Morgunblaðið - 30.09.1956, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 30.09.1956, Qupperneq 20
20 M ORCVNBLAÐIÐ • 1 LOUIS COCHRAN: «h - u ! SONUR HAM ANS Framhaldssagan 40 spöl og þar með er útrætt um það mál“. Dink hló góðlátlega um leið og hann settist við borðið: „Jæja, Nancy. Ég er alveg orðinn ban- hungraður". Hann leit til hennar kankvís- lega um leið og hann talaði: „Hvernig myndi þér annars falla það, að koma aftur til New Orleans, í skrautklæðum sem þessurn?" Hún lét sem hún hefði ekki heyrt orð hans og andartaki síðar heyrði Dink til hennar inni í næsta herbergi, þar sem hún var að gefa syni sínum góð ráð að skilnaði. Svo greip hann rymj- andi eitt bjúgað af fatinu, með krumlunum einum og byrjaði að svala hungri sínu. 9. kafli Tveimur klukkustundum síðar slakaði Lije á aktaumunum og vagninn nam brakandi staðar, framan við hvítmálað og reisu- legt hús Martins Fortenberrys. í vaxandi tunglsbirtu kvölds- ins gnæfði það fyrir framan hann, hinum megin við hundrað stika breiða grasflöt, hátt og tignar- legt, sem alger andstæða við þriggja herbergja kofann þeirra mæðginanna. Og stríðherptar varir unga mannsins herptust enn meir, er hann stýrði hinum viljugu hryss- um af stökustu varfærni inn á einka-akveginn, sem lá heim að húsatröppunum. Lije klappaði hryssunum á lendarnar, vafði aktaumunum ut- an um hestastaurinn og gekk stirð legum skrefum upp þrepin sex og inn í anddyrið. Harði flibbinn, sem Dink hafði lánað honum, særði hann aftan á hálsinum og hin alltof þrönga buxnaseta hindraði allar eðli- legustu hreyfingar hans óþægi- lega mikið. Dauf birta smaug út í gegnum rifurnar í kringum hurðina og hann gat sér þess til, að hún kæmi frá olíulampanum, sem IJTVARPIÐ Sunnudagur 30. septeniber: Fastir liðir eins og venjulega. 11,00 Messa í Dómkirkjunni (Prest ur: Séra Jón Auðuns dómprófast- ur. Organleikari: Páll Isólfsson). 15.15 Miðdegistónleikar (plötur). 16.15 Fréttaútvarp til Islendinga erlendis. 18,30 Barnatími (Stefán Jónsson námsstjóri). 19,30 Tón- leikar (plötur). 20,20 Tónleikar (plötur). 20,35 Erindi: Frá Spáni fyrra erindi (Jón Guðnason stud. mag.). 21,05 Gömul kynni, — dag- skrá gerð af Gesti Þorgrímssyni. 22,05 Danslög (plötur). — 23,30 Dagskrárlok. hann hafði eitt sinn séð standa á borðinu í miðri forstofunni. Hann hefði haft gaman af að gefa móður sinni þannig lampa, stóran lampa, með kringlóttum olíugeymi, rósóttum skermi og víðu glasi. Fólk þreyttist á því að nota sífellt kerti og grenikvisti, jafn- vel þótt slík ljósfæri væru ódýr. Með skyndilegu hiki, sem nálgaðist viljaleysi, drap hann á dyrnar og þegar enginn gegndi tvísteig hann, órór í skapi, fram- an við hurðina. Skyndilega hrifsaði hann hatt- inn af höfði hér, blytti fingurna í munnvatni sínu og notaði þá svo sem greiðu til þess að skipta hárlubbanum úti í öðrum vanganum, með fálmkendum, stirðbusalegum tilburðum. Aldrei hafði hann fundið til slíkra tilfinninga gagnvart neinni konu áður. Hann hafði heldur ekki kynnzt stúlku ins og Liza- beth Fortenberry áður. Kvenfólkið, sem hann þekkti, voru hinar hörundshrjúfu, laus- holda stúlkur þorpsins og stúlk- ur úr nærliggjandi svitum, sem ekkert höfðu ferðazt nema í mesta lagi til Vicksburg og Gren- ville, stúlkur, sem aldrei voru í fínum kjólum. Elizabeth Forten- berry var alltaf í fínum kjólum og hún hafði meira að segja stundað