Morgunblaðið - 17.11.1956, Side 12
12
MORCVNBL^ÐIÐ
Laugardagur 17. nðv. 1956
TO /V\Y
BATHING
TRUNKS/
...AND V YOU AIN'T N....AMD I HOLV
IT -<.KIDDIN' STUPID) TO / SMOKE
SPREAD/)...LjOOK WHAT/ MY HOW ‘
y happened /sneakers/idopey
* THAT was MY
FIRE...I GUESS r
FORGOT TO CLEAN
AROUND IT AND...
CAN
YOU
GET?
1) Finnur: — Þetta var minn
eldur. Eg hefi sennilega ekki
gengið nógu vel frá honum ....
2) Finnur: .... og svo hefir
hann breiðzt út. —
Bert: — Sjáðu sundskýluna
mína.
Tommi: — Og strigaskóna
mína.
Jón: — Guð komi til, hvað þú
getur verið mikill rati.
Takið þessu r&-
3) Markús:
lega, piltar ....
4) Finnur gengur einn
skóginn dapur í bragði.
út 1
Framhaldssagan 78
ina hans Silas frænda, sagði að
sig vantaði eitthvað af kaffi, sagði
að hún hefði ætlað að kaupa það
nokkrum dögum áður, en þá hefði
hún verið með þér og alveg
gleymt kaffinu. Og svo leit hún
beint framan í mig, þegar hún
sagði þetta og skellihló stríðnis-
lega. Og mennirnir sem inni voru,
fóru líka allir að hlæja. Og einn
þeirra faðmaði hana að sér, —
þarna beint fyrir framan mig. Ó,
ég hefi aldrei skammast mín jafn
mikið. Ég vil aldrei sjá þig fram-
ar. Ég —“
Lije boraði breiðri tánni á öðr-
um skónum sínum niður í mjúk-
an svartan jarðveginn. — „Mér
þykir þetta leiðinlegt, Elizabeth.
Ég hélt ekki að þér hirtuð neitt
um hvað ég gerði eða gerði ekki.
Og Carrie er heldur ekki svo
slsem. Fólk lætur bara.. “
„Nú er nóg komið“, stúlkan
stappaði niður fætinum fyrir
framan hann og rödd hennar titr
aði af niðurbældum skapofsa og
geðshræringu. — „Ég vil ekki
hafa það, að þú sért að bera blak
af henni. Og svo stendur mér líka
alveg á sama um þig og hana.
Ég bara — oh. Ég .. Og svo er
það líka dálítið ahnað. Ég heyrði
jafnframt, að þú hefðir sagt, að
þú ætlaðir að kvænast mér. Ég
get ekki trúað því. Sagðirðu það
raunverulega? Hefur þér virki-
lega dottið önnur eins fjarstæða
í hug?“
Lije stamaði. Andlit hans varð
kafrjótt og hann treysti sér ekki
til að mæta augnaráði stúlkunn-
ar, sem stóð andspænis honum.
„Og hvað — hvað svo — ef ég
hefði sagt eitthvað þessu líkt?
Verra gæti svo sem komið fyrir
yður ungfrú Elizabeth. Ég er
hraustur og ég er fús til að vinna.
Ég ætla mér að verða ríkur, ein-
hvern góðan veðurdag, mjög rík-
ur. Og þér kysstuð mig einu
sinni. Hvað nú ef ég hefði sagt
það?“
„Þú — þú“. Ákafur reiðisvipur
kom á stúlkuna, en Lije sá ekki
betur en að tár glitruðu í augum
hennar.
„Þú — þú ert ekki neitt prúð,-
menni“, sagði hún kæfðum rómi.
Þú ert....“
„Já, segið það bara“, svaraði |
hann byrstur. „Þér hafið _ sagt
mér það einu sinni áður. Ég er
bara venjulegur einskis verður
ruddi og dóni. Ég veit það vel.
