Morgunblaðið - 25.08.1956, Síða 2
2
MORCUISBLAÐIÐ
Laugardagur 25. ágöst l95ð
íslendingar urðu sjöttu
Evrópumeistaramótinu
\ bridge
Sigruðu allar Norðurlanda'
þjóðirnar
EVRÓPUMEISTARAMÓTIÐ í bridge fór fram í Stokkhólmi
dagana 26. júlí til 5. ágúst. íslenzk sveit tók þátt í mótinu
Blaðið hefir átt stutt samtal
við Hörð Þórðarson sparisjóðs-
stjóra, en hann var fararstjóri ís-
lenzku sveitarinnar á mótinu. —
Lét hann hið bezta af förinni
og kvað þá íélaga ánægða með
árangurinn á mótinu. í efsta
sæíinu voru Ítalía og Frakkland
jöfn með 25 stig, þá Austurriki
með 23 stig og Bretland með
sama stigafjölda, síðan kom Sviss
með 17 stig og þá ísland með
17 stig.
Gat Hörður þess að líklega
hefði þetta bridgemót verið
liarðasta Evrópumeistaramótið,
sem haldið hefir verið. 1950
varð islenzka sveitin nr. 3 á
mótinu, en hana skipuðu sömu
mennirnir sem nú. Næsta Ev-
rópumeistaramót fer fram í Vín
að ári.
Tcrence Reese, London, sem
er frægastur allra núlifandi
bridgespilara, skrifaði í E.M.-
Bulletinen (dagblað Evrópumeist
aramótsins í Stokkhólmi):
Fraklcar hefðu tapað fyrir okk-
ur, ef okkar menn hefðu verið
jafndjarfir í slemmusögnunum
og þeir.
Og í seinni háifleiknum vio
íslendinga, sem byrjaði með að
við höfum 22 á móti 15, munaði
minnstu að við töpuðum honum
Slúaradia, einn af ítölsku Evrópu
meiálurunum nýju
af sörnu ástæðu, en sem betur
fór þá hékk það í jafntefli.
irí&rð í d«s*f
Hueidruð maniia í þeirri fyrstu
IDAG efnir Ferðaskrifstofan til annarrar Viðeyjarferðar sinnar.
Sú hin fyrsta var farin síðasta laugardag og tóku mörg hundruð
manns þátt í henni og þótti bæði gaman og fróðleikur að. Þriðja
Viðeyjarferðin verður á morgun.
f spili nr. 36 átti Norður:
Sp.: 9. Hj.: A, K, D, 10, 6, 3, 2.
Tíg.: A, D, 10, 5. Lauf: K.
Suður átti Sp. Á, 10, 8, 3, 2. Hj.
8, 5. Tíg. K, 3. Lauf G 10, 9, 5.
í opna herberginu opnaði Joel
Tarlo í norðri á 2 hjörtum og
eftir 2 spaða hjá suðri sagði
hann 3 tígla. Rockfelt (suður)
sagði 3 grönd og Tarlo 4 hjörtu,
sem varð lokasögnin á því borði.
— Eg álít að suður hefði átt að
láta meira til sín taka.
í spili nr. 38 komu þessi spil
í austri og vestri:
Austur: Sp. 8, 2. Hj. K, 10, 7, 2.
Tíg. Á, 2. Lauf K, D, 10, 8, 7.
Vestur: Sp. Á, K, D. Hj Á, D,
G, 9, 8. Tíg. D, 8, 7. Lauf G, 6.
Franklín (austur) opnaði á
einu laufi og Louis Tarlo (vest-
ur) krafði með 2 hjörtum, Frank-
lín sagði 3 hjörtu, Louis Tarlo
3 spaða og Franklin 4 hjörtu,
sem varð lokasögnin. Mér finnst
að Franklin hefði átt að segja
4 tígla við 3 spöðum.
Sagnir Einars Þorfinnssonar
og Gunnars Guðmundssonar í
fyrra spilinu voru:
Norður: 2 lauf, Suður 2 sp.,
Norður 3 hj., Suður 3 gr. Norð-
ur 4 tíglar, Suður 4 gr., Norð-
ur 6 hj.
Sagnir Stefáns Stefánssonar og
Lárusar Kadssonar í seinna spil-
inu voru:
Austur 1 lauf, Vestur 2 hj.,
Austur 3 hj., Vestur 4 tíglar,
Austur 5 tíglar, Vestur 6 hjörtu.
Báðar slemmusagnirnar unnu
íslendingar. Stokkhólmsmótið
stóð í 10 daga og urðu íslending-
ar í sjötta sæti af sextán þjóðum
og eístir af Norðurlöndum.
Flesta dagana var spilað frá
kl. 10 á morgnana, með matar
hléum til kl. 1 að nóttu.
