Morgunblaðið - 24.04.1957, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 24.04.1957, Qupperneq 2
M nn crnvrtr ssttn MiSvíkud. 24. apríl 1957. IVlik.il hátíðahöld á vegum Sumargjafar á morgun Barnasamkomur í flesfum samkomusföðum borgarinnar. FRÉTTAMENN áttu í gssr viðtal við stjórn Barnavinafélagsins Sumargjafar, en félagið stendur, eins og venja er til, fyrir miklum hátíðahöldum á morgun, sumardaginn fyrsta, fyrir börn. í dag og á morgun verða merki seld á götunum, einnig barna- bókin Sólskin, sem Guðmuhdur Þorláksson, kennari, hefur tekið saman efni í, barnadagsblaðið „Sumardagurinn fyrsti", og fán- ar handa börnum. Allur ágóði af þessari sölu rennur í húsbygg- ingarsjóð félagsins, en í naesta mánuði verður hafizt handa um byggingu nýs barnaheimílis við Fornhaga. Er í ráði að flytja í það heimili starfsemi Tjarnarborgar. í hinu nýja bamaheimili, sem er byggt eftir nýjustu tízku verða þrjár dagheimilaeiningar hver fyrir 20 börn og tvísettur leik- skóli. Verður byrjað að grafa fyr- ir húsinu í næsta mánuði. Nýs barnaheimilis er nú mikil þörf hér, þar sem dagheimili og leik- skólar hafa ekki fullnægt eftir- spum síðastliðin fimm ár, en á þeim árum hefur húsrúm fyrir slíka starfsemi ekki fjölgað. Nú eru á sjöunda hundrað börn stöð- ugt á dagheimilum og leikskólum félagsins. Leikskólar eru á sex stöðum starfandi og dagheimili á fjórum. HÁTÍÐAHÖLDIN Á MORGUN Hátíðahöldin á morgun hefjast með skrúðgöngu barna frá Aust- urbæjarskólanum og Melaskólan um að Lækjartorgi kl. 12,45. — Fjórar lúðrasveitir leika fyrir göngunni, þar af tvær drengja- lúðrasveitir, sem nú í fyrsta sinn leika opinberlega. kl. 1,30 nema skrúðgöngurnar staðar í Lækjar- götu, en þar flytur leikkonan Anna Stína Þórarinsdóttir „sum- arkveðju til íslenzkra barna“, sem er kvæði eftir séra Sigurð Einarsson í Holti. Auk þess leika og syngja börnin þar nokkur lög. Bíll veltur á Bölungarvíkur- vegi ÍSAFIRÐI, 23. apríl. — Umferða- slys varð á Bolungarvíkurvegi á laugardaginn var. Fólksbíll, í-124 sem var að koma utan úr Bol- ungarvík, lenti út af veginum er hann var kominn inn að svo- nefndri Miðhlíð. Valt bíllinn nið- ur í fjöru, mun hafa farið tvær veltur. Skemmdist yfirbyggingin svo að hún er talin gerónýt. — Tveir menn voru í bílnum, Stur- laugur Jóhannsson sem ók, og farþeginn, Kristján Bjamason og meiddist hann lítilsháttar á höfði. — J. INNISKEMMTANHl Inniskemmtanir verða í Tjam- arbíói, Austurbæjarbíói, Laugar- ásbiói, Trípólíbíói, Góðtemplara- húsinu, Iðnó. Hálogalandi, AFHENDINGARSTAÐIR Baraadagsblaðið og Sólskin verð- ur afgreitt til sölubarna frá kl. 1 e. h. í dag og frá kl. 9 f. h. á morgun, á eftirtöldum stöðum: Vesturborg, Drafnarborg, and- dyri Melaskólans, Brákarborg, Steinahlíð, Grænuborg, Baróns- borg, Laufásborg, Listamanna- skálanum, skála við Útvegsbank- ann, skála við Sundlaugar, skála í Bústaðahverfi við Hólmgarð 32. Merkin og fánarnir verða af- greiddir á sömu stöðum í dag frá kl. 4 síðd. og kl. 9 á morgun. — Börnin, sem selja fá 10% sölu- laun þ.e.a.s., ef þau selja fyrir 1000 kr. og auk þess verður sölu- börnunum boðið á kvikmynda- sýningu, væntanlega