Morgunblaðið - 29.12.1956, Blaðsíða 1
43. órgangur
308. tbl. — Laugardagur 29. desember 1956
Prentsmiðja Morgunblaðsin*
Rússar ákveða að endurskoða
núverandi fimm-ára áætlun
Saburov gagnrýndur . ..
Skipt um
„skipulug”
Moskvu, skv. fréttum
frá Reuter.
SÚ ákvörðun var tekin á
fundi miðstjórnar rúss-
neska kommúnistaflokksins
að Maxim Saburov, sem
verið hefur formaður skipu
lagsnefndar efnahagsmála
Sovétríkjanna skyldi láta
af embætti. Kom þessi
ákvörðun í kjölfar mjög
harðrar gagnrýni á hendur
skipulagsnefndinni.
t stað hans var skipaður
í þetta embætti M. G. Per-
vukhin varaforsætisráðh.
Hann er 52 ára og hefur
getið sér gott orð í Rúss-
. . . Pervukhin tekur við.
landi sem athafnasamur
maður en er ekki talinn
mikill stjórnmálamaður.
Jafnframt þessu var
skipulagsnefndin endur-
skipulögð. Fjórir menn
gengu úr henni og aðrir
f jórir komu inn. Því er lýst
yfir .að aðalverk hennar
verði að hindra eyðslu og
endurskoða núverandi 5 ára
áætlun.
Kom í Ij ós á miðstjórnarfundi
rússneska kommúnistaflokksins að við
mikla efnaliagsörðugleika er að etja
Moskvu — Samkv. fréttum frá Reuter.
llfflÐSTJÓRN rússneska kommúnistaflokksins hefur ákveð-
ið að breytingar skuli gerðar á fimm ára áætluninni,
sem nú hefur staðið í eitt ár, vegna ýmissa erfiðlcika, sem
orðið hafa á framkvæmd hennar. Er þess getið í ályktunum
miðstjórnarinnar, að mikið vanti á að áætlanir um íbúða-
byggingar standist. Sömuleiðis segir þar að framleiðsla á
kolum, málmum, sementi og trjávið á árinu 1956 sé undir
áætlun. — Fréttamenn á Vesturlöndum skýra breytingarn-
ar sem nú standa fyrir dyrum í efnahagskerfi Rússlands,
að nii sé ætlunin að reyna að auka staðbundið einkaframtak,
en jafnframt styrkja eftirlit ríkisvaldsins á efnahagssviðinu.
umbrotasama 20. þing komm-
únistaflokksins var haldið í
febrúar sl. Vekur það því
nokkra undrun, að af ályktun-
um þeim sem gefnar hafa ver-
ið út er ekki að sjá, að megin-
stjórnmál né hugsjónagrund-
völlur flokksins né atburðirn-
ir i Ungverjalandi hafi verið
ræddir, heldur eingöngu efns-
hagsmál. — Xelja vestrænir
fregnritarar, að þetta stafi af
því að efnahagsmálunum hafi
Frh. á bls. 15.
SKYNDIFUNDUR
í FIMM DAGA
í miðstjórn rússneska komm-
únistaflokksins eiga sæti 133 aðal
fulltrúar og 122 varafulltrúar.
Voru þeir kvaddir mjög skyndi-
lega saman á fund þann 19. des.
og stóðu fundir fram á aðfanga-
dagskvöld. Eftir jólin hafa nokkr-
Veyðarástand í Los Augeles
♦ Los Angeles, 28. des. —
Ríkisstjórinn í Kaliforníu, Good-
win Knight, hefur lýst yfir neyð-
arástandi í allri Los Angeles-
sýslu, sem stórborgin Los Angel-
es er í. Ástæðan er svonefndur
Malibu-kjarrbruni, sem hefur nú
á skömmum tíma breiðst út um
10 þús. ferkílómetra svæði. Síð-
Kínverjar lýsa sig
lúta forystu Rússa
Stalinistar fá liðsauka úr austri
Peking, 28. des. — Einkaskeyti frá Reuter.
