Morgunblaðið - 28.03.1957, Side 10

Morgunblaðið - 28.03.1957, Side 10
10 MORCVNBLAÐIÐ flmmtud. 27. marz 1957 S.Í.F. aðili að olþjóða- samtökum Fariugla AÐALFUNDUH Farfugladeildar Keykjavíkur var haldinn 4. mnarz sl. Starfsemi félagsins var með miklum blóma eins og undanfarin ár. Á þingi Alþjóðasambands Far- fugla, sem haldið var í Skotlandi í ágúst sl. var Bandalag íslenzkra Farfugla gert að aðalmeðlim sam- takanna, en undanfarin ár hefur það verið aukameðlimur. Farnar voru tvær hópferðir til Skotlands á vegum félagsins og ferðazt þar á hjólum. Þátttakend- ur í ferðum þessum tóku þátt í alþjóðamóti Farfugla, sem haldið var í Edinborg dagana 10.—12. ágúst sl. Næsta alþjóðamót og þimg Farfugla verður haldið í Hollandi í ágúst nk. Undanfarin ár hefur þeim stöðugt fjölgað, sem ferðazt hafa erlendis og notið gistingar í far- fuglaheimilum. Árið 1955 gistu íslenzkir Farfuglar í 9 löndum, samtals 1928 nætur, en árið áður voru gistinætur erlendis 435. — Undanfarin sumur hafa Farfugl- ar haft skólastofu í Austurbæj- arbarnaskólanum til gistingar fyr ir erlenda Farfugla. Einnig hafa Farfuglar haft aðgang að gistingu að Reynihlíð við Mývatn og í Hreðavatnsskála. Síðastliðið sum- ar gistu erlendir Farfuglar hér á landi í samtals 637 nætur, en árið áður í 420 nætur. Fyrirkomulag gistinga fyrir erlenda Farfugla verður með svipuðu sniði og ver- ið hefur undanfarin ár. Reynt verður að fjölga gististöðum úti á landi eins og auðið er. Farnar voru helgar- og sum- arleyfisferðir hér innanlands á vegum félagsins. Þátttaka í öll- um þessum ferðum var mjög góð. Um hvítasunnuna var að venju farin skógræktarferð í Sleppugil í Þórsmörk, en það hafa Farfugl- ar fengið til umráða og hefur verið unnið þar mikið að skóg- rækt. Þetta var í sjötta skipti, sem farin var skógræktarferð í Þórsmörk og eru þessar ferðir orðnar fastur liður í starfi fé- lagsins. Unnið var jöfnum hönd- um að gróðursetningu, grisjun og við að hefta uppblástur. Haldið hefur verið uppi miklu félagsstarfi á vetrum. Skemmti- fundir voru haldnir og sáu fé- lagsmenn um skemmtiatriðin. — Einnig voru haldin reglulega tómstundakvöld og voru þau til húsa í Golfskálanum. Eitt mesta velferðarmál félags- ins er að koma upp gisti- og fé- lagsheimili hér í Reykjavík. Á síðastliðnu ári var félaginu út- hlutað lóð við Rauðalæk fyrir væntanlegt félagsheimili, en það hefur ekki enn verið hægt að hefjast handa um byggingu, vegna þess að fjárfestingarleyfi 'hefur ekki fengizt. í undirbúningi er að hefja út- gáfu á félagsblaði er flytji inn- lendar og erlendar fréttir af fé- lagsstarfseminni ásamt ferðasög- um og fleiru. í fundarlok var lesin upp ferða- áætlun sumarsins, og er hún fjöl- breytt að vanda. í stjórn félagsins voru kosin: Ari Jóhannsson formaður, Ragn- ar Guðmundsson varaformaður, Helga Kristinsdóttir gjaldkeri, Helga Þórarinsdóttir spjaldskrár- ritari, Þorsteinn Magnússon rit- ari, Þórður Jónsson og Svavar Björnsson meðstjórnendur. Vara- menn: Ólafur Björn Guðmunds- son og Haukur Helgason. Urvals hænu-ungar 8 vikna gamlir, verða til sölu í apríl og maí. 35 kr. stykk- ið. Upplýsingar í síma um Brúarland, eða síma 1325 í Reykjavík kl. 9—10 f.h. Matthías Einarsson, Teig, Mosfellssveit. 