En svo er líka þess að gæta, að
ég fæddist með hjarta og tilfinn-
ingar og ég er mannleg vera —
alveg eins og þér sjálf. Og ég
kæri mig ekkert um það, að þér
umgangizt mig annan daginn
eins og, næstum að segja, jafn-
IJTVARPIÐ
Laugardagur 17. nóvember:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50 Óskalög sjúklinga (Bryndís
Sigurjónsdóttir). 14,00 Heimilis-
þáttur (Þóra Jónsdóttir). 16,30
Veðurfregnir. — Endurtekið efni.
18,00 Tómstundaþáttur barna og
unglinga (Jón Pálsson). 18,30
Útvarpssaga barnanna: „Leifur"
eftir Gunnar Jörgensen; IV.
(Elísabet Linnet). 19,00 Tónleik-
ar (plotur. 20,30 Einsöngur:
Beniamino Gigli syngur syngur í
Carnegie Hall í New York; Dino
Fedri leikur undir (Hljóðritað á
tónleikum í apríl 1955). 21,05 Leik
rit: „Æskuvinur" eftir Edmond
Sée, í þýðingu Emils H. Eyjólfs-
sonar. — Leikstjóri: Lárus Páls-
son. 22,10 Danslög (plötur). —
24,00 Dagskrárlok. ,
gegnt Austurbæjarbíói.
Ný sending
M ABKÚS Eftir Ed Dodd
ingja, en eins og auvirðilegasta
niggara hinn daginn. Og hvað
svo með það, ef ég raunverulega
hef einhver náin afskipti af
Carrie Finney? Ég ætla mér að
vera eins mikið með henni og ég
sjálfur kæri mig um, án þess að
biðja um leyfi. Hún breytir ávallt
við mig, eins og hvern annan
venjulegan mann. Það er meira
en þér hafið nokkurn tíma reynt
að gera“.
„En þú....“
Hann þaggaði niður í henni
með snöggri handarhreyfingu og
nú störðu hvöss og tindrandi
augu hans beint í augu stúlkunn-
ar. „Ég er ekki alveg búinn að
tala út enn“, sagði hann. „Ég
veit, að þér þykizt að öllu leyti
vera mér betri og fremri, en þér
eruð það bara alls ekki. Við erum
bæði manneskjur með holdi og
blóði, jafnvel þótt móðir yðar
skipaði mér eins og hundi eða
aumasta ræfli og segði mér að
koma aldrei framar inn í hús
sitt. Það er meira en.ég þoli af
vandalausu fólki“.
Stúlkunni lá nú við gráti og
brjóst hennar, sem voru vand-
lega girt brjóstahöldum, hnigu og
risu vegna hins öra andardráttar
hennar.
„En ég sagði þér...." greip
hún fram í fyrir honum.
„Já“. Þrumandi rödd hans yfir-
gnæfðu hin mjóróma andmæli
hennar. „Hvað er það sem þér
viljið að ég geri? Skríði í for-
inni fyrir framan yður á fjórum
fótum og sleiki aurinn undan fót-
um yðar? Ég hef nú ofurlítið vit
í kollinum, kæra ungfrú. Það er
vegna þess að Cronbone er ekki
hér, sem þér eruð að skipta yður
af mér og eyða orðum á mig. Þér
viljið nefnilega alltaf að einhver
karlmaður sé að vesenast í kring-
um yður. Er það ekki rétt?“
Hann starði ásakandi á hana
og stúlkan svaraði honum ekki
einu orði. Þess í stað greip hún
titrandi hendinni upp að vörum
sér, eins og til þess að bæla niður
óp, svo leit hún niður, undan
hinu hvassa, eldheita augnatilliti,
sem helzt virtist ætla að bora
sig í gegnum hana. Andlit hennar
var orðið náfölt.
„Er það kannske ekki rétt hjá
mér?“ Rödd hans varð mildari,
þegar hann sá varnarvirki henn-
ar falla, eitt af öðru og eftir stóð
aðeins lítil stúlka, titrandi af
geðshræringu, auðmýkt og blygð
unarfull, alger mótsetning við
hina háðslegu, hrokafullu dömu,
sem rétt áður hafði staðið and-
spænis honum.