★ Kínverska kommúnistastjórnin lýsti því opinberlega yfir í
dag, að Kínverjar vildu enn lúta forustu rússneska kommúnista-
flokksins.
★ Jafnframt lét hún í ljós stuðning við aðgerðir Rússa í Ung-
verjalándi til að bæla niður gagnbyltinguna.
★ Þá kvað hún Stalin hafa verið mikinn byltingarsinna í anda
Marx og Lenins, þó að honum hefðu orðið noltkur mistök á.
★ Kommúnistastj órnin vítti að lokum Tító einræðisherra Júgó-
slavíu fyrir ræðu þá er hann flutti í Pola og birt var 15. nóvember,
en þar hafði Tító sagt, að mikill ágreiningur væri meðal kommún-
ista Austur-Evrópu, jafnvel væru sumir sem vildu taka upp að
nýju stefnu Stalins.
★ HAFNA I.EIÐ TITÓS
Allar þessar þýðingar-
miklu yfirlýsingar kínversku
kommúnistastjórnarinnar birtust
í blaði kínverska kommúnista-
flokksins, „Alþýðudagblaðinu".
Er það nú talið afskorið mál, að
Kína gangi að sinni sömu braut
þjóðfrelsis og Júgóslavía hefur
gert undir stjórn Títós, en uppí
hafa verið raddir um að svo
kynni að fara.
★ LÚTA FORYSTU RÚSSA
í yfirlýsingunni er farið
sérlega hörðum orðum um Tító.
Sagt er að afstaða hans geti að-
eins leitt til sundrungar meðal
kommúnistaflokkanna, því að
kommúnistaflokkar allra landa
verði að lúta forystu rússneska
kommúnistaflokksins.
★ MISTOK STAI.INS
SMÁVÆGILEG
Kínverska kommúnista-
stjórnin telur einnig að Tító geri
of mikið úr mistökum Stalins.
Honum hafi að vísu orðið mistök
Framh. á bls. 15
ast þegar til fréttist höfðu 68 hús
eyðilagzt í brunanum, en þó hef-
ur aðeins einn maður látið UKið.
♦ Um tíma virtist sem streng-
ur úr kjarrbrunanum ætlaði að
ná fram til Belair-íbúðahverfis-
ins, þar sem margar frægar kvik-
myndastjörnur búa, en það tókst
að hindra.
♦ Með yfirlýsingu neyðar-
ástandsins verða brunamál Kali-
forníu endurskipulögð um tíma
til þess að sem fjölmennast
slökkvilið geti farið til Los
Angeles án þess þó að veikja
brunavarnir annars staðar svo að
hætta stafi af. — Reuter.
Bandarískt her-
lið i nálægum
Austurlondum ?
WASHINGTON, 28. des. — Orð-
rómur í höfuðborg Bandaríkj-
anna hermir, að Eisenhower íhugi
nú, hvort hann eigi að æskja
heimildar sambandsþingsins til
að beita bandarísku herliði í ná-
lægum Austurlöndum ef þörf
gerist.
Ef þingið veitir slíka heimild
er búizt við að hún verði í sama
formi og ályktun sú sem þaö
samþykkti fyrir tveimur árum og
heimilaði forsetá að beita banda-
rísku herliði við Formósa, ef þörf
gerðist.
Engin opinber staðfesting hef-
ur fengizt á þessum orðrómi en
tilkynnt hefur verið að Dulles
utanríkisráðherra hafi í dag átt
viðræður við forsetann um vanda
mál nálægari Austurlanda. Auk
þess mun Dulles ræða við Hamnr
arskjöld á sunnudag og á nýárs-
dag mun hann skýra stefnu Banda
ríkjanna í málum nálægra Aust-
urlanda fyrir hópi bandarískra
þingmanna.
ar ályktanir fundarins verið birt-
ar. —
VANRÆKSLA OG MISTÖK
í ályktununum er það athyglis-
verðast, að farið er hörðum gagn-
rýnisorðum um „vanrækslu og
mistök“ í starfi skipulagsnefndar
efnahagslífsins. Er sérstaklega
vikið að því, hve ibúðabyggingar
gangi seint, en húsnæðisskortur
er mikill í Sovétríkjunum, eink-
um þó í Moskvu.
