Morgunblaðið - 30.09.1956, Blaðsíða 2
2
M OR C'TJ N B L A Ð1Ð
Sunnu&agur 30. sept. 1956
ÞEGAR SÍMINN KOM
50 ára afmælisdegi Lands-
símans er mér ljúft og skylt
ið votta frumkvöðlum, forráða-
mönnum og upphafsmönnum
þessa fyrirtækis hugheilar þakk-
ir fyrir stórhug sinn og forsjálni,
fyrir að þeir voru svo framsýnir
að gangast fyrir því, að gagngert
yrði breytt lífinu í þessu landi
með þeirri tækni, er þá var rudd
braut.
Margra væri skylt og ástæða
til að minnast, sem dugmikilla
forgöngumanna, en ég sleppi því,
nema einum einasta, er lengi hef-
ir verið með réttu nefndur faðir
Landssímans, Hannes Hafstein,
ráðherra.
Þegar menn líta 50 ár til baka
furðar menn á því hve þjóðin
gat þá verið lítilþæg í kröfum
sínum til samgangna og við-
skipta yfirleitt. Tilviljun réði að
ég ungur komst í samband við
blöð og fréttamennsku, jafnvel
svo snemma meðan þjóðin var
ósnortin af nýrri tækni símans.
Árið 1903 að áliðnu sumri skeði
sá atburður á bernskuheimili
mínu, Möðruvöllum í Hörgárdal,
að fræðimaðurinn alkunni og
náttúrufræðingurinn Ólafur Dav-
íðsson, drukknaði í Hörgá með
sviplegum hætti. Hann varð allri
samtíð sinni harmdauði.
Af hendingu komst ég að því
i sambandi við þetta slys, að um
það fréttist ekki frá Möðruvöll-
um fram í Öxnardal fyrr en fimm
dögum síðar, álíka vegalengd'
og fjarlægðin er frá Reykjavík
upp í Svínahraun og var þó eftir
aðalpóstleið að faraa. Svo seinar
voru samgöngurnar þá. Erfitt er
að átta sig á hvemig blaðaútgáfa
gat með nokkru móti átt sér stað
með svo seinum fréttaflutningi.
Við, sem munum þá tíma, höfum
því sérstaka ástæðu til að þakka
forráðamönnum símans fyrir
framtak þeirra og djörfung fyrir
að verða lífgjafar blaðamennsk-
unnar fyrir 50 árum.
Aðalfréttaberarnir á þeim ár-
um voru landpóstarnir. Það var
siður í þá daga, að póstflutninga-
menn höfðu á takteinum, hvar
sem þeir komu, stuttorðar frétt-
ir af því helzta, sem fyrir þá bar
í póstferðinni.
Heitar deilur voru um síma-
málið, sem kunnugt er. Man ég
glöggiega, að um það leyti, sem
málið yrði rætt á Alþingi, kom
sú frétt með póstinum norður í
Eyjafjörð, að öllum þingmönnum
hafi verið afhentir sjálfskeið-
ingar til að verja sig ef til áfloga
kæmi í þinginu. Saga þessi gefur
til kynna hve óáreiðanlegar póst-
fréttir voru í þá daga. En fótur-
inn fyrir fregninni var sá, að for-
setar þingsins tóku upp þá ný-
breytni það ár, að afhenda öll-
um þingmönnum pappírshnífa
til að skera upp úr þingskjölun-
Úr ræ&u Valtýs Stefánssonar
i afmælishófi slmans i gær
Svo mikill viðburður var síma-
lagningin sjálf, þegar að henni
kom sumarið 1906, að daglegar
ráðagerðir urðu meðal almenn-
ings um hvernig þessi nýbreytni
myndi reynast. Alltaf eru þeir
menn með þjóðinni, sem amast
við öllum nýjungum. Einkum ef
mikið kveður að þeim. Sumir
vildu landssíma til að tengja all-
ar helztu byggðirnar saman, aðr-
ir vildu nýjustu tæknina, loft-
skeytin. Strax voru ráðagerðir
uppi um það, að vitaskuld yrði
samband að komast á við hvert
byggt ból á landinu. Þeir, sem
voru öruggir með loftskeytunum
þóttust vita, að einmitt þeir væru
boðberar nýjustu tækni. Man ég
að slumaði í stuðningsmönnum
loftskeytanna, þegar þeir fengu
að vita að trauðla myndi hægt
að koma því við að loftskeytin
kæmust í notkun samtímis á öll-
um býlum á landinu.
