Morgunblaðið - 24.11.1955, Síða 2
MORGVNBLAÐ1Ð
Fimmtudagur 24. nóv. 1955 1
I
Eioar 01 geirsson van-
treystir hagfræðingum
UMRÆÐA hélt áfram á Alþingi í gær um tillögu Sjálfstæðis-
manna um rannsókn á milliliðagróða. Komst nú enginn að
rema Einar Olgeirsson, sem hélt ræðu er stóð á aðra klukkustund.
Ekkert nýtt kom fram í þessari ræðu komrnúnistaleiðtogans annað
í-n það, að hann lýsti sig mótfallinn því að sérfróðir menn á sviði
efnahagsmála framkvæmdu þá rannsókn, sem tillagan gerir ráð
'iyrir. Lýsti Einar Olgeirsson því yfir að hagfræðingar og við-
rdvíptafræðingar væru sízt til slíkt verks hæfir. Það væri yfirleitt
háttur þeirra að villa um og flækja mál.
hér
í bænum í uæi
u siys
r<*' i
, .’i-i í!t•*
f: :.
MNGMENN BROSTU ^
Brostu þingmenn almennt að
þessari yfirlýsingu en tveir menn
é þingbekkjum virtust þó fara
hjá sér. Það voru þeir Gylfi Þ.
Gjslason hagfræðingur og Bergur
Sigurbjörnsson viðskiptafræðing-
ur. Mun þeim hafa þótt að sér
sveigt.
Einar Olgeirsson taldi tillögu
Sjálfstæðismanna að öðru leyti
hina athyglisverðustu og mælti
með samþykkt hennar.
Umræðunni um tillöguna varð
enn ekki lokið. Voru nokkrir
þingmenn á mælendaskrá.
BOSTON 23. nóv. — Talið er,
að flutningaskipið ,,Daytona“ frá
Líberíu hafi farizt með 24 manna
áhöfn undan austurströnd Banda
ríkjanna. — Strandgæzlumenn
heyrðu óljóst neyðarkall frá
skipinu. Var bandarískt flutninga
skip „American Leader“, beðið
um að fara á staðinn. Það fann
aðeins brak á sjónum og engir
skipbrotsmenn hafa fundizt á
lífi. —Reuter.
Tillap undir smásjá vepa
ósamræmis við íramsöguræðu
TVTOKKRAR deilur urðu í gær í Sameinuðu þingi um þings-
11 ályktunartillögu um undirbúning löggjafar um óháða alþýðu-
bkóla. Kom það í ljós að tillagan var orðuð svo að nokkrar vöflur
voru á því hjá þingheimi að samþykkja hana, vegna þess að hún
-legði skyldu á ríkisstjórnina að undirbúa og leggja fram laga-
írumvarp um stofnun lýðháskóla.
TALAÐ UM „ATHUGUN“
í FRAMSÖGU
Bernharð Stefánsson fyrri þm,
Eyfirðinga var aðal-flutnings-
maður tillögunnar. Hann var
•einnig framsögumaður allsherjar
nefndar, sem mælti með að til-
lagan væri samþykkt. Túlkaði
hann tillöguna svo að ríkisstjórn-
in skyldi athuga hvort hægt væri
að stofna slíkan lýðháskóla.
EN ORÐALAG TILLÖGUNNAR
MIKLU ÁKVEÐNARA
Gísli Jónsson reis þá upp og
benti á það, að undarlegt ósam-
ræmi kærni fram í orðalagi tiilög
-ur.nar og túlkun framsögumanns
á henni. Bernharð sagði, að í til-
lögunni væri óskað að ríkisstjórn-
in athugaði þetta mál, en í tillög-
unni steuduþ að skorað sé á rík-
isstjórnina að undirbúa löggjöf
nm stofnun slíkra skóla. Eins og
orðalagið væri í tillögunni, væri
etefnt að því, að undirbúa lög-
gjöf, sem myndi e.t.v. kosta ríkis
fajóð mikil útgjöld. Þetta bæri
þingmönnum að kynna sér og til-
lagan hefði í rauninni átt að fara
tii fjárveitinganefndar.