nám í New Orleans. Hann drap aftur á dyrnar, fastar en fyrr, og enn aftur, en harðir hnúarnir skullu með brak andi smellum á viðarborð hurð- arinnar. Undarlegt að enginn hundur skyldi sjást úti við. Næstum allir sem Lije þekkti áttu hunda, marga hunda, allir nema þau mæðginin. Móður hans geðjaðist ekki að hundum. Sagði að hljóðin í þeim væru allt of lík ópum dæmdra sálna í víti á hinum dauðahljóðu nóttum, þegar þeir væru að gelta að tunglinu. Stígvélahljóð barst til hans inn an úr forstofunni, sem var með ódúklögðu gólfi og andartaki síð- ar var hurðinni lokið upp, mjög hægt og varfærnislega. Hann ræskti sig, heldur í hærra lagi, en svo opnuðust dyrnar upp á gátt og þýð rödd barst til eyrna honum, svo hikandi að lík- ast var óvilja og tregðu. „Ert það þú, Lije?“ „Jó, það er ég“. Rödd hans var óvenjulega rám og óþjál og hann langaði óstjórnlega mikið til að grípa aftan í setuna á buxunum, sem voru svo þröngar að þær særðu hann. „Ég skauzt hingað akandi, til þess að flytja þig. Ert þú ferð- búin, ungfrú Lizabeth?" Það var lítill fagnaðarhreimur í röddinni, sem svaraði, aðeins Alhliða fínþvotta-, upp- þvotta og hreingerningaefnJ. Einasta þvottaduftið, sem eyðir og kemar í veg fyrir gulun gerfiefnanna, svo sem: Nælon, Perlon, Dralon, Rho- vyl, enn fremur gránun og fölnun ullarinnar. Auk þess varnar REI lykkjuföllum og lómyndun. Skýrir alla liti. Þess vegna er REI fullkomn- asta þvottaefnið fyrir allan viðkvæman þvott. REI til uppþvotta: Þurrkun óþörf. — REI til hreingerninga: Þurrkun óþörf. — Engin blettaskil. REI reynist ávallt bezt! Heildsölubirgðir: V. Sigurðsson & Snæbjörnsson h.f. Drengur eða stúlka óskast til sendiferða á opinbera skrifstofu. — Upplýsingar umsækjanda um aldur sendist blaðinu fyrir hádegi n.k. mánudag, merkt: ,,Gott kaup — 4633“. MARKÚS Odýrt! Drjúgt! Sunnudagur 30. sept. 1956 KELVINATOR — 8 rúmfet — Hinir vinsælu 8 rúmfeta Kelvinator kæliskápur eru nú fyrirliggjandi. — Verð kr.: 7,450.00. Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er. Hversvegna eru menn alltaf vel kíæddir í vönduðum fötum? — Vegna þess að þau eru alltaf eins og ný. Þesskonar föt fáið þér saum- uð hjá okkur. Nýtt úrval fataefna var að koma frá Englandi. Árni & Bjarni Tólg Stórkostleg verðlækkun á tólg Kostaði áður kr. 10.75 pr. Vi kg. Kostar nú aðeins kr. 6.65 nr. V2 kg. Fæst í flestum matvöruverzlunum Heildsölubireðir: asakin SÍMAR 7080 & 2678 Eftir Ed Dodd Mánudagur 1. október: Fastir liðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar: Lög úr kvikmynd um (plötur). 20,30 Útvarpshljóm- sveitin; Þórarinn Guðmundsson stjórnar: „Ógleymanlegar stund- ir“ eftir Görschel. 20,50 Um dag- inn og veginn (Andrés Kristjáns- son blaðamaður). 21,10 Einsöng- ur: Kristinn Hallsson syngur; — Fritz Weisshappel leikur undir. — 21.30 Útvarpssagan: „Októberdag ur“ eftir Sigurd Hoel; IX. (Helgi Hjörvar). 22,00 Fréttir og veður- fregnir. — Kvæði kvöldsins. 22,10 Búnaðarþáttur: Sturla Friðriks- son magister talar um tilraunir með nytjajurtir. 22,25 Kammer- tónleikar (plötur). — 23,05 Dag- skrárlok. 1) — Hvað segja trumburnar, Kútú? 2) — Þær segja sögu Phils. Óhamingjusamur maður en góð- ur maðus- 3) — Hvernig líður Sirrí? — Henni hefur orðið mikið um þetta. 4) — Ég hafði enga hugmynd um, að henni þætti svona vænt um Phil.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.