á
leið á vettvang, þegar síðast fréttist, en höfðu ekki enn náð til hins nauð-
stadda skips, samkvæmt fréttum BBC á miðnætti í nótt. Átta manna áhöfn
var á skipinu, en skipstjóri var ólafur Stefánsson.
stefna stjórnarinnar i Algier gagnrýnd
PARÍS, 13. okt. — Reuter-NTB
FRANSKI forsætisráðherrann Edgar Faure berst nú fyrir því að
bjarga samsteypustjórn sinni frá falli, en hún er — eins og
kunnugt er — all hætt komin í umræðunum um Algier-málin í
franska þinginu. Búizt er við, að atkvæðagreiðsla um Algiermálin
fari fram á þingfundi seint í kvöld eða í nótt, og bíða menn úr-
siitanna með mikilli eftirvæntingu.
Faure mun ekki gera samþykkt
stjórnarstefnunnar í Algier-mál-
unum að fráfararatriði. En sam-
þykki þingið að gagnrýna stefnu
stjórnarinnar í Algier, mun for-
sætisráðherrann þegar leggja
fram lausnarbeiðni sína. Vill
stjórnin, að Algier og Frakkland
verði tengd fastari böndum stjórn
málalega, og franska stjórnin
gangist fyrir félagslegum og efna-
hagslegum umbótum í Algier.
★
Jafnaðarmenn hafa komið á
framfæri vantrauststillögu á
stjórnina, vegna stefnuleysis
hennar í Algiermálunum, og
beinist athygli manna einkum
að henni. Það voru jafnaðar-
. menn, sem studdu stjórnina í
umræðunum um Marokkó, en
i Algiermáiunum eru þeir and
vígir Faure — einkum vegna
þess, að stjórnin vill gera
Algier enn háðara Frakklandi.
í umræðunum í kvöld hvatti
forsætisráðherrann stjórnina til
að sambykkja áætlun, sem stjórn-
in heitir að koma í framkvæmd.
Er áætlun þessi í fjórum höfuð-
atriðum og kölluð Soustelle-
áætlunin, kennd við landstjórann
Jaques Soustelle. Er þetta bráða-
birgða áætlun, sem miðar að því,
að efla atvinnulíf landsins, fé-
lagslegar framkvæmdir og
tryggja frjálsar kösningar í
Algier.
★
Faure sagði í ræðu sinni í dag,
að Algiermálin séu umfangs-
mesta og erfiðasta vandamálið,
sem Frakkar eiga nú við að
stríða. Áleit hann, að Frakkar
yrðu fyrst og fremst að vinna
að bættum efnahag landsins —
efling eínahagslífsins yrði að sitja
í fyrirrúmi fyrir stjórnmálaleg-
um framförum.
Efla yrði iðnaðinn og auka land
búnaðinn. Hét hann því, að bætt
yrðu kjör þeirra 300 þúsund
Algierbúa, sem vinna hjá frönsk-
um iðnfyrirtækjum í Algier. —
Auðveldað yrði innfæddum mönn
um að fá
ríkisins.
embætti í þjónustu
Innlimun Algier hefði það i för
með sér, að Algier myndi tilheyra
Frakklandi áfram, en stjórnin
mun gangast fyrir því; að ýmsar
þjóðfélagsstofnanir — svo scem
löggjafarþingið — héldust ó-
breyttar og færðu út starfsemi
sína msð tímanum.
-3>
1200 manns
farnst í flóðum
NÝJU DELHI, 13. okt.: — Talið
er, að um 1200 manns hafi farizt
í hinum miklu flóðum, er nú
geisa í norð-vestur hluta Ind-
lands. í Punjab-héraðinu hafa um
1000 manns farizt. Baðmullar-
uppskeran á þessu svæði mun
vera eyðilögð að miklu leyti, mik-
ið tjón hefir orðið á búfénaði, um
250 þús. hús munu hafa eyðilagzt.
Heilbrigðisyfirvöldin hafa sent
hjálparsveitir á vettvang .— eink-
um til að sótthreinsa brunna og
reyna þannig að koma í veg fyrir,
I að kólera breiðist út.
Það var á hádegi í gærdag,
sem loftskeytastöðinni á
norðurodda írlands, Malin
Head barst neyðarskeyti frá
loftskeytamanninum á Ein-
ari Ólafssyni. Skýrði hann
frá því, að leki væri kominn
upp í vélarrúmi skipsins og
bað hann um, að nærstödd
skip kæmu þeg'ar í stað til
hjálpar-
! Þá var Einar Ólafsson staddur
um 200 mílur norð vestur af ír-
landi. Var skipið á leið til Bilbao
á Spáni með saltfiskfarm.
Það næsta sem gerist, er sam-
kvæmt frásögn brezka útvarps-
ins, að skipið sendir annað neyð-
Skagaströnd — eitt af málverkum Kjarvals á sýningunni.
