Morgunblaðið - 15.01.1956, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.01.1956, Blaðsíða 8
8 HÍOKGVNBLAÐIÐ Sunmidagur 15. jan. 1956 tJtg.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigtu. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlanda. í lausasölu 1 króna eintakið. Vonmáttugur hælbítshúttur ve'tlr engum sigur ÞEIM, sem lesa blað íslenzkra jafnaðarmanna getur naum- ast dulizt, að þess klofnari og vanmáttugri, sem flokkur þess verður, þeim mun illyrtara og ábyrgðarlausara verður málgagn hans. Allur málflutningur þess mótast af máttvana hælbítshætti. Það hendir varla, að nokkurt mál aé þar rætt af rökum og stillingu. Hitt er daglegt brauð, að per- sónulegur rógur um andstæðing- ana og þá fyrst og fremst for- mann stærsta stjórnmálaflokks- ins, Ólaf Thors forsætisráðherra, gangi þar ljósum logum. í gær birtist ein af þessum rógsgreinum um forsætisráðherr- ann og ættingja hans í Alþýðu- blaðinu. Eru honum þar bornar é brýn hvers konar vammir og skammir, auk þess sem erfiðleik- ar sjávarútvegsins eru allir skrif- aðir á hans reikning. Hér hefur farið eins og stund- um áður. Blað íslenzkra jafnað- armanna er í litlum tengslum við líf og starf íslenzku þjóðarinnar. Það veit ekki það, sem útvegs- menn og sjómenn um land allt vita, að enginn núlifandi stjórn- málamaður hefur unnið íslenzk- um sjávarútvegi eins mikið gagn og einmitt Ólafur Thors. Undir hans forystu hafa framleiðslu- tæki sjávarútvegsins verið bætt, nýrra markaða aflað og lána- stofnanir hans efldar. Enginn íslenzkur stjórnmálamaður nýtur heldur meira trausts meðal út- vegsmanna og sjómanna þessa lands en formaður Sjálfstæðis- flokksins. Það er vissulega ekki hans sök þótt lánlaus forysta hinna sós'alísku flokka innan laun- þegasamtakanna hafi átt drv^stan þátt í að leiða stór- felidan hallarekstur yfir ís- lenzkan sjávarútveg. Það, sem Ólafur Thors og flokkur hans hefur byggt upp með nýsköp- un atvinnutækjanna við sjáv- arsíðuna hafa hælbítarnir í kommúnistafiokknum og AI- þýðuflokknum reynt að rífa niður með því að sökkva framleiðslunni stöðugt dýpra í fen hallareksturs og vand- ræða. Það er ástæða þess að bátaflotinn hefur ekki treyst sér til þess að hef ja veiðar um þessar mundir. Þegar Alþýðuflokkurinn fékk snertu af ÚR DAGLEGA LIFinU leiðslutækin grotnuðu niður og það var t. d. bannað að kaupa ný skip til landsins. En hvað hafði Alþýðuflokkur- inn svo upp úr herhlaupi sínu á hendur íslenzkri útgerð og rógs- herferð sinni gegn Ólafi Thors? Kom hann sterkari út úr kosn- ingunum 1937 en hann var fyrir þær? Nei, sannarlega ekki. Hann beið stórfelldan ósigur. Komm únistar unnu hins vegar mik- inn sigur og fengu í fyrsta skipti fulltrúa á Alþingi. — Nokkru síðar klofnaði Alþýðu flokkurinn. S'ðan hefur hann ekki borið sitt barr. Hann hef- ur öðru hverju fengið snert af bráðkveddu og hangir nú svo rækilega á horriminni, að kosningabandalag við Fram- sóknarflokkinn er eina ráðið, sem hann eygir til þess að fá einn þingmann kosinn í Reykjavík, og þar með fáeina uppbótarþingmenn í kjölfar hans inn á þing. Vandamá! sjávarútvegs- ins verða ekki Ieyst ■Á ÞAÐ óvenjulega hneykslis- mál hefur nú komið upp í íslenzkri