Morgunblaðið - 25.11.1956, Side 3
Sunnudagur 25. nóv. 1956
MORGUNBLAÐIÐ
3
STAKSTEINAR
„í höndum ríkissíjórnar-
innar allrar“
Frá því var skýrt hér í blaðinu
s.l. þriðjudag að samningar væru
hafnir um endurskoðun varnar-
samningsins á grundvelli þings-
ályktunartillögunnar frá 28. marz
S.l. En að samþykki hennar stóðu
eins og kunnugt er kommúnist-
nr, Framsóknarmcnn, Alþýðu-
flokksmenn og Þjóðvarnarmenn,
Jafnframt var frá því skýrt, að
í íslenzku samninganefndinni
ættu sæti tveir Alþýðuflokks-
mcnn og einn Framsóknarmaður.
Blað kommúnista brást hið
versta við þessum upþlýsingum,
sem að sjálfsögðu voru sannleik
anum einum samkvæmar. Lýsti
„Þjóðviljinn“ því yfir á miðviku-
daginn að „samningarnir við
Bandaríkin væru í höndum ríkis
stjórnarinnar allrar“. „Fregn
Morgunblaðsins er tilhæfulaus
með öllu“, sagði kommúnistablað
ið í forsíðufrétt s.l. miðvikudag
Þetta þýddi það, að kommún-
lstar lýstu því yfir, að þeir Lúð-
vík og Hannibal væru einnig
með í samningunum við Banda-
ríkin. Ætti þá hagsmunum
Moskvu að vera þar sæmiiega
borgið og allt með felldu í við-
ræðunum og í kringum þær, frá
sjónarmiði kommúnista.
Þjóðin veit ekkert
En í gær slær í bakscgl i „Þjóð
viljanum*'. Þá lýsir kommúnista
blaðið því yfir að utanríkisráð
herra pukri með samningavið
ræðurnar. Kemst biaðið þá að
orði á þessa leið:
^nn hefur utanríkisráðberra
fslands ekki séð neina ástæðu til
að skýra þjóðinni frá við
ræðum þeim, sem hafnar eru við
bandarísku samninganefndar
mennina. Heldur hann þeim
hætti, sem tíðkazt hefur um langt
árabil, að láta Islendinga verða
að sækja til útlanda fréttir af
samningum um brýnustu vanda
mál þjóðarinnar“.
Mikil ósköp eru að heyra þetta,
„Samningarnir við Bandaríkin
eru í höndum ríkisstjórnarinnar
allrar“ að sögn „Þjóðviljans“ en
engu að síður fær þjóðin ekkert
að vita um þá. Hins vegar ljóstar
amerískur blaðamaður því upp
vestur í New York, að bandarísku
sarnningamennirnir hér hafi sett
fram kröfu um, að Bandarikin
„fái að haida herstöðvunum hér
á landi í 5—10 ár“, segir „Þjóð
viljinn“.
Hvað er þetta eiginlega? Eru
þá samnh.garnir alls ekki
höndum rikisstjórnarinnar allr-
ar“? Vita þeir Lúðvík og Hanni-
bal þá eftir allt saman alls ekkert
um það, sem er að gerast I ráð-
herrabústaðnum við Tjarnar-
götu?
Hin vinstri veit ekki —
F.ftir þessu að dæma virðist
ástandið þannig í ríkisstjórninni,
að vinstri höndin viti ekki hvað
hin hægri gerir. Og á ritstjórn
„Þjóðviljans“ er þessu greinilega
þannig varið. Einn daginn segir
blaðið að „öll rikisstjórnin“
standi að samningunum við
Bandaríkin. Hinn daginn er það
ótt af bræði yfir því að Guð-
mundur í. leyni það og alla þjóð-
ina hinum óttalega leyndardóm
í ráðherrabústaðnum.
Hvað er í pokanum?
