Morgunblaðið - 24.04.1957, Page 12

Morgunblaðið - 24.04.1957, Page 12
12 MORGVNBLAÐIÐ MiSvikud. 24. aprfl 1957. Marteinn Þorsteinsson áttræður í>EGAR rætt er um merka at- hafnamenn, minnist ég ávallt Marteins Þorsteinssonar, kaup- manns og útgerðarmanns frá Búðum i Fáskrúðsfirði. Það þótti á þroskaárum hans mikill fengur ef duglegir athafnamenn settust að í sveitum landsins og höfðu forustu um umbætur og veittu atvinnu, sem þá var mikill skort- ur á. Við sjávarsíðuna voru þá aðalverkefnin, sem ráðist var í, útgerð og kaupmennska. Þótti Þá vel, ef þessir tveir þættir at- hafnanna studdu hvor annan. Á tilraunir til þessara framfara, litu menn þá með augum vel- vildar. Þá var ekki risin hér á landi sú alda, sem fól í sér hatur til athafnamannanna og það áiit, að þeir væru hættulegir athafna- lífi landsins, en útgerðarmenn- irnir, sem færðu björg í bú úr sjónum, væru einnig varhuga- verðir arðræningjar. Marteinn Þorsteinsson er fædd ur að Stafafelli í Lóni 23. apríl 1877, Marteinssonar, bónda að Svínhólum i sömu sveit. Móðir hans hét Jóhanna Ófeigsdóttir. Má rekja ætt hans til presta og annarra merkismanna. Þorsteinn faðir hans, fluttist skömmu seinna að litlu og kostafáu koti, Steinaborg á Berufjarðarströnd. Þar ólst Marteinn upp. Þegar hann kom út á morgnana, blasti við augum hans fagur fjallahring- ur, frá Lónsheiði til eystri strandar Berufjarðar. í því víð- sýni bar mest á sérkennilegu og fögru fjalli, Búlandstindi. Munu hrifin augu hins unga manns oft hafa hvílt á þeim tignartindi, og lyft undir stórhug hans. Faðir Marteins var hygginn búsýslumaður og glöggskyggn á það, að nytja til hlýtar öll gæði hinnar kostarýru litlu jarðar og var talinn einn af merkustu bændum sveitar sinnar, fram- takssamur, áræðinn og íhugull athafnamaður. Þessa kosti ásamt skapfestu föðursins, erfði Mart- einn sonur hans. Ungur fór Marteinn í búnaðar- skólann í Ólafsdal og naut þar kennslu og þess, sem mest var í varið, áhrifa hins víðkunna og hugumstóra framfara og ágætis- manns, Torfa skólastjóra. Seinna komu þau áhrif í ljós í öllu starfi nemendanna á Iangri og viðburða ríkri ævi, þó eigi yrði hann land- bóndi. Athafnaþráin og hagsýnar gáfur hans, ásamt stórhug, beind- ust í aðra átt. Að búnaðarprófi loknu, árið 1906, varð hann um tfana barnakennari í Berunes- hreppi, en gerðist þá útgerðar- maður og formaður á árabát. Síð- an stundaði hann útgerð, ásamt öðrum störfum í hálfa öld. Jafn- framt vann hann að verzlunar- störfum hjá Örum & Wulf í 15 ár. Árið 1920 stofnaði hann íirmað Marteinn Þorsteinsson & Co. á Búðum í Fáskrúðsfirði. Stýrði hann því, ásamt útgerð, með frá- bærri hagsýni, reglusemi og skap festu. Stofnfé var mjög af skorn- um skamti, og þar af leiddi örðug leika í fyrstu. En þá var það annað, sem hjálpaði. Hið fagra útlit stofnandans og drengileg framkoma, ásamt glaðværð og skapfestu, hrifu bæði erlenda og innlenda menn, sem hann leitaði lána hjá og skilvísi hans og reglu semi varð seinna viðbrugðið. Annars var hann hlédrægur og hafði sig lítið í frammi. Það varð að neyða hann til þess að taka við trúnaðarstörfum og forustu. Á þann hátt varð hann hrepps— nefndarmaður í 15 ár og gjald- keri og formaður tveggja félaga, búnaðarfélags og sparisjóðs Fáskrúðsfjarðar frá stofnun þeirra, þar til hann flutti til Reykjavíkur, fyrir skömmu. Þá hafði hann með höndum bókasölu um langt skeið