Morgunblaðið - 06.12.1955, Qupperneq 8
8
mORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagui 6. des. 1955
ovgmsiMðMfe
Útf.: H.f. Arvakur, Reykjavlk.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Steíánsson (ábyrgðarm.)
Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Xigmx.
Lesbók: Árni Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Askriftargjald kr. 20.00 6 mánuði innanlands.
í lausasölu 1 króna eintakið.
LOG MOLOTÖfS RAÐIN?
ALLT BENDIR TIL ÞESS, A
BANN KVEREE A
SJÓNARSVIDIN
Réttoröryggið í ríkjtun
sósíolismons
FRÁ því hefur verið skýrt hér í
blaðinu að mynduð hafi verið
alþjóðleg samtök frjálsra lög-
fræðinga. Er það fyrst og fremst
hlutverk þeirra að fylgjast sem
nákvæmlegast með réttarþróun-
inni í ríkjum komúnismans og
afla áreiðanlegra upplýsinga um
hana. Byggja þessi samtök rann-
sókn sína á algerlega hlutlægum
grundvelli. Þau safna saman upp-
lýsingum beint úr lagasöfnum,
dómsúrskurðum og öðrum opin-
berum heimildum frá ríkisstjórn-
um þeirra landa, sem kommún-
istar stjórna.
Það er vissulega ómaksins
vert aff gefa almenningi í hin-
um vestrænu lýffræðislöndum
tækifæri til þess aff kynnast
réttarþróuninni í löndum
sósíalismans. Vitneskjan um
hana gefur glögga mynd af því
ástandi sem skapast á sviði
laga og réttar, þar sem koram-
únistar ná völdum.
Afstaða til almennra
mannréttinda
í stjórnarskrám hinna komm-
únisku ríkja er svo látið heita að
borgurunum sé áskilið prent-
frelsi. En þegar nánar er aðgætt
kemur það í Ijós að raunverulega
er ekkert til þar sem nálgast að
geta heitið prentfrelsi. Ríkið eitt
má eiga og reka prentsmiðjur. í
sumum hinna kommúnisku lnnda
þurfa menn jafnvel að sækja um
leyfi til ríkisvaldsins til þess að
mega hafa undir höndum ritvélar
og fjölritunartæki. Ákvæðin um
slíka skrásetningarskyldu eru að
sjálfsögðu sett til þess að gefa
valdhöfunum tækifæri til þess að
hafa eftirlit með þeim mönnum
sem slík „þjóðhættuleg“ tæki
eiga.
í framkvæmdinni er „prent-
frelsið“ því þannig í ríkjum só-
síalismans að enginn nema komm
únistaflokkurinn, sem hefir stjórn
ina í sínum höndum má eiga
prentsmiðju eða tæki, sem til
þess eru ætluð að dreifa lit prent-
uðu eða rituðu máli.
í stjórnarskrám þessara ríkja
er einnig ákvæði um það að þar
eigi að ríkja stjómmálafrelsi,
fundafrelsi og félagafrelsi. En
þessi ákvæði eru framkvæmd
þannig, að andstöðuflokkar
kommúnista eru vægðarlaust
bannaðir. Aðeins kommúnista-
flokkurinn má halda opinbera
fundi og efna til stjómmálasam-
taka.
Þannig hafa almenn mann
réttindi gersamlega veriff af-
numin í löndum sósíalismans,
enda þótt svo sé látiff heita í
stjórnarskrám þeirra, sem
kommúnistar hafa sett að eig-
in geffþótta, aff borgurunum
séu tryggff þessi réttindi.