List Kjarvals 7905-7955
Sýning opnuð í dag
á verkum hans til
heiðurs honum sjötugum
I
arkall út kl. 3 e. h. Var þá gefin
upp staðarákvörðun 200 mílur
norðvestur af Londonderry á ír-
landi.
Þrjú kanadisk beitiskip, sem
hafa verið í flotaheimsókn í írsk-
um höfnum, héldu um það leyti
hinu nauðstadda skipi til aðstoð-
ar. Þá voru sendar upp flug-
vélfar frá bækistöðvum brezka
flughersins í Norður-írlandi. —
Veðurathugunarskip, Explorer
að nafni hélt og Einari Ólafssyni
til hjálnar.
Flugvélarnar leituðu að skip-
inu í ratsjám sínum, þar sem
þykk þoka var skollin á. Um kl.
6,30 í gærkvöldi var eitt kanad-
iska herskipið, Prestonian, kom-
ið á slóðir Einars Ólafssonar, ea
fann ekki skipið.
Kl. 7 sendi Einar Ólafsson
loftskeyti> sem stöð í landi
náði, þar sem loftskeytamað
urinn skýrir frá því, að skip
verjar hafi séð eina leitar-
flugvélina fljúga yfir skipið
hálfri stundu fyrr og hafi
skipverjar gefið henni ljós-
merki.
Jafnframt skýrði hann
frá því, að lekinn væri að
aukast í vélarrúminu og bað
aftur um aðstoð þegar í stað.
Þetta skeyíi er þao síðasta, sem
um miðnætti í nótt hafði heyrzt
frá skipinu, samkvæmt fregnum
BBC á miðnætti. Var þá að
hvessa á þeim slóðum, sem skip-
ið var statt á, en leitarskipin
komin þangað út.
Morgunblaðið sendi hraðskeyti
til Reutersfréttastofunnar kl.
10,30 í gærkvöldi og spurðist fyr
ir um frekari fregnir en kl. 1 í
nótt, þegar blaðið fór í pressuna,
hafði ekkert svar borizt.
Frh. á bls. 12.
Sýningin verður opnuð
boðsgesti kl. 2 í dag.
BEIRUT, 13. okt. — Ráðstjórn-
arríkin hafa tjáð sig fús til að
auka viðskipti sín við Líbanon
og boðizt til að veita Líbanon
alla þá aðstoð — tæknilega og'4. GÓÐUR HEILDARSVIPUR
efnahagslega, sem ríkið þarf á að, Blaðamenn áttu í gær kost. á
halda. Tiboð þetta var gert, er að skoða sýninguna og skemmst
rússneski sendiherrann í Beirut frá að segja er sýningin mjög
og forsætisráðherra Líbanon, fjölbreytt og heildarsvipur henn-
Rachid Karame ræddust við í gær, ar góður. Allir salir listasafns-
morgun. 1 ins eru teknir undir sýninguna
D A G klukkan fjögur verður opnuð almenningi sýning á um
200 listaverkum Jóhannesar Kjarvals. Sýningin verður í sölum
Listasafns ríkisins í Þjóðminjasafnsbyggingunni. Er það mennta-
málaráð sem stendur að sýningunni og er til hennar efnt til heið-
urs Kjarval, sem nú stendur á sjötugu. Aðgangur að sýningunni
verður ókeypis og er hún opin frá kl. 1—10 síðdegis alla daga.
fyrir og þar munu vera samtals eitt-
hvað rúmlega 200 myndir.
♦ FJOLBREYTT SYNING
Valtýr Pétursson og Þor-
valdur Skúlason hafa valið mynd
irnar er á sýningunni eru og
komið þeim fyrir. Valtýr sagði
blaðamönnum í gær að þeir hefðu
Frh. á bls. 2.
Síðustu iréttírF
KL. 1.15 I NÓTT barst Mbl. eftirfarandi svarskeyti við fyr-
irspurn um leitina frá Reuter:
„Herflugvélar brezka flotans vísuðu kanadisku beitiskip-
unum leið til þess svæðis, sem Einar Ólafsson var staddur
á síðari hluta dags í dag. Flugvélar frá flugstöð flotans í
Ballykelly komu auga á skipið í kvöld. — 20 manns eru á
Einari Ólafssyni (hér mun vera um misskilning hjá frétta-
stofunni að ræða. — Mbl.). Skipið sendi enn eitt skeyti í
kvöld, sem hljóðaði svo: Mikill leki, sendið strax hjálp.
Leitarflugvélarnar skýra svo frá að skipið sé þó EKKI í
bráðri hættu að sökkva. Áætlað var að beitiskipin kæmu til
togarans um miðnætti.
Staðarákvörðun skipsins er: 56 gr.
12 gráður vestlægrar Iengdar.“
norðlægrar breiddar,