Morgunblaðið - 29.12.1956, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.12.1956, Blaðsíða 2
I MORCTJNBLJDJÐ Laugardagur 29. dés. 1956 IGÆR fengu blaðamenn tæki- færi til að hitta að máli ung- verska flóttafólkið, sem hingað er komið á vegum Rauða kross íslands. Eins og kunnugt er, hefur það dvalizt undanfarna daga að Hlégarði í Mosfellssveit, og hefur verið búið þar um það eins vel og kostur er. Af samtölum kemur í ljós, að flóttafólkið hefur unað hag sínum vel hér á landi, enda er það í góðum höndum. Hjúkrunarkonur og læknar hafa verjarnir hlusta með athygli. En þetta er árangurslaust, menn þurfa lengri tíma en tæpa viku, til að læra íslenzku! Þó er það svo, að Ungverjarnir hafa reynt eftir föngum að kynnast nýja land inu. Margir þeirra eru þegar byrj- aðir að læra íslenzku — og eru jafnvel farnir að geta sagt eitt og eitt orð. Á lista, sem Andrés Alexandersson, maður frú Nönnu, hefur gert handa þeim, eru nokk- ur einföld og nauðsynleg orða- segír 19 ára flóttakona og veit ekki, hvort maður hennar er lífs eba Hðinn Rætt við ungverskt flóttafólk í Hlégarði Flóttafólkið aðstoðar í eldhúsinu veitt því nauðsynlega aðstoð, og ekki má gleyma hlut frú Nönnu Snælands, sem hefur dvalizt með því að Hlégarði, túlkað fyrir það og reynzt ágætur félagi. Er áreið- anlegt, að nærvera hennar hefur létt fyrstu sporin í ókunnu landi. ★ ★ ★ ÞEGAR við göngum inn í Hlé- garð, koma nokkrir flótta- menn á móti okkur til að for- vitnast um ferðir aðkomumanna. Það er ekki undarlegt að ókunnug ir veki talsverða athygli í Hlé- garði um þessar mundir, því að fólkið hefur, eins og kunnugt er, verið einangrað, síðan það kom til landsins, og ný andlit eru sjaldséð austur þar. Við reynum að gera okkur skiljanlega, spyrj- um einfaldra spurninga, og Ung- Skák-keppnin 1. BORÐ Svart: Akureyri (Júlíus Bogas. - Jón Ingimarss.) ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítt: Reykjavík (Ingi R. Jóhannsson) 10.. d6xe5 2. BORÐ Svart: Reykjavík (Björn Jóhanness.-Sv. Kristinss.) ABCDEFGH ABCDEFGH Hvítt: Akureyri (Ingimar Jónss. - Kristinn Jónss.) 10. Bd3xc4 sambönd, s. s. góðan daginn, þakka yður iyrir, ég skil yður ekki o. s. frv. Hefur þetta komið að góðu gagni, og áreiðanlega verður ekki langt, þangað til að Ungverjarnir geta sjálfir farið að byggja ofan á þennan grundvöll. Þetta er ákveðið og harðduglegt fólk, vant. því að leggja á sig erfiði, svo að málið verður von- andi enginn Þrándur í Götu, þeg- ar það fer að kynnast hinum nýju löndum sínum og framtíðarheim- kynnum. ★ ★ ★ EGAR við lítum inn í aðalsal- inn, er hann þéttskipaður fólki á öllum aldri. Yngsti flótta- maðurinn er þriggja ára gamall, en hann er ekki viðstaddur, er sennilega farinn að sofa. Það er komið að kvöldi. Elzti flóttamað- urinn er 54 ára gömul kona. Hún er ekki heldur í salnum, því að hún er lasin eftir hrakningana og liggur fyrir. — Það er verið að leika dansmúsik, og eitt parið hefur fengið sér snúning á miðju gólfi. Sumir tefla, aðrir spila á spil, og ein eða tvær konur prjóna án afláts. Hér er séð fyrir öllu og reynt að afmá sárustu minning- arnar. En það er ekki auðgert. Rússnesk ráðstjórn segir til sín með köflum. Ung