Bréfleynd afnumin
En það er ekki nóg með það,
að þessi almennu mannréttindi
hafi verið afnumin í löndum
sósíalismans. Sjáift einkalíf fólks
ins er undir stöðugu og nákvæmu
eftirliti ríkisvaldsins, það er
leynilögreglu kommúnistaflokk-
anna. Bréfleyndin hefir verið af-
numin. í opinberum dómum og
úrskurðum kemur það greinilega
fram að menn eru dæmdir jafn-
vel i hinar hörðustu reísingar
fyrir að láta ógætileg orð falla í
persónulegum bréfum til vina og
vandamanna. Enginn getur verið
óhultur um sig fyrir hinni leyni-
legu lögreglu. Hún hefir alls stað-
ar augu. Víðtæku njósnakerfi er
haldið uppi og einkalíf borgar-
anna er stöðugt undir hinni
kommúnisku smásjá. Menn geta
gert sér í hugarlund, hvers konar
öryggi og hvers konar innra sjálf
stæði það er, sem slíkir stjórnar-
hættir skapa. Kommúnistar
munu sjálfsagt segja að hér sé
á ferðinni hinn venjulegi rógur
um „alþýðulýðræði“ þeirra. En
til grundvallar þessari lýsingu á
réttarfarsástandinu í löndum
þeirra liggja opinberar heimildir
frá hinum kommúnisku valdhöf-
um sjálfum. Það er þess vegna
ekki hægt að véfengja sannleiks-
gildi þeirra upplýsinga, sem sam-
tök hinna frjálsu lögfræðinga
hafa safnað.
Þaff er mjög gagnlegt aff
fólk í hinum frjálsa heimi fái
affgang aff þessum upplýsing-
um. Borgarar hinna vestrænu
lýffræffisþjófffélaga verffa aff
fá aff vita það nákvæmlega,
hvers konar réttarfar kommún
isminn stefnir að aff skapa í
löndurn þeirra. Viff ísiending-
ar verffum t. d. aff gera okkur
þaff Ijóst aff sigur kommúnism
ans á íslandi hefffi í för meff
sér algert afnám almennra
mannréttinda, afnám bréf-
leyndar og alls réttaröryggis.
Dómstólarnir yrffu affeins tæki
í höndum ósvífinnar einræffis-
og ofbeldisklíku. Slíkt ástand
vill enginn heiðarlegur fslend-
ingur leiffa yfir þjóff sína.
Skrifsfolusfjérann
vantar.
FRÁ því var skýrt í blaðinu s.l.
sunnudag, að 7 manna milliþinga-
nefnd, sem skipuð var s.l. vor
hefði unnið það afrek á 7 mán-
uðum að kjósa sér Hermann Jón-
asson, formann Framsóknar-
flokksins fyrir formann á fyrsta
fundi sínum, sem haldinn var í
sumar. Aðeins einn annar fundur
hefði verið haldinn í nefndinni og
hefði þar verið ákveðið að ráða
henni skrifstofustjóra.
Sú villa er í þessari frásögn,
að skrifstofustjórinn hefur ekki
ennþá verið ráðinn. Hins vegar
kom fram tillaga um það á síðari
fundi nefndarinnar að gera það.
Við íslendingar þurfum vissu-
lega á því að halda að fjölga at-
vínnugreinum okkar og hagnýta
betur auðlindir lands okkar. Þess
vegna hefði mátt vænta þess, að
milliþinganefnd, sem sérstaklega
hefur verið falið að gera tillögur
um þau efni, tæki starf sitt alvar-
lega. Það hefur hún ekki gert til
þessa. Formaður Framsóknar-
flokksins taldi brýnni nauðsyn
bera til þess s.l. vor og sumar að
ferðast um landið og flytja
svívirðingaræður um samstarfs-
flokk sinn heldur en að hafa for-
ystu um sæmileg vinnubrögð í
þýðingarmikilli nefnd, sem hann
hafði látið kjósa sig formann í.
En. það er rétt að vona að starf
nefndarinnar takist betur en til
hefur verið stofnað. Ekki er öll
nótt úti enn. Vonandi vaknar for-
maður hennar og áttar síg á
landslaginu..
HÁVÆRAR raddir eru nú uppi um það, að dagar Molotovs, utan-
ríkisráðherra Rússa, séu nú brátt taldir. Öllum er það í fersku
minni, er Molotov var fyrir skemmstu látin gefa yfirlýsingu í
málgagni kommúnistaflokksins, Kommúnistanum, þess efnis, að
hann hefði ekki starfað í anda flokkshugsjónarinnar, og lýsti starf
sitt vítavert. Við því var búizt, að Molotov yrði látinn hverfa af
sjónarsviðinu strax eftir þessa yfirlýsingu — en það fór samt
á annan veg.
