Morgunblaðið - 29.12.1956, Side 9

Morgunblaðið - 29.12.1956, Side 9
Laugardagur 29. des. 1956 Moncuivnr aðit> % Jólagjöfin rædd á Alþingi: Á AD SVIFTA KJQSENDUR Herra forseti. ÞAÐ er nú orðið upplýst, að i því frv., sem hér liggur fyr- ir til afgreiðslu og ætlunin er að koma í gegnum Alþingi á þrem- ur dogum, er ráðstafað gjöldum á almenning tem svarar a. m. k. 500 millj. króna, og þar af eru nýjar álögur a. m. k. í kringum 240 milljónir. ÚRSLITAVALDINU? Kommúnistar áskilja sér ,,opna leiB" til nýrra spellvirkja ingu hefur varðandi þær 240 millj., sem hér á að leggja á all- an almenning. Ræöa Bjarna Benediktssonar . MESTU ÁLÖGURNAR Hæstv. fjmrh., Eysteinn Jóns- son, hélt því fram, að það væri engin nýjung, að slík frv. hefðu áður verið drifin í gegnum Al- þingi með jöfnum hraða eins og ætlað er um þetta frv., og taldi, að á okkur Sjálfstæðismönnum sæti ekki að finna að slíkri með- ferð, þar sem við hefoum sjálfir átt sem þátttakendur í ríkisstjórn fullan hlut að þvílíku áður. Eg fullyrði, að aldrei hefur neitt sanibærilegt átt sér stað. Eg full- yrði, að aldrei fyrr hefur nokkuð eitt frv. fólgið í sér neitt svip- aða gjaldabyrði á íslendinga eins og ákveðin er með þessu frv. Eg fullyrði, að það var aðeins lítið brot þessa, % eða Vs öllu heldur, sem í einu frv. var ákveð- ið eftir síðustu áramót, í janúar, og þá samþ. á fáum dögum hér á Alþingi. Og ég fullyrði, að þá var ekki aðeins um miklu lægri fjárhæð að ræða, heldur var það frv. allt í uppbyggingu sinni og frágangi miklu einfaldara og Ijósara held- ur en það frv. er, sem hér cr til umræðu, því að það er sízt orðum aukið, sem sá þm., sem lengst hefur verið á Alþ. allra íslend- inga frá upphafi, hv. þm. Borg- firðinga, Pétur Ottesen, sagði áð- an, að hver sá, sem ætlar sér inn í þó ekki sé nema myrkviði einn- ar greinar, kemur þaðan seint út aftur. Og það var aðeins ein grein, sem hann talaði um. En þær greinar, sem óskiljanlegar eru mennskum mönnum, eru ekki ein, heldur margar í þessu frv., því að það er fullkomin stað- reynd, að eftir frv. er ómögulegt að átta sig á, hvaða hlunnindi bátaútvegurinn á að fá. FELULEIKUR Eg fullyrði að þetta sé gert af ásettu ráði til þess að dylja alla í senn, Alþ., almenning og út- gerðarmennina sjálfa þess, hvað þeim er ætlað. Eg skal ekki segja, hver tilgangur þess skollaleiks er, en feluleikurinn dylst eng- um. Eg hef aldrei verið hræddur við að ætla útveginum eða út- gerðarmönnum það, sem þeir þurfa til þess að atvinnurekstur þeirra sé rekinn stöðvunarlaust og þannig, að þeir, sem við hann starfa, hvar í fylking sem er, beri hæfilegt úr býtum og séu ekki verr settir heldur en aðrir sam- bærilegir menn í landinu. En ef menn eiga að greiða atkv. um tilteknar ráðstafanir tilteknum atvinnuvegi til frámdráttar, þá er það minnsta, að þeir, sem eiga að rétta upp höndina því til styrktar, fái fúllnægjandi grg. um hver framlögin eru, og á hvaða rökum þau framlög eða tillögurnar um þau séu reist. Það hefur algerlega verið vanrækt við framlagning þessa frv. að gera grein