stúlka grætur með þungum ekka. Frú Nanna gengur til hennar og hughreystir hana. Og svo er okkur sagt að þetta fólk hafi flúið af „ævin- týraþrá"! . ★ ★ ★ VIÐ sitjum við borð frammi í gangi. Umhverfis okkur eru 5—6 flóttamenn sem ætla að svara nokkrum spurningum, og það sem mesta athygli vekur er hugrekki þessa fólks samfara óvenjulegu jafnaðargeði, þegar á reynir. Það örlar jafnvel á gam- ansemi, þegar við förum að ræða við það, en undir niðri er þó djúp alvara, tregi og söknuður. — Áð- ur en varir erum við farin að ræða við ungan myndarlegan mann, búfræðing að menntun, og við spyrjum hann fyrst, hvort honum hafi boðizt atvinna. — Nei, svarar hann, ekki ennþá. En ég vona að það verði ekki langt þangað til. Síðan berst tal- ið að Ungverjalandi og hann seg- ír: fékk svo atvinnu hjá járn- brautunum og starfar þar enn. Hann er nú hálfsjötugur. — Veit hann að yður tókst að flýja land? — Nei, ekki ennþá. Ég þori ekki að skrifa honum það. Það gæti kostað alla fjölskyldu mína lífið. — Hvers vegna fóruð þér úr landi? — Ef þér skrifið ekki nafn mitt í blaðið, get ég sagt yður það. Ég tók þátt í uppreisninni og barðist með frelsissveitunum í verkamannahverfum Búdapest. Þar urðu bardagar einna harð- astir. — Þér hafið sem sagt ekki flú- ið af „ævintýraþrá“? Hann brosir, segir svo: — Við erum komnir yfir alla „ævintýraþrá"! Þegar ég frétti um örlög móður minnar var ég álcveðinn í að klekkja á Rússum, eins og ég frekast gæti. Ég fékk tækifæri til þess — og þess vegna er ég kominn hingað. Við spyrjiun þennan unga flóttamann að gefnu tilefni, hvort ungverska þjóðin hafi ekki gert uppreisn gegn kommúnism- anum en ekki gegn einstökum leiðtogum hans í Ungverjalandi. — Jú, auðvitað. Þjóðin reis á hann í kvöld — og allt verður gert til þess að hjálpa honum að sigrast á erfiðleikum sem fram- undan bíða. Hann er frá Búdapest eins og margir aðrir flóttamann- anna, og skipaði sér í lið með löndum sinum í bardögunum fyrir framan útvarpið í upphafi byltingarinnar. Við hlið hans sit- ur unnusta hans, ung og myndar- leg stúlka: Þau hafa mikinn hug á því að ganga í hjónaband hið allra fyrsta og nú er beðið eftir svari kaþólsku kirkj unnar á fs- landi. — Þá er móðir hans einnig og 15 ára gamall bróðir sem er bifvélavirki. Þessi irngi flóttamaður segir: — Ég fór að heiman 23. nóv. ásamt 6 félögum mínum og daginn eftir börðumst við fyrir framan útvarpsstöðina. Þegar við vorum á leiðinni heim um kvöldið, lentum við í sprengjukasti Rússa og AVO- manna og missti ég þá hægri höndina og vinstra augað. Fé- lagar mínir voru spöikorn frá mér og sluppu því ómeiddir. Þeir komu mér í sjúkrahús og þar var mér hjúkrað af ung- verskum læknum og hjúkrun- arkonum. — En Rússarnir, veittu þeir enga læknisaðstoð? fólkinu saman. Síðan var það bundið og keflað, svo að það gat ekkert hljóð gefið frá sér og Ioks fleygt inn í flutninga- vagna. Þarna réðust þeir á mig og ætluðu að binda hend- ur fyrir aftan bak, en fundu þá að mig vantaði hægri höndina. Þá köstuðu þeir mér í burtu aftur. Ef ég hefði haft hægri höndina væri ég ekki hér. — Örlögin eru stundum undar- leg, verður einhverjum að orði, en ungi maðurinn skilur ekki ís- lenzkuna