Morgunblaðið - 04.01.1957, Síða 2
2
MOPCTINIiT A VTfí
Ti’ncfllí^o tfnr A ían. 1Q57
Skólanemendum hraðfjölgar í bœnum
Nefnd skipuð fil oð gera fillögur um
skólabyggingar og sfaðsefningu þeirra
4BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær flutti borgarstjóri svohijóð-
andi tillögu:
„I framhaldi af ályktun á bæjarstjórnarfundi 4. október s.l.
ályktar bæjarstjórnin að kjósa nefnd manna til þess að gera til-
lögur um skóiahverfi í Reykjavík fyrir barnafræðslu og gagn-
fræðastig, staðsetningu skóla og starf þeirra. Bæjastjórnin kýs 4
nefndarmenn en auk þeirra eiga sæti í nefndinni fræðslustjóri,
námsstjóri gagnfræðastigs og forstöðumaður skipulagsdeildar. Skal
nefndin hraða störfum eins og unnt er.“
r' ' '
Það hefur sett jólasvip á Selfoss, að stórt og fallegt jólatré var
sett upp að þessu sinni á túninu fyrir austan kaupfélagshúsið.
Var það Kaupfélagið sem gerði það. Á undanförnum árum hafði
Kaupfélagið fest tvö lítil jólatré upp á flaggstengur sínar, en ákvað
nú að fá eitt stórt jólatré í staðinn, hið fyrsta sinnar stærðar sem
sézt hefur á Selfossi. Kveikt var á trénu viku fyrir jól og logar á
því á hverju kvöldi fram að þrettánda. — Ljósm. G Sverrisson.
Borgarstjóri gerði grein fyrir
tillögunni og minnti á að þann 4.
október s.l. hefði bæjarstjórn, að
tillögu sinni samþykkt að skora
i ríkisstjórn og fjárfestingaryfir-
völd að veita á næstu 5 árum leyfi
til bygginga skólahúsnæðis fyrir
barnafræðslu og gagnfræðastig í
Reýkjavík og miðist leyfin við
það að hægt sé að byggja árlega
25 almennar kennslustofur auk
annars húsrýmis. Einnig skoraði
bæjarstjórnin á Alþingi að veita
nægilegt fé til þess að ríkissjóð-
ur greiði sinn hluta af stofnkostn-
aði skóla jafnóðum og byggingu
miðar áfram og ennfremur að
ríkisstjórnin hlutist til um að nú
þegar verði veitt fjárfestingar-
leyfi fyrir barnaskóla, sem sótt
hafði verið um í maí s.l.
ATHUGUN
FRA JSLUSTJÓRA
Eftir að bæjarstjórn hafði sam-
þykkt þessa tillögu sneri borgar-
stjóri sér til fræðslustjórans í
Reykjavík og óskaði eftir að hnnn
gerði tillögur um framkværndir í
byggingu skólahúsa á næstu ár-
um. Skilaði fræðslustjóri áliti og
gerði í lok þess þá tillögu, að
skipuð yrði nefnd til þess að hafa
umsjón með skólabyggingum og
til þess að gera nýjar tillögur um
skólabygginar. Er tillaga
borgarstjóra komin fram í sam-
bandi við þetta álit fræðslustjór-
ans. Fræðslustjóri lét gera ýmsar
athuganir á fjölda nemenda und-
anfarin ár og hvers megi vænta
um það hvað nemendur verði
margir við skyldunám í Reykja-
vík á næstu árum. f þeim athug-
unum kom fram
að árið 1962 mætti búast við
að nemendur á barnafræðslu
stigi verði ekki fæ.ri heldur
en 13,80% af íbúafjölda bæjar-
ins, og að nemendur á gagn-
fræðastigi verði það ár 5,55%
af í búatölu bæjarins. Sýna
- SVARIÐ
Framhaia af bls. 1.
gæti fallizt á slíka ráðstefnu,
hvenær sem líkur væru til að já-
kvæður árangur náist. En eins og
nú er ástatt eru mestar líkur til
að árangur náist innan sam-
taka S. f>. og munu Bandaríkin
því leggja fram nýjar tillögur um
afvopnunarmálin þar.