fyrir þessu, og hæstv. ríkisstjóm hefur ekki fengizt til þess enn að svara ýtarlegum og mjög málefnalegum spurningum þess efnis, sem hv, þm. Gullbr,- og ICjósarsýslu, Ólafur Thors, bar fram hér í gær. Það kann að vera rétt, sem hæstv. fjmrh. sagði áðan og var búinn að segja áður hér í þing- salnum í dag, að þetta frv. hefði hlotið rækilega meðferð hjá rík- isstjórn og stuðningsmönnum hennar. Vel má vera, að svo sé og að þeir viti hvað í frv. felst. Þó hefur komið í ljós og sann- ast á nefndarfundum í fjhn., að því er þeir segja, sem þar hafa verið, að mjög hefur stuðnings- mönnum hæstv. ríkisstjórnar vafizt þar tunga um tönn um það, hvað í einstökum ákvæð- um frv. felist. Ef það er svo ljóst, sem þessir herrar vilja nú vera láta, af hverju er þá ekki hinum einföldu og greinargóðu spurn- ingum, sem hv. þm. Gullbr- og Kjósas., Ólafur Thors, bar fram í gær skýlaust svarað? Af hverju eru svörin annað hvort alger þögn eða ósæmilegur útúrsnún- ingur, eins og hæstv. sjávarúcvrh. Lúðvík Jósefsson, lét sér sæma að viðhafa hér í gærkvöldi? EYSTEINN AMAST VIÐ VARÐARFUNDI Hæstv. fjmrh., Eysteinn Jóns- son, var að setja ofan í við mig fyrir það í umræðum í dag, að ég hefði gerzt svo djarfur að hverfa héðan af þingfundi til þess að tala um þetta mál í stærsta stjórn málafélagi landsins í gærkvöldi. Hæstv. ráðh., Eysteinn Jónsson, sagði, að það færi illa saman, að við Sjálfstæðismenn töluðum um það hér á Alþ. að þetta frv. væri að mörgu leyti óljós*,, en værum þó að skýra það fyrir öðrum. En þeim mun óljósara sem frv. er, þeim mun meira þurfa menn að leggja sig fram um skýringarnar. Og það er einnig í frásögur færandi og skýr- ingarvert, að hæstv. ríkisstjórn skuli leyfa sér að bera fram ann- að eins moldviðri í frv. og myrk- viði, óskiljanlegt, eins og gert er með því frv., sem hér er fram borið. Enda mun áður en yfir lýkur þykja vert að skreppa lengra heldur en hér út í Sjálf- stæðishús handan við Austurvöll, til þess að tala um þetta mál. Það mun verða umræðuefni, hæstvirtur fjmrh., um allt land áður en yfir lýkur. Engar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar né aðfinningar á Alþingi munu megna að hindra alþm. í fram- kvæmd skyldu sinnar, þeirrar, að láta almenning heyra um þann óskapnað, sem hér hefur fæðst að tilhlutun hinna tveggja hæstv. ráðherra úr Suður-Múla- sýslu, Eysteins Jónssonar og Lúðvíks Jósefssonar,, sem hingað til hafa ekki talað svo vel hvor um annan, að von væx-i til, að annað betra kæmi frá þeim, þeg- ar þeir lögðu saman, en slíkt skoffín, sem við hér sjáum. ÓVERÐUGT TRAUST Hæstv. fjmi'h., Eysteinn Jóns- son, talaði um það áðan, að það færi illa saman, að við segðum, að hér væru farnar troðnar slóð- ir, og þó vildum við ekki styðja þetta frv. Sannleikurinn er sá, að auðvitað hlýtur stuðningur við slíkt frv., jafnlítið skýrt eins og það er af hálfu hæstv. ríkis- stjórnar og jafnskamman tíma eins og við höfum til athugunar þess og þingheimur yfirleftt, þá hlýtur stuðningur við slíkt frv. að jafngilda traustsyfirlýsingu á