Morgunblaðið - 23.12.1956, Blaðsíða 17
Sunnudnffur 23. des. 1956
M O ** G V N P r A P ! T>
17
■^T Verðlauraa-myndagáia MorgunblaBsins
Um mörg: ár hefir myndagáta veriö í jólablað'i Lesbókar, og þott mjög skemmti-
legt viðfangsel'ni. Að' þessu sinni kemur myndagátan í Moigunblaðinu sjálfu. Er húta
með svipuðu sniði og áður hefir verið og mun reynast auðleyst. Þó verður að
taka þetta fram til skýringar: Enginn greinarmunur er gerður á stöfunum i-í-y-ý
fremur venju, og ekki er heldur gerður greinarmunur á a-á. Sums staðar verður
að lesa eftir framburði, en það ætti ekki að valda neinum vandræðum. Þá skal
þess getið, að sumar myndirnar tákna verknað eða athöfn.
— Ráðningar verða að berast blaðinu fyrir 6. jan. n. k.
Þrenn verðlaun verða veitt, fyrir rétta lausn, kr. 500,00, kr. 300,00 og kr. 200,00.
•>y
Mikilvægt það frausf sem
Landsbankinn hefir áunnið sér
Fjármálatíðiitcli komu út í fyrraclag
1 FYRRADAG komu út Fjármálatíðindi, rit hagfræðideildar Lands-
banka íslands. Hefst ritið á grein eftir ritstjórann dr. Jóhannes Nor-
dal, þar sem hann ræðir eitt helzta dagskrármái bankastarfseminnar
í landinu: Hlutverk seðlabanka. Ei4 þetta stutt en fróðlegt yfirlit
wm helztu vandamál á þessu sviði.
Niðurlagsorð þessarar greinar,
ritstjórans, hljóða svo:
„Lolis er ómetanlegt, að til sé
f hverju landi stoínun, sem óháð
sé sviftibyljum stjórnmálanna
og annist helztu fjármálaviðskipti
þjóðarinnar út á við. Hið gagn-
kvæma traust seðlabanka heims-
ins sín á milli er ein af megin-
undirstöðum heilbrigðra og ör-
uggra alþjóðaviðskipta. Er í því
sambandi ekki úr vegi að minna
á það, hve mikilvægt íslending-
um hefir þráfaldlega reynzt
traust það, sem Landsbankinn
hefur áunnið sér erlendis."
Mikið annað efni er í þessu
hefti Fjármálatíðinda, sem er hið
síðasta á þessu ári. Fyrst er grein
um markaðsþróun framtíðarinn-
ar.
Hinn kunni danski rekstrar-
hagfræðingur, prófessor Max
Kjær-Hansen, kom í sumar
hingað og hélt þá fyrirlestur í
háskólanum, sem birtist í ritinu.
Lítið hefur verið ritað um slík
efni hér á landi, og mörg þau
vandamál, sem rekstrarhagfræð-
in fjallar um, hafa ekki verið
könnuð sem skyldi.
Þá er sagt frá starfsemi Al-
þjóðabankans og Alþjóðagjald.
eyrissjóðsins. Er þar birtur kafli
úr ræðu Eugene Blacks aðal-
bankastjóra, er hann flutti á aðal-
fundi Alþjóðabankans í haust. —
Síðan koma þrjár yfirlitsgreinar
er fjaJla um mikilvæga þætti efna
hagsstarfseminnar. Þar er fyrst
sagt frá framleiðslu og fjárfest-
ingunni 1955. Er þetta mjög ræki
legt yfirlit og línurit t.il frekari
skýringar. Þá er grein um íbúða-
byggingar og lánaveitingar til
þeirra og loks er grein um
greiðslujöfnuð ársins 1955. Síðan
koma ýmsir fréttaþættir varðandi
utanrríkisviðskiptin og gjaldeyr-
isstöðu, útgérð og aflabrögð, frá
landbúnaðinum o. fl. o. fl. úr
efnahagslífinu. Þar er vikið að
peningamálunum og segir þar,
að allmjög hafi þyngzt fyrir fæti
í peningamálunum sl. fjóra mán-
uði. Útlán Jiafa aukizt þrátt fyrir
stöðnun í innlónaaukningunni.
Það sem af er árinu hafa út-
lánin í bönkunum aukizt um 256
millj. kr. Til júníloka var spari-
fjáraukningin mun meiri en í
fyrra og náði þá hámarki 1006
millj. kr. Síðan hefur hallað und-
an fæti og innstæður lækkað um
26 millj. kr. Þó talið sé um árstíða
bundna lækkun að ræða, er hún
þó allmiklu meiri en undanfarin
tvö ár, segja Fjármálatíðindi. í
fréttayfirlitinu er margs lionar
annar fróðleikur og töflur um
verzlun og viðskipti.