Eins og menn minnast, virtist
Bulganin í nóvember-bréfi sínu
fús til cð fallast á eftirlit úr lofti
en aðeins á takmörkuðu svæði í
Vestur-Evrópu og rússnesku lepp
ríkjunum. Þessu svarar Eisen-
hower á þessa leið:
— Ég fagna þeim vilja sem þér
virðist hafa á eftirliti úr lofti, sem
jákvæðum þætti í afvopnunar-
málunum. En því miður virðist
bréf yðar ekki sýna vilja til að
leita samkomulags er byggði á
grundvallaratriði tillagna minna
um eftirlit úr lofti, en það var að
hindra óvænta árás með sliku
eftirliti á því landsvæði þar sem
meginhernaðarmáttur stórveld-
anna er.
INDLAND — FIMMTA
STÓRVELDIÐ
Afrit af svörum Vesturveld-
anna hafa verið send Nehru í
Indlandi, en í tillögum Bulganins
var gert ráð fyrir að Indland yrði
fin.mta stórveldið á fyrirhugaðr'
ráðstefnu.
skýrslur að nemendafjöldi hef
ur farið hraðvaxandi hin síð-
ÞJÓNN MOSKVUVALDSINS
f sambandi við brottrekstur-
inn birtist nú í ítalska viku-
blaðinu Epoca samtal við Re-
ale, þar sem hann segir að
Togliattí, formaður ítalska
kommúnistaflokksins, viti
ekki -engur „hvernig eigi að
hugsa sjálfstætt“. Segir Reale
að Togliatti haldi áfram að
þjóna Moskvu-valdinu í
blindni eins og hann hefur
gert í 30 ár, en með slíkri fram
komu svíki hann hinar vinn-
andi stéttir.
FYLGISHRUN
Reale segir, að vegna fram-
komu flokksforastunna eftir
atburðina í Ungverjalandi hafi
ítalski kommúnistaflokkurinn
tapað trausti ítalsks almenn-
ings. Telur hann að á árinu
1957 muni ekki nema 700 þús-
und endurnýja flokksskírteini
sín, en það þýðir nær helm-
ingsfækkun.
RÖDD HANS KÆFÐ
Hinn brottræki flokksmaður
var foringi flokksdeildar komm-
únista í Napoli. Ástæðan fyrir
Þrengist senn
n Bárðni bás
TVÆR yfirlýsingar voru
gefnar í gær sitt hvorum
megin Atlantshafs um
væntanlegar bameignir,
sem milljónir manna um
víða veröld munu bíða
með eftirvæntingu. Sendi
Reuter Morgunblaðinu
skeyti á þessa leið:
New. York, 3. jan. — Leik-
konan Marilyn Monroe og eig-
inmaður hennar leikritahöfund-
urinn Arthur Miller fóru í dag
flugleiðis frá New York í hálfs-
mánaðar frí á Jamaica-eyju. Þau
voru spurð, hvort þau ættu barn
í vændum og svömðu: — Við
höfum ákveðið að gefa ekkert
svar við þeirri spumingu.
— Reuter.
★
Rómaborg, 3. jan. — ítalska
filmstjarnan Gina Lollobrigida
tilkynnti í kvöld, að hún ætti
von á barni í júlí n.k. Hún sagði
við blaðamenn, sem hún kallaði
á sérstakan fund í skrauthýsi
sínu fyrir sunnan Rómaborg: „Ég
verð að staðfesta það sem allir
virðast vita. Það þýðir ékkert
fyrir mig að vera alltaf að svara
„nei“. — Ég á von á barni.“
— Reuter.
ustu ár í hlutfalli við íbúa-
fjölda bæjarins og sem dæmi
má nefna að nemendur á
barnafræðslustigi, 7—12 ára,
voru árið 1950 9,64% af íbúa-
fjölda bæjarins en árið 1955
voru nemendurnir orðnir 12.1
% af íbúafjölda bæjarins.
