Morgunblaðið - 24.11.1955, Síða 14
14
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. nóv. 1955 ’
ANNA KRISTÍN
EFTIR LALLI KNUTSEN
Pramhaldssagan 8
svífa í lausu lofti, og allt í einu
lagðist eitthvað þungt ofan á
brjóstið á mér. Síðan myrkur,
svartamyrkur.
6. kafli.
Stundum er gott að vera sjúk-
ur, gott að flýja inn í drauma-
land óraunveruleikans. Varpa frá
sér sorg og sársauka. En svo kem-
ur að því að þér fer að batna, þú
færist nær lífinu. Þá kemur
sársaukinn á ný, og þú óskar þér
aftur til draumalandsins. Þannig
fór mér.
Ég lá lengi milli heims og helju.
Frá fyrstu dögum legunnar man
ég ekkert. En svo fór ég að sjá
gráa skugga líða fram og aftur.
Einn þeirra var skuggi Sesselju.
Og svo var þar skuggi, sem ég
ekki þekkti. Hann var stór og
dökkur. Ég sá magurt, brúnt and-
lit undir hvítum höfuðbúnaði.
Lítil, svört augu og stóran munn.
Alltaf þegar þrautirnar voru mest
ar sá ég þetta andlit. Svitinn var
þveginn af mér með ediki, það
var skift um umbúðir og svalar
hendur struku líkama minn.
Svo sofnaði ég aftur og mig
dreymdi að ég reið gandreið gegn
um loftið með Önnu Kristínu.
XJpp frá þessum draumum hrökk
ég venjulega hljóðandi. Þá birt-
ist mér þetta sama brúna andlit.
Mér var gefið eitthvað sterkt að
drekka og ég sofnaði aftur.
Loks kom að því að ég fékk
fulia rænu. Mig verkjaði enn í
allan líkamann og ég lá lengi
með lokuð augu. Ég var hrædd
við að vakna og horfast í augu
við sannleikann. Hvað hafði fað-
ir minn gert við Önnu Kristínu
og Lárus? Hafði ég beinbrotnað
þegar ég féll af hestinum? Skyldi
ég verða krypplingur allt mitt
líf?
Svo kom faðir minn inn í her-
bergið. Hann stóð lengi við rúm-
ið mitt. Ég heyrði að hann sagði
hranalega: — Hvernig líður
henni? — Vel, yðar náð, svaraði
þetta brúna andlit. Eftir einn til
tvo mánuði ætti hún að verða
orðin góð. Það er að segja ef
hægt er að vekja hjá henni löng-
un til að lifa. —Hvað meinarðu?
spurði pabbi snöggt. — Það er
eitthvað sem þjáir hana. Hún er
vakandi núna, en það er eins og
hún vilji ekki vakna, vilji ekki
lifa. Pabbi sagði óþolinmóður:
— Talaðu svo skýrt að ég skilji
þig. Því ætti hún ekki að vilja
lifa? — Það er eins og tvö öfl
berjist um sál hennar. Annað
dregur hana burt frá lífinu, hitt
streitist á móti. — Þú ættir að
vara þig að tala svona, annars
gæti svo farið að þú yrðir ákærð
fyrir galdra. Hún verður að vera
komin á fætur fyrir brúðkaupið.
Það er nóg búið að tala um þessa
atburði. — Ég skal gera það sem
ég get, yðar náð.
Röddin, sem talaði, var hás,
með ókunnum hreim, og það
gætti örlítils háðs í svarinu. Ég
svitnaði af Hræðslu. Var þetta
galdrakind, sem vakti hér yfir
mér, einni og hjálparvana? Ég
var fáfróð og hjátrúarfull. Enn
í dag er ég ekki laus við hjátrú.
En ég veit nú að Kalja var ekki
göldrótt. Hún var aðeins skyn-
söm, kaldlynd kona, sem lífið
hafði farið um ómjúkum hönd-
um.
