Morgunblaðið - 30.09.1956, Blaðsíða 24
. Veðrið
Norðan Italdi léttskýjað
224. tbl. — Sunnudagur 30. september 1956
Reykjavíkurbréf
S já. bls. 13.
Iðjufélagar, rekið flugu-
; menn kommúnista af
höndum ykkar
Munið x-B listinn
Kosnint/u lýkur í dag
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLAN um kjör fulltrúa Iðju á
Alþýðusambandsþing heldur áfram kl. 10 árd. í dag og lýkur
kl. 6 síðd. Kosið er í skrif&tofu félagsins Þórsgötu 1. Listi lýð-
r-æðissirma er B-listinn.
AXJMLEG AFSÖKUN
ÞJÓÐVILJANS
Greinilegt er af Þjóðviljanum
í gær, að kommúnistar óttast
mjög afleiðingamar af því ger-
ræði sínu að strika um 600 Iðju-
félaga út af kjörskránni. Reyna
þeir á mjög aumlegan hátt að
afsaka það háttalag félagsstjóm-
arinnar að svipta um 40% með-
limanna atkvæðisrétti. Ásaka
þeir Iðjufélaga fyrir það, að þeir
hafi ekki sótt um inngöngu í
félagið og tekið skírteini. En
þessir háu herrar sem taka sér
slíkt dómsvald yfir Iðjufélögum
skýrðu ekki frá því, að öllum
þeim mörgu Iðjufélögum, sem
óskuðu að fá skírteini nú síðustu
daga var þverlega neitað um
það af Birni verkstjóra og sendli
hans, Halldóri, sem telur sig
starfsmann Iðju og fær kaup frá
félögunum til þess svo að geta
níðst á þeim.
Heldttr næstu
NEITAÐ UM SKÍRTEINI
Það er þó algild venja í öllum
verkalýðsfélögum, að þeir félag-
ar, sem þess óska fái nafn sitt
á kjörskrá uppfylli þeir þau skil-
yrði, sem sett eru í lögum fé-
laganna. í lögum Iðju segir ekk-
ert til um það, á hvaða tíma
sækja eigi félagsskírteinin. Yfir-
klór Þjóðviljans í þessu efni er
því ekkert annað en aumleg
blekking og gerð til þess eins,
að breiða yfir það gerræði, sem
hin kommúnistiska stjóm Iðju
hefur gert sig seka um gagnvart
félögunum.
AFSKIPTI KOMMÚNISTA-
FLOKKSINS
Kommúnistar telja nú að aðför
þeirra að Iðjufélögum muni tak-
ist eftir það að búið er að strika
tóran hluta af andstæðingum
oeirra í félaginu út af kjörskrá
sg setja alla Rússadindla komm-
únista í Reykjavík í gang til
þess að leita uppi Iðjufélaga og
reyna að blekkja þá til fylgis
við þá stjórn, sem virðist hafa
það helzta markmið að níðast á
félögum þeim, sem þeir telja sig
umbjóðendur fyrir.
Iðjufélagar! Gefið sendimönn-
um kommúnista verðuga ráðn-
ingu. Mætið á skrifstofu B-list-
ans í V. R. III. hæð og veitið
aðstoð við kosningarnar. —
Munið x B-listinn.
Békin er lampi fóta vorra
Frá opnun norsku bókasýningarinnar
NORSKA bókasýningin var opnuð í Listamannaskálanum kl. 2 í
gær að viðstöddu fjölmenni. Meðal gesta voru forsetahjónin
og ráðherrar.
Pétur Olafsson, forstjóri ísafoldarprentsmiðju, bauð gestina
velkomna, en síðan flutti Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra,
stutt ávarp. Hann kvað bókina vera hornstein íslenzkrar tungu
og menningar. Margt tengdi Norðmenn og íslendinga, en stór-
brotnasta tákn skyldleika þeirra væri bók — Heimskringla, hið
mikla verk Snorra Sturlusonar.
píanótónleikana
hér í bæ
LAMPI FÓTA VORRA
Sendiherra Norðmanna, Tor-
geir Andersen-Rysst, tók því
næst til máls. Hann kvað það stór
an atburð að norsk bókasýning
væri opnuð á íslandi. Bókin væri
I lampi fóta vorra og ljós á vorum
; vegum. Sá lampi hefði lýst ís-
lenzku þjóðinni um margar ald-
ir. Á íslenzka tungu hefðu meist-
araverk verið rituð.
