Morgunblaðið - 28.03.1957, Page 11
• Fimmtud. 27. marz 1957
MORCUNBLAÐIÐ
II
Lœknisráð vikunnar :
ASTHMA
Andþrengsli og mseða geta orsak-
azt af mörgu. Allir verða móðir
af að hlaupá upp háa brekku eða
tröppu. Því eldri sem menn eru,
því frekar verða þeir móðir.
Menn verða móðir, þegar vöðv-
arnir þurfa meira súrefni, vegna
aukins álags. Súrefnið vinnum
við úr loftinu og þess vegna verð-
um við að anda hraðara og dýpra
til þess að loftbreytingarnar í
lungunum verði meiri. Og þar
sem rauðu blóðkornin þurfa að
flytja súrefnið frá lungunum út
í vöðvana, verða þau einnig að
hafa hraðann á, og þar af leið-
ahdi slær hjartað hraðara.
Það, sem við köllum and-
þrengsli orsakast oftar af því að
hjartastarfsemin er léleg, heldur
en af því að eitthvað sé að lung-
unum.
Nú ætla ég að segja svolítið frá
atshma eða nánar tiltekið bronc-
ial-asthma.
Asthma kemur í köstum, sem
einkennast af öndunarerfiðleik-
um, hryglum, erfiðum hósta með
slímuppgangi.
Asthmaköstin koma oft á nótt-
unni. Asthma getur þjáð bæði
unga sem gamla.
Margar tegundir asthma má
flokka undir það sem kallað er
ofnæmissjúkdómar. Sumir asth-
masjúklingar fá köstin vegna
þess að þeir hafa ofnæmi fyrir
einhverjum ákveðnum hlutum,
hundum, hestum, fjöðrum, ryki
o.fl. Margir sjúklingar með asth-
ma þjást af kroniskum bólgum í
lungnapípunum. Asthmaköst
þeirra orsakast sennilega líka af
einhverjum ytri aðstæðum og
geta einnig átt rót sína að rekja
til tauganna.
Við asthmaköstin skeður það,
að einhvers konar krampi hleyp-
ur í smáu vöðvana, sem umlykja
hinar örfínu lungnapípur. Þetta
gerir öndunina erfiða, sérstaklega
útöndun.
Um leið verður slímhúðin í
lungnapípunum bólgin, en það
gerir öndunina einnig erfiðari og
loks framleiða kirtlarnir í slím-
húðinni seigt slím, sem enn þyng-
ir öndunina.
Sjúklingurinn á erfitt með að
anda og fær andateppu. Oft verð-
ur honum svo erfitt um andar-
drátt að hann getur ekki legið
í rúmi sínu ,en verður að sitja
uppi til þess að fá betri stuðning
fyrir öndunarvöðvana.
Ondunin er eins og menn vita,
1 því fólgin að vöðvar þenja út
brjóstkassann og við það sogast
loft inn í lungun, en útöndunin
fer fram við það að slaknar á
þessum vöðvum og brjóstkassinn
fellur saman.
Einnig er hægt að minnka
stærð brjóstkassans með öndun-
arvöðvunum og með því auka út-
öndunina.
Þegar um erfið asthmaköst er
að ræða, neyðist sjúklingurinn til
að nota alla öndunarvöðva sína.
Ef hægt er að komast að því
hver er orsök asthmakastanna, t.
d. finna hvað það er sem sjúkl-
ingurinn hefur ofnæmi fyrir þá
er mikið unnið, en eins og áður er
sagt, orsakast asthma ekki alltaf
af ofnæmi fyrir einhverju efni.
Sumum asthmasjúklingum er
hægt að hjálpa með því að bólu-
setja þá við ofnæminu. Aðra er
aftur hægt að lækna með öndun-
aræfingum og sérstakri leikfimi.
Sumir eru læknaðir með meðul-
um, með því að láta þá anda að
sér ýmsum efnum, svo sem adr-
enalinupplausnum og stundum, ef
köstin eru slæm, með sprautum.
En þetta eru allt atriði sem asth-
ma-sjúklingurinn og læknir hans
verða að koma sér saman um.