fyrsta laug- ardag í sumri. Einnig verða verð laun veitt fyrir framúrskarandi dugnað. AÐGÖNGUMIDAR AÐ SKEMMTUNUNUM Aðgöngumiðar að öllum skemmt- ununum verða seldir fyrir börn og fullorðna í Listamannaskálan- um kl. 5—7 í dag og 10—12 á morgun. Schweitzer varar við kjarnorkutilraunum LONDON, 23. apríl: — í dag var lesið í Oslóarútvarpinu bréf frá dr. Albert Schweitzer til þjóða heims þar sem hann varaði við áhrifum af frekari tilraunum með kjarnorkusprengjur. Var bréfið lesið á mörgum tungumálum. Kvað hann mannkyninu mikil hætta búin af frekari tilraunum Drengir íirnia lík í hrauni FUNDIZT hefur lík Baldvins Skaftasonar húsvarðar, sem hvarf hinn 19. janúar sl. Fannst það á föstudaginn langa í hraunjaðrin- um suðvestur af Vífilsstöðum, í hraunskúta. Fundu það drengir úr Kópavogi, er þar voru á ferð. Hinn 19. janúar sl. fór Baldvin úr strætisvagni suður við Fífu- hvammsveg í Kópavogi. Síðdegis þennan gerði stórhríð með miklum skafrenningi. Eftir að upplýst var að Baldvin hafði ekki komið fram, er hann fór úr strætisvagninum, var talið að hann myndi hafa ætl- að að ganga suður að Vífilsstöð- um, en hann var kunnugur á þess- ari ^eið. Hafði iðulega farið gang- andi milli Kópavogs og Vífils- staða, en þar var hann um nokk- urt 'keið sjúklingur. Leit var gerð en mjög erfitt var (að fást við hana, því að þá var mikil fönn yfir öllu. Einnig var leitað strax og snjó tók upp, en hún bar ekki árangur. ESKIRIRÐI, 22. apríl. — Víðir SU landaði sl. laugardag 30 tonn um af slægðum fiski, eftir 4 daga útivist við Ingólfshöfða. —Gunnar. HÖFN í Homafirði, 20. apríl. — Homafjarðarbátar, sem eru sex á þessari vertíð, fóru 79 sjóferð- ir fyrri hluta aprílmánaðar. Sam- anlagt aflamagn þeirra í þessum veiðiferðum var tæplega 1141 tonn, eða um 14,4 tonn að meðal- tali á bát í róðri. — Gunnar. SIGLUFIRÐI, 23. apríl: — Bæj- artogarinn Elliði kom í dag af veiðum með um 200 lestir af fiski sem fer til frystihúsanna hér og í herzlu. Ingvar Guðjónsson los- aði hér á laugardaginn fyrir páska alls 16 lestir. Hafði hann leitað fisks á stóru svæði, allt frá Sléttu vestur fyrir Horn en allsstaðar var sama aflatregðan. Línubátar fengu sáralítinn afla er þeir réru fyrir hátíðarnar. í dag eru þeir í róðri en ekki hefir frétzt um afla þeirra. Hér var leiðindaveður af norðaustan báða páskadagana með talsverðri snjó komu. í dag er ágætis veður og tekur fljótt upp þann snjó sem fallið hefir. — Guðjón. HAFNARFIRÐI: — Ágætur afli hefir verið hjá netabátunum und anfarið. Á laugardaginn fyrir páska var t.d. uppgripaafli og komu 12 bátar inn aðfaranótt páskadags með um 308 lestir. Ár- sæll Sigurðson hafði þá mestan afla eða 68 lestir eftir 4 daga en Fróðaklettur hafði 28 lestir eftir 2 daga. í gær kom Fákur með 57 lestir eftir 3 daga. Bát- arnir voru allir á sjó í gær. — Röðull kom af veiðum í gær með um 70 lestir af saltfiski og 80 af nýju. — G. E. með kjarnorkuvopn. Hin geysla- virku efni, sem mynduðust við kjarnorkusprengingu hefðu ekki einungis brunaáhrif í loftinu. Efnin mundu setjast á jörðina og eitra þannig allan mat Þá bæri að athuga, að ekki einungis núlif- andi kynslóð væri hætta