Ambassador fslands í Stokk-
hólmi, Magnús V. Magnússon,
fylgdist af miklum áhuga með
frammistöðu landanna og kom
stundum tvisvar á dag til að
fylgjast með, og var sveitinni
ómetanlegur styrkur að honum.
MEÐ LEIBSÖGUMANNI.
Báðar hefjast ferðirnar frá
Loftsbryggjunni kl. 5 e.h. en
fólk er beðið að kaupa farmiða
fyrr um daginn í Ferðaskrifstof-
unni og framvísa þeim á bryggj-
unni. Leiðsögumaður verður með
í förinni.
¥ eiÖiþjáfnaðurinn !
UM NÁGRENNIÐ.
í kvöld kl. 7,30 efnir Ferða-
skrifstofan til kvöldíerðar um ná-
grenni höfuðborgarinnar, svo ef
einhverjir þekkja ekki bæinn
sinn of vel gefst þar ágætt tæki-
færi til að bæta úr því.
Farið verður um Rauðhóla,
Heiðmörk, Vatnséndahæð, Vífil-
staðavatn og Hafnarfjörð.
Á morgun verður farið í Borg-
arfjörðinn, Kaldadalsveg, að Húsa
ielli og um Hvítársíðu:
ÞANNIG leit einn laxinn
út, sem fyrir spregingunni
varð í Brynjudalsá, cr hann
hafði verið skorinn á Rann-
sóknarstoiu Háskólans. —
Greina má hvernig sund-
maginn er sprunginn og
blæðingar hafa átt sér stað,
við áfallið er varð fiskin-
um að bana.
(Ljósm. Hulda E. Michelson).
HAFNARFIRÐI. — íslandsmeist-
aramótinu í Engidal, sem háð
hefur verið þar þsssa viku, fer
nú að ljúka. F.H. er eina félagið,
sem ekki hefur tapað leik ennþá,
og leikur það úrslitaieikinn á
sunnudaginn kl. 5 við Í.R. Þurfa
F.H.-ingar ekki að ná nema jafn-
tefli til þess að vinna mótið. Þá
keppa einnig K. R. og Ármann
í kvennaflokki.
I dag lcl. 4 keppa Þróttur og
Ármann, Fram og K. R. í karla-
lokki og Ármann og Þróttur í
kvennaflokki. Má húast við mjög
harðri og skemmtilegri keppni
báða dagana, enda mikið í húfi.
Bæði á laugardags- og sunnu-
dagskvöld verður dansað í Engi-
dal á upplýstum palli, þ.e.a.s. ef
veöur leyfir, en þar er að sögn
mjög rómantískt þegar dimma
telcur. — G. E.
Hltmar 09 Vilhjálm-
ur lil Búkared
UN GLIN G ASUNDMEIST AR A-
MÓT Norðurlanda fer fram í
Hilleröd í Danmörku dagana 25.
og 26. þ. m. Af íslands hálfu er
einn þátttakandi í keppninni, en
það er Ágústa Þorsteinsdóttir úr
Glímufélaginu Ármanni og mun
hún keppa í 100 metra skriðsundi.
Fararstjóri verður Erlingur
Pálsson formaður SSÍ, en hann
situr einnig sundþing Norður-
landa, sem fram fer í Kaup-
mannahöfn hinn 24. þ. m. Verður
þar meðal annars gengið endan-
■MWTB^iirrTiiKrwTMMMBWKrirwiiirii
lega frá lceppnisreglum fyrir
næstu norrænu sundkeppni, sem
ákveðið er að fari fram sumarið
1957 og verður keppnin 200 m
bringusund eins og í fyrri keppn-
Úþurrkar
HELSINGFORS, 24. ág'úst: — Nú
horfir til vandræða í finnskum
landbúnaði. Ástæðan er sú að í
helztu landbúnaðarhéruðum
landsins hafa verið stöðugir ó-
þurrkar í allt sumar. Sums staðar
hefir rignt upp á hvern einasta
dag og víða hefir regnið mælzt
yfir 120 mm í þessum mánuðí.
— NTB.
íslenzka bridgesveitin á Evrópumeistaramótinu í Stokkhólmi. Frá
vinstri: Kristinn Bergþórsson, Lárus Karlsson, Gunnar Guðmunds-
son, Hörður Þórðarson, Stefán Stefánsson og Einar Þorfinnsson.
$©xfugur:
Einar Steindórsson
oddviti i
S.L. MÁNUDAG hinn 20. þ.m.