Hollenzkur náms-
slyrkur
HOLLENZKA ríkisstjórnin hef-
ur ákveðið að veita íslenzkum
kandidat eða stúdent styrk til
háskólanáms í Hollandi frá 1
okt. 1957 til júlíloka 1958. Styrk-
urinn nemur 2250 gyllinum (um
9.700 ísl. kr.) Gert er ráð fyrir,
að sú fjárhæð nægi til greiðslu
fæðis og húsnæðis nefndan tíma
Námsmanninum er frjálst að
velja sér það námsefni, er hann
æskir, en geta ber þess í umsókn-
inni, hvers konar nám hann
hyggzt stunda. Talið er heppi-
legt að kandidat verði veittur
styrkurinn eða þá stúdent, sem
numið hefur a.m.k. eitt ár við
háskóla.
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrk þenna, sæki um
hann til menntamálaráðuneytis
ins fyrir 25. apríl n. k. og láti
fylgja umsókninni staðfest afrit
af prófskírteini og meðmælum,
ef til eru.
(Frá Menntamálaráðuneytinu)
Skaflarnir
þjappaðir
HÚSAVÍK, 23. marz. — í gær
brá hér til suðaustan áttar með
þíðviðri. Þótt ekki hafi tekið upp
mikinn snjó hafa skaflar sigið
mikið. Þrátt fyrir það er ennþá
mikil ófærð. Bílar hafa brotizt
með mjólk úr Reykjadal og aðal-
dal, en ekki hefur vegurinn þó
verið hreinsaður, heldur hefur
verið hægt að aka yfir skaflana
eftir að ýta hefur þjappað þá og
lagað þar sem verst var.
Snjóbílar flytja ennþá mjólk
úr Kaldakinn, Mývatnssveit og
Fram-Reykjadal. Ekki verður
reynt að hreinsa veginn hér
frameftir því ef það yrði gert
myndu myndast mjög háar trað-
ir sem yrðu til óhagræðis ef aft-
ur snjóar. — Fréttaritari.
BRETAR ÆTLA AÐ STYRKJA
SÍLDVEIÐARNAR HJÁ SÉR
Á næstunni verður borið fram
í brezka þinginu frumvarp um
styrk við brezka síldarútgerð.
Síðastliðin tvö ár hefur síld-
arútgerð Breta minnkað um 30%
og menn snúið sér að öðrum veið-
um.
wttafiréWr
Ferðir strœtisvagnanna
STRÆTISVAGNAR Reykjavík-
ur hafa gefið út lítinn og hent-
ugan bækling með upplýsingum
um leiðir og brottfarartíma stræt
isvagnanna. Á fremstu síðu er
kort af Lækjartorgi og umhverfi
með staðsetningu vagnanna þar.
Þá eru upplýsingar um það,
hvaða götur sé ekið á hverri
hinna 1-8 leiða, sem farnar eru
nú, hver fargjöldin séu, og hvern
ig háttað er akstri á helgidögum
og eftir miðnætti. 1 bæklingn-
um er skrá yfir allar götur bæj-
arins, ásamt upplýsingum um
nærtækustu strætisvagnaleiðir.
Ætli einhver t.d. að fara á
Bræðraborgarstíg, þá sér hann i
skránni að til greina koma 4
leiðir, þ. e. nr. 1, 2, 16 og 17.
Og framar í bæklingnum má svo
sjá nákvæmlega hvar hver vagn
ekur um Bræðraborgarstíg. Aft-
ast í bæklingnum er innlímd
tafla yfir brottfaratíma hvers
vagns frá Lækjartorgi.
Vandað hefur verið til alls
frágangs á bæklingnum. Kápuna
teiknaði Ásgeir Júl., en Stein-
dórsprent annaðist prentun og
annan frágang. Bæklingurinn
kostar 2 kr. og verður seldur
í skrifstofu S.V.R., Traðarkots-
sundi 6, hjá eftirlitsmönnum fyr-
irtækisins á Lækjartorgi og sölu-
turninum þar. Ef einhverjir óska
eftir því að fá bæklinginn til
sölu á öðrum stöðum, ber þeim
að snúa sér til skrifstofu Stræt-
isvagna Reykjavíkur.
