Morgunblaðið - 16.10.1955, Síða 16
Veðorúfilt f im
N-kaldi. Víða léttskýjað.
Wi0íiS!#!teM
236. tbl. — Sunnudagur 16. október 1955
Reykjavíkurbréf
á bls. 9.
Menntaskólinn á Akureyri
settur að IVIöðruvöllum í yær
75 ár liðin frá fyrstu skólasetningu þar
MENNTASKÓLINN á Akureyri var settur í gær. Fór setningar-
athöfnin að þessu sinni fram að Möðruvöllum í Hörgárdal
í tilefni af því að í haust eru liðin 75 ár frá því að Möðruvalla-
skóli var settur í fyrsta sinn. Meðal viðstaddra var Bjarni Bene-
diktsson, menntamálaráðherra og fleiri gestir, auk fjölda nemenda
skólans, yngri og eldri, þar á meðal nokkrir nemendur úr Möðru-
vallaskóla.
Athöfnin hófst með guðsþjón-
ustu í Möðruvallarkirkju. Sr. Sig-
urður Stefánsson, prófastur, pré-
dikaði. Þórarinn Björnsson, skóla
meistari, raikti sögu skólans' og
minntist forvígismannanna. Hann
las m. a. kafla úr fyrstu skóla-
setningarræðu Jóns A. Hjaltalíns,
skólameistara 1880.
Mennlainólaráðherra flutli
skólanum heillaóskir og afhenti
honum, fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar, mólverk af séra Arn-
Ijóti Óla fssyni, er var forvígis-
maður skólastofnunarinnar. —
Hefur Örlygur Sigurðsson gert
mólverk þetta eftir frummynd
Sigurðar Guðmundssonar mál-
ara.
Þá rakti Steindór Steindórsson,
yfirkennari, sögu Möðruvalla og
lýsti staðnum.
í gærkveldi var hóf í heimavist
M. A., í tilefni þessara tímamóta
í sögu skólans.
A-flokkur happdræff, Sííus,u w'wleikhuss Heim<lallar
isláns ríkissfóS;
DREGIÐ var í A-flokki happdrætt
isláns rikissjóðs í gær. Hæstu vinn
ingarnir eru sem hér segir:
75 þús. kr. vinningurinn kom á
nr. 137.051. — 40 þús. kr. á númer
56,290. — 15 þús. kr. 115,280. —
10 þús. kr. vinningarnir á númer
14,317, 55,479 og 57,158.
Trausf V erzlunarskóla
Buenntun helur skapað
góða verzlunurstétt
Frá hátíðahöldum Verzlunar-
skólanerna í gœr
VERZLUNARSKÓLANEMAR efndu í gær til margháttaðra
hátíðahalda í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Kl. 10 f. h. hófst
hátíð í Þjóðleikhúsinu, þar sem fram fór söngur og hljóðfæra-
leikur, fulltrúar hinna ýmsu verzlunarsamtaka í landinu og nem-
enda í skólanum fluttu ávörp og skólastjórinn dr. Jón Gíslason
fiutti setningarræðu.
★ SETNIN GARKÆÐAN
Hann ræddi í fyrstu um al-
menna fræðslu og sérmenntun og
kvað nauðsyn sérmenntunarinn-
ar hafa til komið með iðnbylting-
unni og breyttra atvinnuhátta er
íylgdu í kjölfar hennar. Blóm-
legri verzlun hefur ávallt fylgt
blómlegt menningarlíf, sagði
skólastjórinn og nægir til sann-
inda þessr að geta þess, að á gull-
öldinni flutu „skrautbúin skip
fyrir landi, færandi varninginn
heim“.
Skólastjórinn kvað ekkert starf
verða leyst af hendi svo að vel
færi, nema menntun kæmi til og
menntun væri ekki kvað sízt
nauðsyn í sambandi við verzlun.
Hann minntist síðan áfanga í
sögu skólans, hvar skólinn hefði
verið til húsa o. s. frv., en sú
saga er lesendum kunn af grein
í blaðinu í gær.
Við erfiðar aðstæður hefði skól
inn þróast og vaxið. Það hefði
ekki hvað sízt orðið fyrir það, að
á öllum tímum hefðu nemendur
notið traustrar menntunar í skól-
anum.
Skólastjórinn drap á núsnæðis-
vandræði skólans og kvað lausn1
þess máls vera óskadraum allra
sannra verzlunarunnenda á fimm
tuga afmæli skólans. Dr. Jón
kvaðst sannfærður um að með
rekstri skólans væru menn á
réttri braut. Skólinn væri fylli-
lega sambærilegur hinum beztu
verzlunarskólum, nema hvað
helzt skorti námskeið í ýms-
um sérgreinum verzlunar, en það
mundi leysast með auknum húsa-
kosti skólans.
