Morgunblaðið - 03.04.1957, Blaðsíða 1
44. árgangur
78. tbl. — Miðvikudagur 3. apríl 1957.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
• •
Oryggissveitirnar
fara frá Súez
New York, 2. apríl. Frá Reuter.
ORYGGISSVEITIR S.Þ. munu einhvern nsestu daga verða fluttar
frá Súez-skurðinum, samkvæmt áreiðanlegum heimildum frá
aðalstöðvum S.Þ. í New York. Burns hershöfðingi hei'ur lagt til,
að bækistöðvar sveitanna verði fluttar til Raffah, sem er syðst á
Gaza-skikanum.
Sagt er, að Burns hafi viljað
þennan flutning til ao auðvelda
aðdrátt birgða og vopna handa
öryggissveitunum.
ALLSHERJARÞINGH)
KVATT SAMAN
Búizt er við, að Allshcrjarþing-
ið verði kvatt saman til auka-
fundar til oð ræða kostnaðinn við
hreinsun Súez-skurðarins. Er það
mikið hitamál, þar eð margar
þjóðir, þeirra á meðal Rússar,
halda því fram, að „árásarríkin“
Bretar, Frakkar og Israelsmenn,
eigi að greiða allan kostnað við
hreinsunina.
NOKKRIR MENN
SKILDIR EFTIR
Þegar bækistöðvar öryggis-
sveitanna hafa verið fluttar,
verða aðeins örfáir menn úr
þeim í Port Said og á nokkr-
um stöðum öðrum við Súez-
skurðinn til að hafa milli-
göngu milli Egypta og her-
stjórnar S.Þ.
Fréttir í stuttu máli
ýr Bandariski Rauði krossinn hefur sent 15.000 dollara til hjálpar
Grikkjunum, sem urðu harðast úti í jarðskjálftunum í Þessalíu fyrir
skömmu. Meira en 5.000 hús eyðilögðust.
★ Frú Golda Meir utanríkisráðherra fsraels, sagði þinginu
í dag, að ísraelsmenn mundu krefjast þess, að skip þeirra
fengju að fara frjáls ferða sinna um Súez-skurðinn. Kvaðst
hún hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum yfir því, að Banda-
ríkjamenn hefðu ekki beitt áhrifum sínum til að koma í veg
fyrir, að ástandið við Súez-skurðinn og á Gaza-skikanum
versnaði.
■Á Hussein konungur í Jórdaníu sendi í dag sérstakan sendiboða
flugleiðis til Saudi-Arabíu með áríðandi boð til Sauds konungs
þar. Áður en sendimaðurinn fór frá Amman, sagði hann, að Sulei-
man Nabulsi forsætisráðherra hefði ekki beðizt lausnar fyrir ráðu-
neyti sitt, og er því stjórnarkreppan að líkindum hjá liðin.
■yk- Franski dómsmálaráðherrann kom í dag fyrir sérstaka dóm-
nefnd þingsins til að gefa henni skýrslu um hið grimmilega fram-
ferði frönsku lögreglunnar í Alsír, sem mjög hefur verið rætt um
upp á síðkastið. Robert Lacoste, ráðherra með aðsetri í Alsír, verð-
ur einnig kallaður fyrir nefndina.
★ Fjögurra daga stjórnarkreppu í Argentínu lauk í dag, þegar
Commodore Edward McLoughlin, 38 ára gamall flugforingi, var
skipaður flugmálaráðherra. Hann tók þátt í uppreisninni 1955,
þegar hann var hermálaráðunautur Perons. Háttsettir foringjar
í flughernum sendu Aramburus forseta úrslitkosti, þegar hann
gekk framhjá McLoughlin við skipun nýs flugmálaráðherra og
neyddu hann til að ógilda fyrra skipuanrbréf.
S Er fregnin um það, að Bretar)
| hefðu leyst Makarios úr út- J
i Iegðinni á Seychell-eyjum s
s barst út, fögnuðu grískumæl- S
5 andi menn á Kýpur heitt og ^
\ innilega. Mynd þessi er tekin s
S í einni af grisk-kaþólsku kirkj s
S unum á eyjunni — þar sem ■
■ fólk hefur konrið saman til i
S bænagerðar og syngur ætt- S
S jarðarlög og sálma. Einn eyj- •
| arskeggja heldur á lofti mynd ^
; af erkibiskupinum, eins og S
S myndin sýnir. S
DULLES HVETUR
EGYPTA TIL SAIMIMGIRIMI
Washington, 2. apríl. Frá Reuter.
DULLES utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði á fundi sínum
við fréttamenn í dag, að Bandaríkin mundu að líkindum vita
innan 48 tíma, hvort líkindi væru til að Egyptar mundu fúsir að
ganga til samninga, sem bundið gætu endi á Súez-deiluna.
Hann sagði, að svör Banda-
ríkjanna við tillögu Nassers væru
Byltingin breytti engu!
U'
Búdapest, 2. apríl. — Frá Reuter.