Ég man að ég spurði veikri
röddu: — Ert þú göldrótt? Hún
fór að hlæja. — Loksins vaknaði
jómfrúin. Þetta var lagleg kona,
ekki mjög ung, en þó í blóma
lífsins. — Ég vil láta þvo mér,
var það næsta sem ég sagði. Katja
kiæddi mig úr náttkjótlnum. Ég
var ekkert orðin nema skinn og
! bein.
Þessa stöðugu löngun til að
þvo okkur, til að halda okkur
hreinum, höfðum við Anna
Kristín erft frá pabba. Hann var
með afbrigðum hreinlátur mað-
ur og baðaði sig á hverjum
morgni, sem þá var óvenjulegur
siður.
| — Hver ertu? spurði ég Kötju.
— Hvers vegna ert þú hér? Og
hvers vegna sagði pabbi að þú
værir göldrótt? — Ég bý í Þránd-
heimi. Ég hef orð fyrir að vera
nærfærin við sjúka, þess vegna
I gerði faðir yðar boð eftir mér.
1 — En ertu göldrótt? endurtók ég
forvitin. — Ég er ókunnug og
t lifi ekki sama lífi og fólkið hér.
I Það er nóg til þess að um mig sé
j rætt. Þar að auki fæst ég við að
lækna sjúka.
En ég var þrá. — Þú hefur
ekki svarað mér enn. Ertu göldr-
ótt? Hún brosti. — Ég er aðeins
rússnesk, jómfrú. Fyrst var álit-
ið að ég væri göldrótt af því að
ég talaði ekki norsku. Svo fannst
öllum undarlegt að ég bjó ein og
fékkst við lækningar. Þegar þér
íélluð af hestbaki, jómfrú, brotn-
uðu í yður þrjú rif og þér fót-
brotnuðuð líka. Ég hef læknað
yður.
— Mig hefur alltaf verið að
dreyma eitthvert undarlegt ferða
* lag, sagði ég vantrúuð, ef til vill
hafið þér orsakað það með galdri.
Hún lagði stóru, brúnu höndina
sína yfir báðar mínar hendur og
sagði: — Ég bar á yður kvala-
stillandi áburð. Ég hef oft notað
hann með góðum árangri og ég
hef búið hann sjálf til. — Það er
ekki hægt að brenna neinn fyrir
að búa til áburð, sagði ég. Katja
leit á mig og brosti undarlega.
— Lisbeth Nypen hafði ekki einu
sinni búið til áburð og samt var
hún brennd. Bíðið bara jómfrú,
þar til óhamingja ber að dyrum
hjá nágrönnum mínum. Og ef
eitthvað illt skeður hér á bæn-
um fyrir brúðkaupið, þá sjá þær
áreiðanlega um það, móðir yðar
og Sesselja, að mér verði gefið
það að sök. — Brúðkaup! Hvaða
brúðkaup? — Brúðkaup systur
yðar. Það verður haldið hér á
Mæri eftir mánuð. Það var lýst
með hjónaefnunum síðastliðinn
sunnudag.
Ég reyndi að rísa upp, en hneig
stynjandi aftur á bak á koddann.
— Þú lýgur, sagði ég hljómlausri
röddu. — Systir mín vill ekki
giftast. Hvað segir hún? Hefur
hún ekki grátið? — Það veit ég
ekki, jómfrú, ég er gestur hér
á bænum. — Þú veizt eitthvað.
Þú hefur talað við Önnu Krist-
ínu. Og Sesselju. Hvernig
komstu annars hingað. — Ég
kom hingað í fylgd með föður
yðar. — Var pabbi í Þránd-
heimi? Hvað var hann að gera
þar? — Mágur yðar var með
líka. Ég held að ferð þeirra hafi
verið farin vegna sölu einhverra
ríkisjarða. j
Ég var enn of ung til að skilja
hve hraparlegt glappaskot kon- j
ungurinn gerði er hann seldi ein-
staklingum allar ríkisjarðirnar.