Bernharð mótmælti þessu aft-
ur og sagði að ætlunin væri að
«-ins að láta fram fara athugun
á þessu máli, sem ekki gæti haft
jneinn kostnað í för með sér. —
l?etta sagði þingmaðurinn, enda
þótt í tillögunni standi skýrt,
að Alþingi álykti „að skora á
víkisstiórnina að undirbúa lög-
gjöf um stofnun eins eða fleiri
eeskulýðsskóla með . . Virtist
mönnum þetta undarleg túlkun
á orðunum.
RÉTT ORÐALAG VÆRI
HEPPILEGRA
Bjarni Benediktsson mennta-
málaráðherra tók til máls. Hann
kvaðst nú eftir skýringar fram-
eögumanns ekki telja sig verða
*?kuldbundinn skv. tillögunni til
að leggja fram frumvarp um
slíkan alþýðuskóla, heldur aðeins
til að láta fara fram athugun á
malinu. En heppilegra taldi hann
að tillagan væri þá rétt orðuð í
samræmi við það, því að ósam-
ræmi virtist milli tillögunnar og
túlkunar framsögumanns.
ÞRJÚ slys urðu hér í.bænum í
gær, en ekki urðu nein meiri
háttar slys á mönnum, en einn
hinan slösuðu hlaut slæmt fót-
brot, er hann varð milii tveggja
bíla. Þá merddust tveir merm í
bílaárekstri og einn maður féll
niður v.f vinnupalli.
Maðurinn, sem fótbrotnaði
heitir Sigurbjörn Alexandersson,
Hverfisgötu 70 Var hann að
ganga aftur með vöruflutninga-
bíl, fyrir framan dyr vöru-
skemmu Ríkisskip, er vörubíl var
ekið þar hjá og fór hann svo
nærri Sigurbirni, að hjól bílsins
fór yfir fót hans og brotnaði
harm um ökkla. Var það slæmt
brot.
í allhörðum árekstri milli
tveggja nýrra bíla, Skodabíls og
Volkswagen, á mótum Suður-
landsbrautar og Laugarnesvegar,
meiddust tveir menn, sem í VW-
bílnum voru, en ekki alvarlega.
Skodabílnum var ekið inn á Suð-
urlandsbraut, sem er aðalbraut.
í gærkvöldi féll svo Sigurður
Guðmundsson, Bergstaðastræti
3 , á höfuðið og bakið af vinnu-
palli við nýja símahúsið við Suð-
uriandsbraut. Var þetta allhátt
fall, þvi vinnupallurinn var í um
3 metra hæð. Sigurður slapp
furðu vel. Fékk hann heilahrist-
ing og sennilegt að rifbein hafi
brotnað.
Kíverska óperan
kemur í dag
í DAG kemur hingað til Reykja-
víkur kínverski óperuflokkurinn,
sem frumsýna á kínverska óperu
hér á laugardaginn kemur.
Fyrir nokkrum dögum komu
hingað fimm starfsmenn óper-
unnar, tii þess að undirbúa
frumsýninguna. — í för með
óperuflokknum verður forstjóri
óperunnar í Peking.
Þetta er annar skáli Farfugla, Heiðarból, sem stcndur við Selfjall
— skammt fyrir ofan Lækjarbotna.
auka starfsemi sino
Efnn til hnppdrættis
01
FT ER ÞVÍ haldið fram, að við íslendingar gerum of lítið af
því að ferðast um landið okkar og kynnast því — og leitum
jafnvel út fyrir landsteinana áður en við höfum kynnzt þeirri feg-
urð, sem ísland býr yfir. Til eru þó samtök, sem hafa það á stefnu-
skrá sinni, að auðvelda fólki ferðalög um landíð, en þau samtök
njóta því miður minni stuðnings en æskilegt væri.