En hvað er í pokanum, góðir
hálsar? Um hvað er verið að
semja í Ráðherrabústaðnum? Eru
samningarnir „i höndum ríkis-
stjórnarinnar allrar“? Er ríkis-
• stjórnin klofin í þessu stóra máli,
sem kommúnistar mörkuðu stefn-
una í með tiilögunni frá 28. marz
S.I.?
Á hvaða grundvelli eru full-
trúar eins þriðja hluta þjóðar-
innar að semja um sjálfstæðis-
og öryggismál íslands?
tlr verinu
Eldvarnir
TÍÐIN
hefur verið stirð til sjávarins,
en þó ekki svo slæm, að togar-
arnir hafi ekki getað verið að
veiðum viðstöðulítið. Sunnanátt
er ekki óhagstæð fyrir Vestur-
landinu, þar sem skipin eru, enda
þóít töluverður stormur sé.
AFLI
hefur yfirleitt verið góður
þessa viku hjá togurunum. Síð-
asta skipið, sem kom inn í viku-
lokin, Geir, var t.d. með full-
fermi. Er fiskurinn nær eingöngu
þorskur og sprak.
Frá Grænlandi komu í vik-
unni Neptúnus og Úranus með
282 lestir hvor, sem mátti heita
fullfermi, var aflinn karfi ein-
göngu. Eru þetta víst áreiðanlega
síðustu íslenzku skipin, -sem
koma af Grænlandsmiðum í ár.
SÖLUR
Lestir DM
Hallv. Fróðad..... 178 82.000
Júní .............. 201 100.000
Egill Skallagrímss. 156 88.000
Bjarni Ólafsson .. 180 80.000
Hefur markaðurinn verið mjög
sæmilegur.
Karlsefni átti að selja í gær.
Það hefur kvisazt, að Ingólfur
Arnarson eigi að selja í Bretlandi
öðru hvoru megin við helgina og
hann sé méð 3400 kítt, nokkuð
einhliða fisk, þorsk og sprak.
LANDANIR í REYKJAVÍK
Hvalfell ............ 251 lest
Neptúnus ............ 282 lestir
Úranus .............. 281 lest
Askur ............... 192 lestir
Jón Þorláksson .... 207 lestir
Geir..............um 260 lestir
Akiones
Laugardag, sunnudag og mánu-
dag komu á land 5000 tunnur af
síld. Bjarni Jóhannesson fékk
einn daginn 366 tunnur.
Þrir bátar voru á sjó á fimmtu-
daginn, og var Bjarni Jóhannes-
son þá með 117 tunnur, annar
með 60 tunnur, þriðji 23, en
fjórði báturinn fékk ekkert, þar
sem netin lentu í skrúfunni, svo
að hann varð að hætta veiðinni..
Freyja, sem er með línu, fékk
einn daginn 2Vz lest af fiski.
Goðafoss átti að taka freðfisk
og skreið í vikunni, en þegar
hálfnað var að ferma það, sem
fara átti, varð skipið að fara frá
vegna veðurs.
Vestmannoeyjai
f vikunni var aðeins róið tvo
daga, fimmtudag og föstudag. —
Afli var yfirleitt mjög rýr, enda
vont í sjó báða dagana, þó fékk
einn bátur 4 tonn á fimmtudag-
inn, mest ýsu. Annars var aflinn
1—2 lestir hjá þilfarsbátunum og
enginn hjá trillunum.
35.000 kassar af freðfiski fóru
með Goðafossi út í vikunni. Er
þetta mikið fiskmagn eða sem
svarar ársframleiðslu meðal-
frvstihúss.
Það sem af er þessu ári hefur
alls verið framleitt i Eyjum:
Freðfiskur fyrir 47 millj. króna
'M
m
»
ifM
> . <
■
m
OLÍA OG FEITI má aldrei komast í snertingu við SÚREFNI
undir þrýstingi, svo sem í logsuðu og lífgunartækjum, því það
veldur sprengingu, eldsvoða, slysi. — S.B.Á.f.
