Morgunblaðið - 03.04.1957, Side 9

Morgunblaðið - 03.04.1957, Side 9
Miðvikudagur 3. apríl 1957 MORCVNBLAÐIÐ 9 að að afferma skipið. Geta vöru- bílarnir ekið fast að hlið þess. IJnnið hefir verið að björgun „Polar Quest“ nú alllengi og standa vonir til að hvalfangar- inn komist á flot innan skamms. Kvikmyndir: STJARNA AUSTURBÆJARBÍÓ sýnir nú ameríska mynd, sem tekin er í litum og Cinema-scope. Nefnist myndin „Stjarna er fædd“ og eru þau Judy Garland og Jaines Mason í aðaihlutverkunum. — Judy Garland var um langt skeið einhver mesta söngstjarna í ame- rískum kvikmyndum og auk þess mikilhæf leikkona. — Þung örlög ollu því að leikkonan hvarf af sjónarsviðinu um all-langan tíma og hugðu víst flestir að þar með væri glæsilegum leikferli hennar lokið. En svo var þó ekki. Með frábæru þreki og viljafestu tókst ER FÆDD henni að rétta við með þeim ár angri að hún hefur aldrei leikið betur en nú og aldrei notið meiri hylli áhorfenda. Myndin í Aust- urbæjarbíói staðfestir í ríkum mæli hið glæsilega „come-back“ þessarar ungu leikkonu, enda hef- ur myndin hvarvetna hlotið ein- róma lof gagnrýnenda og annarra áhorfenda. James Mason, hinn ágæti enski leikari, er verðugur mótleikari Judy Garland í þess- ari mynd og aðrir leikendur fara einnig mjög vel með hlutverk sín. í myndinni fá áhorfendur að skyggnast að tjaldabaki í leik- húsum í Bandaríkjunum og kvik- myndaverum og verða við það margs vísari um hið ólgandi og hraða líf, sem þar er lifað, og einnig það hversu leikstjörnur verða til í þessum furðulega gervi heimi. — Myndin er mjög efnis- mikil, ljúf og létt framan af með miklum dansi og söngvum, sem Judy Garland flytur meistara- lega, en er á líður myndina rís harmleikurinn milli hjónanna Esther Blodgett (Judy Garland) og leikarans Norman Main (James Mason), er lýkur með dauða hans. Myndin er hvorttveggja í senn, prýðilega gerð og afbragðsvel leikin. Er því vissulega óhætt að mæla með henni. Ego. Tilraunum ekki hætt LONDON, 1. apríl — í dag kom til London sendiherra japönsku stjórnarinnar — og hafði hann meðferðis bréf stjórnar sinnar til Macmillans forsætisráðherra. í bréfi þessu var þess farið á leit, að Bretar hættu við fyrirhugaða sprengingu vetnissprengju á Kyrrahafi. Hafa Japanir áður farið þess á leit við Rússa, að þeir hætti tilraunum sínum með sama vopn, en Rússar hafa svar- að því til, að sprengingar þeirra yllu engum skaða í Japan þar eð þær væru allar gerðar á rúss- nesku landssvæði. 81 milli kr hagstæðari Þegar rikisstjórn Ólafs Thors fór frá völdum í júlílok 1956, var nettóskuld bankanna við útlöndl 39 milljónir króna. En nettóskuld bankanna í júlílok 1953 var 19,9 milljónir króna. Útflutnings- birgðir voru að verðmæti 101 milljón króna hærri í júlílok 1956 en í júlítok 1953. Af þessu sést að gjaldeyrisbú- skapurinn var 81 milljón króna hagstæðari þegar ríkisstjórn Ólafs Thors skilaði af sér, en þeg- ar hún tók við. í>að er ekki sök fyrrverandi ríkisstjórnar þó sparifé hafi hætt að aukast eftir að vinstri stjórnin tók við völdum. Það er heldur ekki sök Sjálfstæðismanna, þó gjaldeyrisástandið hafi versnað seinni hluta ársins 1956, vegna aukinnar eftirspurnar eftir er- lendum vörum. Það Ieiddi af ótta almennings við uppsiglandi hafta stefnu. í árslok 1956 var nettóskuld bankanna við útlönd 