VINSÆLL FELAGSSKAPUR
Eitt af þessum félögum er Far-
fuglar, og hafði stjórn þess boð
inni fyrir blaðamenn í gær, til
þess að kynna þeim starfsemi
sína. Ólafur B. Guðmundsson,
mjög vinsæl á Norðurlöndum og
Mið-Evrópu — og hvað öflugust
í Þýzkalandi.
1
VEITA SERSTAKA
lyfjafræðingur, formaður félags- FYRIRGREIÐSLU
ins, hafði orð fyrir stjórninni Hafa Farfuglar haft forgöngu
og gaf hann gott yfirlit yfir um skipulagðar ferðir jafnt urn
starfsemi félagsins á undanförn- J sveitir og öræfi landsins, sem til
um árum. [útlanda. Félagið hefir reist tvo
Hinir ísienzku Farfuglar eru' gistiskála hér á landi en fyrir
deild úr alþjóðasamtökum Far-|Þeim vakm að koma upp fleiri
fugla, en þessi félagssamtök eru
r
Olafur Davíðsson „lætur allt
MARKAÐURINN er nú að fyllast
af nýjum bókum. í dag koma t.d.
fimm bækur út hjá ísafoldar-
prentsmiðju. Iíru það minningar
Árna Thorsteinssonar, tónskálds,
sendibréf og dagbókarbrot Ólafs
Davíðssonar, ný Nonna-bók, smá
sögur eftir Þórleif Bjarnason og
fyrsta bindi af Sögum herlæknis-
ins í þýðingu Matthíasar Joehums
sonar.
NONNA-BÓKIN NÝJA
ísafoldarprentsmiðja hóf út-
gáfu á ritsafni Jóns Sveinssonar
(Nonna) 1948 og er nú 9. bókin
komin út í því safni. Nefnist hún
„Nonni í Ameríku“ og hefir ekki
áður birzt í íslenzkri þýðingu.
Freysteinn Gunnarsson, skóla-
stjóri, hefir íslenzkað bókina, en
hann sér um útgáfu ritsafnsins.
Verða bindin alls 14 með ritgerða
safni og ævisögu Jóns Sveinsson-
ar. Er ætlunin að ritsafnið verði
allt komið út á aldarafmæli
Nonna 1957. -
Nonna-bækurnar eru einhverj-
ar vinsælustu ungiingabækur,
sem hér hafa verið gefnar út. Þær
eru enn sama eftirlæti ungra les-
enda og fyrir rúmum aldarfjórð-
ungi, er þær komu fyrst út á ís-
lenzku.
Ný Nonnabók, „Þrettán spor",
„Sögur herlæknisins" í þýðingu
fi/latthíasar o.fl. fráísafoldarprentsmiðju
Nonni.
urinn og þóttist nokkru fróðari
eítir, bæði um þann ágæta mann,
Ólaf Davíðsson, og um menn og
málefni þess tíma, er hann lýs-
ir .... Dagbókin er fy.rst og
fremst skemmtileg, en hún er
líka fróðleg, ekki sízt fyrir það
hve vel hún lýsir Ólafi sjálfum,
þó margt sé sagt í gáska og ýmis-
legt látið fjúka, sem ekki er ætl-
azt til að tekið sé of hátiðlega ....
Þessi bók lýsir fyrst og fremst
námsárum Ólafs, því skeiði
ævinnar, sem fullt er af fyrir-
-sendibréf Ólafs og dagbókarbrot. I heitum og vökudraumum um at-
Ég skemmti mér ágætlega við lest hafnasamt líf og mikla sigra.“.
