Morgunblaðið - 09.02.1956, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.02.1956, Blaðsíða 7
i pr*'""- Fimmtudagur 9. feórúar 1956 MORGUNBLAÐIÐ Á ÉG AÐ GÆTA BRÓÐUR MSlMS ÞA SAGÐI Drottinn við Kain: Hvar er Abel bróðir þinn? En hann mælti: Það veit ég ekki, á ég að gæta bróður míns?“ (Mós. 4. 9—10). Þessi sígildu og alvarlegu orð koma ósjálfrátt í hugann, þegar rætt og ritað er um mannúðar- og menningarmal og önnur þau, er marka spor í líf- og sambúð manna. „Á ég að gæta bróður míns?“ svaraði Kain Guði — og samvizkunni, eftir að hann hafði drepið Abel, að því er virðist vegna öfundar og eigingirni. Á ég að gæta bróður míns? Þessi spurning er greypt í sál hvers hugsandi manns, vísast fylgjandi öllum aðalcrúarbrögð- um jarðar. Vitanlega hefir gengið á ýmsu að uppfylla þessa bróður- skyldu í gegnum aldirnar. Þrétt fyrir miklar og fjölbreyttar efn- íslegar framfarir og síaukna skólamenntun, sjást þess enn of fá dæmi, að bróðurkærleikurinn skipi þann sess, er vera ætti í sambúð manna og þjóða. Lengra eru mennirnir ekki komnir að því háa marki. Samt miðar í átt- ina. Það eru svo margar athafnir manna og mannhópa, sem rýra manngildið og skerða í bráð og lengd gleði og farsæld þúsund- anna. Fjöldi vökulla þegna þjóð- arinnar sáu, að í óefni stefndi ef þannig átölulaust var látið landi, ef menn hætta sér út á þá hálu braut, að vara við ýmsum horfa, en fengu ekki sem skildi jim þokað til bóta. Það er nú svo á stundum í okkar lýðfrjálsa augljósum röngum lifnaðarhátt- um og öðru því er miður fer, og vara við afleiðingunum og benda á úrræði til bóta, að hinir sömu menn eru bornir sökum, taldir þr^fegsýnir og ofsatrúarmenn. sem ekki sé eyðandi orðum við. Þannig er ávörpin, sem t. d. Góð- templurum og bindindismönnum eru valin, þegar rætt og ritað er um áfengismálið og leiðir út úr ógöngum ofdrykkjunnar. GÓÐTEMPLARAREGLAN Meðal annarra orða: Hvers vegna þessi hrópyrði og ásakanir til Góðtemplarareglunnar? Það gegnir fádæmum skraf og skrif sumra manna, um markmið og leiðir bindindissamtakanna í landinu um áfengismálin Það mætti draga þær ályktanir af þeim skrifum, að félagsskapur þeirra kappkostaði að vinna á móti öllum skynsamlegum leið- um gegn áfengisbölinu, að allar þeirra gjörðir í þeim málum væru gjörræði og fá!m. Það er vitanlegt þeim. er vilja Vita satt og rétt, að bindindis- hreyfingin í landinu vinnur merk mannúðarstörf. Sjónarmið og starfsgrundvöllur er þannig kristilegur í orði og athöfn: \ð reyna eftir megni með ráðum og dáð, að styrkja og rétta við þann sem breyskur er og fallið hefir fyrir freistingum vínsins, fræða um skaðsemi þess og vinna að varanlegri lausn út úr töfrum Og fjötrum vínblekkingarinnar. Er það ekki fullkomið öfugmæli og ábyrgðarleysi, að kasta stein- um lítilsvirðingar og illmælgi að þeirri einu stofnun. sem i sjötíu ár hefir helgað sér það göfuga hlutverk. að vera hrópandinn í eyðimörk vínnautnar og oí- drykkjuböls. Varað við hættunni Og sýnt fram á með rökum, hvern ig getur farið og hefir of oft farið, ef áfengis er neytt. Að forðast fyrsta staupið, er aðvör- un, sem ekki má vanmeta. Fyrir þessa starfsemi eru þeir dæmdir ofstækismenn. Væri ekki vert. að hugleiða hvernig væri í dag umhorfs í