En bókin hefur einnig lýst
okkur Norðmönnum á erfiðum
tímum, sagði sendiher’rann.
Minntist hann síðan hins mikla
starfs Snorra Sturlusonar. Bó'
in væri bjargvættur íslending
og Norðmanna. Gildi bór
menntanna færi vaiíandi í öi'
um löndum.
STYRKIR MENNINGAR-
SAMBANDIÐ
Sendiherrann þakkaði síðan
öllum þeim, sem unnið hefðu að
þessari bókasýningu og þá sér-
staklega ísafoldarprentsmiðju.
Kvaðst hann vona að sýningin
myndi styrkja menningarsam-
bandið milli fslands og Noregs.
Lýsti sendiherrann sýninguna síð
an opnaða.
Að lokum talaði Öivind S.
Berggrav fyrir hönd norskra
óókaútgefenda í forföllum Har-
'ld Grieg, sem ekki gat komið
il landsins vegna forfalla. Ræddi
ann um sýninguna og kvað
ara á henni bækur, sem bæði
tðu vakið gleði og gremju
aðal Norðmanna.
Gestir skoðuðu síðan sýning-
.ina, sem er hin glæsilegasta.
Lántsðu mér 200 kr.
ffeffn dönskutn hjór!
Ósvífinn peningasSáttumaður'4 á ferð
NÆSTU tónleikar á vegum Ton-
listarfélagsins eru píanótónleikar
sem Guðmundur Jónsson pinaó-
leikari og kennari við Tónlístar-
skólann heldur á vegum félagsins
í Austurbæjarbíói ó miðvikudag-
inn. Leikur Guðmundur verk eft-
ir Chopin, Beethoven, Ravel,
Debussy og Paganini-Liszt.
«lárn$miðir:
Kosningunni
lýkur kl. 6
MUNIÐ að kosningu í fél-
agi Járniðnaðarmanna lýk-
ur í dag kl. 6. Kosið er á
skrifstofu félagsins í Kirkju
hvoli. - Listi lýðræðissinna
er B-listinn.
KLUKKAN um hálf níu í
fyrramorgun var hringt á
dyrabjöllu hjá borgara einum
í Reykjavík. Húsmóðirin fór
til dyra og kom inn með þau
skilaboð að ókunnur maður
vildi tala við húsbóndann. Er
húsbóndinn kom til dyra heils
aði komumaður kunnuglega.
Húsbóndinn þekkti manninn
ekki, svo hann sagði til sín og
kvaðst vera sjómaður. Þrátt
fyrir það kannaðist húsbónd-
inn ekki við komumann, en
þar sem hann umgengst og
kynnist mörgum mönnum í
öllum stéttum, Iét hann ekki
á neinu bera og heilsaði mann.
inum vingjarnlega.
Maðurinn bar upp erindi
sitt. Kvaðst hafa komizt yfir
erlendan gjaldeyri og þyrfti
að leysa hann út nú þegar. Sig
vantaði 140 krónur. Bað hann
um þær að Iáni. Húsbóndinn,
sem er greiðvikinn maður,
hugsaði sem svo: þar eð mað-
urinn þekkir mig, heimsækir
mig svona snemma morguns
þá hlýfur þetta að vera hrekk-
laust, þó ég ekki komi mann-
inum sjálfum eða nafni hans
fyrir mig.
En svo stóð á að húsbónd-
inn hafði handbærar 200 kr.
(ekkert i smáu) og kvað komu
mann geía fengið þær að láni.
Komumaður spurði þá, livort
hann vildi fá danskan bjór í
greiðslu og iiiisbóoUinn kvaðst
ánægður með það!
Húsbóndinn sagði síðan frá
Fmilía Jónasdóttir og Valdemar Helgason í hlutverkum álfanna.
