Morgunblaðið - 22.02.1957, Side 16
Yeðrið
A-stinningskaldi, slydda eða
rigning öðru hvoru
Hvers vegna kýs ég.
Sjá bls. 9
44. tbl. — Föstudagur 22. febrúar 1957.
Iðjufélagar!
KOSNINGASKRIFSTOFA B-listans, lista lýðræðlssinna, í
kosningunum nú um helgina verður í Verzlunarmanna-
húsinu, Vonarstræti 4, III. hæð. Skrifstofan verður opin í
dag frá kl. 2—7 e. h. og eru þeir Iðjuféiagar, sem vinna vilja
að sigri lýðræðissinna beðnir að koma þangað á þeim tíma.
Á laugardag og sunnudag verður skrifstofan opin, meðan
kosning stendur yfir, þ. e. frá ki. 1—9 e. h. á laugardag og
frá kl. 9 f. h. til 5 e. h. á sunnudag. Er þess vænzt, að sem
flestir Iðjufélagar hafi samband við skrifstofuna og veiti þá
aðstoð, er þeir mega.
Stórkostleg verðhækknn n olíum
og benzíni er í nðsigi
f FYRRADAG var nokkrum bíl-
hlössum af sandi ekið út í Tjarn-
arhólmann. Árlega þarf að hækka
hann og er það þá jafnan gert á
veturnar þegar ísinn á Tjörninni
er nógu þykkur til þess að þola
bíl með hlassi. Með því að hækka
hólmann verður þar vistlegra
þegar krían kemur í vor og tekur
að hreiðra þar um sig.
(Ljóm. Mbl.)
Mikið brunatjón
AKUREYRI, 21. febr. — KI. 8,30
í gærmorgun var slökkviliðið
kallað að vinnuskúr við klæða-
verksmiðju Gefjunar. Var skúr-
inn alelda er brunaverðir komu
á vettvang. Það tók þá nokkuð
á aðra klukkustund að ráða nið-
urlögum eldsins og var þá skúr-
inn ónýtur. Allt sem í honum
var eyðilagðist, en það voru raf-
mótorar, ýmiss konar verðmæt
verkfæri og áhöld, sem Gefjun
átti. Er tjónið talið nema tug-
þúsundum króna. — Job.
Tíðindalaust í sjó-
mannadeilunni
ENN stendur allt við hið sama
í sjómannadeilunni. Samninga-
fundir hafa engir verið haldnir
frá því samningar strönduðu að
kvöldi mánudagsins. Ekki er
heldur kunnugt um að boðaður
hafi verið sáttafundur.
Búið að uthluta lóðnm
í Hólognlnndshverii
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
. gær voru lögð fram svör lóða
nefndar við fyrirspurn Alfreðs
Gíslasonar á bæjarstjórnarfundi
17. jan. sl. og kom þetta m. a.
fram í bréfi lóðanefndar:
„Síðan úthlutun var hafin í Há-
logalandshverfi á sl. ári hefur
verið úthlutað þar lóðum undir
4 einbýlishús, eina raðhúsasam-
stæðu, 46 tvílyft hús, þar með
taldar 20 lóðir við Gnoðarvog, 8
blokkir (4ra hæða), 3- blokkir
(10—12 hæða) og eina verzlun-
arhúsasamstæðu. Auk þessa er
bæjarsjóður nú að byggja á þessu
svæði 4 blokkir með samtals 96
íbúðum.
Má rcikna með að búið sé að
úthluta á svæðinu lóðum, þar sem
byggja má 7—800 íbúðir.
Eftir er að úthluta lóðum fyrir
4 einbýlishús, 48 tvílyft hús, 9
raðhúsasamstæður, 1 blokk (4ra
hæða) og 2 blokkir (10—12 h.).
Verða væntanlega byggðar 3—400
íbúðir á þessum lóðum.
f þessari tölu eru meðtaldar
lóðir, sem úthlutað verður til
erfðafestuhafa samkvæmt venju,
í sambandi við töku landa
þeirra“.
Borgarstjóri minnti í þessu
sambandi á að verið væri að
undirbúa byggingasvæði í
Kringlumýri, þar sem mundi
verða lóðir undir 3000 íbúðir, en
það væri mjög fjárfrek fram-
kvæmd. Hvað hann greinargerð
verða lagða fram frá bæjarverk-
fræðingi á bæjarstjórnarfundi
um þær lóðir, sem til yrðu í
vor og um nýja byggingarsvæðið
í Kringlumýri.