5 herbergga ný uppgerð íbúS í Grafarholti við Vesturlandsveg er til leigu. Hitaveita. — Upplýsingar í síma 82515. Tilboð óskast í Cessna flugvélina TF-DVD í því ástandi sem hún nú er og er hún til sýnis hjá Flugskólanum Þyt á Reykjavík- urflugvelli daglega milli 11—12 f.h. og 4—5 e.h. Tilboðum sé skilað á skrifstofu vora fyrir kl. 3 e.h. fostudaginn 5. apríl og verða tilboðin þá opnuð. Áskiljum oss rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Trygging h.£, Vesturgötu 10 — Reykjavík Þáttaskil í íslenzkri ntenninga — lostian MENNTAMÁLARÁÐ ÍSLANDS er hæsti réttur íslenzkrar menn- ingar. Ráðið metur til launa menningarafrek íslenzkra manna og skipar þeim í flokka að verð- leikum. Ríkislaunin ein eru þó miklu léttvægari á þeim meta- skálum heldur en virðing sú og kynning, sem mat þetta veitir. Formaður ráðsins er því æðsti prestur þjóðar vorrar í öllum menningarmálum. Þess er því að vonum beðið með mikilli óþreyju, að slíkur maður hefðji upp raust sína. Nýr formaður er kominn fram á sviðið — og hann hefir talað. í útvarpsþættinum Brúðkaups- ferðin var hr. Helgi Sæmtmdsson, formaður Menntamálaráðs ís- lands, einn af getmönnum. Ung brúður var kjörin af Ríkisútvarp- inu sem verðlaunahafi. Hún skyldi óska sér einnar óskar á þessum tímamótum. Ósk henn- ar var sú að vera (eða verða?) kynbomba. Nú mun það vefjast fyrir mörgum sveitamanni, hvað þetta orð þýði. Vér, sem séð höf- um amerískar kvikmyndir vitum þó betur. Kynbomba er kona, sem með látæði sínu höfðar til kynhvata karla. Göngulagið minn ir á ær um fengitíma eða hryssur með hestalæti. Munur er sá einn, að hjá tvifætlingum gætir þessa jafnt í bak og fyrir. Formaður Menntamálaráðs byrj aði getraunina. Ekki varð honum hugsað til hinna klassisku lista, sem forverar hans hafa verið að bjástra við. Ósk Salómons um viturt hjarta var og víðs fjarri hugskoti hans, enda bein Saló- riions löngu fúnuð. Augu for- mannsins beindust fyrst að lík- ama konunnar og klæðum, sér- staklega þeim innstu. Með góð- mótlegri handleiðslu stjómand- ans færðist hann nær réttu marki. Formaðurinn var ekki einn um hituna, en líkt og kóngur á veiðiför skýtur að lokum bundna hjörtinn, hitti hann að lokum í mark. Annað hefði ver- ið mesta ósvinna. Innan skamms kemur hér sjón- varp. Mættum vér þá ekki eiga von á framhaldsmenntun á þessu kjörsviði formannsins? Það væri ekki ónýtt íslenzkri menningu að kynnast þannig lostkvendum til orðs og æðis undir öruggri hand- leiðslu formanns Menntamála- ráðs íslands. Jón A. Gissuararson. Syngjandi páskar Mynd þessi var tekin á æfing* hjá Félagi ísl. einsöngvara, sem ætlar að efna til fjölbreyttrar kabarettsýningar 7. apríl nk, undir nafninu „Syngjandi pásk- ar“. Verður kabarett þessi með svipuðu sniði og í fyrra, en þá hélt félagið 6 sýningar við ágæta aðsókn og góðar undirtektir. Á myndinni sjást, talið frá vinstri: Bjarni Bjarnason, (formaður fé- lagsins), Guðmundur Guðjóns- son, Gunnar Kristinsson, Þuríð- ur