blaðamennsku, að Ijóst er orðið að Magnús Kjartansson, aðalritstj. komm- únistablaðsins, hefur berlega falsað ummæli John W. Whites, yfirmanns varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli, á blaðamannafundi hinn 28. nóv. s.L — ic Á þessum blaðamannafundi voru staddir níu íslenzkir hlaðamenn og þótti það strax undarlegt, að frásögn Magnús- ar af fundinum bar ekki sam- an við frásagnir hinna blað- anna. Þetta vakti þó enga meiriháttar athygli, vegna þcss að menn eru orðnir svo vanir því að kommúnistablað- ið snúi við staðreyndum. ★ ★ ★ MEGIN fölsun kommúnista- blaðsins var sú er hann ritaði eftirfarandi: „Þá hefur hernámsliðið áform Si&ópLÍlmcý L Lófenzhri bfafamennálm únista, þar til svo illa tókst til fyrir þeim, að þingmaður þeirra, Einar Olgeirsson, bar staðreynda- fölsun þessa inn á Alþingi. End- urtók hann rangfærslurnar í þingræðu og mælti eitthvað á þá leið, að það ætti að setja upp miklu fleiri radarstöðvar um landið. um að koma upp hérlendis mikl- um f jölda af radarstöðvum til við bótar þcim, sem fyrir eru og er markmiðið að radarkerfið spenni yfir landið allt. Frá þessu skýrði John W. White, hershöfðingi, yfirmaðui hernámsliðsins, í viðtali við ís lenzka blaðamenn í gær“. ★ ★ ★ STAÐREYNDIN er, að Whit< hershöfðingi minntist ekki eini orði á, „að koma upp miklun fjölda radarstöðva til viðbótar" Var þetta þó látið kyrrt liggjt eins og aðrar rangfærslur komm VeU andi óhrifar: Kvikmyndasýningar bannaðar börnum. ÞRÍR ungir kvikmyndahús- gestir“ — 15 ára stallsystur — láta í ljós óánægju sína yfir því fyrirkomulagi, sem haft er ó, til að koma í veg fyrir, að börn sæki kvikmyndasýningar, er ekki eru ætlaðar börnum yngri en 16 ára. þai b»*á?S!cveddu Alþvðueokkurinn off blað hans hafa stundum áður laPt. formann Sjálfstæðisflokksins í einelti með persónulevum ofsóknum og sví- virðinvum. h'ið gerðist t,. d. árið 1937 Þá var A ihvðuUokkitrinn tiltöluiega stór flokkur. var í rík- isstiórn með maddömu F-am- sókn ov átti 10 fulltrúa á þinri. Hann t^di b?ð bá væniegast sér til fvlaisaukninaar að fivtia frumvam um að gera einstak- lingsútgerð á togurum g.iaid- þrota og bjóðnvtq bessi afkasta- mestu framleiðslutæki lands- manna F r:;t o>' fremst var þessu frumvarr. he nt regn sfærsta togarsúu TSar'féiagi landsins, sem Ólaíur Thors var meðeig- andi i. í þessu sambáhdi má getá bess, að efti þriggjá ára stjórn „vin trí s jórnar“ Framsóknar og :A1þvðufiokksir>s var al’t atvinriu- líf á íslandi í kaldakolum. Fram- nmg Það er óhætt að fullyrða, að engum ábvrgum manni komi til hugar að vandamál sjávarútvegs- ins í dag verði leyst með rógi þeim og illmælgi, sem Alþýðu- blaðið hefur iðkað undanfarið. Sá málflutningur er aðeins enn ein sönnun þess, að flokkur is- lenzkra jafnaðarmanna er öllu láni firrtur. Hann getur ekki tek- ið á neinu máli af viti og ábyrgð- artilfinningu. Blað hans lætur persónulegar árásir og níð æv- inlega sitja í fyrirrúmi fyrir mál- efnalegum umræðum. í þessu sambandi má gjarnan minna á það, að einn af aðal- mönnum Alþýðuflokksins, Gylfi Þ. Gíslason prófessor, hefur stundum undanfarið staðið upp á Alþingi og vítt íslenzka blaða- menn fyrir skort á háttvísi í