Nú þykir margt benda til þess, að með auknum völdum Krusjeffs
muni Molotov verða látinn víkja. Það hefur verið langur aðdrag-
andi að þessu — og mikil bolabrögð hafa átt sér stað að tjaldabaki
í Kreml.
FALL MALENKOVS
Á flokksfundi skömmu fyrir
fall Malenkovs var bundinn
endahnúturinn á hreinsun hinnar
svokölluðu „Leningrad-samtaka"
en þeir menn, sem að þeim sam-
tökum stóðu, voru m. a. sakaðir
um það, að hafa bruggað vinum
Andrei Zhadanovs launráð. Zad-
anov lézt á dularfullan hátt árið
Nú er röffin komin aff Molotov.
1948, og var sagður harðasti
keppinautUr Malenkovs. Á þess-
um fundi var frá því skýrt, að
fall Malenkovs var ekki langt
undan.
ÖRLÖG HANS ERU KÁÐIN
í febrúar n.k. mun verða háð
flokksþing — og meðal þeirra
mála, sem þar verða tekin fyrir,
er dómurinn yfir Georgíumönn-
unum, sem líflátnir voru nú fyr-
ir skömmu. Þeir voru m. a.
ákærðir fyrir að hafa bruggað
vinum Sergo Ordzhonikidze
launráð. En hver var þá þessi
Ordzhonikidze, sem iézt á svo
dularfullan hátt árið 1937?
— Þaff voru þessir tveir menn,
Molotov og Ordzhonikidze, sem
Stalin bjó undir að taka við for-
sætisráðherraembætti aff sér frá-
föllnum. Ordzhonikidze var því
harffasti keppinautur Molotovs
— en hvarf snögglega af sjón-
arsviðinu, eins og áffur segir.
SAMI LEIKURINN
Nú verffur endurtekinn sami
leikurinn viffvíkjandi Molotov
Vöruhappdræitið
í GÆR var dregið í 12 flokki
Vöruhappdrættis S.Í.B.S Dregið
var um 1225 vinninga, að fjár-
hæð 490 þús. kr.
Hæsti vinningurinn 150 þús. kr.
kom á miða nr. 2286 sem seldur er
í Grafarnesi við Grundarfjörð.
10 þús. kr. vinninga hlutu eftir
talin númer: 35804, 37144, 42292,
43388, 47556.
5 þús. króna vinninga hlutu
þessi nr.: 6450,13616, 14408, 2(j671,
36396, 41075, 41422 og 41739.
og var leikinn til þess aff koma
Malenkov úr valdastóli.
Það gæti einnig komið margt
annaff til greina — og t. d. væri
ekki óhugsanlegt, aff í febrúar
uppgötvuffu þeir Krúsjeff og
Bulganin, aff stefna Ráffstjórn-
arinnar sé orffin full einstreng-
ingsleg, þegar tekiff er tillit til
hins ört vaxandi styrks Vestur-
veldanna og einhuga samstöðu
þeirra. Hver var það, sem sat
Genfarfundinn aff hálfu Rússa —
og hverjum var þaff aff kenna
hvernig fór?
SIGLUFIRÐI, 2. des: — Nýlega
var, við hátíðlega guðsþjónustu
í 'Siglufjarðarkirkju, stofnað
Æskulýðsfélag Sigluf jarðarkirkju,
fyrir forgöngu sóknarprestsins,
séra Ragnars Fjalars Lárussonar,
en hann er mikill áhugamaður um
æskúlýðsmál. Formaður félagsins
er Páll Helgason, Lindarbrekku 1
Siglufirði, sem fermdist s. 1. vor,
en það voru fyrstu fermingarbörn
sóknarprestsins. Stóðu börn þessi
einkum að félagsstofnuninni.
— Stefán.
ÞÚFUM, 1. des. — Nokkurn snjó
gerði hér fyrir tveimur dögum og
hefir sauðfé nú verið tekið á hús
og gjöf víða hér um slóðir. —
Slæmar heimtur eru á fé af
fjalli. Mun minna er nú um rjúp-
ur hér en var í fyrra og orsakast
það sennilega af því, að tíð hefur
verið góð og jörð auð. — í Borg-
arey eru nú um 200 fjár og fimm
hross. — PP.