Óðalseigendurnir urðu að gjalda
jarðirnar afar dýru verði og
beittu svo þar af leiðandi miklu
meiri vinnuhörku leiguliða sína
og vinnuhjú en tíðkast hafði áð- I
ur. Ég hafði oft orðið vör við ]
gremju í hjúastofunni af þess- '
um sökum.
— Hvar er systir mín? endur-
tók ég nú. — Hún — hún — Náðu
strax í hana! — Það má ég ekki.
— Náðu í hana, annars skal ég
.... Við vissum báðar hvað ég
meinti, en ekki þorði ég að líta
á hana. Hún hvarf út um dyrnar.
Ég lá og horfði í kring um mig.
Ég sá að gluggatjöldin bærðust
og gerði mér grein fyrir að úti
væri hlýtt og komið sumar.
Gluggarnir sneru mót vestri og
síðdegissólin skein inn í herberg-
ið. —
Það marraði í hurðinni. Anna
Kristín kom inn. Hún var föl,
þögul og þrjóskuleg, en með sama
tryllingslega augnaráðið. Ég
breiddi út faðminn móti henni og
Laufn heamsins eru vanþakklæti
Sænsk þjóðsaga.
4
hafa ekki verið neitt sérstaklega góðir og oft hef ég orðið að
þola bæði hungur og þorsta. Já, hesturinn er ógæfusamasta
dýr sem til er í heiminum, hann er skapaður aðeins til
þrauta og þjáninga.
Nú er ég orðinn gamall og ónýtur til að draga hlass og
enginn spyr eftir mér framar. Mér eru valdir lélegustu
hagarnir og sífelldar skammir og illyrði verð ég að þola.!
Loks á að drepa mig og kasta hræinu út í skóg, til saðnings
öllum vörgum og villidýrum. Ekki vill fólkið unna mér
þeirrar sæmdar að líkami minn sé grafinn í jörðu. Þetta
eru öll launin, sem við veslings húsdýrin, fáum hjá hús-
bændum okkar fyrir allt gagnið, sem við gerum þeim.“ I
„Þarna heyrirðu,“ sagði ormurinn við bóndann. „Þannig
er það alls staðar. Sjálfsagt hlýturðu að skilja það nú, að það
er ekki nema rétt og sjálfsagt, að ég launi þér lífgjöfina með
því að drepa þig.“ i
„Hræðilegt, hræðilegt,“ sagði veslings bóndinn stynjandi,
„Að hugsa sér að það skuli eiga að drepa mig einungis fyrir
það, að ég bjargaði lífi þínu. Eru þetta þá launin, sem ég
fæ fyrir að gera vel til þín?“ |
Bóndinn var að því kominn að falla í ómegin við tilhugs-
unina um að nú ætti hann bráðum að deyja. En nú kom
til þeirra gamall maður á veginum og við það óx honum
nokkuð kjarkur aftur.
„Viltu þyrma lífi mínu ef þessi maður dæmir öðru vísi?“
spurði bóndinn orminn.
„Ég fellst á það,“ sagði ormurinn. „Hann skal vera dómari
í þessu máli.“
ÞVOTTAVELAR
íf
F: T
þrjár gerðir
ávallt
fyrirliggjandi
SJÁLFVIRKT
mwZ - - 11 ' Kynnið i©
1 1Lt yður l 1
gæðin i
DDE-R-1”
Þurrkari
ADE-R-1 <i
Þvottavél
e.MBSI[INSSONf jeiHSORF
Grjótagötu 7 — sími 3573 og 5296
Tökum upp í dag
nýtt úrval
af
útlendum vetrarkápum
Jeíciur
Laugavegi 116
l\lý seuding
af þýzkum
poplin regnkápum
3M«r Lf.
Laugavegi 116
Flóra
Viljum kaupa stóra pálma
Flóra
Sími 2039
Húsgagnabólstrari
óskar eftir atvinnu. — Tilboð sendist afgr. blaðsins
fyrir 26. þ. m., merkt: „K. G. — 624“.