Morgunblaðið - 28.03.1957, Síða 13
Fimmtud. 27. marz 1957
MORCVNBLAÐIÐ
13
Frú Steinunn Stephensen
Minningarorð
Hinn 21. þ.m. lézt frú Steinunn
Stephensen að heimili dóttur
sinnar Ingibjargar, Breiðabliki,
Seltjarnanesi. Gekk hún að því
er virtist hress fcil hvílu kvöldið
áður, en varð bráðkvödd árla
næsta morgun. Þannig er gott að
kveðja lífið.
Frú Steinunn verður jarðsett i
dag að Lágafelli í Mosfellssveit
við hlið eiginmannsins, sem þar
var jarðaður fyrir 23 árum.
Steinunn Eiríksdóttir Stephen-
sen var fædd að Karlsskála við
Reyðarfjörð 1. febr. árið 1870,
dóttir hjónanna Sigríðar Páls-
dóttur og Eiríks Björnssonar,
sem lengi bjuggu þar og gerðu
garðinn frægan. Bernskuárin
dvaldi Steinunn á heimili for-
eldra sinna. Var þar fjölmenni
jafnan og athafnalíf á sjó og
landi og stjórnsemi öll á heimil-
inu með ágætum. 13 ára fór hún
til Reykjavíkur og dvaldi á heim
iíi systur sinnar Helgu, er var
gift Jóni Ólafssyni ritstjóra. Var
hér I barnaskóla og fór 14 ára
gömul í ICvennaskóla Thoru
Melsted. Arið 1890, 29. ágúst,
giftist hún séra Ólafi Stephen-
sen, voru þau gefin saman í Við-
eyjarkirkju, en séra Ólafur var
fæddur og uppalinn í Viðey.
Séra Ólafur var þá prestur að
Mosfelli í Mosfellssókn og dvöldu
þau þar nokkur ár, unz þau
fluttust að Lágafelli. Bjuggu um
skeið á Skildinganesi, og á Grund
í Grundarfirði, en fluttust þaðan
að Bjarnanesi í Nesjum, þar sem
séra Ólafur var prestur og pró-
fastur í Austur-Skaftafellssýslu-
prófastsdæmi. Séra Ólafur lézt í
Reykjavík 10. marz 1934. Þrjú
síðustu árin, sem hann lifði
dvöldu þau hjónin á heimili
Magnúsar sonar þeirra, sem þá
var bóndi á Auðnum á Vatns-
leysuströnd.
Eftir lát eiginmannsins átti frú
Steinunn ávallt heima hjá Ingi-
björgu dóttur sinni og manni
hennar Birni Jónssyni vélstjóra.
Frú Steinunn og séra Ólafur
eignuðust 11 böm: Magnús nú
skrifstofum. hjá Timburverzl.
Völundi, kvæntur Sigurbjörgu
Björnsdóttur, Sigríður, dáin
1925, þá rúml. þrítug, ógift; Ás-
laug, gift Jóni Pálssyni dýra-
lækni á Selfossi; Eiríkur forstj.
Trolle & Rothe, kvæntur Gyðu
Thordarson; Björn, járnsmiður,
Reykjavík, kvæntur Sigurborgu
Sigjónsdóttur, Stephan kaupm.,
verzl. Verðandi, Reykjavík, kv.
Ingibjörgu Guðmundsdóttur;
Helga, dáin tveggja ára; Helga,
gift Stefáni Árnasyni forstj., Ak-
NÝJU ÞÝZKU
LÖNDUNARTÆKIN
eru talin losa 45 lestir af fiski
á klukkustund með 3—4 mönn-
um. Norðmenn hafa þegar látið
teikna slík tæki fyrir sig. Hvað
gera íslendingar í þessum efn-
um? Hér hefur iðulega komið
fyrir, að togarar bíði dögum sam
an eftir löndun einungis vegna
fólkseklu.
ureyri; Elin, gift Pétri Jónssyni,
bónda, Egilsstöðum, Fljótsdals-
héraði, Ingibjörg, gift Birni Jóns-
syni, vélstjóra og Ragnh. ekkja
Þorsteins Guðmundssonar, raf-
virkjam. Öll eru börn þeirra
hjóna nýtir og góðir borgarar.
Það er ekki lítið vandaverk að
ala upp stóran barnahóp, svo að
vel fari, en frú Steinunn var
fyllilega þeim vanda vaxin, enda
var hún þrekkona, sem mjög var
fjarri skapi að mikla fyrir sér
örðugleikana. Hún var skýrleiks
kona og hafði sérstaklega góða
skapgerð, glöð og viðmótshlý,
svo öllum leið vel í návist henn-
ar, enda vinsæl og dáð af þeim,
er kynntust henni.
Árið 1942 gengust nokkrir af-
komendur Sigríðar og Eiríks á
Karlsskála fyrir því að niðjar
þeirra, sem nú eru orðnir mjög
fjölmennir, kæmu saman ásamt
skylduliði, til að efla gömul og
ný kynni. Þetta var nefnt Karls-
skálamót. Mót þessi hafa síðan
verið haldin nálega á hverju ári.