64,5 millj. króna, en var 15,9 milljónir kr. í árslok 1955. Verðmæti útflutn- ingsbirgða var 45 millj. króna minni í árslok 1956 en í árslok 1955. Hefur gjaldeyrisaðstaðan þess vegna versnað um 94 nrillj. króna á árinu 1956. s s i MeSal s i lands I fjöru Þar hefir fjoldi skipa sfrandað — og ,,borið sín bein'4 ÞAÐ eru ekkl marglr áratugir síðan að í flestum tilfellum var úti um þau skip, sem strönduðu á söndum suðurstrandarinnar. Þannig hlaut Meðallandssandur viðurnefnið „Skipakirkjugarður- inn“. STAKSTEIIVAR Tók engin erlend lán Það er mikill misskilningur hjá Tímamönnum, þegar þeir halda því fram í gær, að grein- argerð Landsbankans, sem ný- lega hefur verið birt, feli í sér áfellisdóm um stefnu fyrrverandi ríkisstjórnar í gjaldeyrismálum. Það er að sjálfsögðu skylda þjóð- bankans að flytja varnaðarorð og benda stjórnarvöldum á það, þeg- ar óvænlega horfir í efnahagsmál um þjóðarinnar. Þetta hefur stjórn Landsbankans gert fyrr og nú. En ástæða er til þess að benda á það, að þegar fyrrverandi rík- isstjórn tók við seint á árinu 1953, tók hún ekki við gjaldeyr- isvarasjóðum. Meðan hún fór með völd, tókst henni hins vegar að halda vel í horfinu og skila af sér betri gjaldeyrisaf- stöð>u þegar hún fór frá, en þegar hún tók við, enda þótt engin er- lend lán væru tekin á valdatíma- bili hennar og meira fé varið til vélvæðingar og margháítaðra framkvæmda heldur en nokkru sinni fyrr. Hér eru birtar þrjár myndir, sem ljósmyndari blaðsins tók úr flugvél s. 1. mánudag. Tvö skip eru nú strönduð á sandinutn, belgiski togarinn, Van der Weyde og norski hvalfangarinn Polar Quest. Má telja nokkuð öruggt að þeim verði báðum bjargað, en á þriðju myndinni sést flak af skipi, sem orðið hefir sandinum að bráð. Af sumum skipunum, sem þarna hafa „borið sín bein“ sést aðeins á siglutréð. Umboðsmenn vátryggjenda belgiska togarans hér, Trolle & Rothe, hafa samið við björgun- arfyrirtækið „Björgun" um að taka að sér að losa aflann úr skipinu. Er það gert til þess að létta skipið, en í lestum þess voru um 300 tonn af ísvörðum fiski. — Þegar því verki er lok- ið verður hafizt handa um að ná skipinu á flot. Á myndinni, sem hér fylgir sést að þegar er byrj- Stöðugt verðlag Á árinu 1954 batnaði hagur bankanna gagnvart útlöndum nokkuð. Og verðlag mátti þá heita stöðugt. En á árinu 1955 skullu á hin miklu verkföll, sem kommúnistar beittu sér fyrir, og nýtt kapphlaup hófst milli kaupgjalds og verðlags. Af þess- um ástæðum varð aðstaða bank- anna erfiðari og eftirspurnin eft- ir erlendum vörum fór vaxandi. Nettóskuld bankanna gagnvart útlöndum hækkaði um 118 rnillj. króna á árinu 1955, en útflutn- ingsbirgðir við árslok höfðu auk- izt um 94,6 milljónir króna að verðmæti. Framan af árinu 1956, virtist trú almennings á gildi peninganna fara heldur vax andi, og afleiðingar verkfallanna fóru rénandi. Sést það m. a. á því, að sparifjáraukningin nam á fyrstu 7 mánuðum þess árs 136 milljónum króna. Gjaldeyrisaðstaðan gagnvart útlöndum 1. apríl 1956, var þannig, að nettóskuld bankanna var aðeins 27 milljónir kr. En 1. apríl 1953 var hún 41 milljón króna. En þá töldu Framsóknar- menn allt vera í lagi í gjaldeyr- ismálunum, enda fór þá ríkis- stjórn Steingríms Steinþórssonar nieð völd.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.