Morgunblaðið - 25.11.1956, Page 20
20
MORGUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 25. nðv. 1953
- i
“v
LOUIS COCHRAN:
SONUR HAMANS
Framhaldssagan 85
Andardráttur hennar var heit-
ur og ör, í snöggum, stuttum sog-
um og brjóst hennar risu og hnigu
við barm hans með ofsa, sem
hleypti brennandi roða fram í
vanga hans og orðin streymdu
(alveg óafvitandi og ósjálfrátt
fram af vörum hans:
„Segðu að þú viljir giftast
mér, ástin mín. Það er ekkert
það til í öllum heiminum, sem ég
ekki myndi gera fyrir þig. Ég
skyldi þræla fyrir þig, berjast
fyrir þig, elska þig allt til dauða.
Og mér er alveg sama um Carrie
Finney. Hún er mér einskis
virði“.
Hann strauk henni mjúklega
um vangann og klappaði laust á
herðarnar með óumræðanlega
mikilli viðkvæmni. „Ég ætla
aldrei að líta á þá stúlku framar.
Og leyfðu mér nú að segja þér
dálítið".
„Ég vissi það ekki sjálfur, að
ég unni þér. Ég hafði enga trú á
ást og kærleika. En ég ætl-
aði mér samt að kvænast þér,
þrátt fyrir það — peninganna
vegna. Ég þarfnaðist peninga“.
Hann hló að sjálfum sér hásum
vandræðahlátri, en hélt svo
áfram lágum tilbreytingarlausum
rómi, eins og hann væri að tala
við barn:
„En nú vil ég eiga þig — þig
og enga aðra. Það skipti engu
máli þótt þú værir algerlega alls-
Sunnudagur 25. nóvember:
Fastir liðir eins og venjulega.
11,00 Messa í barnaskóla Kópa-
vogs (Prestur: Séra Gunnar Árna
son. Oi'ganleikari Guðmundur
Matthíasson). 1,15 Endurtekið
leikrit: „Vitni saksóknarans" eftir
Agöthu Christie, í þýðingu Ingu
Laxness. (Áður útvarpað 18.
febr. þ. á.). — Leikstjóri: Valur
Gíslason. 15,15 Fréttaútvarp til
Islendinga erlendis. 15,30 Miðdeg-
istónleikar (plötur). 16,30 Veður-
fregnir. — Á bókamarkaðnum: —
Lesendur, útgefendur og höfundar
(Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarps-
stjóri). 17,30 Bamatími (Baldur
Pálmason). 18,30 Hljómplötuklúbb
urinn. — Gunnar Guðmundsson
við grammófóninn. 20,20 Um helg-
ina. — Umsjónarmenn: Bjöm Th.
Björnsson og Gestur Þorgrímsson.
21,20 Frá íslenzkum dæguxlaga-
höfundum: Lög eftir Jenna Jóns-
son og Ásbjörn Jónsson. Hljóm-
sveit Karls Jónatanssonar leikur.
Söngvarar: Alfreð Clausen og Sig
urður Ólafsson. 22,05 Danslög:
Clafur Stephensen kynnir plöt-
urnar. 23,30 Dagskrárlok.
Mánudagur 26. nóvember:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Búnaðarþáttur: Bændur og
Búnaðarbankinn (Haukur Þorleifs
son aðalbókari). 18,30 Skákþáttur
(Guðmundur Arnlaugsson). 19,10
Þingfréttir. — Lög úr kvikmynd-
um (plötur). 20,30 Útvarpshljóm-
sveitin; Þórarinn Guðmundsson
stjórnar. 20,50 Um daginn og veg
inn (Andrés Kristjánsson blaða-
maður). 21,10 Einsöngur: Antti
Koskinen óperusöngvari frá Hels
inki syngúr; Fritz Weisshappel
leikur undir. 21,30 Útvarpssagan:
„Gerpla“ eftir Halldór Kiljan Lax
ness; V. (Höfundur les). 22,00
Fréttir og veðurfregnir. — Kvæði
kvöldsins. 22,10 Upplestur: Kafli
úr endurminningum séra Halldórs
Jónssonar á Reynivöllum (Jónas
Eggertsson). 22,30 Kammertón-
leikar (plötur). 23,05 Dagskrárlok.
laus. Mér er svo hjartanlega
sama um alla peninga — sama
um allt — allt. nema þig... . Ég
myndi deyja sf ég gæti ekki
fengið þig fyrir konu“.