Saltfiskur
Þunnildi
Skreið
Fiskimjöl
Lýsi
19
2
1
9
7
Samtals 1473 lestir
Þorsteinn Ingólfsson lagði á
land í vikunni 140 lestir af salt-
fiski eftir þrigja vikna útivist.
Þetta er óvenjumikill fiskur,
sem borizt hefur á land á einni
viku, eftir því sem gengið hefur
undanfarið. Hins vegar er við-
búið, að lítið verði um fisk í
næstu viku, aðeins er vitað með
vissu um Pétur Halldórsson.
BÁTARNIR
h_xj Uin.í..ni.arið lítið getað róið
með línu vegna ótíðarinnar. Netja
bátarnir hafa hins vegar getað
vitjað um nokkurn veginn. Hjá
þeim hefur stundum verið sæmi-
legur afli, komizt upp í 12 lestir
í róðri.
Samtals
85
Keilovík
end-
Það virðist enginn
ir á ógæftunum, stöðugir
hleypingar úr suðaustri til suð-
vesturs. Menn gera sér ekki vonir
um breytingu á tíðarfarinu, fyrr
en gengur til hærri áttar, og nú
er vonin um góðan gæftakafla
sett á jólaföstuna, en hún byrjar
um næstu helgi.
Afli hefur verið lítill vegna
ótíðarinnar. Sunnudagurinn sið-
asti var þó góður afladagur og
mánudagurinn var sæmilegur. —
Síðan er varla hægt að telja, að
nokkur síld hafi veiðzt.
Um annan veiðiskap er það að
segja, að aðeins einn þilfarsbátur
stundar nú línuveiðar og auk
þess 4—5 trillur. Hefur afli verið
sæmilegur.
Hjá netjabátunum 3, sem átt
hafa net sín úti, var afli allgóður
fyrst í vikunni, en svo tók fyrir
veiðina og kenrrdu menn um
straum og tóku netin upp. — í
fyrradag lögðu þeir aftur net sín,
og bættust þá 2 bátar við, er þang
að til höfðu verið á reknetjaveið-
um.
Ýnsai iiéftii
Á s.l. ári var heildarafli Breta
797.000 lestir. Af þessu fiskmagni
voru 68.000 lestir frystar eða 8,3%
og var um Vi hlutinn fluttur út.
BREZKIR TOGARAR
AF MILLISTÆRÐ
Togurum af svonefndri miili-
stærð fækkaði í Bretlandi á ár-
inu 1955 úr 671 í 612, þó bættust
29 nýir dieseltogarar af þessari
Er þetta mikil framleiðsla af
bæ, sem ielur ekki nema rúmar
4 þúsundir íbúa, þótt margir sæki ‘j flÓtanrT á árinu.
þangað atvinnu á vertíðinni. Þar
er líka mikið af góðum og full- ATÓMORKAN í FISKISKIPIN
komnum framleiðslutækjum.
Það eru uppi raddir um, að
atómorkan verði í framtíðinni
hin nukilvægasta, ekki aðeins
fyrir almennar siglingar á haf-
inu, heldur einriig fyrir fiski-
skipin og þá ekki einungis til að
knýja þau áfram, heldur einnig
til að framieiða rafmagn í svo
ríkum mæli, að hægt verði bók-
staflega að draga fiskinn upp að
skipshliðinni og dæla honum síð-
an inn í skipið.
Það er nú líklega heldur ekki
vanþörf á nýrri orku, þar sem
talið er, að þær olíulindir, sem
kunnar eru í heiminum endist
ef til vill ekki mikið lengur en
í 20 ár.
Húnvelnsk
næst ekki
hryssa
vegna
Við hana hefur verið þreyttur mikill eitingaríelkur
í GRÍMSTUNGUHEIÐI gengur nú laus hryssa nokkur úr Húna
ár og fen. Handsömuðu menn-
irnir það þarna og fluttu til
byggða.