hæstv. ríkisstjórn. Það væri óverjandi af nokkrum þm. að styðja frv., eftir þá þinglegu með- ferð, sem því er ætluð, nema hann með því vildi lýsa trausti á hv. ríkisstjórn. Og eg hygg, að það gangi ærið illa að fá hina svo kölluðu stuðningsmenn hæstv. ríkisstjórnar til þess að votta henni traust sitt, ef hugur þeii'ra væri skoðaður, og svo margir fyrirvarar eru gerðir nú við samþykkt þessa frv., til dæm- is af hálfu Alþýðusambandsins, að ekki er við því að búast, að við, sem yfirlýstir erum andstæð- ingar stjórnarinnar og höfum fram að þessu reynzt hafa rétt fyrir okkur í öllum okkar deilu- málum við hana og hún fullkom- lega rangt, — þess er ekki að vænta, að við förum að nota þetta tækifæri til þess að votta henni traust, gersamlega að óverðugu. Sannleikurinn er sá, að það er auðvitað rétt, að hér eru farnar troðnar slóðir að því leyti, að ekki örlar í þessu frv. á neinum nýjum hugmyndum til lausnar verðbólguvandans. Það má vera, sem hæstv. fjmrh., Eysteinn Jónsson, var að gefa í skyn, að eitthvað annað ætti að koma í öðrum frv., en það er ekki í þessu frv. Hins vegar er í þessu frv. farið miklu lengra á þeirri braut, þar sem vegurinn hefur verið vísaður, heldur en nokkru sinni áður hefur verið gert, og þar er íarið miklu lengra heldur en hæstv. ríkisstjórn hefur fært eða gert nokkra tilraun til að færa skynsamleg rök að, að gera þurfi eða að gagni muni koma. Þegar af þeiri'i ástæðu er ó- mögulegt að vera með þessu frv. enda er að svo miklu leyti, sem í því lelast nokkrar formbreyt- ingar, t. d. að bátagjaldeyrir er niður lagður, en á er lagt gjald, sem honum svarar í þessu frv., fyrir utan þær 240 milljónir, sem eru algerlega nýjar í frv., ekki gerð tilraun til þess að rökstyðja, að heppilegra sé að hverfa frá bátagj aldeyrisfyrii'komulaginu heldur en að halda því. Þegar mál er undiibúið á slíkan veg, þá er vitanlega ekki nokkur möguleiki fyrir þá, sem ekki bera gersamlega blint traust til hæstv. ríkisstjórnar, að styðja málið. AF HVERJU LÆKKA ÞEIR EKKI VERÐIÐ? Veilan í X'ökstuðningi hæstv. ríkisstjórnar fyrir flutningi frv., kemur berlega fram í því, þegar þeir segja t. d., og ég skal aðeins víkja að því eina atriði nú, — þeir segja: Það er að vísu rétt, að vöi'uverð á að hækka vegna þeirra gjalda, sem hér eru á lögð, en sú vöruverðshækkun mun nást aftur og ekki bitna á almenn- ingi, vegna þess að verðlagseftir- lit verður sett, sem lækkar vöru- verðið sem svarar hækkuninni. Ef þetta er rétt, hefði þá ekki vei'ið miklu einfaldari leið að byrja með því að koma verðlags- eftirlitinu og verðlagningunni á, og lækka vöruverðið nú þegar svo mikið, að ekki þyrfti að gera þær hækkanir, sem hér eru á- kveðnar? Af hverju á að hækka verðið fyrst og gefa þessum illu milli- liðum, hvort sem það er Sam- bandið eða kaupsýslustéttin, færi á því að hækka vöruverð og álagn ingu í sambandi við það, ef öllu þessu á að vera hægt að kippa aftur með verðlagningunni á eft- ir? Væri ekki miklu betra að ákveða vöruverðslækkunina um- svifalaust þegar í stað og kom- ast hjá þessari 