NEFNDARSKIPUN
Tillaga borgarstjóra um nefnd-
arskipun var samþykkt og voru
þessir menn kosnir í nefndina:
Guðmundur H. Guðmundsson,
bæjarfulltrúi, Kristján Gunnars-
son, yfirkennari, Hallgrímur
Kristjánsson, skólastjóri og Stein
þór Guðmundsson, kennari.
brottrekstri hans var að hann
hafði aðra skoðun á Ungverja-
landsmálunum en Togliatti. Vildi
hann að ítalski kommúnista-
flokkurinn fordæmdi hinar
„TÍMINN“ hefur undanfarna
daga verið með gamla tuggu út
af útsvarsálagningu á Sameinaða
verktaka. Þetta er gamalt mál,
sem margsinnis er búið að gera
grein fyrir. Á s.l. vori kom Þórð-
ur Björnsson fram með tillögu í
bæjarstjórn út af þessu máli og
var þá leitað álits Niðurjöfnun-
arnefndar Reykjavíkur, sem var
lagt fram í bæjarstjórn, og hefur
verið hljótt um þetta mál þangað
til nú að „Tíminn" vekur það
upp að nýju. Er því ástæða til
að birta aftur greinargerð Niður-
j öfnunarnef ndar, sem ekki hefur
á nokkurn hátt verið hrakin og
er hún svohljóðandi:
„Árið 1952 lagði nefndin út-
svar á Sameinaða verktaka,
sem hóf starfsemi sína seint
á árinu 1951, en ríkisskatta-
nefndin felldi útsvarið niður.
Nefndin lagði því ekki útsvar
á samtök þessi árin 1953—1955,
enda töldu félagsmennírnir
fram ágóðahluta sinn í sam-
tökunum með öðrum tckjum
sínum, og var hann útsvars-
lagður þar. Á árinu 1955 var
útsvar félagsmanna um 111
þúsund kr. hærri en verið
hefði, ef arðurinn hefði ekki
verið talinn með tekjum
þeirra, heldur útsvarslagöur
hjá samtökunum. Útsvar á
Sameinaða verktaka gæti hins
vegar í mesta lagi orðið kr.
31 þús., þar sem hámark tekna,
sem leggja má á, er 200 þús.
kr., en velta samtakanna ekki
álagsbær hér, þar sem starf-
semin fer öll fram utanbæj-
ar. Hefir útsvarsálagningin,
eins og hún hefir verið fram-
kvæmd unadnfarin ár, verið
hagkvæmari fyrir bæjarsjóð-
inn en að leggja á samtökin
og sleppa arðinum úr tekjum
félagsmannanna. Fari hins
vegar svo, að samtökin verði
með dómi Hæstaréttar talin
skattskyld, mun nefndin að
grimmdarlegu aðgerðir Rússa
gegn minnimáttarþjóð, en rödd
hans var kæfð á flokksþinginu,
sem nýlega var haldið í Róm. —
Fékk hann, þessi hrópandi í eyði-
mörkinni, ekki einu sinni að taka
til máls. Þeirri meðferð mótmælti
Reale í ítölskum blöðum og kvað
Togliatti-klíkuna háfa stjórnað
flokksþinginu með algjöru ger-
ræði. Fyrir þær yfirlýsingar var
hann rekinn.
sjálfsögðu haga útsvarsálagn-
ingu sinni samkv. því“.
Er ljóst af þessu að Reykja-
víkurbær hefur sízt af öllu vilj-
að vægja Sameinuðum verktök-
um við útsvarsskyldu en hins
vegar er aðstaða bæjarins, til
útsvarsálagningar á fyrirtæki
mjög takmörkuð samkvæmt lög-
um og allt önnur heldur en að-
staða rílcisins til skattálagningar.
Annars sýnir greinargerð Niður-
j öfnunarnefndar ljóslega hvernig
í málinu liggur og þarf því ekki
fleiri orðum að eyða að moldviðri
Tímans í þessu sambandi. Þess
má geta að eftir uppkvaðningu
dóms Hæstaréttar hefur Niður-
jöfnunarnefnd lagt útsvar á Sam-
einaða verktaka, sem hefur verið
kært til Ríkisskattanefndar og er
nú beðið eftir úrskurði hennar.
St jórn Lögmanna-
félagsins endur-
kjörin í 10. sinn
AÐALFUNDUR Lögmannafélags
fslands var haldinn í Tjarnar-
kaffi um miðjan desernber s.l.