Að lokum kvaðst skólastjórinn
vona, að Verzlunarskólinn yrði
alltaf sjálfum sér til sóma, nem-
endum dl bleSsunar og landi og
þjóð til heilla.
saman við skólahúsið við Grund-
arstíg. Þar fluttu ávörp Friðrik
Þórðarson og Valgarð Briem. •—
Lúðrasveit lék og skólinn var
hylltur. Ekkert varð úr hátíða-
göngu til skólahússins við Vest-
urgötu, en athöfnin á Grundar-
stígnum var þó hátíðleg og fór vel
frama.
umferðir feíldar
í SjálhfæSishúsinu
ÞAR SEM sýnt þykir að næstu
umf erðir haustmóts Taf lf élags
Reykjavíkur verði skemmtilegar
og þar sennilega ráðin úrslit
mótsins, hefir verið ákveðið, að
teflt verði í Sjálfstæðishúsinu.
Má búast þar við fjölda áhorf-
enda.
7. umferð verður tefld þar á
mánudagskvöld og 8. umferð á
þriðjudagskvöld.
í 7. umferð eigast við: Ingi og
Pilnik, Baídur og Ásmundur,
Guðm. Ág. og Guðm. Pálmason,
Þórir og Arinbjörn og Jón Ein-
arsson og Jón Þorsteinsson. ■— í
8. umferð: Guðm. Páimason og
Ingi, Þórir og Pilnik, Ásmundur
og Jón Þorsteinsson, Arinbjörn
og Jón Einarsson og Baldur og
Guðm. Ágústsson.
Staðan er nú þannig: Ingi 5.
vinninga, Guðm. Pálmason og
Pilnik 4 hvor og biðskák sín á
milli, Baldur 3, Þórir 2Vz og bið,
Guðm. Ág. 2V2, Jón Þorsteinsson
2 og bið, Arinbjörn 2. Jón Ein-
arsson og Ásmundur 1 og biðskák
sín í milli. — Biðskákir verða
tefldar núna um helgina.
rr
Nýja „Laxfoss
SKIPI ÞVl, sem Skallagrímur h.f.
er að láta smíða í Marstal-skipa-
smíðastöðinni í Danmönku, verður
hleypt af stokkunum 28. þ.m. og
verður þá gefið nafn.
Skip þetta verður haft í flutn-
ingum milli Reykjavíkur, Akra-
ness og Borgarness, og kemur í
stað Laxfoss.
Minnisvarði um þár er fsrizf
hafa í flugslysum, afhjúpaður
GÆR var afhjúpaður minnisvarði, er Flugmálafélag íslands
gekkst fyrir að reistur yrði í Fossvogskirkjugarði um þá ís-
lendinga, er látið hafa lífið í flugslysum. Athöfnin hófst með guðs-
þjónustu í Fossvogskirkju. Sr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup, hélt
minningarræðuna, en Dómkirkjukórinn söng.
I
Leikhús Heimdallar er nú senn að ljúka starfsemi sinni, enda er
sumarið að kveðja og hin leikhúsin að hefja sýningar. Er þvíi
orðinn hver síðastur að sjá óperuna „Töframanninn“ eftir MozarK
Operan verður sýnd í Sjálfstæðishúsinu í kvöld, og er það næst-
síðasta sýning hennar.
MikiÖ ijöimenni hyliti
MáhelsverÖSannts-
skáldiÖ
Faulkner las úr óprentaSri skáldsögu
Þ
EGAR Stúdentafélag Reykjavíkur kynnti Nóbelsverðlauna-*
tíðasalur Háskólans þéttsetinn, svo margir urðu að standa.
þessi mikli rithöfundur ákaft hylltur af mannfjöldanum.
Vac
SKALD OG BONDI
* Það var sagan „Jómfrú Emilía“a
Samkoman hófst með því að Guð <.®n þessi stutta saga felur í sel
mundur Benediktsson, formaður ‘ýmis þau kennimerki um frásagn-t
Stúdentafélagsins setti hana. — <arsnilld Faulkners, sem grípa les*
Bjarni Guðmundsson blaðafull-^anúann.
trúi, kynnti rithöfundinn fyrir á-* , ’ ’
heyrendum. Benti hann á Faulkn-^VANDAMÁL BANDARISKA
er væri í senn skáld og bóndi, en iÞJÖÐFÉLAGSINS
slíkt væri algengt hér á landi. —" Heiðursgesturinn reis nú aftOT
Þannig hefði Egill Skallagríms- <ár sæti sínu og las kafla úr
son bæði verið, einnig Snorri Jprentaðri bók, sem hann vinnuP
Sturlusoon og siðast mætti nefnajnn að og á að nefnast „Americaia
Stephan G. Stephansson. ,Dream — what has happened tct
Þá flutti heiðursgesturinn*it“. Er það heimspekileg og praks
stutt ávarp. Fagnaði hann því jtísk saga um vandamál banda«
að hafa tekið þó ókvörðun að *ríska þjóðfélagsins. ^
hcimsækja íslands. Hann hefði < ,
ekki orðið fyrir vonbrigðum. *TRU SKÁLDSINS Á LÍFIÐ
Eitt af því sem gerði lioniim
komuna hingað sérstaklega eft
irminnilega, væri að liann hefði
nú komizt að því, að íslending-
ar hefðu geymt það bezt allra,
sein varð uppliaf engilsaxneskr
ar menningar.