áfengismálum þjóðarinnar, ef Góðtemplarareglan hefði ekki náð hér fótfestu? Mér finnst svarið hljóti að verða á eána lund: að ástandið væri vægast sagt mun verra. Sökiun þess, að engin skipulögð fi'æðsla og hjálparstarfsemi hefði verið í gegnum árin um skað- Grein um áfengisvandamálið semi áfengisins, og ekkert mark- víst andóf á móti neyzlu þess og sölu og dreifingu. Þar sem lítil eða engin fræðsla er, er þekkingin á lágu stígi. Vegna verkanna standa íslendingar í mikilli þakkarskuld við Góð- templara og aðra þá karla og konur, er fórnað hafa tíma og fyrirhöfn um áratugi fjöldanum til heilla. HÁLEITT TAKMARK Hvers konar fólk er í röðum bindindissamtakanna? Það ég bezt veit, er í þeirri fylkingu konur og karlar úr all- flestum eða öllum stéttum þjóð- félagsins, sem langar að líkna öðrum, sér og skilur hvað áfeng- ið- er mikill bölvaldur. Einnig er þar fólk, sem illa hefir orðíð fyrir barðinu á Bakkusi og aðrir þeim áhangandi. Það orkar ekki tvímælis, að þama er ekki fóik að störfum vegna tildurs og hé- gómaskapar eða efnalegs ávinn- ings, því launin eru engin, nema síður sé. Takmark þessa fólks í nafni bindindissamtakanna er háleitt og markvíst, að útrýma orsök- um áfengisbölsins með stig- minnkandi áfengisneyzlu og að lokum öllu áfengi úr landinu. — Þetta er eina örugga og varan- lega lausnin. Það er önnur saga, hvenær lokatakmarkinu verður náð. Á meðan verður að vinna ötullega að bindindi og reglu meðal allra íslendinga jafnt hárra sem lágra. Mig langar að spyrja þá, er mest setja út á vinnubrögð bind- indismanna: Er sú kona o’g móð- ir ofstækismanneskja, sem fer alls á mis, er sér fram á eymd og hrun heimilisins, maka og föð- ur bama sinna verða andlegan og líkamlegan aumingja, eingöngu vegna langvarandi neyzlu og of- neyzlu áfengis? Eru þeir foreldrar ofstækis- manneskjur. sem horfa á barn sitt eða börn verða í auknum mæli áhugalaus og kærulaus um eigin hag og velferð, á hraðri leið út í spillingu og auðnuleysi, vegna vaxandi neyzlu áfengis? — Eru unnendur (getur jafnt átt við konu sem karl) ofstækismann- eskjur, þegar þeir sjá fólk sér nákomið vini og velunnara spilla og oft eyðileggja heilsuna, at- vinnuna vegna áfengisneyzlu? — Nei. Það er ekki hægt með neinu móti, og til þess þarf tals- verða óskammfeilni, að álasa bví fólki er hér á hlut að málum. og klína á það stimpli ofstækis- ins. Það er í alla staði mann- legt og sjálfsagt frá þess dýr- keyptu reynslu, að vinna mark- víst og með öllum löglegum og siðferðilegum aðferðum að því, að takmarka sölu og neyzlu á- fengis og því verði útrýmt að lokum. — Þeim hejans bölvaldi, sem er aðal orsök ógæfunnar og hefir valdið óbætanlegu tjóni, vonbrigðum, sorg og kvöl. „Mað- ur líttu sjálfum þér nær, er í götunni steinn". Ég held að það sé öllum þarft og hollt að dæma ekki, en ganga hljóðlega og hógvært um dyr böls og harma. Það eiga svo margir um sárt að binda, vegna hersetu Bakkusar. Ef til viíl einnig þeir, er hrópa hátt og krefjast meira frjálsræðis um sölu og neyzlu áfengra drykkja. Það er gott að vera minnugur þess, að það ber ekki allt upp á sama daginn. ÁFENGISSJÚKLINGAR Sagt hefir verið frá því, í blöðum að nærri þúsund áfeng- issjúklingar væru í landinu, að