Fyrstu árin er síminn var í
notkun, má gera ráð fyrir að
vart notaði nokkur símann að
ráði, án þess að minnast aðalfor-
göngumannsins, Hannesar Haf-
stein, með þakklátum hug. Þann-
ig varðveitast störf mikilmenna
fyrir eftirtímann. En það kom
brátt í ljós, að þessi nýbreytni
rakst á sína byrjunarörðugleika.
Eitt var það, að jafnóðum og
símalínur risu um sveitir, urðu
þræðirnir fjölda fugla að bana,
er rákust á þræðina og limlest-
ust. Þetta óhapp örvaði svart-
sýnismennina, jafnvel svo, að
þeir urðu opinberir fjandmenn
símans. En fuglarnir lærðu sem
betur fór að umgangast símann,
svo að drápinu linnti.
Man ég glöggt þann viðburð,
er mér unglingnum varð reikað
að símalínu í fyrsta sinn. Varð
mér hverft við, er ég horfði eftir
þessari þráðbeinu línu um sveit-
ina og sá strax að þarna var á
ferðinni nýstárleg sjón í íslenzk-
um sveitum, er fylgdi tækninni.
Þráðbeinar línur voru sjaldgæfar
í landinu, þegar engir voru upp-
hleyptir beinir vegir, aðeins
bugðóttir götuslóðar. En tæknin
var á fyrri árum eitur í beinum
margra íslendinga og talin ó-
þjóðleg. Ég þekkti marga menn
fyrr á árum, sem höfðu ímugust
á að ganga í vatnsstígvélum, því
að skinnsokkarnir voru þjóð-
legri, sögðu þeir. Slíkir menn
voru harðsvíraðir andstæðingai
símans fyrir hans mikla umrót í
þjóðfélaginu.
Valtýr Stefánsson ritstjóri
Rafmagnið var alóþekkt fyrir-
bæri í daglegu lífi landsmanna
á þeim árum. Algengt var það, að
menn gátu ekki áttað sig á að
neitt bærist eftir símaþráðinum,
nema því aðeins að þeir væru
holir innan. Ég. minnist þess, að
ég var staddur á engjateig, þar
sem nýlokið var símalagningu
og rætt var um símann. Roskin
kona sem var á teignum, hélt því
fram, að vitaskuld gæti ekkert
skeyti eða annað farið um síma-
þræðina nema þeir væru holir.
Suðið í símastrengjunum var
á fyrstu árum símans einnig sett
í samband við símtölin, sem þar
fóru fram. Eins og hin alkunna
setning bendir til, er karlinn
sagði þegar óvenjulega hátt lét
í þráðnum: „Mér þykir þeir
skrafa núna.“
Kvikmynd
hyggð
a
BJÖRGVIN, 27. september: — f
aprílmánuði næstkomandi koma
nokkrir bandarískir kvikmynda-
ieikarar tii Noregs, þar sem þeir
eiga að leika í stórmynd sem
gerist á víkingatímanum. Nafn
myndarinnar hefir þegar verið
ákveðið „The Viking“ — eða
Víkingurinn. — Meðal
um víkingatímann
sögulegum grunni
Kirk Douglas leikur aðalhlutverkið
Símasumarið 1906 man ég eftir
stuttri grein í Nýju kirkjublaði,
sem séra Þórhallur heit. Bjarna-
son orðaði snilldarlega eins og
hans var von og vísa, hversu
mikill viðburður væri að fá sím-
ann. Það var verið að leggja
símalínuna um Hvalfjörð, er séra
Þórhallur fór þar um og hug-
kvæmdist sú snjalla frásögn. Mig
minnir að hann segði eitthvað á
þessa leið, að síminn myndi ger-
breyta öllu þjóðlífinu, og þegar
hann reið undir símalínurnar í
fyrsta sinn, fannst honum, sem
hlið opnaðist inn í nýja öld. Þetta
varð sánnmæli.