Hlóturinn glnmdi í Sjúlf-
stæðishnsinn í fyrrobvðld
ÍFYRRAKVÖLD sýndi Kontra-bandið revýu sína „Svartur á nýjan
leik í fyrsta sinn í Sjálfstæðishúsinu. Var fjöldi óhorfenda og
revýunni frábærlega tekið. Hlógu menn óspart og skemmtu sér
konunglega, enda má segja að hvej- „brandarinn" hafi rekið annan.
Mun óhætt að fullyrða að þetta sé ein allra bezta skemmtun af
þessu tagi, sem hér hefir' sézt um langt skeið. Revýan er breytt frá
í vor til mikilla bóta, vel sett upp af Rúrik Haraldssyni, vel sam-
inn og skemmtilega leikin.
NÚ eru skólarnir að byrja og
veldur það miklum breyting-
um á útburðarstarfsliði blaðs-
ins. Má því búast við að það
verði nokkrum erfiðleikum
bundið að koma blaðinu til
kaupenda a. m. k. fyrstu daga
mánaðarins. Að sjálfsögðu
verður allt gert til að flýta
fyrir útburðinum.
Utanríkisráðherra
farinn til Washington
UTANRÍKISRÁÐHERRA Emil
Jónsson fór laugardaginn 29.
september flugleiðis til Banda-
ríkjanna til þess að undirbúa
upptöku samninga um endur-
skoðun varnarsamningsins milli
fslands og Bandaríkja Ameríku
frá 1951.
f fylgd með ráðherranum er
Henrik Sv. Björnsson ráðuneytis-
stjóri.
(Utanríkisráðuneytið).
viðskiptum sínum og þessa ó-
kunna manns. Einn vina hans
gat frætt hann á því, að þessi
ókunni maður væri óvalinn
róni og „peningasláttumaður"
sem haft hefur peninga út úr
fjölmörgum mönnum, með því
að koma svona kankvíslega
fram við þá!
Húsbóndinn mun hafa
spurzt fyrir um það, hjá saka-
dómara, hvort ekki væri hægt
að hafa hendur í hári þessa
manns.
En svo mun vera, að maður-
inn segir alltaf til síns rétta
nafns og biður um lán — oft-
ast með loforði um greiðslu
í erlendum bjór. Það er ekki
saknæmt athæfi að biðja um
lán, það er á ábyrgð þess er
lánar.
En nú eru menn varaðir við
að láta blekkjast af háum
grönnum manni, sem segir til
nafns síns og biður um lán
upp á gamlan kunningsskap
og danskan bjór. Hann er vin-
ur allra, meðan mann er að
svíkja út peninga.
Or. Kristinn Gyðnuinds-
son sendiherra í London
— lians Andersen
ambassador hjá 110
HINN 28. september 1956 skipaði
forseti íslands dr. Kristinn Gtíð-
mundsson sendiherra íslands í
Bretlandi.
Sama dag skipaði forseti fs-
lands Hans G. Andersen ambassa-
dor íslands hjá Norður-Atlants-
hafsbandalaginu (NATO) og
Efnahagssamvinnustofnun Ev-
rópu (OEEC) með aðsetri i París.
(Utanríkisráðuneytið).
Umf erðarljós bila
í Bankastræti
MEIRIHÁTTAR bilun hefur orðið
á einu umferðarhorni Reykja-
víkur, á mótum Skólavörðustígs
Bankastrætis og Ingólfsstrætis.
Slokknaði á ljósunum fyrir tveim
dögum. Hefur lögreglan orðið að
hafa tvo lögreglumenn til að
stjórna umferðinni þar á mesta
annatímum dagsins.
í gær voru Ijósin ekki enn
komin í lag.
SALA á miðum í Happdrættl
Sjálfstæðisflokksins heldur áfram
í dag.
Skrifstofan verður opin kl.
9—12 og 1—5, sími 7100.
Með þvi að kaupa miða fáið
þér tækifæri til að eignast glæsi-
lega Hudson Rambler bifreið
(modcl 1956). Jafnframt styðjið
þér starfsemi Sjálfstæðisflokks-
ins.
Þeim sem áhuga hafa á sérstök-
um númerum er bent á að velja
þau strax í dag.
Vér sendum miðana til þeirra
er þess óska.