flestir þeirra væru ólæunandi, ævilangt vesalingar. Það er i- hugunarefni, hvað þetta ógæfu- fólk hefir valdið aðstandendum miklum erfiðleikum og hugai - angist áður en kom t þetta loka- stig vínneyzlunnar. Guði sé lof fyrir það, að þar lenda ekki all- ir er neyta víns. Því má ekki gleyma, að fyrsta staupið er upp- hafið, er of oft verður byrjun á langri þrautagöngu og auðnu- leysi, er endar með dauða fyrir aldur fram. Fullyrt er að drykkju skapur færist i aukana með ári hverju, kveður'nú mest að honum meðal æskufólks. Þetta er hræði- leg staðreynd, sem margur ótt- aðist þegar vínkránum fjölgaði. í alvöru talað: — Er ástæða fyr- ir þá eldri að sakast við æsk- una, að benda á drykkjuskap hennar og óreglu? Ég ætla ekki að afsaka þessi víxlspor hennar, þau eiga sínar orsakir eins og allar athafnir, illar og góðar. Er ekki æskan með óreglu sinni að taka á móti arfinum, sem eldri kynslóðin læt- ur henni í té? Hafa ekki þeir eldri heimtað fleiri drykkjukrár og óskorað frelsi til sölu og neyzlu áfengra drykkja? Hafa ekki þeir ungu séð þá eldri und- ir áhrifum víns og ofurölvi á mannamótum, á götunum, á skemmtistöðunum, á vinnustöð- unum, við bílakstur' á heimil- unum, um borð í skipunum o. fl. stöðum. Hafa ekki þeir ungu séð og heyrt um ,,timbruðu“ menn- ina, sem voru ýmist hálfir menn eða ófærir til vinnu að morgn'i, vegna ofurölvunar að kvöldi og fram á nótt, eða þá r.ina, er alls ekki mættu af sömu ástæðu. Halda víndáendur, að slíkt, fram- ferði láti sig án vitnisburðar? Er ekki sífellt verið að klifa á bví, að æskan eigi að erfa land- ið, er annars að vænta en hún erfi ókostina eins og kostina. Hún astlar sem nú horfir að svala sér á ókostunum. Hvernig sem henni tekst við Grettistökin? Þegar þessi vandamól eru skoðuð frá kristilegu sjónarmiði, er aðeins ein leið, sú að vaxa frá víninu. að neyta ekki veita og hafa um hönd vín og annað það, er verður mönnum til freist- ingar og tjóns. — Hvað höfðingj- arnir hafast að, hinir ætla sér leyfist það. BINDINDISMENN f ÁBYRGÐARSTÖÐUR Þeirri réttmætu kröfu hefir stundum verið haldið fram, að í ábyrgðarstörf til sjós og lands verði valdir bindindis- og reglu- menn, menn sem þekktir eru að því að misnota ekki vín. Ekki er það síður nauðsyn. að skóla- stjórar kennarar oe aðrir upp- alendur séu bindindis- og reelu- menn í hvívetna. Þessir aðilar móta mest börn, unglinga og æskumenn, á þeirra samvizku hvílir sú skylda, að kenna þeim í orði og með góðum fordæmum undir lifið og hvernig verði bezt lifað sjálfum sér og öðrum til gæfu og gengis. Eins og stundum áður, var í útvarpinu siðasta vetrardag 1954, dagskrárliður helgaður háskólastúdentum. — Þetta kvöld var meðal annars rætt um félagslíf stúdenta. Kom í ljós, að 20 félög bg samtök væru í skólanum. Ekkert þeirra var helgað bindindishugsjóninni — Þetta ár voru um 700 ungmenni þar. Háskólinn er stofnun, sem menntar mótar og útskrifar alla embættismenn þjóðarinnar kenn aralið æðri skóla og marga óðra er fara í viðskipta- og athafna- lífið. Skapgerðarmótun stúdenta í Háskólanum gagnsýrir þannig allt þjóðlífið. Þess vegna varðar mestu, að frá þessari æðstu menntastofnun komi bindindis- sinnaðir einstaklingar. Nú er því ekki fyrir að