Morgunblaðið - 03.11.1955, Blaðsíða 16
Yeðurúflif í dag:
A og NA hvassviðri. Úrkomulítið.
I
251. tbl. — Fimmtudagur 3. nóvcmbcr 1955
I Argentínu
Sjá blaðsíðu 9.
Bátagjaidcyris-fyrirkomulagið
var valið fyrir ósk útvegsins
Álagið befur nú numið 300 milfj. kr.
Skipfist nærri til helminga milli sjómanna
og til útgerða rko sfnaða r
BÁTAGJALDEYRISÁLAG frá upphafi og .til ágústloka í ár hefur
numið 306,3 millj. kr. Frá þessa árs byrjun til ágústloka
lefur það numið 49,5 milljónum króna. Frá þessu skýrði Ólafur
Thors forsætisráðherra, er hann svaraði fyrirspurnum á Alþingi
í gær.
SKIPTING ®--------------------
ANDVIRÐISINS
Þá var spurt hversu mikið af
bátagjaldeyrisálagningu færi til
útvegsmanna og hversu mikið til
sjómanna.
Svaraði Ólafur því til að þegar
bátagjaldeyrisálagið bættist við,
þýddi það hærra fiskverð, sem
sjómenn fengju í sinn hlut. —
Þannig hefði bátagjaldeyrisálagið
1951—1953 hækkað fiskverðið
þannig, að slægður þorskur með
haus hækkaði úr 75 aurum kíló-
ið í 96 aura og síðar 1,05 kr. kg.
Árin 1954 og ’55 hefði báta-
gjaldeyrisálagið hækkað fisk-
verðið úr 85 aurum í 1,22 kr.
og í tveimur verstöðvum í kr.
1.25. Nú mun þessu vera svo
háttað að um það bil helming-
ur bátagjaldeyrisálagsins fer
beint tii sjómanna, en hinn
helmingurinn til að standa
undir öðrum rekstrarkostnaði
bátanna.
I.ÖNG BIÐ ÚTVEGSMANNA
Sjómcnn fá þennan hluta
fiskandvirðisins greiddan við
lok vertíðar. Útvegsmenn
þurfa hins vegar að bíða
lengri tíma eftir að fá báta-
gjaldeyrisálagið, sem sést m.a.
af því að nú er ekki búið að
se!ja öll bátagjaldeyrisskír-
teinin frá árinu 1954 og ekki
byrjað að selja bátagjaldeyris-
réttindi af þessa árs afla. —
Þeíta sýnir að útvegsmenn
þurfa að bíða eftir greiðslu
í 1—1*4 ár.
HVORA LEIÐINA
VELJA SKYLDI
Pólitískum vangaveltum og
gagnrýni fyrirspyrjandans, svar-
aði ráðherra á þá leið, að það
l>afi alltaf verið nokkur ágrein-
ingur í þinginu um bátagjald-
eyrisfyrirkomulagið. Sumir hafa
viljað fara aðra leið til að tryggja
rekstur bátaflotans, þ. e. að
'ieggja sérstakan skatt á ýmsar
innflutningsvörur. Bátagjaldeyr-
is-fyrikomulagið hefði frekar
vérið valið, vegna óska útgerðar-
aianna, sem fremur hafi kosið að
rijóta þessara fríðinda á nokkr-
tim hluta þess gjaldeyris, er þeir
draga í þjóðarbúið, heldur en
una því að tollar væru lagðir
í sérstakan sjóð, er síðar væri
Varið til greiðslu á hallarekstri
útvegsins.
ALIT UTGERDARMANNA
Útvegsmenn teldu, að ef síðari
hátturinn væri við hafður myndu
aienn freistast til að draga þá
ályktun, að þeir væru styrkþeg-
ar almennings. Þeirra sjónarmið
væri aftur á móti, að gjaldeyr-
irinn væri tekinn af þeim undir
sannvirði, almenningi til fram-
dráttar.
Ýmsir bera nú kvíðboga fyrir
því að þær vonir, sem tengdar
voru við þetta kerfi rætist ekki
að fullu og er það mál í athugun,
sagði Ólafur Thors að lokum.
Skipbrotsmenn-
irnir komu í gær
í GÆRDAG kom hingað til
Reykjavíkur brezka eftirlitsskip-
ið Romula og voru með því skip-
brotsmenn af brezka togaranum
Barry Castle, sem sökk í mynni
ísafjarðar í fyrradag.
Skipbrotsmenn voru ílla klædd
ir er þeir gengu í land, en á
bryggjunni stóðu bílar, sem Geir
Zoega, umboðsmaður brezkra tog
araeigenda hér, var með. Flutti
hann mennina, en sumir þeirra
voru meiddir, í Hótel Skjald-
breið. Varð umboðsmaðurinn að
kaupa alfatnað handa mönnun-
um, en þeir fara héðan flugleiðis
til Bretlands á laugardaginn.
Sagt var í blaðinu í gær, að
fimm hefðu farizt með togaran-
um, en það yar ekki rétt, — f jórir
fórust.