búin af hinum geislavirku efnum, því að þau mundu og hafa áhrif á erfða- eiginleika mannsins. Sagði Schweitzer, að enn hefðu stórveldin ekki komizt að einu samkomulagi um bann við kjarn- orkutilraunum, enda þótt almenn ingur í Bretlandi, Bandaríkjun- um og Rússlandi óski einskis fremur en að slíku banni verði komið á. Fór á milli fram- og afturhjólanna LAUST fyrir hádegi í gær varð barn undir jeppabíl á Rauðarár- stíg. Var hér um að ræða 4 ára telpu. Slapp hún með heilahrist- ing og skrámur á höfði. Telpan hafði hlaupið út af gangstéttinni út á götuna og varð þar fyrir jeppabíl, — féll barnið í götuna og fór á milli fram og afturhjóla og lá lMt m. fyrir aftan bílinn er hann nam staðar. Gerðist þetta við húsið Rauðar- árstíg 32. Rannsóknarlögreglan óskar að hafa tal af þeim er kynnu að hafa orðið sjónarvott- ar að þessu slysi. Borgward-bílimn fallegi, eftir slysið á Grindavíkurvegi. (Ljósm. Boði), Bifreiðaslys við Grindavík Fimm manns slasast Á FÖSTUDAGINN langa varð bifreiðaslys skammt frá Grinda- vík, á þjóðveginum þar. Bifreið úr Reykjavík fór þar út af veg- inum og slösuðust allir farþeg- arnir, og tveir svo ílla, að flytja varð þá í sjúkrahúsið í Keflavík. Nánari tildrög voru sem hér seg- ir. Bifreiðin, sem er alveg ný Borgward stationbifreið (Happ- drættisbifreið DAS), var stödd um tvo km fyrir ofan Grindavík. Þar hefir veginum verið breytt, hann gerður breiður og greiðfær en á honum er kröpp og slæm beygja og hefir hann ekki verið breikkaður í beygjunni. Bifreiðin fór út af í beygjunni. Tvennt sat fram í, maður og kona og skár- ust þau bæði ílla, í andliti og víðar og hafa þau legið í sjúkra- húsinu í Keflavík. Liggur konan þar enn, en maðurinn fór af sjúkrahúsinu í gær. Aðrir far- þegar slösuðust og nokkuð og var gert að sárum þeirra á sjúkra húsinu. A þessum sama stað hafa nokkrum sinnum áður orðið slys, og fór þar m.a. út af bifreið með fjölda verkamanna á leið í vinnu. Er staðurinn hinn hættu- legasti þar sem vegurinn þar hef- ir ekki verið breikkaður og hef- ir það tvímælalaust átt sinn þátt í því að slysið varð. Rokkhljómleikar S.Í.B.S, Crombie kemur um mánaðarmótin EINS og kunnugt er verða haldnir all nýstárlegir tónleikar á vegum S.Í.B.S. um næstkom- andi mánaðamót. Kbma þar fram fjölmargir skemmtikraftar, þar á meðal hin kornunga söngstjarna Helena Eyjólfsdóttir, sem hefur getið sér mjög gott orð fyrir söng sinn nú að undanförnu. Hún söng m.a. nýlega í Þriðjudagsþættin- um. Þá leikur nýr kvintett undir stjórn Gunnars Ormslev, en hann er fleztum góðkiuinur fyrir leik sinn, jafn hér sem erlendis. Gunnar lék á annað ár með hinni kunnu hljómsveit Simons Brehm í Svíþjóð. — Síð- ast en ekki sízt verður til skemmt unar leikur Rock’n’Roll kóngs Breta og hljómsveitar hans.Hann nefnist Tony Crombie. Tony og hljómsveit hans hafa vakið mik- ið umtal í Evrópu og ef marka má blaðaummæli er hljómsveit- in ein sú bezta, sem völ er á um þessar mundir. Yerður gaman að sjá, hvernig íslenzkir ungling- Helztu íréttir síðustu daga: Á- Brezkir kommúnistar héldu þing og upplýstu, að flokkurinn tapaði óðum fylgi. Mikið var deilt á þinginu — og urðu þeir