fara. Væntanlega verður bót á því ráðin, því á- fengisvarnarráð hefir mikir.n áhuga á að fá lækni, sem þekkir til hlítar áfengismálin og síðan stundi fræði sín við hóskóla. AFENGISSALAN Þegar breytingar á áfengis- löggjöfinni voru á döfinni, full- yrtu veitingamenn, hófdrykkju- menn og aðrir vínunnendur, að ekki yrði meira drukkið, þó út- sölustöðum yrði fjölgað. Bind- indissamtökin töldu hins vegar, að rýmkun á sölu, myndi auka vínneyziuna Árið 1954 er spíritus neyzla á mann 1,574 lítrar, eða 105 gr. meira en 1953, þá var hún 1,469 lítrar á mann að með- altali. Þegar þetta er ritað, eru ekki komnar skýrslur fyrir ár- ið 1955. Árið 1954 seldi Áfengisverzl- unin áfengi fyrir kr. 84,197,529.00 — er það nær 7,8 milljón kr. meira en árið áður. Er þetta nær 600,00 kr. skattur é nef. Þegar veitingahús og levnisalan hafa bætt sinni þjónustu við, hvað er skatturinn þá hár? Þetta eru blóðpeningar, sem bölvun fylgir. Það er hráslagaleg staðreynd, að fjárhagsgrundvöllur. ríkisins skuli riða eða falla saman, ef tekjur af áfengi og tóbaki væru numdar í burtu. Það er mikið auðnuleysi, að þurfa að byggja afkomu sína af nautnafýsn og ósjálfstæði fjöldans. Undanfarin ár hafa íslendingar verið minnst- ir vínneytendur allra Norður- landanna og þótt víðar væri leitað. Mest vegna þess, að vín- sölustaðir hafa verið fáir og strjálir og þeir bundnir við lok- unartíma sölubúða, engin smá- skammtasala og engin sala á- fengs öls. Vitað ei-, að hömlur draga úr neyzlu. HERÐA ÞARF RÓÐURINN Ráðamenn þjóðarinnar hai'a illu heilli látið undan síga. Vegna þess er augljóst, að nú verður að herða róðurinn til stórra muna frá því sem er, til að vega á móti áfengisflóðinu, er seytlar með vaxandi hraða inn í líkama og sál æ fleiri íslendinga. Sam- kvæmt nýju áfengislögunum hef- ir verið sett á stofn áfengis- varnarráð, er það skipað 5 mönn- um, góðum og gegnum, sem all- ir geta treyst. Formaður er bind- indisfrumkvöðullinn Brynleyfur Tobíasson. Áfenisvarr.arráði eru falin þessi verkefni meðal ann- ars: „Vinna að eflingu bindindis- samtaka í landinu, að fá til vegar komið bindindisfræðslu í skólum í samráði við fræðslumálastjórn- ina, að vinna gegh neyzlu áfeng- is og efla samvinnu meðal allra bindindissamtaka í landinu. Á þennan hátt er reynt að haía áhrif á almenningsálitið. Alþingi hefir nú lagt fyrir hina nýju stofn un, að vinna gegn neyzlu áfengis, að sjálfsögðu vegna þess. að það telur þroska þjóðarinnar og heill standa tjón af. Viljum við í þessu efni heita á landsmenn að bregðast vel við málum þessuA%g starfa af alhug að eflingu bindíftdismála í land- inu, ekki sízt blöð og útvarp. — Áfengisvarnarráð mun einnig í náinni framtíð leggja áherzlu á, að fá menn til þess að ferðast um laodið og leiðbeina áfengis- varnarnefndum, sem eru í hveri- um hreppi og bæjarfélagi, : starfi sínu. Nú kemur út eitt rit mán- aðarlega, „Eining". er fjallar um þessi mál. Þá hefir verið rætt um stofnun landssambands i bindindismálum, sem þegar er komið í framkvæmd og koma á útvarpsþætti o. fl. Þá er einnig eitt af áhuga- málum ráðsins að fá lækni til að kynna sér áfengismál til hlít- ar, sem síðan stundaði grein sína í sambandi við Háskóiann. Þetta er ágrip af samtali við