Morgunblaðið - 03.04.1957, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.04.1957, Blaðsíða 4
4 MORCTJNBL 4Ð1Ð Miðvikudagur S. apríl 1957 f dag er 93. dagur ársins. Miðvikudagur 3. apríl. Árdegisflæði kl. 6,56. Síðdegisflæði kl. 19,16. Akureyri: — Næturvörður er í Itjörnu-apóteki, sími 1718. Nætur læknir er Pétur Jónsson. Slysavarðstofa Reykjavíkur í Heilsuverndarstöðinni er opin all- an sólarhringinn. Læknavörður L. R. (fyrir vitjanir) er á ..ama stað frá kl. 18—8. Sími 5030. Næturvörður er í Ingólfs-apó- teki, sími 1330. — Ennfremur eru Holts-apótek, Apótek Austur- bæjar og Vesturbæjar-apótek op- in daglega til kl. 8, nema á laug- ardögum til kl. 4. Þrjú síðasttal- in apótek eru öll opin á sunnudög- um milli kl. 1 og 4. Garðs-apótek, Hólmgarði 34, er opið daglega kl. 9—20 nema á laugardögum 9—16 og á sunnudög im 13—16. Sími 82006. Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9, er opið daglega kl. 9—16 nema á laugard. kl. 9—16 og á sunnu- lögum 13—16. Sími 4759. Hafnarfjarðar-apólek er opið vlla virka daga kl. 9—21. Laug- ardaga kl. 9—16 og 19—21. Helga !aga kl. 13—16 og 19—21. Keflavíkur-apótek er opið alla irka daga frá kl. 9—19, laugar- iBt)agbók daga frá kl. 9—16 og helga daga frá kl. 13—16. Akureyri: — Næturvörður er í Stjörnu-apóteki, sími 1718. Nætur læknir er Sigurður Ólason. Ha fnarfjörður: — Næturlæknir er Ólafur Einarsson, sími 9275. RMR — Föstud. 5. 4. 20. — VS — Fr. — Hvb. I.O.O.F. 7. = 138438*4 = 9- III. St.. St. . 5957437 VII. BE3M.essur Uómkirkjan: — Föstumessa í kvöld kl. 8,30. — Séra Óskar J. Þorláksson. Hallgrímskirkja: — Föstuguðs- þjónusta í kvöld kl. 8,30. — Séra Sigurjón Árnason. Fríkirkjan: — Föstumessa í kvöld kl. 8,30, — Séra Þorsteinn Björnsson. Laugarneskirkja: — Föstuguðs- þjónusta í kvöld kl. 8,30. — Séra Garðar Svavarsson. |Hjónaefni Jóhanna Ragnarsdóttir, Hæðar- garði 52, Rvík og Bjöm Bragi Magnússon, prentnemi, Hring- braut 37, Reykjavík. Ásta Friðleifsdóttir, Höfðaborg 102 og Guðmundur Kristinsson, Hörpugötu 1. Afmæli 75 ára er í dag frú María Guðna dóttir, Laugateigi 8. Skipin Fyrir tveim vikum hélt Ferðafélag fslands kvöldvöku í Sjálfstæðis- húsinu, í tilefni þess, að 10 ár eru liðin frá því að síðasta Heklugos öyrjaði. Var sýnd á kvöldvöku þessari Heklukvikmynd þeirra Steinþórs Sigurðssonar og Árna Stefánssonar, sem er ein bezta kvikmynd sera fram til þessa hefur verið tekin af eidgosi. Var fjölmenni mikið á kvöidvökunni og komust ekki allir að sem vildu. Vegna þessa hefur Ferðafélagið ákveðið að endurtaka kvöld- vökuna og sýna Heklukvikmyndina næstkomandi fimmtudagskvöld \ Sjálfstæðisliúsinu. Þar mun dr. Sigurður Þórarinsson útskýra gos- kvikmyndina svo sem í fyrra skiptið. Eimskipaféiag íslands h.f.: — Brúarfoss hefur væntanlega farið frá Grimsby 1. þ.m. til London, Boulogne og Rotterdam. Dettifoss fó' væntanlega frá Riga í gærdag til Ventspils. Fjallfoss fór frá Reykjavík í gærkveldi til London