Stúlkan reyndi aftur að ýta
honum frá sér, þróttlaust og
alveg án alls árangurs. Rödd
hennar titraði: „Það er þá satt“,
sagði hún lágt og eins og annars
hugar. „Þú barst það út um allt,
að þú ætlaðir að kvænast mér,
áður en þú minntist á það einu
orði við mig sjálfa? Hvers vegna
gerðirðu það?“
„Ó, elskan mín, ég veit það
ekki einu sinni sjálfur". Hann
laut yfir hana og snerti létt með
vörum sínum augu hennar, eyr-
un, ennið og lcS: votar, rauðar
ungmeyjarvarirnar. Rödd hans
var loðin og hörð: „Kannske tal-
aði ég of mikið. En ég veit það
allt nú. Ég hef alltaf elskað þig
— allt frá því er þú varst oftur-
lítil táta og tifaðir á eftir pabba
þínum úti á ökrunum. Ég vissi
alltaf að ég vildi gera eitthvað
mikið og nú veit ég hvers vegna
það var. Ég vildi gera eitthvað
mikið — fyrir þig“.
Hann grúfði sig niður yfir
stúlkuna og kyssti hana, ekki
ruddalega eða frekjulega, ekki
heldur blíðlega eða með flýti
heldur hiklaust og eignarlega. Og
eftir eitt hikandi, eftirvæntingar-
fullt andartak, gafst hún upp við
alla mótspyrnu og lét algerlega
að vilja hans.
Þögn, djúp og alger þögn, sem
aðeins var rofin af stunum og
örum, slitróttum andardrætti og
hljóðfalli hrynjandi dropanna á
þaki byggingarinnar. — Nóttin
sveipaði þau dökkum felai sín-
um og huldi jafnvel bygginguna
sjálfa, svo að aðeins grillti í
skörpustu útlínur hennar. — Og
hann hélt henni mjúklega á með-
an hann kyssti hana og önnur
höndin læddist aftur fyrir hnakka
stúlkunnar, þar sem hún lá á
bakinu, mjúg og sveigjanleg, á
meðan hún fléttaði fingrunum
saman fyrir aftan hnakka hans
og þrýsti vörum sínum að munni
hans með þeim ákafa, sem aðeins
stafar af því, að áköf mót-
spyrna hefur verið brotin á bak
aftur.
„Það er svo gaman að snerta
þig“.
Lije gældi varfærnislega við
brjóst hennar með léttri snert-
ingu fingranna, en hreyfingar-
leysi hennar og alger þögn var
fullkomið samþykki og svar við
öllum hans heitustu óskum og
þrám.
„Það er svo gaman að snerta
þig lífstykkislausa. Ég vissi ekki
að þú notaðir ekki lífstykki. Þú
ert svo beinvaxin og spengileg.
Svei mér ef ég gæti ekki kysst
þig eins og englarnir kyssa börn-
in, þegar þau fæðast“.
„Þú ert yndislegur, heimskur
strákur". Hún togaði í annan
eyrnasnepilinn á honum og
rödd hennar var blíð, dreym-
andi og örlítið lokkandi. „Þú ert
yndislegur strákur, Lije“.
Hún þrýsti andlitinu að hálsi
hans og allur mótþrói var löngu
búinn að vera.
„Þá viltu líka giftast mér, er
það ekki? Viltu ekki giftast mér
— undir eins? Og svo ætla ég að
fara og biðja höfuðsmanninn um
hönd þína og segja móður þinni
tíðindin".
Hann hló óskýrum hlátri og
rödd hans var eins og í dreng
sem kominn er í mútur. „Ég er
ekkert hræddur við mömmu
þína, eða neitt annað. Ég myndi
jafnvel snúa upp á hálsinn á
fjandanum, ef þú segðir mér að
gera það“.
Hún þagði við þessum orðum
hans, en lyfti vörum sínum að
vörum hans og þau kysstust löng-
um heitum kossi. Skynjun þeirra
um tíma og rúm var ekki lengur
nein, allt var gleymt og horfið
nema unaður gagnkvæmrar
snertingar vara og heitra, rakra
líkamanna.
En umhverfis þau í myrkrinu
féllu þungir dropar til jarðar.
Aftur þögn — þögn, sem færði
þau enn nær hvoru öðru og gerði
faðmlög þeirra þéttari, á meðan
heimurinn varð myrkur og stóð
í órafjarlægð og þeim óvi^kom-
andi með öllu.