Rá&herrar kommúnista hafa dregið
nýja verðlagningu á langinn vegna
kosninganna i verkalýðsféjögunum
ÞAÐ er vitað að í aðsigi er stórkostleg verðhækkun á olíu
og benzíni. Mun hið nýja verðlag sennilega ganga í
gildi nú eftir helgina.
Undanfarið hafa verðlagsmál
olíu og benzíns legið fyrir ríkis-
stjórninni, en ekki fengizt af-
greidd vegna þess að kommún-
Rokkmóðir
uiiglingar
AUSTURBÆJARBIÓ hefur
hafið sýningar á „Rock and
roll“-kvikmynd, en hvarvetna
sem þær hafa verið sýndar
hefur einhver hluti áhorfenda
tryllzt, og tekið að láta illum
látum, hlaupa upp á leiksvið
og dansa, eða brugðið á dans
í göngum og anddyrum kvik-
myndahúsanna eða á götum
úti. Hafa sums staðar orðíS
skemmdir á húsunum í þessu
tryllingsæði unga fólksins.
Þó að íslendingar þyki
kaldlyndir og ekki tilfinninga-
menn á Suðurlandavísu, þá
kom þó einnig hér til tals-
verðra óláta í Austurbæjar-
bíói. Unglingar ærsluðust,
dönsuðu hvar sem því var við
komið, æptu og skræktu eins
og villimenn. Það ætlaði að
ganga erfiðlega að rýma hús-
ið, því þó kvikmyndinni væri
lokið, þá dansaði þessi tryllti
hópur unglinga eftir stnum
eigin hrópum og gelti.
Aðgöngumiðar að öllum
sýningum eru rifnir út. Sumir
patota 20—30 miða, og munu
það þá vera heilu bekkirnir
í skólum sem fara saman.
,,DularfuH“ skothríð upplýst
Ingi R. skákmeislnri Rvíkur
STÓRMEISTARINN Herman
Filnik, sem keppir sem gestur
Taflfélagsins á Reykjavíkur-
mótinu, sem helgað er Eggert
Gilfer 65 ára, varð hæstur að
vinningum á mótinu. Hlaut
hann 914 vinning, tapaði engri
skák en gerði 3 jafntefli.
Næstur Pilnik kom Ingi R.
Jóhannsson, sem hlaut 8 vinn-
inga og jafnframt titilinn
Skákmeistari Reykjavíkur. Er
þetta í annað sinn, sem Ingi
hlýtur þann titil.
Næstir Inga komu fimm menn
jafnir að vinningum, þeir Bjarni
Magnússon, Guðm. _ Ágústsson,
Sveinn Kristinsson, Áki Péturs-
son og Guðm. Aronsson.
í síðustu umferð mótsins urðu
þessi úrslit m.a.: Pilnik vann
Lárus Johnsen, Ingi og Sveinn
gerðu jafntefli, Áki vann Gilfer,
Guðm. Ág. og Guðm Aronsson
gerðu jafntefli.
í gærkvöldi hófst Hraðskákmót
Reykjavíkur, og átti þá að fara
fram undanrás, en úrslitin fara
fram á sunnudaginn.
Farið á snjóbíl yiir
Fjarðarheiði
SEYÐISFIRÐI, 21. febrúar. —
Hinn nýendurbyggði snjóbíll Þor-
bjöms Arnoddssonar brauzt í dag
yfir Fjarðarheiði. Mun það vera
einasta bifreiðin, sem nú er í
notkun á Austurlandi, því að allir
vegir á Héraði eru ófærir nema
fyrir svona snjóbíl.
Ferðin gekk seint en slysa-
laust. Geysimikill snjór er á heið-
inni. — B,
UNDANFARNA tvo daga hafa
nokkur blaðaskrif verið um skot-
hríð mikla vestur á Nesvegi að-
faranótt s. I. þriðjudags. Rann-
sóknarlögreglan skýrði blaðinu
svo frá í gær, að mál þetta væri
þegar „upplýst“.
Kvað hún ekkert samband hafa
verið haft við lögregluna varð-
andi skothríðina umrædda nótt
og enginn lögreglumaður komið
þar á vettvang.
Samkvæmt blaðafrásögnum
hafa íbúar Nesvegar 53A, sem er
bakhús, flúið að heiman, en það
eru hjón með eitt bam.