og Hamborgar. Goðafoss fór frá Flateyri 30. f.m. til New York. Gullfoss er í Kaupmannahöfn, fer þaðan 6. þ.m. til Leith og Rvíkur. Lagarfoss er í Vestmannaeyjum. Reykjafoss er í Keflavík, fer það- an til Akraness og frá Akranesi fer skipið til Lysekil, Gautaborg- ar, Álaborgar og Kaupmanna- hafnar. Tröllafoss kom til Rvíkur 1. þ.m. frá New York. Tungufoss kom til Ghent 26. f.m. Fer þaðan til Antwerpen, Rotterdam, Hull og Reykjavíkur. ESIFlugvélar Flugtelag íslands h.f.: — Milii landaflug: Gullfaxi fer til Osló, Kaupmannahafnar og Hamborgar kl. 08,00 í dag. Flugvélin er vænt- anleg aftur til Reykjavíkur kl. 18,00 á morgun. — Innanlands- flug: 1 dag er áætlað að fljúga til Akureyrar, Isafjarðar og Vest- mannaeyja. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Bíldudals, Egilsstaða, Isafjarðar, Patreksfjarðar og Vestmannaeyja. Loftleiðir h.f.: Edda er vænt- anleg kl. 06,—07,00 árdegis í dag frá New York. Flugvélin heldur áfram kl. 08,00 áleiðis til Bergen, Stafangurs, Kaupmannahafnar og Hamborgar. Saga er væntanleg í kvöld kl. 18,00—20,00 írá Ham- borg, Kaupmannahöfn og Osló. — Flugvélin heldur áfram, eftir skamma viðdvöl, áleiðis til New York.. |Aheit&samskot Fólkið á Hraunsnefi, afh. Mbl.: Þ Þ kr. 200,00; E B 100,00. Fólkið á Hvalnesi, Skaga. Afh. Mbl.: S N kr. 500,00; N 500,00; Hildur 50,00; Á G S 200,00. Hallgrímskirkja í Saurbæ, afh. Mbl.: M H M Akranesi kr. 100,00. Slusaði maðurinn, afh. Mbl.: O G krónur 50,00. Lamaði íþróttamaðurinn, afh. Mbl.: I J krónur 200,00. Til Alberts Schweitzers hafa mér enn verið afhentar eftirtald- ar gjafir: Frá séra Jóhanni Pálmasyni, Stað i Súgandafirði, framlag Súgfirðinga kr. 1.620,00. Frá K. og G. kr. 1.200,00; frá Jó- hönnu Einarsdóttur, Drangsnesi, Strandasýslu kr. 100,00; frá konu á Akranesi kr. 100,00. — Sigur- björn Einarsson. [Félagsstörf Bræðrafélag Laugarnessóknar: Fundur verður haldinn í kvöld kl. 8,30 í fundarsal kirkjunnar. Rædd verða félagsmál. Skemmtiatriði og síðan kaffidrykkja. Hringurinn: Fundi þeim, sem vera átti í kvöld, verður frestað um óákveðinn tíma. Sjálfstæðiskvennafélagið Vor- boðinn, Hafnarfirði. — Bazarinn verður í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld (fimmtudag) kl. 8,30. Nefnd arkonur eru beðnar að mæta kl. 2, sama dag. Þá eru þær konur, sem ætla að gefa á bazarinn, beðn ar um að koma gjöfum í Sjálfstæð ishúsið eftir kl. 2 á fimmtudag. Læknar fjarverandi Bjarni Jónsson, óákveðinn tíma Staðgengill: Stefán Björnsson. Ezra Pétursson óákveðinn tíma Staðgengill: Jón Hjaltalín Gunn laugsson. Friðrik Björnsson verður fjar- verandi til 18. apríl. Staðgengil'; Viktor Gestsson. Garðar Guðjónsson fjarverandi frá 1. apríl, um óákveðinn tíma. — Staðgengill: Jón H. Gunnlaugsson Hjalti Þórarinsson fjarverandi óákveðinn tíma. — Staðgengill: Alma Þórarinsson. |Ymislegt Orð lífsins: Lýöur minn veröur afmáöur, af því að hann hefur enya þekking. Af því að þér hafið hafnað