„Oh, Lizabeth", hann reyndi að
færa til fótleggina, en þeir rák-
ust í fótleggi hennar og sv.. lá
hann hljóður og hreyfingar'—ius
og lagði höfuðið mjúklega á
brjóst hennar.
Hún var farin að gráta, lágt og
án alls ofsa, en það fór titringur
um andlit hennar, sem gerði hon-
um órótt í skapi og jók kvíða
hans, svo ólíkt var það því and-
liti, sem rétt áður hafði hvílt við
vanga hans.
Svo komu þau hægt og án af-
láts útundan hálfluktum augna-
lokunum, tárin, sem hann reyndi
að kyssa jafnóðum burtu, á með-
an hún lá þögul við hlið hans.
„Bráðum fer ég svo, elskan
mín“, sagði hann henni í hundr-
aðasta skiptið. „Bráðum fer ég
svo heim að stóra húsinu —
kannske á morgun — og ber upp
bónorðið við föður þinn og því
næst látum við gefa okkur sam-
an, strax á eftir. Nú ertu konan
mín og ég maðurinn þinn. Ég er
maðurinn þinn“.
Hann kyssti hana aftur —
kyssti þvalar varirnar, mjúkar og
örlítið votar — varir, sem svör-
uðu kossinum, en aðeins mjög
veikt og titruðu við snertinguna
— 8 rúmfet —
Höíum nú aftur fengið hina vinsælu 8 rúmfeta
Kelvinator kæliskápa
Kelvinator KÆLISKÁPURINN er rúmgóð
og örugg matvælageymsla.
Kelvinator KÆLISKÁPURINN hefir
stærra frystirúm en nokkur annar kæli-
skápur af sömu stærð.
Kelvinator KÆLISKÁPURINN er ekki að
eins fallegastur, heldur líka ódýras-tur
miðað við stærð.
Kelvinator er sá kæliskápur, sem hver hag
sýn húsmóðir hefir í eldhúsinu.
— Verð kr.: 7,450.00.
Sendum gegn póstkröfu hvert á land sem er.
Gjödð svo vel
aö lita inn
Austurstræti 14 — sími 1687.
L>iiýrt! Driúyí!
Alhliða fínþvotta-, upp-
þvotta og hremgerningaeíni.
Einasta þvottaauftið, se.m
eyðir og kemiur í veg fyrir
guiun gerfiefnanna, svo sem:
Nælon, Perlon, Dralon, Rho-
vyl, enn fremur gránun og
fölnun ullarinnar. Auk þess
varnar REI lykkjuföllum og
lómyndun.
Skýrir alla liti.
Þess vegna er REI fullkomn-
asta þvottaefnið fyrir allan
viðkvæman þvott.
REI til uppþvotta: Þurrkun óþörf. — REI til hreingerninga:
Þurrkun óþörf. — Engin blettaskil. REI reynist ávallt bezt!
Heildsölubirgðir: V. Sigurðsson & Snæbjörnsson h.f.
c*.;**:**:**:.*:**;";**:**:**:**:**:**:":"^
M A R K Ú S Eftir Ed Dodd
lr THINK 'fvOU GUVS BETTER GET S
NOW THEVLL<THEV MGHTJ SOtAB SLEEP NOW...WE'RE
NEVER ASK. N\E] ...VOU <ÚGOING TO RUN THE WHITE
TO JOIN THE KEEP ^ WATER AT CUTSILVER CANVON
BARKEATERS"/ / TRVING, j TOMORROW, AND X WANT
. . __A ANVHOW f i s
1) — Mér finnst það ósköp eðli-
legt að strákarnir séu sárir út í
mig fyrir að ég skyldi demba öllu
úr pottinum.
2) .... það var líka ógurlega
klaufalegt hjá mér.
— Vertu ekki áhyggjufullur.
Þeir hafa allir gert sömu skyss-
una einhverntíma.
3) — Ég býst ekki við, að þeir
bjóði mér nokkru sinni inngöngu
í drengjafélagið.
— Ég hugsa nú samt að það
geti verið. Við skulum reyna
áfram.
4) — Við ættum að fara að
sofa. Á morgun förum við á bát-
um niður Hvítá. Okkur veitir
ekkí af að vera útsofnir þegar við
förum niður Silfurgil.