Ungverskur íþróttamaður píndur
FYRIRLIÐI ungverska sund-
knattleiksliðsins sem keppti á
Olympíuleikunum í Melbourne
Dözse Gyarmati, er kominn
fyrir nokkru sem flóttamaður
til Vínarborgar. Eins og ýms-
um mun í fersku minni, kom
til allmikilla óiáta er Ung-
verjaland og Rússland mætt-
ust í leik í sundknattleiks-
keppninni. Þá fékk Gyarmati
fyrirliði Ungverjanna slika
útreið hjá rússnesku leikmönn
unum að blóð lagaði úr honum
Mynd af honum er hann kom
upp úr lauginni fór víða, birt-
ist m. a. í Mbl. í leiknum sigr-
uðu Ungverjar. í útvarpsvið-
tali eftir leikinn, sagði Gyar-
mati, að Rússarnir hefðu, að
sinu viti, sýnt fúlmennsku og
ekki hagað sér sent íþrótta-
menn.
Er ungversku Olympíukepp
endumir dreifðust um öll lönd
að leiknum loknum fór Gyar-
mati heim til Búdapest, fjöl-
skyldu sinnar vegna. Mjög
skömmu eftir að hann kom
heim varð hann fyrir árás.
Hann var á gangi á einni af
brúnum yfir Dóná er bíll stað-
næmdist við hlið hans og út
hlupu þrír Rússar. Þeir höfðu
svipur meðferðis og í svipu-
ólarnar voru festar járnkúlur,
svo undan höggunum sviði.
Gyarmati hlaut mörg högg
og lá meðvitundarlaus á
brúnni er Rússarnir hurfu út
í náttmyrkrið. Hann komst á
löngum tíma heim til sín við
illan leik.
Nú er hann flúinn. Hann
flúði fyrir löngu nokkuð, en
Zatopek keppii
ekki
PRAG, 25. marz: — Zatopek hinn
heimskunni langhlaupari Tékka,
mun ekki í ár taka þátt í stór-
mótum, hvorki heima í Tékkó-
slóvakíu né annars staðar. Til-
kynning um þetta hefur borizt
frá tékkneska frjálsíþróttasam-
bandinu.
ekki var uppskátt gert um
komu hanS til Vínar, fyrr en
konu hans hafði tekizt að
flýja. Nú ætlar fjölskyldan til
Bandaríkjanna.
En þegar Gyarmati flúði
skömmu eftir árásina mátti
sjá örin eftir svipuhöggin á
baki hans. Mynd þessi var tek-
in er hann kom til Vínar, en
ekki verið birt fyrr vegna
konu hans og barna, sem flúðu
fyrir nokkrum dögum. Þessi ör
hiaut Gyarmati þótt hann
væri í þykkri yfirhöfn, er
hann var barinn. Það hefur
því fylgt hugur athöfnum hjá
Rússunum sem réðust á hann.
Það má greina förin eftir kúl
urnar í svipuólinni.
106 keppendur
Á HÚSAVÍK var fyrir skömmu
haldið skíðanámskeið og kenndi
þar Vilhjálmur Pálsson íþrótta
kennari. Námskeiðið stóð í 2
vikur, var fjölsótt og tókst vel.
Að því loknu var efnt til skíða-
móts og voru keppendur þar 106
talsins, og má það teljast mikið
í kauptúni sem Húsavík. Á þessu
móti urðu sigurvegarar í ýmsum
flokkum þessir:
Svig: 11—13 ára drengir:
Jón Bjarnason.
Svig: 11—13 ára stúlkur:
Dóra Kristjánsdóttir.
Brun: 11—13 ára drengir:
Jón Bjarnason.
Brun: 11—13 ára stúlkur:
Dóra Kristjánsdóttir.
Brun: 7—10 ára drengir
Valgeir Guðmundsson.
Brun: 7—10 ára stúlkur
Guðný Kristjánsdóttir.
Ganga: 11—13 ára drengir:
Jón Bjarnason.
Ganga: 11—13 ára stúlkur
Olga Jónsdóttir.
Ganga: 7—10 ára drengir:
Björn J. Arnviðsson.
Ganga: 7—10 ára stúlkur:
Vigdís Guðmundsdóttir.
Sigurvegarar í samanlögðu:
11—13 ára dr. Jón Bjarnason.
11—13 ára st. Olga Jónsd.
7—10 ára dr. Björn J. Arnv.
7—10 ára st. Hjörd. Stefánsd.
Hlutu bikara.