„Töfrafiautan” í Þjóðleikhúsina
Á ANNAN JÓLADAG verður
frumsýning í Þjóðleikhúsinu, á
söngleiknum „Töfraflautunni“ eft
ir Mozart. Á öndverðu þessu ári
voru liðin 200 ár fró fæðingu tón-
skáldsins og vill leikhúsið minnast
þess með því að hefja sýningar á
þessum vinsæla og fallega söng-
leik. „Töfraflautan“ er ævintýra-
leikur, sem fjallar um galdra og
siðalögmál. Hún er síðásta óperan,
sem Mozart samdi, en hann lézt
skömmu eftir að „Töfrafiautan"
Kemur heim af andaveiöum
var frumsýnd. Dauða þessa mikla
tónsnillings var ekki veitt meiri
athygli en svo, að hann var graf-
inn í fjöldagrafreit fátæklinga og
nú veit enginn hvar sú gröf er.
Á sýningunum í Þjóðleikhúsinu
verður „TÖfraflautan" flutt á ís-
lenzku og hefur Jakob Jóh. Smóri
þýtt textann. Söngstjóri er dr. V.
Urbancic, en Lárus PátSson hefur
annazt leikstjórn. Hlutverkin í ó-
perunni eru f jölmörg og eru söngv
ararnir allir íslenzkir að undan-
skilinni Stinu Brittu Melander,
sem mun syngja hlutverk nætur-
drottningarinnar, eitt erfiðasta ó-
peruhlutverk sem til er. Með aðal-
hlutverkin fara Þuríður Pálsdótt-
ir (Pamina), Þorsteinn Hannesson
(Tamino), Kristinn Hallsson
(Papageno), Jón Sigurbjörnsson
(Sarastró), Guðmundur Jónsson
(Þulur), Ævar Kvaran (Mono-
statos). Ennfremur kemur fram
ný söngkona, sem ekki hefur sézt
á sviði Þjóðleikhússinsfyrr, Hanna
Bjarnadóttir, en hún mun syngja
og leika hlutverk Papagenu. — Þá
er María Markan ein af þernum
næturdrottningarinnar, en hinar
eru Sigurveig Hjaltested og Svava
Þorbjarnardóttir. Þjóðleikhússkór-
inn, sem telur yfir 30 manns, kem
ur einnig fram á sýningunni. —
Lothar Grund hefur gert leiktjöld
og búningateikningar og er hvort
tveggja bæði séikennilegt og fal-
legt. Búningar eru allir saumaðir
í saumastofu Þjóðleikhússins, und-
ir stjórn Nönnu Magnússon.
Önnur sýning á óperunni vei-ður
föstudaglnn 28. des., en 3. sýning
sunnudr.' inn 30. des. Á milli jóia
og nýárs veiða ennfremur sýning
ar á „T iiúsi Agústmánans“ og
„Fyrir kóngsins mekt“. —
Jólas ning Leikf.
Reykjavíkur
LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
sýnir leikritið „Það er aldrei að
vita“, á annan í jólum. Þetta er
gamanleikur eftir Bernard Shaw
og gerist á baðstað í Englandi í
ágúst fyrir sextíu árum. — Með
hlutverk fara Guðbjörg Þorbjarn-
ardóttir, Helga Bachmann, Helgi
Skúlasor,, Þorstein Ö. Stephensen,
Kristín Anna Þórarinsdóttir, —
Brynjólfur Jóhannesson, Birgir
Brynjólfsson, Guðjón Einarsson
og Árni Tryggvason, sem tekur
við hlutverki Jóns Sigurbjörnsson
ar. Leikrit'ð hefur nú verið sýnt
átta sinn-.rm við ágætar undir-
tektir.
Leikritið gerist á einum degi;
hefst í tannteknisstofu og endar á
grímuballi. Kona kemur heim með
börn sín frá Madeira, en það kem-
ur fljótt í ljós, að þau hafa ekki
hugmynd urn hver faðir þeirra
muni vera. Gengur á ýmsu unz
þau mál eru til enda leidd. Áður
en það ske*nr hafa persónurnar í
frammi þeð grín, sem svo mjög er
einkennandi við hinn fræga og á-
gæta höf’U'1 laikritsins.
Nýtt lsikrit verður sýnt 11. janú
ar í tilefni sextíu ára afmælis fé-
lag-sins. Heitir það „Þrjár systur“
eftir Anton Tsjekov. — Leikstjóri
er Gunnar R. Hansen, sem einnig
stjórnaði leikriti Shaws.
t