Hafa þau áreiðanlega verið fiest-
um eða öllum þátttakendum til
ánægju. Þarna hafa skapazt
skemmtileg kynni á milli eldri og
yngri kynslóða. Frú Steinunn var
á öllum þessum mótum og naut
hún þess áreiðanlega flestum
fremur að hafa um stund nálægt
sér þennan stóra hóp af börnum,
barnabörnum, ættingjum og
tengdafólki.
Fyrir rúmlega tveimur árum
var Karlsskálamót haldið á af-
mælisdegi frú Steinunnar henni
til heiðurs, en þá varð hún 85
ára. Var hún þá ein eftir á lífi
af sínum systkinum, en þau voru
8. Mót þetta var það fjölmenn-
asta Karlsskálamót, sem haldið
hefur verið. Kom þá eins og oftar
glögglega í ljós, hve mikils ást-
ríkis og virðingar hún naut með-
al ættingja, tengdafólks og vina.
Síðasta Karlskálamót var hald
ið fáum dögum áður en frú Stein-
unn dó. Var hún þar heiðursgest-
ur ásamt tveim mágkonum sín-
um. Hún var sæmilega hress, kát
og hlý að vanda. Lét hún þá í ljós
þá ósk, sem hún hafði oft borið
fram áður, að Karlskálamótin
yrðu ekki látin niður falla, þótt
hún og fleiri hyrfu úr hópnum.
Vafalítið verður minning hennar
bezt heiðruð á þann veg, að verða
við þessari ósk hennar. En víst er
að margur saknar góðs vinar,
þegar „Steinunn okkar allra“ er
ekki lengur til að prýða þennan
hóp.
Friðrik Steinsson.
Drengjabækurnar, sem allir rösk-
ir drengrir keppast um að lesa!
Annuð bindið er komið.
Mænusóttarbólusetning
í Reykjavík
Þau börn og unglingar, sem bólusett voru í 1.
sinn dagana 21.—27. febrúar, mæti til 2. bólu-
setningar í Heilsuverndarstöðinni föstudaginn
29. marz.
Opið kl. 9—12 og 1—6.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
PLAST
skópokar
efni
pífur
dúkar
dúllur
Gardín ubú ðin
Laugaveg 18
Skógrækt
ríkisins
Verð á trjáplöntum. vorið 1957
Skögarplöntur:
Birki 3/0 pr. 1000 stk. kr. 500,00
Birki 2/2 — — — — 1.000,00
Skógarfura 3/0 — — — — 500,00
Skógarfura 2/2 — — — — 800,00
Rauðgreni 2/2 — — — — 1.500,00
Blágreni 2/2 — — — — 1.500,00
Hvítgreni 2/2 — — — — 2.000,00
Sitkagreni 2/2 — — — — 2.000,00
Bergfura 3/0 — — — — 600,00
Garbplönfur:
Birki 50—75 cm . . ..
Birki undir 50 cm ..
Birki limgerði .......
Reynir 60 cm. og yfir
Reynir 40-—60 cm
Silfurreynir ........
Sitkagreni 2/3 .......
Sitkagreni 2/2 ......
Blágreni 2/3 .....
Hvítgreni 3/2 .......
Rauðgreni 2/3 .......
pr. stk. kr.
15.00
10.00
3.00
15.00
10.00
15.00
25.00
15.00
20.00
20.00
15.00
Runnar:
Þingvíðir ..................... pr. stk. kr. 5.00
Gulvíðir ....................... — — 4.00
Ribs ........................... — — — io.OO
Sólber ......................... — — — 10.00
Ýmsir runnar.............pr. stk. kr. 10.00—15.00
Skriflegar pantanir sendist fyrir 25. apr. 1957, Skógrækt
ríkisins, Grettisgötu 8, eða skógarvörðunum, Daníel
Kristjánssyni, Hreðavatni, Borgarfirði; Sigurði Jónas-
syni, Laugabrekku, Skagafirði; Ármanni Dalmannssyni,
Akureyri; ísleifi Sumarliðasyni, Vöglum, Fnjóskadal;
Sigurði Blöndal, Hallormsstað og Garðari Jónssyni, Tuma
stöðum. — Skógræktarfélögin taka einnig á móti pönt-
unum á trjáplöntum og sjá flest um dreifingu þeirra til
einstaklinga á félagssvæðum sínum.
VÖKDUK - HVÖT - HEIMDALLUR - ÓBIIVN
SPILAKVÖLD
halda Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík föstud. 29. marz n.k. kl. 8,30 e.h. í Sjálfstæðishúsínu
Skemmtiatriði: 3. Spilaverðlaun afhent
1. Félagsvist 4. Dregið í happdrættinu
2. Ávarp: Friðl. I. Friðleifsson, bifreiðastj. 5. Kvikmyndasýning.
Sætamiðar afhentir í dag í Sjálfstæðishúsinu kl. 5—6 síðdegis. Skemmtinefndin.