Nú þegar þessi útrás stóryrð-
anna hafði lægt mesta hugaræs-
inginn í honum, varð honum það
fyrst Ijóst, að hann sagði sagt hug
sinn allan, á berorðari hátt, en
nokkur annar hafði sennilega
þorað að tala við einkadóttur
Martins Fortenberrys. Og hann
að vinna á staðnum og Lije hafði
busalega línskarið af buxunum og
beið þess að hún ryfi hina óþægi-
legu þögn, sem skollið hafði á.
Svo hóstaði hún allt í einu
þurrum, niðurbældum hósta og
hann leit seinlega upp.
„Jæja?“ sagði hann loks spyrj-
andi og það var enginn sjálfs-
varnartónn í röddinni lengur,
enginn reiðiblær, aðeins hikandi
samúð, svo að hann langaði mest
til þess að rétta fram hendina og
draga stúlkuna til sín, til þess að
væta varir sínar í tárunum, sem
runnu út undan þessum löngu,
fíngerðu augnahárum, tárunum,
sem hann hafði kallað fram.
Sem svar við þessu lyfti stúlk-
an pilsinu upp frá öklunum og
hljóp fram hjá honum. Andlit
hennar var fölt og tekið, eins og
eftir langan og erfiðan sjúkdóm.
Hún hljóp, hrasandi í spori, eins
og hún sæi í móðu, hljóp stutt-
um, snöggum skrefum og flýtti
sér eins og hún væri á flótta und-
an bráðri hættu.
Hann sneri sér við, orðlaus og
undrandi yfir viðbragði hennar:
„Lizabeth!" hrópaði hann svo.
„Lizabeth".
En hann fékk ekkert svar. —
Þess í stað hljóp hún eins og rek-
in af einhverju, ósýnilegu afli og
hrasaði um viðardrumb, sem varð
fyrir fótum hennar og hann éetl-
aði strax að hraða sér henni til
hjálpar. En hún datt ekki og
hann nam aftur staðar og horfði
aðeins á eftir henni með æpandi
sjálfsásökun í augum.
Þegar öllu var á botninn hvolft,
þá hafði hann ekki þurft að vera
svona harður í orðum við hana.
Ekki átti hún sök á því, sem móð-
ir hennar hafði sagt við hann. Og
hann gat heldur ekki ámælt
henni fyrir það, sem hún hafði
sagt um Carrie Finney. Nei, móð-
ir hans hafði sagt satt. Maður gat
ekki verið með Lizabeth Forten-
berry annað kvöldið og Carrie
Finney hitt.
17. kafli.
Tveimur dögum síðar var öll
athafnasemin í hreinsunarstöð
Fortenbérrys með öllu úti og
staðurinn virtist auður og tómur,
að undanskildum opnu dyrunum
á hliðum og gafli byggingarinn-
ar. Stóru baðmullarhlaðarnir
þrír, sem komið hafði verið fyrir
í geymsluhúsinu um veturinn,
höfðu nú verið hreinsaðir og
stóðu í litla skýlinu og biðu þess
að verða fluttir út í skip og send-
ir norður í verksmiðjurnar. —
Engir gallar höfðu komið í ljós
á vélunum og hr. Trimble hafði
farið leiðar sinnar, allshugar
ánægður, með ávísun í vasanum,
stílaða á bankann í New Orleans.
af hinum margeftirspurðu þýzku
PERLON-brjóstahöldurum og
Perlon-sokkabandabeltum,
allar stærðir
í hvítum og svörtum lit.
Stúlka óskast
til þess að aka bíl. Upplýsingar í síma 7055
Jót askreyfingar
fyrir verzlanir
Gróðrastöðin við Miklatorg, sími 82775.
LOUIS COCHRAN:
SONUR HAMANS