SMÁSAGA EFTIR FAULKNER
Séra Sveinn Víkingur las upp
eina smásögu eftir heiðursgestinn.
★ VIÐ SKÓLAHÚSIÐ
Síðdegis söfnuðust nemendur
Að kirkjuathöfninni lokinni var
gengið út að minnisvarðanum,
sem stendur rétt við kirkjuna. —
Þar ávarpaði Hákon Guðmunds-
son, hæstaréttarritari, viðstadda
fyrir hönd Flugmálafélagsins, og
bað einn af fyrstu flugmönnum
landsins, Agnar Kofoed-Hansen,
að afh júpa minnisvarðann, en flug
málastjóri lagði síðan blómsveig
að honum fyrir hönd flugmála-
stjórnarinnar. Þá flutti séra
Bjarni Jónsson bæn og athöfninni
lauk með því, að dómkirkjukórinn
söng „Faðir andanna“. /
Athöfn þessi var mjög virðu-
leg. Meðai viðstaddra voru for-
setahjónin, biskup Islands, vanda
menn og vinir þeirra, er látizt
hafa í flugslysum og forvígismenn
flugmála.
Minnismerkið er eftir Einar
Jónsson, og er það meðal síðustu
verka, er hann vann að. Var því
valinn staður í samráði við lista-
manninn.
Stúdentafélagið heldur
fund um blaðamennsku
★ í dag heldur Stúdentafé-
lag Reykjavíkur umræðufund
í Sjálfstæðishúsinu um blaða-
mennsku á íslandi í dag. En
frummælandi verður Sr. Sig-
urður Einarsson skáld í Holti.
Hefst fundurinn kl. 2,30. — Á
eftir verða frjálsar umræður
um þetta mál.
★ Stúdentafélagið heldur
enn sem fyrr uppi víðtæku fé-
lagsstarfi. í gær kynnti það
bandaríska rithöfundinn Willi-
am Faulkner fyrir bæjarbú-
um, og innan tíðar mun fé-
lagið hafa óvenjulegan
fræðslufund.
Á Fræðslufundurinn á að
fjalla um kjarnorkuna og
flytja þar fyrirlestra Magnús
Magnússon eðlisfræðingur og
Þorbjörn Sigurgeirsson kjarn-
orkufræðingur. Á þeim fundi
verða sýndar kvikmyndir og
litskuggamyndir.
Adenauer á bafavegi
BONN, 14. okt.: — Talsmaður
vestur-þýzku stjórnarinnar
skýrði svo frá í dag, að líðan dr.
Adenauers sé nú mun betri Eins
og áður hefir verið skýrt frá í
fréttum sýktist hinn aldraði for-
sætisráðherra af lungnabólgu.
Hann er 79 ára að aldri.
iSamkomunni lauk með því að
Gunnar Gunnarsson skáld ávarp«
aði heiðursgestinn. Kvað hann Is-i
lendingum þykja vænt um komu
þessa ágæta manns hingað til
lands og sagði hvers Vegna: —
a. vegna þess anda, sem fram kení
ur í hinni ódauðlegu ræðu, sera
Faulkner flutti í Stokkhólmi, er
hann tók á móti Nóbels-verðlaum
unum. En þar lýsir rithöfundur-i
inn trú sinni á lífið. Las Þórir
Kr. Þórðarson ' dósent, ávarp
Gunnars í enskri þýðingu. .
Þyngsfi dilkskrokk-
urinn 26 kg
ISAFIRÐI, 15. okt.: — Slátrun
sauðfjár er nú að mestu leyti lok«
ið á þessu hausti og var alls slátr-
að hér á Isafirði um 7 þús. fjár.
Er það miklu meira en verið hefir
undanfarandi haust.
Stafar þessi aukning af því að i
hau.st hafa ekki verið seld nein líf-
lömb til fjárskipta.
Þyngsti dilkskrdkkurinn vóg 26
kg., en eigandi hans var Þórður
Halldórsson, oddviti á Laugalandi.
Slátrað var nokkuð á tíunda
hundrað fjár í sláturhúsi Kaupfé-
lags Isfirðinga í Vatnsfirði, og
svipað í Bolungarvík. — J.