240 millj. kr. álagningu í nýjum sköttum? Það sjá allir, að hér er um gersam- lega veilu í rökstuðningi ríkis- stjói'nai'innar að í'æða. Vitanlega er þessum mönnum ljóst, að þó að ef til vill verði á pappírnum einhverjar smá vöruverðslækk- anir vegna verðlagseftirlits, þá er það ekkert, sem neina úrslitaþýð- ERU KAUPFÉLÖGIN ÓSAMKEPPNISFÆR? Enda hafa stjórnarflokkarnir, og þá ekki sízt Framsókn- arfl., lýst yfir því, að bezta verð- lagseftirlitið væri samkeppni Samb ísl. samvinnufél. og kaup- félaganna við kaupsýslustéttina. Af hverju er nú ekki treyst á þetta verðlagseftirlit? Jú, Þjóðviljinn svaraði þessu fyrir fáum dögum, og sagði: Sam- bandið hefur orðið aftur úr í samkeppni við kaupmennina vegna þess, að forystumenn þess eru „hreinlega ölvaðir af fjár- festingaræði“, eins og Þjóðvilj- inn sagði. En er þetta skýringin? Er þetta rétt? Eg spyr hæstv. fjmrh., Ey- stein Jónsson, sem einn af stjórn- endum Sambandsins: Er það rétt, að vöruverð almennt hafi hækk- að vegna þess að í verzlunará- lagningunni hjá Sambandinu sé tekið fé til hinnar miklu fjár- festingar, sem Sambandið hefur lagt í? Er þess fjár ekki aflað með öðru móti, tekið af eðlilegum sjóðum og með stórkostlegum lán tökum? Hæstv. fjmrh. Eysteinn Jóns- son, ræður því, hvort hann svar- ar þessari spurningu eða ekki. Hún varðar ekki starf hans sem fjmrh., svo að ég hef ekki þing- lega kröfu til, að hann svari henni. En þáð er annað atriði, sem sker úr um haldleysi rökfærslu Þjóðviljans varðandi þetta at- í'iði, og það er, að kommúnistar, sem Þjóðviljinn er málgagn fyr- ir, reka kaupfélag hér í bænum, sem stendur í harðri samkeppni við kaupmenn. Kommúnistar ráða KRON, sern sannarlega hefur ekki varið fé sínu til æðisgenginnar fjárfest- ingar. En hver er niðurstaðan? Á sama tíma og kaupmannastétt- in blómgast og vex óeðlilega vegna óhæfilegs gróða, að því er sagt er, þá tapar KRON stór- kostlegu fé. Bendir þetta til þess, að um óhæfilegan gróða hjá kaup mannastéttinni sé að ræða? — Sannar þetta ekki miklu heldur, að þessar sögur um stórkostlegan gróða hjá verzlunarstéttinni í heild, eru að langmestu leyti byggðar á því, að margur hygg- ur auð í annars garði og verið er að reyna að koma vandræð- um þjóðfélagsins yfir á herðar lítils hóps manna, sem talið er tiltölulega auðvelt að gera tor- tiyggilegan? ALDINGARÐUR BRASKARANNA Ef það væri rétt, að kaup- mannastéttin í heild tæki of mik- ið í sinn hlut, þá væri áreiðan- lea búið að jafna þau met með þeirri forréttindaaðstöðu, sem kaupfélögin hafa hér á landi. Þau hafa alla aðstöðu fram yfir kaup- mannastéttina til þess að selja vörur með hagstæðu verði, og ef þau verða þar á eftir, þá er það vegna þess, að verzlunax'gróðinn er minni heldur en látið er. Það breytir svo ekki þessu, að auðvitað hafa einstakir menn hagnazt fyrr og síðar, bæði á verzlun, viðskiptum og ýmsum öði'um ráðstöfunum, — af ýms- um ástæðum, hyggindum, útsjón- arsemi, og sumir af brasknátt- úru og einhverju slíku, sem er miður æskilegt. En hafi þeir menn haft góðan jarðveg hér að