átti Einar Steindórsson, fram-
kvæmdastjóri og oddviti í Hnífs-
dal sextugsafmæli. Hann er fædd-
ur að Leiru í Grunnavíkurhreppi
og voru foreldrar hans hjónin
Sigurborg Márusdóttir og Stein-
Hnifsdal
Hann má í engu vamm sitt vitai
og vinnur öll sín störf af stakri
reglusemi og dugnaði. Hagsmuna
hyggðarlags síns gætir hann af
fyllstu árvekni. Vill hann og
hvers rnanns vandkvæði leysa er
til hans leitar.
Fyrir störf sín og mannkosti
nýtur Einar Steindórsson al-
mennra vinsælda. Allir, sem
kynnast honum bera til hans
mikið traust. Engum getur dulist
að hann leggur sig ávallt allan
fram um að vinna fjölþætt störf
sín vel og samvizkusamlega. Hef-
ur hann orðið byggðarlagi sínu
og íbúum þess að miklu liði með
árvekni sinni og dugnaði í mál-
um þess.
Kona Einars Steindórssonar er
Ólöf Magnúsdóttir frá Hóli í
Bolungarvík, ógæt kona og ber
heimili þeirra svip myndarskap-
ar hennar og snyrtimennsku. Eiga
þau tvö fósturbörn, 15 ára stúlku
og 12 ára dreng. Eru þau hjón
einkar samhent, gestrisin og
hjálpfús.
Það er ósk mín að Hnífsdalur
og Eyrarhreppur allur megi sem
lengst njóta farsællar forystu
dór Gíslason. En átta ára gamall
fluttist Einar vestur í Hnífsdal.
Tók Guðmundur Sveinsson út-
gerðarmaður og kaupmaður hann
í fóstur. Hlaut Einar þar mð
bezta uppeldi á hinu myndarlega
heimili Guðmundar og konu hans.
Einar Steindórsson hlaut góða
menntun í æsku sinni. Hann var
tvo vetur á héraðskólanum á
Núpi og árið 1918 íór hann á
Verzlunarskólann. Þaðan lauk
hann fullnaðarprófi árið 1920.
Settist hann þá að í Hnífsdal og
hefur átt þar heima síðan. Stund-
aði hann fyrst verzlunar- og skrif
stofustörf hjá Guðmundi Sveins-
syni. En árið 1930 keypli hann
eignir hans og hóf sjálfstæða
verzlun, útgerð og fiskverkun.
Jafnframt hefur Einar stundað
búskap. Stundaði hanrt þsnnan
atvinnurekstur um árabil. Á’-ið
1946 gerðist hann framkvæmda-
stjóri Hraðfrystihúss Hnífsdæl-
inga, sem er aðal atvinnutækið í
byggðai'laginu.
Einar Steindórsson hefur gegnt
fjölmörgum opinberum trúnaðar-
störfum fyrir hyggðarlag sitt.
Hann varð kornungur oddviti
hreppsins. Var það árið 1922, sem
hann var fyrst kosinn til þess
starfa. Gegndi hann því þá í þrjú
ár. í hreppsnefnd hefur hann átt
sæti í samtals 23 ár. Oddviti hef-
ur hann verið öðru sinni frá ár-
inu 1948 og til þessa dags.
í sýslunefnd Norður-ísafjarðar-
sýslu hefur hann verið síðan árið
1948 og í stjórn Rafveitu ísafjarð-
ar og Eyrarhrepps átti hann einn-
ig sæti í mörg ár sem íulltrúi
hrepps síns. Póstafgreiðslumaður
hefur hann verið síðan árið 1927.
Einar Steindórsson er vel
greindur maður og vandvirkur og
samvizkusamur svo að af ber.
Einars Steindórssonar. Mannkost-
ir hans og dugnaður verður æv-
inlega trygging fyrir góðum ár-
angri af störfum hans.
Vinir þessa mæta manns og
góða drengs árna honum svo allra
heilla sextugum um leið og þeir
þakka honum tryggð og vináttu
á liðnum tíma. — S. Bj.
Sveinn Bjönissoii
sýnir á Akureyri
AICUREYRI, 24. ágúst. — Sveinn
Björnsson listmálari opnar mál-
verkasýningu á morgun klukkan
íjögur í húsi Kristjáns Ká'istjáns-
sonar við Geislagötu. Verður sýn-
ingin opin alla næstu viku frá
klukkan 14 til 23, dag hvern. —
Á sýningunni verða um 40 olíu-
málverk og nokkrar vatnslita- og
krítarmyndir.
Engin málverkasýning hefur
verið opin hér síðan Ásgrímssýn-
ingin í fyrravetur. — job.
Siy sið á Miklu-
brautiniii
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
biður bílstjórann á dökkleitu
fólksbifreiðinni, sem vörubifreiða
stjórinn bað að tilkynna slysið
á Miklubrautinni í fyrrakvöld, að
tala við sig. Vera má að hann
hafi séð hvernig slysið bar að
höndum og geti gefið upplýsing-
ar þar um.