Svo hagar til þarna vestur frá,
að næstu hús sunnan Nesvegar
53A eru Sörlaskjói 70 og 72. Fyrir
nokkrum dögum kom maður frá
borgarlækni í þau hús og spurð-
ist fyrir um það, hvort skjóta
mætti dúfur á húsunum. Var það
auðsótt mál og sagðist hann koma
seinna að næturlagi og vinna það
verk. Ekki var þó hægt að segja
nákvæmlega um, hvenær það yrði
gert, þar sem sérstakt veður þarf
til þess. Dúfurnar eru ekki skotn-
ar að degi til fyrir allra augum,
og þá ekki síst tekið tillit til
barna.
Þessa umræddu nótt voru skotn
ar 18 dúfur á húsunum nr. 70 og
72 við Sörlaskjól. Skyttan stóð
við Nesveg 53A er hún skaut
3 þeirra, en hafðist annars við
á lóðinni við Nesveg 55.
Dúfur voru skotnar á fleiri stöð
um þessa nótt, þar sem kvartað
hafði verið undan þeim.
f sambandi við blóðbletti á hlið
hússins við Nesveg, kvaðst lög-
reglan hafa fundið þar tvo blóð-
uga fjaðrastúfa, en annað ekki.
Úfvarpið líka!
ÚTVARPIÐ, sem tekið hefur kr,
5 fyrir orðið í auglýsingum sín-
um, ákvað að hækka orðið um
eina krónu. Mun útvarpið hafa
talið sér fært að fara að dæmi
annarra ríkisfyrirtækja, sem
gengið hafa á undan á verðhækk-
unarbrautinni.
Verðlagseftirlitið er nú komið
í málið og hefur það til athug-
unar.
istar hafa fyrir hvern mun viljað
draga það á langinn vegna kosn-
inganna í verkalýðsfélögunum,
sem staðið hafa yíir. Viðskipta-
málaráðherra kommúnista hafði
þegar fyrir áramót gefið olíu-
innflytjendum fyrirheit um nýja
verðlagningu á olíu og benzíni,
en síðan hefur hann legið á mól-
inu.
„Þjóðviljinn" hefur undan-
farið verið að búa almenning
undir, að þessi verðhækkun
væri í aðsigi og viðhaft þau
ummæli, að ekki mundi reyn-
ast unnt að standa til lengdar
á móti verðhækkun.
Það er skiljanlegt að kommún-
istar hafi lagt sérstaka áherzlu
á að draga þetta mál vegna kosn-
inganna innan verkalýðsfélag-
anna. í kosningaáróðrinum hafa
kommúnistar stöðugt haldið því
fram að engar verðhækkanir séu
í aðsigi. Stórfelld hækkun á olíu
og benzíni, sem er meðal brýn-
ustu nauðsynjavara, mundi því
hafa komið kommúnistum illa, ef
sú ráðstöfun hefði verið gerð
heyrinkunn fyrir kosningarnar
í félögunum. Hafa kommúnistar
sérstaklega í huga kosningarnar
í „Iðju“, sem þeir telja mjög ör-
lagaríkar.
Sú verðhækkun á olíu og
benzíni, sem nú er í uppsigi-
ingu, mun hafa miklar afleið-
ingar, enda verður þar um
stórkostlega hækkun að ræða.
Nýlt leikfélag í Kópa-
vogi sýnir „Spansk;
fluguna'
í BYRJUN janúar sl. var stofnað
leikfélag í Kópavogi, Leikfélag
Kópavogs, af rúmlega 40 áhuga-
mönnum og konum.
Leikstjóra var ráðin frú Ingi-
björg Steinsdóttir og í samráði
við hana var „Spanskflugan“ eft-
ir Arnold og Bach valin sem
fyrsta verkefni félagsins.
„Spanskflugan" verður frum-
sýnd í barnaskólanum í Kópa-
vogi nk. laugardagskvöld kl. 8,30
e.h. og síðan verða tvær sýningar
á sunnudag, kl. 3 og kl. 8,30.
Því nær allir leikendur I
„Spanskflugunni“ koma hér 1
fyrsta sinni fram á leiksviði.
„Spanskflugan“ mun ekki hafa
verið leikin í Reykjavík síðan
1926, en þetta er meðal hinna
allra vinsælustu leikrita þessara
frægu gamanleikjahöfunda.
Fulltrúar Sjálfstœðis-
félaganna í Reykjavík
ÞEIR umdæmafulltrúar, sem
enn hafa ekki haft samband
við skrifstofu fulltrúaráösins
í Valhöll, Suðurgötu 39 eru
áminntir um að hafa tal af
skrifstofunni nú þegar í dag,
— sími 7103 og 81192.