Það, sem olli manntjóninu er
togarinn fórst, var hversu skjót-
lega það bar að höndum. Þilið
milli kolageymslunnar og fisk-
lesta mun hafa sprungið, að því
er skipbrotsmenn telja, en við
það fór togarinn um leið á hlið-
ina og fáeinum andartökum síð-
ar stakkst skipið á framendann
í djúpið.
Kompásaspírinn:
Einn í sjúkrahúsi
Þrír veiktust
í gærkvöldi
í GÆRMORGUN var einn maður
fluttur í sjúkrahús vegna eitrun-
ar er stafaði frá kompásaspíra-
drykkju. Var maður þessi all-
mikið veikur. Hafði hann drukk-
ið hinn eitraða spíra með Óskari
heitnum Lárussyni.
Þá tók rannsóknarlögreglan til
yfirheyrzlu í gærmorgun þrjá
menn aðra, sem hún hafði grun
um að eitthvað myndu hafa ver-
ið við spíradrykkju með hinum
látna manni og þeim sem nú er í
sjúkrahúsi. Menn þessir, sem allir
eru í tölu áfengissjúklinga og
eiga hvergi höfði sínu að að halla,
þrættu fyrir það að hafa bragðað
kompásspírann hjá Óskari.
En í gærkvöldi var götulögregl
unni tilkynnt um að þessir þrír
menn væru veikir orðnir af völd-
um spíradrykkju í veitingastofu
cinni hér í bænum. Var strax
brugðið við. Voru þá þar inni
tveir mannanna, en hinn þriðji
var stokkinn burtu.
Voru þessir tveir fluttir í
sjúkrahús, en þar var ekki talin
ástæða til þess að leggja þá inn.
Aftur á móti skaut lögreglan
skjólhúsi yfir þá í nótt, svo að
þeir þyrftu ekki að vera að þvæl-
ast á götunum eða um borð í
bátum við höfnina. Lögreglan
ætlaði að leita að þriðja mann-
Spáð er vonzku-
veðri í dají
VEÐURSTOFAN spáir vonzku-
veðri um land allt í dag, — eða
öllu heldur áframhaldandi hvass
viðri. — Fárviðri var í gær í
Vestmannaeyjum. í gærkvöldi
var snjókoma á Akureyri Þá var
vitað um að Öxnadalsheiðin væri
ófær að verða. Þar sat vöruflutn-
ingabíll fastur í Klifinu.
Fuiitrúar Islands cg Hondúras ræðast við
Mynd þessi er tekin áður en fundur hófst í pólitísku nefnd Sam-
einuðu þjóðanna fyrir sköinmu. Thor Thors aðalfulltrúi íslands
' hjá S. Þ. ræðir við Dr. Tiburcio Carias, fulltrúa Honduras, sem
er aðalfulltrúi sinnar þjóðar lijá samtökunum. — Ljósm. S. Þ.
Niðurgreiðslur ú síld 9 millj.
kr. í úr ú múti 1,7 millj. sl. úr
Uppl. forsœtisráðh. á þingfundi í gœr
SVO virðist sem ríkissjóður muni greiða milli 8 og 9 milljónir
króna til niðurgreiðslu á síld til útflutnings á þessu ári.
Endanlegar tölur liggja að vísu ekki enn fyrir. — Forsætisráð-
herra rakti þetta lauslega sem svar við fyrirspurn á Alþingi i
gær. Yfirlit hans var sem hér segir:
í 3 liðum til úrbótu
ú vutnsskortinum í bænum
VATNSVEITUSTJÓRI, Jón Sig|
urðsson, hefur sent bæjar-
yfirvöldunum skýrslu um störf
vatnsveitunefndar á s. 1. ári.
Hefur nefndin kynnt sér ýtar-
lega allt varðandi Vatnsveituna
og vatnsskort þann, sem gert
hefur vart við sig undanfarið. í
Þessari skýrslu bendir vatnsveitu
stjóri á þrjár leiðir til að auka
aðrennslið til bæjarins frá Gvend
arbrunnum.
★
Vatnsveitunefndin var sam-
mála um, að auka þurfi aðfærslu
vatns til bæjarins. Til þess eru
hugsanlegar ýmsar léiðir og sam-
þykkti nefndin að láta kanna
3 þeirra og gera samanburð á
þeim. Þessar leiðir eru:
Að byggð verði dælustöð við
Gvendarbrunna til að auka flutn
ingsgetu þeirra aðalæða, sem
fyrir hendi eru.
Að leggja nýja aðalæð til bæj-
arins á svipaðan hátt og gert
hefur verið hingað til.
★
Að byggður verði steyptur
stokkur frá uppsprettunum nið-
ur undir Blesugróf. Þessi stokk-
ur komi í stað aðalæðanna á
þessu svæði og á að geta ílutt
mun meira vatn en þær. í sam-
bandi við þessa lausn er gert
ráð fyrir vatnsmiðlun, vatns-
geymum, við neðri enda stokks-
ins, en þar hefst dreifikerfi
Benzínsölurnar
vatnsveitunnar, ef þessi leið
verður farin.