OLAFIJR DAVIÐSSON
„LÆTUR ALLT FJÚKA“
„Ég læt allt fjúka“ nefnast
sendibréf og dagbókarbrot eftir
Ólaf Davíðsson, sem Finnur Sig-
mundsson, landsbókavörður, hef-
ir búið til prentunar. Finnur seg-
ir m. a. í formálsorðum:..Upp
úr þessu fór ég að kynna mér
„ÞRETTÁN SPOR“
Smásögur Þórleifs Bjarnason-
ar nefnast „Þrettán spor“. Það
eru sögur um kynslóðir fortíðar
og nútíðar. Síðan Þórleifur samdi
Hornstrendingabók, sem kom út
1943, hefir hann sent frá sér tvær
skáldsögur, „Svo kom vorið“ og
„Hvað sagði tröllið“. Mun nú
marga fýsa að lesa smásögurnar
13.
SÖGUR HERLÆKNISINS
„Sögur herlæknisins" eftir
finnská skáldið Zacharias Topeli-
us, urðu féikna vinsælar, er þær
komu fyrst út í þýðingu Matt-
híasar Jochumssonar. Voru þær
bókstaflega lesnar „upp til agns“,
og endurheimta nú margir gaml-
an vin. Er þetta ættar- og ástar-
saga byggð á sögu Finna og Svía
um tveggja alda skeið. Þessi nýja
myndskreytta útgáfa af Sögum
heriæknisins verSur jafnframt
upphaf atS heildarútgáfu á verk-
um Matthsasar, frumsömdum og
þýddum. Snorri Hjartarson hefir
búió bókina til prentunar.
HARPA MINNINGANNA
Fimmta bókin eru minningar
hins aldna tónskálds, Árna Thor-
steinssonar, sem Ingólfur Kristj-
ánsson hefir skráð. Er nánar sagt
frá þeirri bók annars staðar í
blaðinu.
slíkum skálum víðs vegar um
land. Þessir skálar eru einnig
þegar orðnir of litlir — og þá
sérstaklega vegna þess, að eftir-
spurnum hefur mjög fjölgað frá
Farfugladeildum erlendis, sem
vilja sækja ísland heim.
í flestum Evrópulöndum er
starfsemin það öflug, að félögun-
um hefur tekizt að koma upp
kerfi af gistiskálum um lönd sín
— og nýtur ferðafólk þar sér-
stakrar fyrirgreiðslu — jafn-
framt því, að mjög ódýrt er að
gista á þessum félagsheimilum.
FELAGSHEIMILI í
REYKJAVÍK
Ólafur lét þess sérstaklegá get-
ið, að fólk gerði allt of lítið af
því, að nota sér þau fríðindi, sem
samtökin hafa upp á bjóða, þegar
um ferðalög erlendis er að ræða.
Sérstaklega kvað hann þetta fyr-
irkomulag henta skólafólki, sem
væri á ferð erlendis. En það sem
nú vekti fyrir félaginu væri, að
koma upp fleiri gistiheimilum
úti á landi, jafnframt því, að
ætlunin væri að reisa félagsheim-
ili hér í Reykjavík, þar sem ungi;
fólk gæti varið tómstundum sín-
um á heilbrigðan hátt — og þar
sem jafnframt væri hægt að taka
á móti erlendu ferðafólki.
EFNA TIL HAPPDRÆTTIS
í þessu tilefni hefur félagið
stofnað til happdrættis í ár. —■
Verður dregið þar á aðfangadag.
Þó að stuttur tími sé til stefnu
er það von félagsmanna, að sala
miða gangi vel, því að vinning-
urinn er hvorki meira né minna
en ný Ford fólksbifreið.
Er það von félagsmanna, að
með happdrætti þessu rýmkist
hagur félagsins svo, að kleift
verði að hrinda fyrirhuguðum
áformum í framkvæmd, til hags-
bóta fyrir þá er nota vildu þá
góðu aðstöðu, sem félagið veitir,
til þess að sjá og kynnast land-
inu.