JNGVERSKA lögreglan hefur handtekið 11 Ungverja í
Miskole, fyrir norð-vestan Búdapest, og sakað þá um að
stunda njósir fyrir „Radio Free Europe“, sem er and-
kommúnísk útvarpsstöð í Vestur-Þýzkalandi.
Ungverska stjórnin mótmælti í dag þeirri ákvörðun S. Þ.
á síðasta Allsherjarþingi að neita að taka gilda fulltrúa
hennar. Ungverski fulltrúinn tjáði Hammarskjöld, að þessi
neitun væri í eðli sínu íhlutun í innanríkismál Ungverja-
lands. Sagði hann, að byltingin í október s. 1. hefði ekki haft
í för með sér neinar breytingar á stjórnskipan ungverska
„alþýðulýðveldisins“.
10 ára íangelsi kostar það
Mustur Þýzkalandi að boða
kenningar jainaðarmanna
Mál prótessor Woltgangs Harichs,
r
Æ
leiðtoga austur-þýzkra menntamanna
IjHNN kunnasti menntamaður Austur-Þýzkalands, pró-
■E- fessor Wolfgang Harich, við Unter den Linden-háskól-
ann í Austur-Berlín, hefur verið dæmdur í 10 ára fangelsi
fyrir „samsæri gegn ríkisstjórn Austur-Þýzkalands“.
Af öllum atvikum máls þessa er það sýnt, að brot pró-
fessors Harichs var í því fólgið, að hann sem hafði um
margra ára skeið verið leiðtogi kommúnista í menntastétt-
um, var tekinn að hneigjast til fylgis við Jafnaðarmenn
(Sósíaldemokrata).
Harich var handtekinn
nokkru eftir að hann lýsti því
yfir, að eini munurinn á Jafn-
aðarmönnum og kommúnist-
um hefði verið Stalíns-dýrk-
un kommúnista. Nú væri
Stalín fallinn og þá ekki leng-
ur ástæða fyrir sundrungu
flokkanna. Hefur sjaldan áður
komið eins skýrt í ljós, að
kommúnistar telja það glæp-
Framh. á bls. 2.
Próf. Wolfgang Harich
Flóttamenn sendir heim
Belgrad, 2. apríl.
Frá Reuter.
I DAG afhentu Júgóslavar ung-
versku stjórninni 337 flóttamenn,
sem hafa ákveðið að snúa heim
aftur. Hafa þá 2124 flóttamenn
horfið heim síðan í október. Alls
hafa 18.714 ungverskir flótta-
menn leitað hælis í Júgóslavíu.
á þá leið, að heppilegast væri
að stjórn skurðarins væri hagað
í samræmi við þau sex megin-
atriði, sem Öryggisráðið sam-
þykkti í október sl. í svarinu
hefði verið bent á, að hvaða leyti
tillögur Nassers væru í ósam-
ræmi við ályktun Öryggisráðs-
ins, en jafnframt bent á leiðir
til að færa tillögur Breta í betra
horf og gera þær aðgengilegrL
Egyptar hafa ekki svarað orð-
sendingu Bandaríkjamanna,
sagði Dulles.
EGYPTAR GETA UNNIÐ SÉR
TRAUST HEIMSINS
Hann kvaðst ekki hafa neinar
upplýsingar, sem gefið gætu til
kynna, hver viðbrögð Breta
yrðu. Tillögur þeirra hefðu ver-
ið of einhliða og ógreinilegar, en
með nokkrum minni háttar lag-
færingum væri hægt að gera þær
að alþjóðasamþykkt, sem ríkin,
er hlut ættu að máli, gætu und-
irritað, e.t.v. fyrir milligöngu S.
Þ. Hann sagði, að Egyptar ættu
þess nú kost að vinna aftur traust
heimsins með því að búa svo um
hnútana, að Súez-skurðurinn
yrði rekinn í samræmi við al-
þjóðasamþykktina frá 1888.
Framh. á bls. 2
Brezka verkfallinu lokið
London, 2. apríl. Frá Reuter.
IDAG var aflýst verkfalli í skipasmíðastöðvum og öðrum verk-
smiðjum Bretlands, sem staðið hefur í hálfa aðra viku. 1.700.000
verkfallsmenn voru beðnir að hverfa aftur til vinnu sinnar á
fimmtudag.
Þessi ákvörðun var tekin af
leiðtogum verkfallsmanna, eitir
að Macleod verkamálaráðherra
hafði skorað á þá að fresta verk-
fallinu, unz þar til í.efndur
dómstóll, sem sezt á rökstóla á
morgun, hefur rannsakað kaup-
deilurnar.
Verkfallið leiddi til þess, að
loka varð verksmiðjum í 11 mik-
ilvægustu iðnaðarhéruðum Bret-
lands svo og mörgum skipasmiða-
stöðvum. Ákvörðunin um að af-
lýsa verkfallinu var tekin á fundi
þeirra 40 verkalýðssamtaka, sem
hlut eiga að máli. Það var sam-
þykkt með 710.177 atkvæðum
gegn 449.162.
Dómstóliinn mun fyrst rann-
saka kröfur 200.000 verkfalls-
manna í skipasmíðastöðvum, en
síðan snúa sér að öðrum iðngrein-