Morgunblaðið - 17.11.1956, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.11.1956, Qupperneq 3
Laugardagur 17. nóv. 1956 MORGTJ1VBLAÐ1Ð 3 — Frá Alþingi Frh. af bls. 2. kjósa slíka nefnd, tæki það fyrir næsta mál á dagskrá. EKKI SPURT UM EINSTÖK ATKIÐI, HELDUR MEGINSTEFNU Bjarni Benediktsson svaraði þessu nokkrum orðum. — Kvað þetta að vísu óvenjulegt að Al- þingi kysi slíka nefnd, en sagði að þessi ríkisstjó'rn hefði líka þá sérstöðu miðað við það sem áður hefði verið, að hún væri ekki sammála um lausn málsins og því bæri nauðsyn að skapa þeirri nefnd, sem nú ætti að semja, sem víðtækastan grundvöll meðal lýð ræðisflokkanna. Loks sagði ræðumaður að Sjálf •tæðismenn hefðu ekki heimtað yfirlýsingu frá ríkisstjórninni um einstök atriði sem semja ætti um, heldur hefði verið krafizt svars um það hver væri meginstefna hennar í málinu: Hvort enn væri byggt á samþykktinni frá 28. marz, þar sem því hefði verið slegið föstu að endurskoðunin ætti að miðast við það, að varnar liðið færi burtu um leið og samn- ingsfrestur væri útrunninn, eða hvort stjórnin væri nú fallin frá þessari samþykkt. Enginn ráðherranna stóð upp til að svara og var því þessari knýjandi spurningu ósvarað og lauk þar með umræðum. Rökstudda dagskráin var sam- þykkt með atkvæðum stjórnar- iiðsins gegn atkvæðum Sjálf- stæðismanna. Réttarhöld í máli dr. John standa yiir Telur sig hafa ver/ð numinn brott af Rússum I*AÐ vakti athygli í fyrra þegar embættismaður úr stjórnarráðinu í Bonn, dr. John að nafni, hvarf yfir austur-þýzku landamærin og kom fram á blaðamannafundi og víðar í Austur-Þýzkalandi. Dr. John var eins konar leynilög- regluembættismaður og var tal- in hætta á að hann hefði getað Iátið Rússum í té ýmsar mikils- verðar upplýsingar um öryggis- mál Vestur-Þýzkalands. „Loginn helgi” AKUREYRI, 16. nóvember. — Leikfélag Akureyrar hóf starf- semi leikársins í gærkveldi með frumsýningu á „Loginn helgi“ eftir W. Sommerset Maugham. Leikstjóri er Guðmundur Gunn- arsson, en leikendur Jón Krist- insson, Jónína Þorsteinsdóttir, Þórhalla Þorsteinsdóttir, Bryn- hildur Steingrímsdóttir, Jóhann Ögmundsson, Guðmundur Magn- ússon, Guðmundur Björnsson og Anna Þorkelsdóttir. Húsið var svo að segja yfirfullt og var leiknum mjög vel tekið. Voru leikendur og leikstjóri klappaðir fram að leikslokum og leikstjóranum og aðalleikendum færðir blómvendir. H. Vald. Dr. John gaf ýmiss konar yfir- lýsingar þar í Austur-Þýzkalandi og taldi sig hafa farið yfir landa- mærin af fúsum og frjálsum vilja, þar eð hann hefði ekki fellt sig við stjórnarstefnu dr. Adenauers og sérstaklega fram- komu hans og Bonn-stjórnarinn- ar í sameiningarmálum landsins. Kommúnistar gerðu sér mjög mikinn mat úr þessum flótta dr. John, sem svo var kallaður, og fannst þeim það mikilsverð upp- bót, fyrir öll þau mörgu tilfelli af flóttamönnum að austan, sem komið höfðu fram opinberlega á Vesturlöndum, látið þar í ljós skoðun sína á stjórnarfarinu aust- an járntjalds og gengið í þjón- ustu Vesturveldanna. En fyrir nokkru síðan kom dr. John allt í einu til Vestur-Þýzkalands aft- ur og hafði þá sloppið úr Austur- Berlín með tilstyrk dansks blaða- manns. Dr. John var settur í hald af vestur-þýzku stjórninni og nú er hafin rannsókn á máli hans fyrir ríkisréttinum í Karlsruhe. í yfirheyrslunum hefur dr. Johnium staðhæfingum, en‘dr. John haldið því fram að hann hafi j hefur haft svör á reiðum hönd- verið í embættiserindum í Vest-jum og skýringin sem hann gef- ur-Berlín, en þá hafi læknir ur á framferði sínu er yfirleitt nokkur, sem hann þekkti þar, sú, að hann hafi verið hræddur byrlað sér svefnlyf og fært sig! um líf sitt og óttazt pyndingar í hendur Rússa. Hann hafi svo1 og þar af leiðandi aðhafzt eitt komið fram á blaðamannafundi j og annað, sem hann annars ekki og gefið þær yfirlýsingar,' sem I hefði gert. Hins vegar hafi hann hann gaf í Austur-Þýzkalandi til j treyst því, að á Vesturlöndum þess að forða sér frá pyndingumj yrði ekki tekið