Stjórn félagsins var endurKjör-
in í 10. sinn, en hana skipa þeir
Lárus Jóhannesson hrl. formað-
ur, og meðstjórnendur Egill Sig-
urgeirsson hrl. og Ágúst Fjald-
sted hrl.
Varaformaður var kjörinn Ein-
ar B. Guðmundsson hrl., en vara-
stjórnendur þeir Gunnar Möller
hrl. og Björgvin Sigurðsson hdl.
í gjaldskrárnefnd voru kosnir
þeir Sveinbjörn Jónsson hrl.,
Vilhjálmur Jónsson hrl. og Jó-
hann Steinason hdl., en til vara
Gúsaf A. Sveinsson hrl., Gutt-
ormur Erlendsson hrl. og Gunnar
Jónsson hdl.
Stúdentar
taldir af
Chamonix, 3. jan.:
PARÍSARSTÚDENTARNIR
tveir, sem hafa verið uppi á
tindi Mont Blanc í 12 daga
eru nú taldir af og verður
björgunartilraunum hætt. For-
eldrar stúdentanna, sem komn
ir eru til Chamonix í frönsku
ölpunum neituðu í dag að
æskja heimildar fyrir sviss-
neskan flugmann til að hann
mætti reyna við björgun stúd-
entanna. Sögðu þau að svo
margir hefðu nú lagt lif sitt
í hættu við björgunaraðgerðir,
að nú þegar að talið væri úti
um piltana, gætu þau ekki
samþykkt að fleiri hættu lífi
sínu. Lík stúdentanna verða
flutt niður af fjallinu næsta
vor.
I dag tókst að bjarga úr
þyrilvængju af fjallrisanum
átta mönnum úr björgunar-
leiðöngrum, sem hætt vorn
kornnir. Tveir þeirra voru
flugmenn af annarri þyril-
vængju, sem fórst við björg-
unartilraunir. Hinir sex voru
fjallgöngumenn. Einn þessara
manna var illa farinn af kal-
sárum. — Reuter.
Áhöfn
Goðaness
ÞESSIR menn voru á togaranum
Goðanesi, er hann fórst við Fær-
eyjar í fyrrakvöld:
Pétur Hafsteinn Sigurðsson skip-
stjóri, Neskaupstað.
Halldór Halldórsson 1. stýrimað-
ur, Eskifirði.
Guðmundur Vestmann, Nes-
kaupstað.
Guðmundur Helgason yfirvél-
stjóri, Neskaupstað.
Ingvar B. Bjarnason, Neskaup-
stað.
Guðmundur Sigurðsson, Nes-
kaupstað.
Axel Óskarsson loftskeytamaður
(var einnig á Agli rauða er
hann fórst) Neskaupstað.
Jón B. Jónsson, Neskaupstað.
Magnús Skarphéðinsson, Nes-
kaupstað.
Gils Sveinþórsson, Neskaupstað.
Högni Jónsson, Neskaupstað.
Ólavur Debes, Færeyjum.
Andreas Hilduberg, Færeyjum.
Kaj Johannessen, Færeyjum.
Johannes H. Pedersen, Færeyjum
Ole J. Beck, Færeyjum.
Anton E. Pedersen, Færeyjum.
Ej vind_ Gudmundson, Færeyjum.
Emil Ásgeirsson, Neskaupstað.
Sigurríkur Ormsson, Bíldudal.
Kristján Vilmundarson, Nes-
kaupstað.
Sigurjón Jónsson, Neskaupstað.
Finnbogi Finnbogason, Seyðisf,
Jónas Hólm, Eskifirði.
Togliatti heldur áfram
að þjóna Moskva í blindni
En annar foringi ítalska kommúnista-
flokksins brottrækur
Rómaborg, 3. jan. Skv. frásögn Reuters.
ÍjiINUM af foringjum ítalska kommúnistaflokksins dr. Eugenio
J Reale hefur verið vikið úr flokknum, vegna þess að hann hefur
Iátið opinberlega í ijós skoðanir, sem eru ekki í samræmi við stefnu
flokksins.
Reykjavíkurbœr hefur
lagt útsvar á Sameinaða
verktaka, eftir því sem
lög stóðu til