GERÐUR ÚT LEIÐANGUR
Húnvetningar ætla sér samt
ekki að gefast upp og láta hryss-
una ganga út í bjargarleysi í vet-
ur. Þykir þetta furðu sæta og
muna bændur þar ekki eftir öðr-
um eins villingi. Ætla þeir sér
j að gera út leiðangur í vetur,
vatnssýslu, sem Húnvetningum hefur ekki tekizt að koma þegar hjarn er komið og fanga
til byggða, vegna þess hve villt hún er. Hafa verið gerðar ítrek- hryssuna hvað sem það kostar.
aðar tilraunir að fanga hryssuna en ekki tekizt ennþá. Hefur það
aldrei komið fyrir áður svo menn viti til í Húnavatnssýslu, að „ , r , , . ,,
um" ekki sé hægt að koma hesti í byggð vegna styggðar, sagði Ágúst yYSfT R0V5lTfr
bóndi á Hofi í Vatnsdal, er hann skýrði Mbl. frá þessu.
SÁST í FYRSTU GÖNGUM
Er leitarmenn úr Húnavatns-
sýslu fóru í fyrstu göngur í
haust, en þá er hrossum einnig
smalað, sást hryssan en undir
henni gekk folald. Var hún þá
elt langan veg suður heiðar, en
gefizt upp við að ná henni. í öðr-
um göngum sást hvorki hryssan
né folaldið.
FANNST Á IIAUKAGILSHEIÐI
í eftirleit seint í október, urðu
gangnamenn varir við hana fram-
arlega á Haukagilsheiði. Voru það
þeir Ágúst á Hofi og Þorsteinn
Ásgrímsson á Ásbrekku. Var þá
snjór og illt yfirferðar. Fór Þor-
steinn, sem var vel ríðandi á
móti hryssunni, en hún tók sprett
beint á hann og tókst honum
ekki að snúa henni til byggða.
HRINTI FOLALDINU í ÁNA
Síðar um daginn eftir mikinn
að króa hana af við Álftaskálará.
Er hryssan sá að hún var inni-
króuð, tók hún það til bragðs,
að hún hljóp á folaldið, hrinti því
út í ána sem var full af krapi,
hentist sjálf út í á eftir því og
brauzt í gegnum krapahrönglið
yfir. Slapp hún þannig undan.
FOLALDIÐ GEFST UPP
Ekki gáfust þeir félagar samt
upp við svo búið. Voru þeir báðir
á góðum hestum. Eltu þeir hana
um 7 km langan veg, og hélt hún
sprettinum allan tímann. Einu
sinni komst Þorsteinn fyrir hana
og gat sveigt hana norður af. Á
Haukagilsheiði gafst folaldið upp,
og lagðist niður. Snéri hryssan
tvisvar við að gá að því, en er
hún sá mennina nálgast, þreif hún
sprettinn vestur heiðar og hefur
ekki síðan sézt. Áður en folaldið
gafst upp, var hún búin að fara
með það hinar og þessar ógöngur,
fil Bíldttdai*
eltingarleik tókst þeim félögum upp og niður gil og gljúfur, yfir
BÍLDUDAL, 23. nóv. — Fyrir
nokkrum dögum kom hingað mb.
Vörður, sem Suðurfjarðarhrepp-
ur hefur keypt til Bíldudals. Er
báturinn 39 lestir og verður gerð
ur út á línu héðan í vetur. — Er
þegar farið að útbúa hann á veið-
ar. Skipstjóri á Verði verður
Ársæll Egilsson. Báturinn er 8
ára gamall, byggður á Seyðis-
firði eftir teikningu frá Lands-
smiðjunni.
Einnig er sameignarfélag hér
á staðnum búið að kaupa annan
bát, Gottu frá Vestmannaeyjum,
sem er 35 lestir. Bíður báturinn
byrjar frá Reykjavík hingað
vestur. Eiunig hann verður gerð-
ur út á línuveiðar í vetur. Skip-
stjóri með Gottu verður Friðrik
Ólafsson. Sameignarfélag þetta
átti áður mb. Sigurð Stefánsson,
en hefur nú selt hann.
— Friðrík.