allháværir, er vildu hætta allri tjónkun við Kreml. Einn hátt- settur flokksmeðlimur, nýkom- inn úr Rússlandsför, sagði lífið í Rússlandi hræðilegt. ★ „Hong Kong Times“ segir, að kínverskir kommúnistar hafi nú fengið birgðir kjarnorkusprengja frá Rússum. Ferðafrelsi útlendinga í Ráð stjórnarríkjunum hefur verið takmarkað mjög. ■fc- Rússar sprengdu eina kjarn- orkusprengju í vikunni sem íeið, en síðan í september 1949 hafa Rússar sprengt hart nær 50 kjarn orkusprengjur. ■jk í París hefur borið nokkuð á hermdarverkum, sem framin eru af N-Afríkumönnum. Hefur franska lögreglan látið til skarar skríða til þess að uppræta óald- arflokkana, því að svo var kom- ið, að lífshætta var tarin að vera á ferð í sumum hverfum borgar- innar að næturlagi. Á Yfir helgina stöðvuðust sam- göngur í París að miklu leyti vegna verkfalla. Ástandið er nú að færast í eðlilegt horf. Ár Hinn nýskipaði yfirmaður jórdanska hersins, Ali El-Hayy- ari, er flúinn til Sýrlands. Sagði hann ástæðuna fyrir flóttanum vera þá, að Hussein konungur væri undir áhrifum erlendra ríkja. Mnður drukknai HAFNARFIRÐI: — ÞaS sviplega slys varð síðastliðinn laugardag, að ungan mann, Sighvat Guð- mundsson, sem ættaður er frá Stykkishólmi, tók út af vélbátn- um Fróðakletti þar sem hann var að veiðum. Vildi þetta til um kvöldið og varð manninum ekki náð. Sighvatur heitinn var 22 ára, ókvæntur, en átti foreldra á Iífi. — G.E. ar bregðast við, er þeir heyra leik þeirra félaga. Forsala aðgöngumiða hefst í dag í Vesturveri, Aðalstræti. - Wfaite hershöfðtogi Framh. af bls. 1. LANDAFRÆÐI OG VÍSINDI Það eru tvö atriði sem liggja til grundvallar þessari hörðu baráttu: landafræði og vísindi. Hið fyrra gerir ísland, scm er hornsteinninn í hvelfingum Norður-Atlantshafsins, að stað sem er þýðingarmikill bæði til varna og árása. Hitt atriðið, vísindin, hefur f för með sér nýtízku langdrægar eldflaugar sem hæft geta helztu iðnaðarmiðstöðvar Rússlands — og Norður-Ameríku. ÖFLUGT VIRKI Hingað til höfum við verið hlutskarpari. A íslandi er hinn víðáttumikli Keflavíkur-flugvöll- ur með 3000 bandarískum flug- mönnum og hermönnum og nýj- ustu tegundum af þotum. Með þessari herstöð hafa her- foringjar Atlantshafsbandalags- ins öflugt vígi, sem hrundið getur öllum árásum Rússa, löngu áður en þeir ná markmiðum sínum. Jafnframt verndar hún sigl- ingaleiðir Atlantshafsins og er nauðsynleg birgðastöð fyrir flug- vélar og annan útbúnað sem fluttur er til að efla varnir Ev- rópu. UMMÆLI WHITES Utstöðvarnar í norðri geta reitt sig á Keflavík sem vel útbúna birgðastöð. Eins og yfirmaðurinn í Keflavík, John White hershöfð- ingi, segir, þá er augljóst að „bæði austur og vestur munu óhjákvæmilega sæk jast mjög eftir ir yfirráðum á tslandi, ef til styrj aldar kemur. Sá aðilinn, sem hef- ur þau núna, hefur í höndum öfl- ugt tæki sem hvetur aðra til var- úðar og nægir til að hindra flest- ar fyrirætlanir óvinarins“.“ 1 niðurlagi greinar sinnar fer Gordon mörgum orðum um inn- anlandsástandið á íslandi og var- ar við hinum stórauknu og hættu legu áhrifum kommúnista á í»- lenzk málefni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.