En vandræði símans voru ekki
öll með fugladrápinu um sum-
arið. Þegar snjórinn kom um
haustið, slitnaði- hinn nýlagði
sími svo ört og víða, að til mik-
illa vandræða horfði. Voru menn
þá, er á veturinn leið, farnir að
óttast að síminn myndi aldrei
verða nema stutt sumarævintýri.
Þetta var óvenjulega harður vet-
ur og reyndi mjög á karl-
mennsku símaviðgerðarmann-
anna í stórviðrum og hörkum
uppi á reginfjöllum.
En allt komst þetta af, eins og
kunnugt er með nokkrum breyt-
ingum yfir örðugustu kaflana.
★
Frá árinu 1924 hef ég verið
mikið tengdur blaðaútgáfu, sem
rúmlega 30 ár ritstjóri, þekktist
ég boð símamannanna um að
segja hér nokkur orð á afmæl-
inu, því að auðséð er, að ef
tæknivana skinnsokkamenning
hefði mátt sín mikils í landinu,
myndu aldrei hafa verið hér
blöð, sem nú og í framtíðinni
eru möguleg.
Fyrir þetta vil ég flytja mínar
alúðarfyllstu þakkir og allra
þeirra er við blaðamennsku
starfa.
ieikara sem fengið hafa hlutve
í mynd þessari er hinn fraegi i
vinsæli Hollywoodleikari, K>
Dougias. Hann á að leika að,
þeirra Þlutverkið.
Kvikmyndin verður byggð
sönnum atburðum og verf
sennilega dýrasta mynd se
Bandaríkjamenn taka á nse
ári. Er áætlað að hún kosti e!
minna en 3 mill jónir dollara, en
verður hún í litum.
Það er ákveðið að byggja 1’
EINS og kunnugt er var á síð-, >ð víkingaþorp í Sognef jorden
astiiðnu ári gert samkomulag þar verður myndin aðallega tc
milli íslands og Svíþjóðar um, in. Mörg hundruð Norðmar,
að ákvæði loftferðasamnings koma fram í henni auk 50 banda
Samnmgurinn við
Svía framlengdur
’ztu hlutverkin. — Þess má og
Ui að nokkur hluti myndarinn-
■ verður tekinn í Svíþjóð, ír-
di og Danmörleu. Enski höf-
urinn Nocl Langley skrifar
dritið sem verður fullgert í
jum mánuði.
Loks má geta þess að smíðuð
i 10 víkingaskip sem notuð
ða við kvikmyndatökuna og
gert ráð fyrir að 64 menn
ði á hverju þeirrra.
landanna skuli gilda til loka
septembermánaðar 1956.
Nú hafa sænsk yfirvöid fali-
izt á, að veita Loftleiðum h. f.
rétt til þess að fljúga áfram til
og frá Svíþjóð til 20. maí 1957.
(Frá utanrikisráðuneytinu).
Nœr 8 púsund hörn
í barnaskólum bœjarins
BARNASKÓLARNIR í Reykja-Jþví, að samkvæmt manntali eiga
vík tóku til starfa 1. sept.1 12 ára böm í barnaskólum að
s. L Hófu þá nám sjö, átta og vera 1162, 11 ára 1228,
11 ára 1228, 10 ára
1241, 9 ára 1404, 8 ára 1413 og
7 ára 1470.