íþróltanámskeið
Axels Andréssonar
SELJATUNGU, 18. marz: — Sl.
laugardag lauk hér í sveit íþrótta
námskeiði er haldið var á veg-
um barnaskólans. Kennari var
hinn góðkunni íþróttafrömuður
Axel Andrésson. Hefur hann
dvalizt hér Vz mánuð og stjórn-
að þessu námskeiði af miklum
skörungsskap. Var þátttaka í
námskeiðinu ágæt, því auk skóla
barnanna voru þátttakendur all-
mörg önnur börn, sem ekki eru
komin á skólaskyldualdur (10
ára). Ennfremur börn, sem
brautskráðust úr barnaskólanum
í fyrravor. Lauk svo námskeið-
inu með sýningu í þeim greinum,
er þátttakendur höfðu æft. Var
fjöldi af íbúum sveitarinnar þar
mættur og þótti hin bezta
skemmtun að horfa á æskuna
leika margbreytilegar listir sínar
í handbolta og fótbolta auk fleiri
æfinga er þeim hafði verið kend
undirstöðuatriði að.
Kristján Þorgeirsión bóndi • í
Skógsnesi ávarpaði íþróttakenn-
arann fyrir hönd fræðslunefnd-
ar hreppsins og þakkaði honum
fyrir störf hans þennan stutta
tíma, er hann hefði dvalizt í
sveitinni og kvaðst fullviss að
ósk bæði eldri og yngri væri sú,
að þeir mætti oftar njóta hans
tilsagnar í þeim íþróttagreinum
sem hann í fjölda ár hefði lagt
stund á með æskunni.
—o..
Landsgangan á skíðum fer nú
hér fram. Er það ungmennafélag-
ið sem fyrir henni stendur og er
göngubrautin á milli bæjanna
Vorsabæjar og Syðri-Valla. Hafa
milli 20 og 30 manns þegar lokið
göngunni og er áhugi manna á
þátttöku allmikill.
Enska
knattspy rnan
STAÐAN í ensku deildarkeppn-
inni er nú þannig:
Fyrsta deild:
Manch. U 33 22 6 5 86:47 50
Preston 35 19 9 7 78:51 47
Tottenham 34 18 9 7 86:49 45
Blackpool 33 18 7 8 78:55 43
Arsenal 36 18 7 11 75:62 43
Wolverh. 35 17 8 10 83:60 42
Leeds 35 13 13 9 63:49 39
Bolton 34 14 9 11 55:55 37
Burnley 33 13 10 10 47:38 36
W. Bromw. 32 12 10 10 48:44 34
Newcastle 36 13 8 15 60:72 34
Birmingh. 32 13 6 13 55:51 32
Aston Villa 31 9 13 9 45:41 31
Chelsea 35 9 12 14 55:66 30
Luton 34 12 6 16 52:64 30
Everton 35 12 6 17 50:67 30
Sheffield W 33 12 4 17 65:74 28
Manch. C 35 10 7 18 66:77 27
Sunderland 34 9 6 19 56:74 24
Portsmouth 33 6 12 15 53:79 24
Cardiff 34 9 6 19 49:78 24
Charlton 36 8 2 26 54:106 18
Önnur deild:
Leicester 36 22 9 5 94:56 53
Nottingham 34 18 10 6 77:41 46
Blackburn 36 18 9 9 76:68 45
Stoke 36 18 7 11 76:52 43
Liverpool 34 16 9 9 67:45 41
Bristol R 36 16 8 12 72:55 40
Sheffield U 35 16 8 11 74:66 40
West Ham 34 17 6 11 49:47 40
Middlesb. 36 15 8 13 69:54 38
Swansea 35 16 5 14 80:80 37
Huddersf. 36 16 5 15 59:60 37
Doncaster 36 13 10 13 70:65 36
Leyton 35 13 9 13 55:67 35
Fulham 35 15 2 19 73:73 32
Rotherham 35 11 9 15 62:65 31
Grimsby 36 13 5 18 48:53 31
Bristol City 34 12 7 15 57:69 31
Barnsley 35 12 7 16 54:73 31
Lincoln 35 13 3 19 42:66 29
Bury 37 6 8 23 57:92 20
Notts Co. 34 6 8 20 43:77 20
Port Vale 33 7 4 22 48:78 18