skrifum þeirra. Þeir séu alltof persónulegir og óheiðarlegir í málflutningi. En hvernig lætur svo þessi virðulegi vandlætari blað sins eigin flokks haga baráttu sinni? Þannig, að Alþýðublaðið er nú að slá öll met, jafnvel kommúnista, í persónuníði og sóðahætti !! Sjálfstæðismenn þurfa vissu- lega ekki að kvarta undan þessu. Slíkur málflutningur andstæð- inga þeirra sakar ekki Sjálfstæð- i isflokkinn og leiðtoga hans. Það var Alþýðuflokkurinn, sem beið , mikinn ósigur árið 1937 en ekki Sjálfstæðisflokkurinn og formað- ur hans, enda þótt ætlunin hefði j verið að rýja hann fylgi og æru. Alþýðublaðinu er velkomið að halda áfram hinum hugsjóna- snauða og máttvana hælbíts- ! hætti. Og það mun áreiðanlega halda honum áfram. Sjálfstæðis- j flokkurinn og forystumenn hans I munu hins vegar halda áfram að vinna að lausn vandamáia þjóð- i arinnar. Og þau muru verða leyst rneð samvinnu ábýrgra | raanna, sem meta 'hiéiía þjóðar- hag en hælbítsháttinn og per- ' sónuróginn, En undir þeim gunn- fánum virðist blað jafnaðar- manna ætla flokki sinum að berjast í framtíðinni. 1 „Fyrir skömmu var sýnd hér í bænum kvikmynd — ein af mörgum — sem bönnuð var börn- um innan 16 ára alduis. Við stöllurnar freistuðum þess að ráðast til inngöngu, þó að við hefðum ekki náð tilteknum aldri. En okkur var varnað imigöngu, og var það reyndar algjörlega réttmætt, — og ef til vill okkur sjálfum fyrir beztu. En mergurinn málsins er sá, að þarna sáum við marga kunningja okkar fara inn óhindraða — voru sumir jafnvel yngri en við — og enginn þeirra hafði náð tilteknum aldri. Gengu þeir hnakkakertir rakleitt inn, án þess að nokkur amaðist við þeim. Hæpið fyrirkomulag. REYNDAR voru þeir allir há- vaxnari en við, sem erum all- ar lágar í loftinu. Þykir okkur ‘ það nokkuð hæpin a)5ferð að hleypa unglingum inn á kvik- myndasýningar, ef þeir eru nægi lega hávaxnir. Þykir okkur ein- l sýnt, að hver og einn hafi með sér passa með andlitsmynd í, er 1 gefi greinilega til kynna, hver aldur viðkomanda sé. | Að afstöðnum þessum óförum snerum við aftur til miðasölunn- ar til að fá að skila aðgöngumið- 1 unum aftur. Var okkur tjáð þar, i að aðgöngumiðar væru ekki end- urgreiddir. Þótti okkhr nú skörin ; færast upp í bekkihn — svo f jöl- ' margar ástæður geta legið fyrir því, að viðskiptavinirnir verði að skilá aðgöngumiðunum aftur - - ' en við fengum ekkert að gert. Finnst okkur full ástæða til, að þessu sé breytt. ! Annað er það, sem við vildum gjarna benda á í þessu sambandi. Æskufólk þykir illa uppalið nú á dögum, og hafa menn mörg orð um pað. Samt er það svo, að full- orðið fólk sem fæst við afgreiðslu störf, er oft og tiðum miklu ókurteisara í framkomu við börn og unglinga en við fullorðna. Þetta er ærið varasamt — börn og unglingar taka fullorðna fólkið sér til fyrirmyndar.