EKKERT RÆTT UM
UNGVERJALAND
I»etta er fyrsti opinberi mið-
stjórnarfundurinn eftir að hið
Kvenfólkið slóst
um handklæðin
PRAG — Fyrir jólin kom til
slagsmála í fjölmörgum verzl-
unum í Prag. Var það ein-
göngu kvenfólk, sem áttist við.
Ástæðan var sú, að nú komu
í verzlanir vörur frá Vestur-
löndum i fyrsta skipti síðan
kommúnistar hrifsuðu til sín
völdin. Var hér nær eingöngu
um að ræða vefnaðarvöru —
sem talin er til nauðsynja á
Vesturlöndum — svo sem
handklæði o. fl. f sumum verzl
unum fór svo, að lögreglan
varð að skerast í leikinn til
þess að forða slysum — því að
við borð lá að margar træðust
undir, svo mikill var ákafi
kvenfólksins í að ná í þessa
sjaldséðu vöru.
Illrœmdir staSinistar
og samstarfsmenn Rakosi
skjófa aftur upp kolli
ÞAÐ verður nú æ meir áberandi, að ýmsir gamlir ungverskir
Stalinistar, sem horíið höfðu frá áhrifum og völdum fyrir
byltinguna, eru að skjóta upp kollinum aftur sem áhrifamenn
undir stjórn Kadars. Er það ekki talinn fyrirboði góðs í Búdapest
og veldur það nokkru um, að ungverskur almenningur trúir vart
iausafregnum um að stjóm Kadars ætli að lina tökin.
SKRIFAÐI RÆÐUR RAKOSIS
Sem dæmi um gamla Stal-
inista sem nú koma fram á
sjónarsviðið má nefna Istun
Frish, sem hefur verið skip-
aður ritstjóri málgagns komm-
únistaflokksins New Szabad-
sag. Frish þessi var á síuum
tíma einn allra nánasti sam-
starfsmaður Stalinistans Ra-
kosi. Er það sögn manna, að
hann hafi skrifað margar ræð-
ur Rakosis og einnig sá hann
um persónulegan áróður fyrir
Rakosi, svo sem birtingar á
myndum af honum o. fl.
Istun Frish hvarf frá Ungverja-
landi um sama leyti og Rakosi
missti völdin. Hann er Moskvu-
lærður. Kom til Ungverjalands
með Rauða hernum í styrjaldar-
lok og hefur rússneskan borgara-
rétt.
ILLRÆMDUR
ÁRÓDURSMAÐUR
Annar Stalinisti, sem aftur hef-
ur komizt til valda og virðinga
síðustu vikur er Sandor Nogradi.
Hann var skipaður nýlega aftur
í miðstjórn ungverska kommún-
istaflokksins. Á dögum Rakosis
var hann mjög illa liðinn, enda
var hann yfirmaður áróðursdeild-
ar ungverska hersins, sem átti að
sjá um að ungverskir hermenn
fengju tilhlýðilega pólitíska
kennslu.
Sameiginleg
norræn
sendiróð?
KAUPMANNAHÖFN, 28. des. —
Þegar Norðurlandaráðið kemur
saman til fundar í Helsingfors í
febrúar nk. munu fjórir 'danskir
þingmenn bera fram tillögu um
að fjögur Norðurlandanna, Dan-
mörk, Finnland, Noregur og Sví-
þjóð komi á hjá sér samstarfi i
utanríkisþjónustunni, þannig að
þau hafi sameiginleg sendiráð.
Er tillaga þessi fram komin vegna
sívaxandi kostnaðar við utanríkis
þjónustuna í öllum þessum lönd-
um. — Reuter.