Brynleif Tobíasson um störf á- fengisvarnarnefndar. AFSKIPTALEYSI A EKKI AÐ ÞEKKJAST Þessi starfsgrundvöllur spáir góðu um hugsaðan árangur. Það varðar miklu að ekki sé dottað ,á verðinum, að allir geri skyldu sína. Ekki aðeins þeir, er til' þessa hafa barizt í fremstu víg- línu og allur þunginn hefur mætt á, einnig hinir, er hafa vérid afskiptalausir um þessi mál. Ntx eru þeirra t ekifæri komin, af5 vakna af svefni iinnuleysis og! sjálfselsku og taka virkan og já- kvæðan þátt í baráttunni við á- fengið o? áf^ngisböl’ð er ógnar í vaxandi mrali velferð og ham- ingju svo margra einstaklinga og þjóðinni allri. Það er bágt til þess að vita, hvað margir láta sig litlu eða engu varða, hvernig þessu stór- máli reiðir af. Samt varðar þett» þegnana miklu meira en" þeir gera sér grein fyrir, bæði í tíms og framtíð. Sofandahátturinn og sjálfsblekkingin gengur sv® langt, að fólk, sem á um sárt aC binda vegna langvarandi óregiu og volæðis aðstandenda og vinc*, hefst lítið eða ekkért að, jafn* vel lítilsvirðir þær stofnanir og einstaklinga er . vilja hjálpa. Hlutleysi í þessu máli sem öðr- um er varða heill og hamingju fjöldans, eru svik við alla. ÞaS er að mínum dómi aum mann- tegund, sem ekki hefir manndóna eða þor til að láta skoðun sína í ljós, taka ákveðna afstöðu til mála og sýna í verki hvar þeii' standa á hverjum tíma. Þeir lærifeður, er hamra í tím& og ótíma á hlutleysi, — hlutleysi er dauð hönd, sem lögð er a dómgreind og ábyrgðarkennd manna. Hlutlausi maðurinn ber kápuna á báðum öxlum, þykist; allra vinur, engum trúr. Ei' nokkur maður í innsta eðli sínu hlutlaus? Jesús Kristur, höfund- ur kristindómsins, hafnaði hlut- leysinu. Hann segir: „Sá sem ekki er með mér, er á móti mér, og sá sem ekki samansafnar mef) mér, sundurdreifir" Lúk. J1, 23. Þessi afstaða frelsarans, er ótvíræð og lærdómsrík. „BLÁA BANDIГ Félag fyrrverandi ofdrykkju- manna er starfandi í Reykjávík, Hafa forustumenn þess stofnsett hæli, „Bláa bandið“, til a8 hjálpa og lækna þá er Bakkuít hefir lagt að velli. Þessir menn hafa sett sér það takmark, afí hjálpa hver öðrurr- og sam- eíginlega berjast gegn ofdrykkju að reyna eftir getu að forðast vínið og þá „fyrsta staupið“, sem allt af er byrjunin og þess vegna hættulegast. Þessi starfsemi hefii' þegar komið mörgu góðu til leið- ar, og á áreiðanlega eftir af? vinna þrekvirki á sviði menn- ingar og mannúðar. Það vanhagar alla jafnan um Sam\œÉÉS(sí«.eim- stanzar vegin- um cðraraÍt" binda urh sárin ala þeim særðu. Okkt9 igéiýsvo tamt að gaiíjj|sg látast ekki sjá Tfj'áiHum öðrum að géj^ V^erkið. Það er sýpé sta. Þessi starfsem^; luð á trúnni á Q|iSp gitói mátt Jesú Knstá^ v&rðunum: „Á ég ' ál míns“ svarað '0f<>g kærleiksverkip rttökin vinna þanr fjlndvelli og að sö^ jum. að draga sem og skemmdarsta’rj^. jusar. Til þess þáðy. ^prs marga sjálfboða& mmæði, fórnfýsi 'íka þjónustu. tláfíö GÆTA MÍNS“ Hjuð gæta bróður mins': , jjfemvizkuspurning,t: sém ; ^áfcyélt er að svara,! én jíriérfiðar að rækja > ^'úmgengni við menhitia. Itur svarar skyldu kvöð- „Því að húngéáðu* 'þér gáfuð méýfaðí ■'1 £jyar eg, og-þér gáfu& Sp&lta; gestur var ég, jQ-úg; naldnn . óÖ.. Frainh. á bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.