Morgunblaðið - 08.12.1955, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.12.1955, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 8. des. 1955 UORGVNBLAÐIÐ 23 HEIMATILBÚIÐ sælgæti vekur ekki aðeins gleði gestanna og heimilisfólksins, sem nýtur þess, heldur einnig eru stundirnar, þegar sælgætið er búið til skemmtilegar og ættu allir í fjöl- skyldunni að hjálpa til við fram- leiðsluna, a. m. k. eftir megni. í fyrra birti kvennasiðan heil- mikið af sælgætisuppskriftum, má auðvitað nota þær aftur og svo fara hér á eftir nokkrar upp- skriftir til viðbótar. FYLLTAR DÖfiLTJR 125 gr. hakkaðar möndlur, 125 gr. flórsykur, 15 gr. hrísmjöl, 25 döðlur, 200 gr. sykur, 2 tesk. sítrónudropar, 1 dl. vatn. Fyrst er mönduldeigið búið til á þann hátt að þér blandið vel saman flórsykrinum og hökkuð- um möndlunum ásamt hrísmjöl- inu og dál. volgu vatni, það má gjama lita með matarlit. Hrærið vel í þar t.il deigið er orðið vel mjúkt. — Ef steinar eru í döðl- unum eru þeir fjarlægðir og deig- ið látið inn í döðlurnar í stað þeirra. Síðan eru döðlurnar sykr- aðar í sterkum glerungi, sem bú- inn er til úr sykrinum, sítrónu- dropunum og vatninu. Döðlunum er difið ofan í glerunginn og sið- an látnar þoma á kökurist. Þær eru framreiddar í litlu pappírs- formum (t. d. úr gömlúm kon- fektkassa) eða á litlum pappírs- pentudúk. SÚKKULAÐIKARAMELLUR 250 gr. sykur, % plata af suðu- súkkulaði, 2 dl. af rjóma, 1 mat- skeið ljóst hunang, og smjör- f biti (á stærð við valhnot). Syk- urinn, súkkulaðið og 1 dl. rjómi er látið í pott og soðið og hrært stöðugt í á meðan. Þegar suðan kemur upp er 1 dl. af rjóma hellt út í og hrært í þar til kremið er orðið mjúkt og þá er hunang- ið látið út í. Hrærið stöðugt í, og iátið pottinn stancta á hita- plötunni. Tákið af og tíl prufu af deiginu og látið á disk og látið kólna. Takið pottinn af hit- anum þegar deigið er orðio nægi- lega þykkt. Það á að vera þannig að hægt sé að skera það sundur með hnif, og það mjúkt að það festist ekki við hnífinn. — Mesti hitinn er látinn rjúka af deiginu,. en síðan er því hellt á blikk-plötu, sem er vel smurð með smjöri, og síð- an er deiginu velt yfir á bökun- arplötuna, losið það varlega með hjálp breiðblaða hnífs. — Skerið síðan út karamellurnar í férkant- aða bita og vefjíð þeím inn í pregamentpappir, sem gjarnan má vera mislitur. SÍTRÓNU-DROPAR 500 gr. flórsykur, 2 dl. vatn, 5 sítrónudropar. m xJ SS>——A Búið til í potti á eldavélinni þykkt deig úr flórsykrinum (sigt- uðum), og vatninu. Gætið þess að hita deigið, en ekki láta það sjóða, látið dropana í og hræfið vel í. Síðan skulið þér smyrja bökunarplötuna vel og láta síðan deigið i smá kúlur eða dropa á hana. Látið þetta kólna og losið af plötunni þegar droparnir eru orðnir vel kaldir. Gerið það mjög variega, því þeír eru mjög brot- hættir. Geymast bezt í blikkdós með þéttu loki, KAFFI-BITAR 125 gr. smjör, 250 gr. sykur, 1 dl. mjög stei'kt kaffi (ekki með kaffibæti), 1 dl. rjómi. Sykurinn og smjörið er brætt i potti í um það bil 10 mín. Síðan er kaffið og rjóminn látin út í og þetta er allt soðið þar til þykk froða hefur myndazt ofan á, hell- ið því þá fljótt á vel smurða plötu eða í form. Þegar deigið er orðið kalt er það skorið í hálf- mána eða ferkantaða bita. Þetta ágæta sælgæti má einnig búa til með súkkulaði í staðinn fyrir kaffi, þá er notað % pl. af suðusúkkulaði uppleyst í V2 dl. atf vatni i staðinn fyrir kaffið og rjómann. ,STÚDENTA-SÚKKULAÐI“ 100 gr. dökkt suðusúkkulaði, 1 matsk. sjóðandi vatn, 3 matsk. hakkaðar möndlur eða hnetur, l tesk. smjör, 2 matskeiðar hakk- íðar rúsinur. Súkkulaðið er brotið í smá- ;tykki í slcál, ásamt sjóðandi /atninu og smjörinu. Þetta er irætt yfir sjóðandi vatni og þeg- Framhald á bls. 28 Næstkomandi sunnudagur er þriðji sunnudagurinn í jólaföstunnl og þá eigum viS að kveikja á þriðja kertinu í aðventukransinum eða jólaföstukransinum. Þá kveiktu þúsundir manna um heim allan sitt íyrsta jóíaljós, eða tendruðu á fyrsta kertinu í aðventu- kransinum sínum. —- í fyrra toirtum við „uppskrift“ að slíkum kransi, sem hangir í fallegu silkibandi á 35—40 cm langri stöng, sem stentíur á fæti. Kransinn sjálfur er búinn til úr basti, og síðan klæddur með greni og skreyttnr með grenikönglum. — Nú skulið þið, sem ekki fengnð ykkur krans í fyrra, verða ykkur úti um eiim fyrir næsta sunnudag. Þessi skemmtilegi siður er mjög vinsæll í Evrópu. Hítnn minnir okkur á i.elgi jólanna áður en aðal undir- búningurinn kemst í algleyming og helgin fellnr í skugga „við- skiptanna". Smyrpð með smföri ÞÉR skulið athuga við jóíabakst- urinn að þegar þér bakið smá- kökurnar fyrir jóliðj skulið þér aldrei smyrja plötuna með smjör- líki, heldur nota smjör. Það er svo lítið sem fer af smjöri í þetta og hægt er meira að segja að nota pappíxinn utan.af smjörinu til þessi án þess að bæta þar pokkru við. — En þegar platan er smurð með smjörlíki kernur alltaf salt bragð af kökunum, sem getur eyðilagt þær gersam- lega. — Gott er að hafa það fyrir fasta reglu að kasta aldrei pappírnum utan af smjörstykk- inu ,heldur geyma það til þess að smyrja innan kökuform og plöturnar! Gæðið ykknr á eigin sælgæti um jólin Þfíðja kertið fendrað á sunnisdag Nú nálgast jólin óðum og allir cru önnum kafnir við að útbúa jólagjafirnar eða a. m. k. að hugsa um þær. Börnin eru fyrir löngu farin að biðja um hitt og þetta, —- og hér er listi, sem þau geta fengið til þess að fylla út með jólagjafaóskum sinum. Þau geta litað hann mcð skemmtilegum litum, og sáðan afhent hann pabba eða mömmu. EZT yBinsr Hofum opnað nýja verzlun í VESIUKVC Við munum sem áður kappkosta að selja góðan og smekklegan kvenfatnað með sanngjörnu verði og við allra hæfi. Eigum mikið af smekklegum jólagjöfum. BE ZT VESTURVER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.