neitt mark á og jafnvel dauða. Skýringar dr Johns fyrir réttinum þykja þó margar hverjar all-undarlegar, í réttarhöldunum hafa rannsókn- ardómararnir margsinnis gripið fram í fyrir honum og beðið hann þeim fullyrðingum, sem ai hann viðhafði. í Vestur-Þýzkalandi og víðar er nú fylgzt af nokkurri athygU með þessum réttarhöldum, e* þau byrjuðu nú fyrir fáum dög- um nánari skýringar á ótrúleg- i um. Ungling /antar til blaðburðar í eftirtalin hverfi Laugarnesvegitr ItoPgUtlMflfeifr Sími 1600 „Pabbi er %// með • Vi&tal við ungverskar konur og börn, sem komin eru til Sviþjóðar í „SVENSKA DAGBLADET" frá 14. þ. m., er skýrt frá viðtali við ungverskt flóttafólk, sem er ný- komið til Svíþjóðar. Það voru alls 102 flóttamenn, 32 mæður og 70 börn. Það kom fram í viðtali blaðsins við mæðurnar, að marg- ar þeirra hafa vonir um að hitta menn sína aftur, því þær hafa fengið fregnir af því, að þeim hafi tekizt að sleppa út úr Ung- verjalandi. Sumar þeirra vita aft- ur ekkert um menn sína eða sonu, sem enn eru í landinu. Ferð- in hafði gengið vel og þrátt fyrir hina löngu ferð leið börnunum vel. Þau fengu einnig mikið af alls konar gjöfum. Nokkur börn- in voru ekki orðin eins árs og skildu auðvitað ekkert af því, sem fram fór, en flest börnin voru nokkru eldri en áður hafði verið látið uppi og þau höfðu fullan skilning á því sem gerzt hafði. Þessi börn voru þögul og innibyrgð og var auðséð að þau höfðu lært listina að þegja og láta ekki allt koma fram sem þau hugsuðu. Aðeins nokkrar af mæðrunum gátu talað þýzku og stafar það af því að ýmsar af þessum mæðr- um koma frá landamærahéruðum Austurríkis og Ungverjalands. Það sást að konurnar gerðu sér ljóst að þær voru nú staddar í frjálsu landi, þar sem þær gátu talað og látið í ljós það sem þær vildu, en þurftu ekki að hylja sig í þögn. Það kom enn skýrar fram á börnunum hvaða áhrif líf í lokuðu landi, þar sem harð- stjórn ríkir, hefur á æskufólk, Það Iærir að dylja hugsanir sín- ar, þorir ekki að láta í ljós það sem því býr í brjósti — þorir tæplega að líta framan í fólk. Það flóttafólk, sem þarna var um að ræða, hafði ekki lent i seinasta þættinum í ungversku frelsisbaráttunni, þegar Rússarn- ir tóku að bæla hana niður. Þetta fólk fékk að vita að þess væri að vænta, að Rússar réðust inn í landið en það komst yfir aust- urrísku landamærin, áður en rússnesku skriðdrekarnir gerðu áhlaup sín. Lengi voru margar konurnar í óvissu um hvað orðið hefði um eiginmenn þeirra og syni en áður en þær fóru úr Austurríki fengu sumar þeirra fregnir af því, að menn þeirra hefðu einnig sloppið úr Ungverja- landi. Mæðurnar sögðu að helzti skugginn á hinni nýju tilveru barnaftna væri það sem oft kvæði við hjá þeim: „Pabbi er ekki með okkur“. Ný sending af 78 snúninga hljómplötum leiknar af BENNT G00DMAN „The Ring oi Swing" ásamt Goodman „stjörnunum“ Krupa, Harry James, Lionel Hampton, Teddy Wilson o. m. fl. — Trio — Kvartett — Sextett — Illjómsveit — Don’t be that way And the Angels sing Oh babe World is waiting for the sunrise Shine Seven come eleven Shivers Good enough to keep Lullaby of the leaves Temptation Rag Sweet Sue Tiger Rag My Melancholy Baby Alexander’s ragtime Band King Porter Stomp, einnig 45 og 33 snúninga plötur. AUir þeir, sem sáu kvikmyndi-na „Benny Goodman Story“, þurfa að eignast plötur ..ieð þessum glæsilegu jassleikurum. Heildsala — Smásala — Póstsendum FÁLKINN HF. - hljómplötudeild Nú má sjá glaðna yíir öllum við miðdegisve^ *ð*ð Það er gaman að geta borið eitt- hvað fínt og girnilegt á borð ... og vita um leið, að engin hætta er á, að það ofbjóði pyngjunni. Þér getið alltaf látið eftir yður að kaupa 0TKER-BÚÐING ... hann er alls ekki dýr, þó að hann sé dásam- legur... og börn eru sólgin í hann!! Af 0TKER-búðingsdufti eru til hin ljúffengustu afbrigði. Súkkulaði-, Vanilju-, Romm-, Mandellu-, með brytjuðum möndlum, og Luxus- búðingur með appelsínusósu. Jflt BtJÐINGSDUFT

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.