Þessar leiðir, sem nú hafa ver-
ið nefndar, er verið að athuga,
og er unnið að nauðsynlegum
mælingum.
★
Allar athuganir vatnsveitu-
nefndar benda í þá átt, að dreifi- |
kerfið sé víða ófullnægjandi og
því nauðsynlegt að taka það til
ýtarlegrar endurskoðunar. Nefnd
in taldi rétt, að láta gera áætl-
anir um endurbætur á dreifi-
kerfinu. Fyrsti þáttur í þessum
áætlunum hefur þegar verið
gerður um aðaldreifiæð fyrir
vesturbæinn, suðvesturbæinn og
byggðina á Seltjarnarnesi. Laus-
leg kostnaðaráætlun sýnir, að
aðalæð fyrir þetta svæði muni
kosta um 5 milljónir króna.
Aftakaveður á
ur
ALLLENGI hefur staðið til að
láta benzínsölurnar, sem eru í
Miðbænum, vikja þaðan og taka
þessi benzínsölustæði undir bíla-
stæði. — I umferðanefnd hefur
þetta iðulega verið rætt, og fvrir
nokkru var framkvæmdastjóra
nefndarinnar, Valgarði Briem,
falið ásamt þeim Gunnari Ólafs-
syni, skipulagsstjóra, og Jóni
Oddgeir Jónssyni, fulltrúa, að
rannsaka heppilega staði í út-
hverfunum, sem hægt væri að
láta olíufélögunum í té.
Bofnleðja Hývalns
Siglufirði
SIGLUFIRÐI, 2. nóv. — í nótt
gerði hér norðaustan stórviðri,
mikið rok og sjógang. Má heita
að ekki hafi verið mannstætt á
götunum er mest gekk á. Nokkr-
ar skemmdir urðu á húsum, þak-
plötur fuku og einrug urðu
skemmdir á allmörgum girðing-
um. Veðrinu hefur slotað í dag.
•—Fréttaritari.
SKÚTUSTÖÐUM, Mývatnssveit,
2. nóv. — Undanfarna daga hefir
Tómas Tryggvason, jarðfræðing-
ur, verið að rannsaka botnleðju
í Mývatni, mæla dýpt hennar og
taka sýnishorn. Þetta er gert
vegna vinnslu á krísuleir. — J.
Undir eind myndir..............
Paasikivi — slyngur diplómat.
Churchill hefir verið á listanum
síðan árið 1950.
Eiin ófundinn
SKÝRT var frá því fyrir nokkr-
um dögum að ungur maður hefði
orðið fyrir því óhappi, að bíll
hans var brotinn upp, honum
stolið og síðan velt. — Við það
skemmdist bíllinn svo, að hann
er ónýtur. Skeði það á Sólevjar-
götunni við Aldamótagarðinn. —
Það hefur ekki tekizt að finna
þjófinn. Það eru vinsamleg til-
mæli til allra þeirra er gefið gætu
upplýsingar er leiða mættu til
handtöku þjófsins, að þeir geri
rannsóknarlögreglunni viðvart.
Samið var um 100 kr. niður-
greiðslu á tunnu af Suður-
landssíld, allt að magninu 55
þús. tunnur. Það gerir sam-
tals 5,5 millj. kr.
Þá var samið um 75 kr. nið-
urgreiðslu á 20 þús. tunnur og
þar fram yfir. Gerir það sam-
tals 1,5 millj. kr.
Einnig var samið um að
'greiða 400 kr. á smálest fyrir
allt að 2000 smálestum a£
frystri síld til útflutnings. —
Það gerir samtals 800 þús. kr.
NÆRRI 9 MILLJ. í ÁR —
1,7 MILLJ. í FYRRA
Þetta gerir samtals 7,8 millj.
kr. verðuppbætur. Er síld
komin á lar.d upp í það afla-
magn. En veiðar eru enn stund
aðar og greiðir ríkissjóður á-
fram 75 kr. á uppsaltaða
tunnu og taldi Ólafur, að það
gæti enn numið um 1 millj.
kr. í niðurgreiðslur. Svo að
alls mætti áætla niðurgreiðsl-
ur á þessu ári nærri 9 rnijlj.
kr. —
Jafnframt gat hann þess að
niðurgreiðslur á síld til út-
flutnings, hefðu í fyrra numið
1,7 millj. kr.
Tveir bátar gela
i lenf
TVEIR vélbátar úr Ólafsvík,
Bjarni Ólafsson og Glaður, hafa
ekki getað tekið land í Olafsvík
undanfarinn sólarhring, vegna
óveðurs þar v.estra.
í gærkvöldi voru bátarnir enn
úti, því sama veður var í Ólafs-
vík. En með tilliti til hinnar
slæmu veðurspár, voru nærstödd
skip, en bátarnir voru undir
Jökli í gærkvöldi, beðin að fvlgj-
ast með þeim og aðstoða ef með
þyrfti. Síðdegis í gær var haft
samband við bátana. Skipstjór-
arnir sögðu allt í lagi hjá sér og
biðu þess eins að veðrinu slotaði.