þekkingunni, þá vil ég hafna yður .. . og með því að þér hafið gleymt lögmáli Guðs yðar, þá vil ég gleyma bömum yðar. (Hos. 4, 6). Snowden fjármálaráðherra: — „Sannleikurinn er sá, að drykkju- skapur eykur fátækt, og fátækt leiðir menn út í drykkjuskap", —• Umdæmisstúkan. Söfn Náttúrgripasafnið: Opið á sunnudögum kl. 13,30—15, þriðju dögum og fimmtudögum kl. 14— 15. Listasafn ríkisins er til húsa í Þjóðminjasafninu. Þjóðminj asafn ið: Opið á surnudögum kl. 13—16 og á þriðjudögum, fimratudögum og laugardögum kl. 13—15. Listasafn Einars Jónssonar verður lokað um óákveðinn tíma. • Gengið tt Gullverð ísl. krónu: 100 gullkr. = 738,95 pappírskr. Sölugengi 1 Sterlingspund .. kr. 45.70 1 Bandaríkjadollar . — 16.32 1 Kanadadollar .. — 16.90 100 danskar kr........— 236.u0 100 norskar kr........— 228.50 100 sænskar kr.......— 315.50 100 finnsk mörk .... — 7.09 1000 franskir frankar . — 46.63 100 belgiskir frankar . — 32.90 100 svissneskir fr. .. — 376.00 100 Gyllini ..........— 431.10 100 tékkneskar kr. .. — 226.67 100 vestur-þýzk mörk — 391.30 1000 Lírur ............ — 26.02 niwfiunkuffuiii Anna litla var veik og þegar frænkan kom í heimsókn, spurði hún Önnu, hvernig henni nði. Anna litla leit vandræðaleg til mömmu sinnar og sagði síðan: — Mamma, hvemig líður mér í dag. — Hvorum megin vill yðar náð hafa skiptinguna? spurði stallar- inn konunginn, þegar hann var að greiða honum undir svefninn. — Hve mörg hár eru á höfðinu á mér? spurði konungurinn. — Þrjú, yðar náð. — Þá vil ég hafa skiptinguna hægra megin. Nokkrum dögum seinna voru aðeins tvö hár eftir á höfði kon- ungsins og eftir nokkra umhugs- un kvaðst hann vilja hafa skipt- inguna í miðju. -•IRDIIMAND Stæðið var upptekið Næstu nótt var aðeins eitt hár eftir og þá sagði konungurinn við stallarann, sem greiddi honum und ir svefninn: — Ég er að hugsa um að sofa með slegið hár í nótt. ★ Er þau einu sinni ræddust við Elízabeth Browning og Frederick Locker, kvaðs. Elízabeth meta meira ljóð Hoods en Grays, en bætti við: — En ég vil þó undirstrika það, að ég er ákaflega lítið hrifin af Grays. ★ Robert Browning, sem uppi var milli 1812—1889, skrifaði einu sinni, á sínum yngri árum, bók- ina „Sordello". Maður nokkur sem las hana, kvaðst ekki skilja neitt af því sem í henni væri og sneri sér til rithöfundarins um skýringu Browning las bókina yfir og sagði síðan: — Þegar ég orkti þessi Ijóð, þá vissi guð og ég hvað ég meinti. Nú veit guð það einn. ★ John Bunyan, enskur kennimað ur og rithöfundur á 17. öldinni, var einu sinni stöðvaður af konu, er hann kom út úr kirkjunni eftir guðsþjónustu, er þakkaði honum með mörgum fögrum orðum, hina góðu prédikun sem hann hafði flutt. „Hún var alveg dásamleg", sagði konan. „Þér þurfið nú ekkert að segja mér það“, svaraði prestur. „djöf- ullinn var búinn að hvísla því { eyrað á mér áður en ég var kom- inn niður úr prédikunarstólnum“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.