Fjölgun þessi veldur miklum
örðugleikum að því er snertir
skólahúsnæði. Nú er fé fyrir
hendi til að hefja byggingu
barna- og gagnfræðaskóla, en
fjárfestingarleyfi hefur aðeins
fengizt fyrir öðrum þeirra.
Bamaskólar bæjarins eru þess-
veikinda,bróttfrútnings" og°af i^.MiðbæjarskóU Austurbæjar-
skoli, Melaskoli, Laugarnesskoli,
Langholtsskóli, Eskihlíðarskóli,
Árbæjarskóli en Breiðagerðis-
skólinn mun geta tekið til starfa
25. október samkvæmt upplýs-
níu ára böm, en á mánudaginn
eiga eldri börnin tíu, eUefu og
tólf ára, að mæta til náms. —
Fræðslumálaskrifstofu Reykja-
víkurbæjar sagði Mbl. frá þessu
í gær.
Skólaskyld börn á barna-
fræðslustigi verða í vetur tæp-
lega 8000, og er þá miðað við
síðasta manntal. Nokkru færri
xnunu koma til náms m. a. vegna
riskra leikara sem fara með i
„Faxi" til Prag
11. OKTÓBER n.k. mun íslenzk
flugvél fljúga í fyrsta skipti til
Austur-Evrópu. Ér það flugvél
Flugfélags íslands, sem fer leigu-
flug og flytur hóp norskra iþrótta
manna frá Osló til Prag.
Er hér um að ræða landslið
Norðmanna í frjálsum iþróttum
sem heyja mun landsleik við
Tékka um miðjan næsta mánuð.
Verða um 60 manns með í för-
inni. Er ráðgert að fljúga frá
Osló 11. október.
Flugfélag íslands hefur nýlega
gengið frá samningum um leigu-
ferð þessa.
öðrum ástæðum.
Skólaskyld verða á árinu böm
fædd 1949 og eiga þau samkvæmt
manntali að vera um 1470.
Með hverju ári fjölgar skóla-
skyldum börnum sem sjá má á
jglufjarðarskarð
ófærl
SIGLUFIRÐI, 28. september:_I
dag er hér norð-austan stormur
og snjókoma til fjalla og hvít
jörð niður undir kaupstaðinn.
Áætlunarbíllinn komst ekki
yfir Siglufjarðarskarð í morgun
vegna fannkomu, en reynt verður
að halda því opnu vegna þess að
slátrað er í Haganesvík og kíötið
og slátrið flutt á bilum hingað til
kjötbúðar Siglufjarðar.
— Guðjón
Flugfélag íslands hefir alls
farið um 30 leiguferðir tii
Grænlands í sumar. Aðallega
hefir verið flogið með danska
starfsmenn og leiðangursmenn
og hefir venjuiega verið hald-
ið til Kaupmannahafnar með
viðkomu á íslandi. Flogið hef-
ir verið tii þessara staða á
Grænlandi: Thuie, Norður-
stöðvar, Meistaravikur, Nass-
assúak, Syðri Straumfjarðar
og Angmagsalik. Leiguferðir
þessar halda áfram og verður
sú næsta á mánudaginn.
Myndin er tekin í Meistara-
vik, af Jóhannesi Snorrasyni
flugstjóra og nokkrum græn-
Ienzkum vinum hans.
ingum húsameistara bæjarins.
Þetta er hatiöafrímerkið sem
póststjórnin gefur út í dag í til-
efni af aímæli símans.
VETRARKÁPUR frá kr. 1770,00
POPLINKÁPUR frá kr. 780,00
PLASTREGNKÁPUR kr. 125,00
DRAGTAPILS, svört, kr. 270,00.
SKÓLAPILS, köflótt, kr. 169,00
POPLINBLÚSSUR, mislitar, frá kr. 198,00
DRAGTABLÚSSUR, hvítar, frá kr. 169,00
NINON
Bankastræti 7
*