og heldur áfram: — Við fórum svo öll með járn- brautarlest áleiðis til landamær- anna, en síðustu 30 kílómetrana gengum við. Við fengum mat og gistingu á bóndabæjum og var hvarvetna fagnað af heilum hug, en á nóttunni fórum við yfir ó- færur og urðum aldrei varir við neiná Rússa. Þeir eru huglausir, þegar svo ber undir, og fótgöngu- liðið er alltaf í hópum. Þeir þorðu ekki út í fenin, enda gátu þeir elcki komið skriðdrekum við þar. Það hefur orðið mörgum Ung- verjum til lífs. SÁ ÁRÓÐURSMYNDIR FRÁ ÍSLANDI NÚ er röðin komin að 28 ára gömlum vélsmið, sem hingað er kominn ásamt móður sinni, föður, 2 bræðrum, systur og upp- Veismiöunnn með fjolskyldu sinm. A myndina vantar ömmuna, sem liggur rúmföst. upp gegn skipulaginu, leið- togunum og Rússum. Þetta er allt sama tóbakið. HÆGRI HÖNDINA VANTAÐI — OG ÞAÐ BARG UÍFI HANS VIÐ hlið okkar situr 21 árs gamall skrifstofumaður. Hann hefur misst hægri hönd og vinstra auga. Það er ömurleg til- hugsun fyrir jafnungan mann, en hann tekur því með karl- mannlegri ró, og víð erum þess fullviss, að það líði ekki á löngu, áður en hann tekur til starfa á ný. Dr. Snorri Hallgrímsson lítur Hann brosir fyrirlitlega: — Rússamir? Þeir skutu bara á lækna, hjúkrunarkonur og sjúkrahús. Og hann heldur áfram: — Ég var í 3 vikur í sjúkra- húsinu, en fór síðan heim, þegar Rússar voru famir að ganga á sjúkrahúsin og varpa sjúkling- unum í fangelsi. 21. nóv. munaði litlu, að ég yrði fluttur nauðugur til Rússlands. Ég var á gangi úti, þegar rússneskir skriðdrekar komu skyndilega og sópuðu — Ég hef lítið unnið við landbúnaðarstörf í Ungverja- landi. Ég var hálft ár í íanga- búðum nazista, og þegar ég kom heim aftur, höfðu Rússar myrt móður mína, en faðir minn sat í fangelsi vegna stjórnmálaskoðana sinna. — Hann var í fangelsi í 2 ár, en Fyrstu jólin á íslandi eldissystur. — Annar bræðranna var landamæravörður í ung- verska hernum og hafði hjálpað mörg hundruð mönnum yfir landamærin, þegar kommúnistar fóru að gruna hann. Komst hann á snoðir um að það ætti að skjóta hann og flýði heim, en síðan flúði öll f jölskyldan til landamæranna. Móðirin, sem er 54 ára gömul og liggur en rúmföst, var mjög las- burgða og þurftu þeir bræður að bera hana marga kílómetra til landamæranna. — Munduð þér fara aftur til Ungverjalands, ef ástandið lag- aðist? spyrjum við. — Ég hef litla trú á því að ástandið batni, og þó að svo yrði, mundum við ekki snúa aftur. Við komum til íslands í leit að friðt og okkur langar til að stofna hér nýtt heimili. Okkur hefur verið sagt að hér búi gott og friðsam- legt fólk og lítill munur sé á lífs- kjörum manna. Við vonumst til þess að fá atvinnu sem fyrst. Við erum ekki vön að sitja auðum höndum og sl. 12 ár hafa AVO-ar staðið fyrir aftan okkur á vinnu- stað með svipuna á lofti. Vinnu- hörku óftumst við ekki. í Ung- verjalandi hefur ekki verið spurt um, hvað menn gætu unnið, held- ur hitt, hvort menn væru í floktn um. Ég hef aldrei verið í flokkn- um og hef því aldrei haft nema rétt til hnífs og skeiðar — Hvað vissuð þið um ísland, áður en þið komuð hingað? Mig langar til oð fá telpuna mína til Islands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.