ULí andi áhrij^ar:
Erfiff færff
HALDIST veðurfarið óbreytt
— sem er reyndar heldur ó-
líklegt — er svo að sjá sem við
fáum hvít jól í ár. Jólasnjórinn
eykur birtu hátíðarinnar og lýsir
upp skammdegið og því kjósum
við heldur hvít jóla, enda þótt
það hafi ýmis óþægindi í för með
sér. Færðin verður eriið bæði
fótgangandi mönnum og farar-
tækjum, og höfum viff þegar feng
ið smjörþefinn af því, þó að lítil
fönn hafi fallið.
Þeir borgarbúar, sem lögðu
leið sína niður í miðbæinn um
helgina til að virða fvrir sér
fyrsta vottinn af jólaskre> ting-
um á götum úti og í búðarglugg-
um, fengu margir hverjir óþægi-
lega byltu, og flestum mun hafa
skrikað óþægilega fótur. Það er
vissara að gæta þess að fóta sig
á svellinu þessa dagana.
— og of mikill asi
BIFREIÐASTJÓRARNIR eiga
fullt í fangi með að hofa
stjórn á bifreiðunum, þó að keðj-
urnar hafi verið teknar í notkun.
En það er eins og fyrri daginn —
hættulegastir í bílaumferðinni
eru þeir, sem alltaf eru á hraðri
ferð. Þeir streitast við að smokra
sér fram úr, þó að tæplega sjái
fyrir endann á bifreiðaröðinni,
sem er fyrir framan þá. Venju-
iZjf- •
" '"'oV ^ tl
m
lega komast þeir í sjálfheldu. þar
sem fæstar götur í miðbænum eru
svo breiðar, að þær rúmi tvær
bifreiðar samhliða, Það má vissu-
lega til sanns vegar færa, að jóla-
annirnar eru að hefjast og mönn-
um liggur mikið á. En það eru
ekki þeir, sem annríkast eiga, sem
frekast gera sig seka um að troð-
ast í bílaumferðinni. Slík atvik
eru tíð á þröngum götum mið-
bæjarins á kvöldin — og afar oft
eru það ungir menn, sem hafa
fengið lánaða bifreiðina hans
pabba síns til að keyra kunningj-
ana ,,rúntinn“. En þó að ungu
mennirnir séu miklir á lofti, og
vilji komast leiðar sinnar í
hvelli, ættu þeir að minnast þess,
að slíkt flan er sízt til flýtisauka
og getur haft mjög alvarlegar af-
leiðingar.
Ólipur framkoma.
FAÐIR“ skrifar:
„Það má með sanni segja, að
svo virðist sem menn eigi að
þakka fyrir að fá að borga stórfé
fyrir að komast inn á hvers kon-
ar skemmtistaði hér í bæ. S.l.
sunnudag leyfði ég 11 ára gam-
alli dóttur minni að fara á síð-
degissýningu í einu kvikmynda-
húsinu. Hún hafði lengi hlakkað
til að sjá þessa kvikmyr.d, sem
fjallaði einmitt um Iitla stúlku.
Dóttir mín fær ekki að fara í bíó,
hvenær sem henni þóknast, og
þess vegna er það talsverður við-
burður í hennar augum og mikið
tilhlökkunarefni.
Er hún hafði staðið drjúga
stund í biðröð í leiðindaveðri,
fékk hún afgreiðslu. Vantaði þá
tvær krónur upp á, að hún gæti
greitt fyrir tvo miða. Fór hún þá
fram á, að miðarnir yrðu geymd-
ir, ef hún greiddi þær 16 krónur,
sem hún hafði handbærar, meðah
hún næði í 2 krónur til viðbótar.
Svarið var neitandi, og hún kom
heim ákaflega sár yfir þessari
ólipru framkomu.
Ekki veit ég, hvort kvikmynda-
húseigandinn sjálfur hefir mælt
svo fyrir, að afgreiðslunni skuli
hagað þannig, eða hvort af-
greiðslustúlkan tekur slíka
breytni við viðskiptavinina upp
hjá sjálfri sér. En eitt er víst:
Þetta eykur ekki aðsóknina að
kvikmyndahúsinu."
MerklV,
klœSIr