“ Kennari vel að sér um sin fræði KÆRl Velvakandi! Hinn 10. þ. m. var skrifað um þáttinn Daglegt mál, sem Eiríkur Hreinn Finnbogason ann- ast. Ég gat ekki stillt mig um að skrifa nokkur orð út af grein þessari. Heldur fannst mér hún vera ómakleg, þar sem kennari þessi er vel að sér um sin fræði og svo skýr og röggsamlegur í út- varpi, að mér dettur aldrei í hug að skrúfa fyrir, þegar hann byrj- ar að tala. En hitt er svo annað mál, hvort ykkur blaðamönnunum fellur það vel i geð, sem hann segir, en heldur vil ég nú ráðleggja ykkur að hlusta vel á hann og reyna að læra af honum, en að rjúka upp, þótt hann láti ykkur stundum heyra, að ýmislegt megi betur fara um daglegt mál blaðanna. — Að lokum vildi ég beina þeim tilmælum til forráðamanna út- varpsins, að Eiríki Hreini verði sem lengst falið að annast þátt þennan, og ég veit að ég mæli fyrir munn margra útvarpshlust- enda. — Útvarpshlustandi". Ég þakka útvarpshlustanda fyr- ir bréfið. Aðeins vil ég geta þess að hjá honum gætir nokkurs mis- skilnings um ástæður fyrir gagn- rýninni hér í dálkinum um dag- inn. Það sem fyrir mér vakti var ekkert annað en að benda á það, að málhreinsun getur, ef hún fer út í öfgar. orðið aflimun málsins. Ég vil i sjálfu sér glaður taka undir þær óskir, að Eiríkur Hreinn fái sem allra lengst að gagnrýna okkur blaðamennina og að hann geri það sem bezt, af víðsýni og rökfestu. Merklð, sém klæðlr landlff. John. W. White hershöfðingi — orð sem hann sagði aldrei Þá sá dr. Kristinn Guðmunds- son, utanríkisráðherra, ástæðu til að andmæla þessu. Hann sagði, að fjölgun radarstöðva á landinu hefði ekki komið til tals. Á slíkt hefði hvergi verið minnzt, nema í frásögn ritstjóra kommúnista- blaðsins af samtali við John White hershöfðingja. Kvaðst dr. Kristinn hafa spurt hershöfðingjann, hvort hann hefði rætt um slíkt, en hann svar- aði algerlega neitandi. Um það hefði hann aldrei mælt eitt orð. ★ ★ ★ EFTIR þessar umræður á þingl hafa uppiýsingar fengizt um það, að allt samtal á blaðamannafund- inum 28. nóv., var tekið upp á segulband og nákvæmt eftirrit samkvæmt þvi. Hefur fulltrúi lögreglustjórans á Keflavíkur- flugvelli, Magnús E. Guðjónsson, og Benedikt Þórarinsson, yfirlög- regluþjónn, gefið út eftirfarandi vottorð: „Við undirritaðir vottum, að við höfum hlýtt á segulbands- upptöku, tekna á blaðamanna- fundi hjá John W. White, hers- höfðingja, 28. nóvember s.l. og borið saman endurrit, sem er orði til orðs samhljóða því sem við heyrðum af segulbandinu. Er þar hvergi á það minnzt, að til standi að fjölga radarstöðvum hér á landi. Magnús E. Guðjónsson, Benedikt Þórarinsson". ★ ★ ★ I ENDURRITI af samtali á blaðamannafundinum sést að hershöfðinginn minnist hvergi á, að fjölga eigi radarstöðvum hér- lendis. Þegar einn fréttamannanna, Guðni Þórðarson, við Tímann, spurði um radarstöðvarnar al- mennt og hvort hægt væri að hafa gagn af þeim við farþega- flug, svaraði White hershöfðingi: ★ ★ ★ í LAUSLEGRI þýðingu hljóðar þetta svo: „Ég óska ekki eftir aS gefa ná~ kvæmar upplýsingar um stað- setningu eða tölu radarstöðvanna. Má ég svara spurningu yðar þannig, að áætlun okkar er að byg'gja nógu margar radarstöðvar á landiru til bess að bær komi að gagni við loftvarnirnar. Það m.ieg vel hæet að ncta ' radarstrðvanur til aðstoðar far- þegaflugi. Sannlrikurinn er sá að fylgzt er mrð öllum flugvélum á radarrum, bæði beini sem koma . inn til landsios cg fava frá þviM. Skömmu síðar í samtalinu tek- ur hershöfðinginn fram, að bygg- Framh. á bls. i2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.