Pálsdóttir, Svava Þorbjarn- ardóttir, Ketill Jensson, Guð- munda Elíasdóttir, Kristinn Halls son og fjórir úr hljómsveit Bjöms R. Einarssonar. Ýmsir fleirl skemmtikraftar taka þátt í sýn- ingunni auk þessara, er hér sjást, (Ljósm. Þorv. Ágústsson). ÞJÓÐVERJAR EFLA ENN SJÁVARÚTVEG SINN Þingið j Bonn hefur í viðbót við það, sem fyrir var, veitt sem svarar 160 millj. króna til sjávar- útvegsins, ýmist sem 3% lán eða beinan styrk. Hér er illa búið með fé að þeim sjóði, sem aðallega veitir stofnlán til sjávarútvegsins, Fisk veiðasjóði íslands, og líður þessi undirstöðuatvinnuvegur þjóðar- innar veruleg fyrir það, og ýmsa aðra skammsýni, eins og það að bannaður skuli vera innfiutning- ur á fiskiskipum. Aðalfundur Félags ísl. myndlistermanna AÐALFUNDUR Félags íslenzkra myndlistarmanna var haldinn i Baðstofu iðnaðarmanna, þriðju- daginn 19. marz s.l. Stjóm félags- ins var endurkjörin, en í henni eiga sæti: Svavar Guðnason, formaður; Valtýr Pétursson gjaldkeri; og Hjörleifur Sigurðsson, ritari. í sýningarnefnd félagsins voru þessir kjömir: Málarar: Þorvaldur Skúlason; Sigurður Sigurðsson; Jóhannes Jóhannesson; Svavar Guðnason; Sverrir Haraldsson. Myndhöggvarar: Ásmundur Sveinsson; Sigurjón Ólafsson; Magnús Árnason. Fulltrúar á aðalfundi Banda- lags íslenzkra listamanna voru kosnir: Ásmundur Sveinsson; Kjartan Guðjónsson; Jóhannes Jóhannes- son; Karl Kvaran; Hörður Ágústa son. Fundurinn samþykkti eftirfar- andi ályktun: „Aðalfundur Félags íslenzkra myndlistarmarma beinir þeirri áskorun til Aiþingis, nú er í hönd fer endurskipulagning á úthlutun listamannalauna, að hlutur yngri listamanna verði ekki fyrir borð borinn meir en orðið er“. Auglýsing Samkvæmt kröfu borgarstjórans í Reykjavik f.h. bæjarsjóðs og að undangengnum úrskurði verða lögtök látin fara fram fyrir ógreiddum: fasteignag j öldum lóðaleigugjöldum brunabótaiðgjöldum, sem féllu í gjalddaga 2. janúar sl., að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar. Borgarfógetinn í Reykjavík, 27. marz 1957. KR. KRISTJÁNSSON. Hotel Kongen af Danmark — Köbenhavn Frá T. jan. til 1. maí: Herbergi með morgunkaffi frá d. kr. 12.00. HOLMENS KANAL 15 — C. 174. í miðborginni — rétt við höfnina. Stangaveiðifélag AKRANESS ASalfundur Stangaveiðifélags Akraness verður haldinn sunnudaginn 31. marz kl. 1 e.h. að Hótel Akranes. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. — Mætið stundvíslega. STJÓRNIN. — Hæstaréttardómur Framh. af bls. 6 mann sinn vinna það. Eru því eigi heldur efni til að fella niður skaðabótaskyldu gagnáfrýjanda samkvæmt 26. gr. laga nr. 20/1954, að því leyti sem tjónið var vátryggt. Ber samkvæmt þessu að dæma gagnáfrýjanda til að greiða aðaláfrýjanda krónur 11.128.50 með vöxtum, eins og krafizt er, og málskostnað í hér- aði og fyrir Hæstarétti, samtals kr. 3500. Dómsorð mitt er því, segir Gizur áð lokum: Gagnáfrýjandi, Magnús Árna- son, greiði aðaláfrýjanda, Almenn um tryggingum hf., kr. 11.128.50 ásamt 6% ársvöxtum frá 20. októ- ber 1954 til greiðsludags og kr. 3500.00, málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.