undanförnu, þá mun þeirra garð- ur fyrst blómstra, þegar íimm- falt og tífalt gengi kemur á gjald- Frh. á bls. 10 STAK8TEII\IAR Síðborin fjárlög Eitt síðasta verk Alþingis fyrir jólin var að veita fjármálaráð- herra heimild til fjárgreiðslna úr úkissjóði fyrstu tvo mánuði árs- ins vegna þess að ákveöið hefur verið að fjárlög verði ekki sam- þykkt fyrr en í febrúarlok En eins og kunnugt er á Alþingi að hafa lokið samþykkt f járlaga fyr- ir 31. desember. í þessu sambandi er vert að minnast þess, að í fyrra helltu Framsóknarmenn sér yfir Sjilf- stæðisflokkinn með fúlustu skömmum fyrir það, að þeir hefðu hindrað afgreiðslu fjárlaga fyrir áramót. Taldi Tíminn það hina mestu ósvinnu, að afgreiðsiu fjárlaga skyldi frestað fram í janúarlok. Nú er fjárlagaafgreiðslu hins vegar frestað fram í febrúarlok. Þannig verður hentistefnu Framsóknarmanna alls staðar vart. Það sem þeir töldu óhæfu fyrir ári síðan telja þeir nú sjálf- sagt og eðlilegt. Annars verður það að teljast mjög óheppilegt að afgreiðsla fjárlaga skuli dragast tvo mán- uði fram á það ár, sem þau eiga að gilda fyrir. Fjárveitinganefnd hefur setið auðum höndum í allt haust með kommúnista í for- mannssæti. Framsókn finnst það gott og blessað. Hún um það. Nauðsynjarnar og skattabyrðarnar Kommúnistar og kratar Ieggja nú mikla áherzlu á að segja al- menningi að nauðsynjar hans sleppi við hina nýju skatta. Eiga þeir þá við að nokkrar matvörur, svo sem mjölvara, sykur og kaffi falli ekki undir hinar nýju skattaálögur. Sannleikurinn í þessu máli er sá, að undanfarin ár hefur þessu verið farið á sömu lund. Þessar vörur hafa ekki verið skattlagðar sérstaklega þegar afla hefur þurít tekna til stuðnings framleiðsl- unni. Hins vegar hafa komxr.ún- istar og kratar haldið því ákaft að almenningi að hær hafi verið skattlagðar eins og lúxusvarning- ur. — Nú verða þeir hins vegar að éta ofan í sig ósannindi sii' og segja fólkinu að þessar nauðsynj- ar þess sleppi við háskattana. En þaö er bara ekkert nýtt. Koma harðar niður En auðvitað lenda hinir nýju tollar og skattar með miklum þunga á fjölmörgum naúðsynj- um almennings þó örfáar tegunl- ir matvöru séu undanþegnar þeim. Og skattar vinstri stjórn- arinnar ná til miklu fleiri nauð- synja og koma miklu harðar nið- ur en skattar þeir, sem lagðir hafa verið á undanfarin ár. Fyrr- verandi ríkisstjórn krafði þjóð- ina aðeins um 137 millj. kr. aukna skatta í byrjun þessa árs. Nú kemur vinstri stjórnin og leggur á 240 millj. kr. nýja skatta. — Útvarpsumræður um tillögur Sjálfstæðis- manna Tillaga Sjálfstæðismanna á Al- þingi um þingrof og nýjar kosn- ingar vekur hina mestu athygli um land allt. Fólkið finnur að ríkisstjórnin hefur svikið allt og hefur í raun og veru lýst yfir gjaldþroti stefnu sinnar. Krafan um að fólkið fái að kveða upp dóm sinn að nýju urn menn og málefni er þess vegna sjálfsögð og eðlileg. Væntanlega munu útvarpsum- ræður fara fram um tillögu Sjáif- stæðismanna strax og þing kem- ur saman í lok janúar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.