og var einn af stofnendum Slysavarnafélags fs- lands. Einnig var hann í Sölu- sambandi ísl. fiskframleiðenda. Þó mun ýmislegt af trúnaðar- störfum hans ótalið. Þau hafði hann öll með höndum, ásamt um- fangsmiklum störfum, sem for- maður verzlunarfyrirtækis og út- gerðar. Kvæntur var Marteinn Rósu Þorsteinsdóttur, ágætri konu, sem hann harmar mjög. Eignuðust þau fjögur mannvænleg börn. Auk þess ólu þau upp 2 munað- arlaus börn. Mér þótti hlýða að kynna, að nokkru, þennan aldna sæmdar- mann, sem nú prýðir höfuðstað landsins, um leið og sumir aðr- ir íslendingar, með erlendum hugsjónum og hugsunarhætti, vinna opinberlega að hnignun hans og jafnvel fjárhagshruni. En Marteinn Þorsteinsson, vann ávalt af heilum hug að heill þess staðar, þar sem hann átti heima. Og vafalaust er hann einn af þeim heilbrigðu mönnum, sem skilur það mikilvægi, sem höfuð- staðurinn er fyrir sérhvert þjóð- félag. Ég bið guð að blessa þennan áttræða vin minn. Bjarni Sigurðsson. Afgreiðslustarf Piltur eða stúlka óskast í fataverzlun. — Tilb. sendist Mbl. fyrir mánaðamót merkt: „Lipur —5469u. Rafmótor 100 hesta slípihringja rafmótor 2800 snún- inga 220 volta, óskast til kaups. Síldar & Fiskimjölsverksmiðjan Kletti Vanur og áreiðanlegur Verzlunarst}órí óskast í kjöt- og nýlenduvöruverzlun. Listhafendur leggi nöfn sín inn á afgr. Mbl. merkt: „5480“. Halastjörnni 09 heimsendir Fyrr á öldum hræddust menn fyrirbrigðið. OALASTJÖRNUR eru það nátt úrufyrirbæri, sem menn hafa um aldir haft mestan beyg af. Ætíð vöktu þær upp hræðslu við heimsendi og hvers kyns óár- an og óhöpp voru talin fylgja þeim. Þannig skrifaði t.d. Oddur Ei- riksson í Fitjaannál 1680, þegar Halleys-halastjarnan birtist sem i oftar: — Ari Arnalds Framhald af bls. 6. sínum málum. En þeim sáttmála má hvor aðili um sig segja upp. Fundurinn mótmælir allri sátt- málsgerð, sem skemmra fer. og telur þá eigi annað fyrir höndum en skilnað landanna, ef eigi nást slíkir sanmingar, sem nefndir voru“. „Uppsagnarrétturinn er merg- urinn máisins". „Stefnumáli Landvarnarmanna, personal-union. eða skilnaði, höfðu þeir einir barizt fyrir, allt til Þjóðfundar þessa. Með sam- þykkt Þjóðfundarins margfaldað- ist sá hópur íslendinga, sem settu sér að markmiði stefnu Land- varnarmanna um sjálfstæðiskröf- urnar. Nú bættust við: ísafoldar- raenn, Þjóðólfsmenn, Þjóðvilja- menn, Fjallkonumenn og fylgj- endur blaðsins Norðurland. Þess- ir allir höfðu, með samþykkt Þjóðfundarins, tekið höndum saman um fastákveðnar kröfur fyrir þjóðarinnar hönd, sem ekki skyldi víkja frá.“ Frásögn sinni um Landvarnar- menn lýkur Ari þannig í Minn- ingum sínum: „Mættu nútíma og framtíðar kynslóðir verða ekki síðri Land- varnarmönnum í því að sameina íslendinga um að vera jafnan á verði um andlegt og fjárhagslegt sjálfstæði' þjóðar og einstakl- inga.“ Landvarnarmenn og þeir sem höfðu tekið höndum saman við þá á þjóðfundinum 1907 voru eftir það nefndir einu nafni Sjálf- stæðismenn. ★ ★ í hinum sögulegu kosningum um sambandslaga-„uppkastið“ 1908 átti Ari þess kost, að vera í kjöri í Barðastrandarsýslu, en þar áttu Landvarnarmenn mikið fylgi og Ari öflugan frændstyrk. Var kosning hans talin þar örugg og framboðið fastákveðið. En ör. uggt kjördæmi vantaði til þess að bjóða Björn Jónsson ritstjóra fram, helzta bandamann Land- vamarmanna í andstöðunni við „uppkastið". Bauðst Ari þá til þess að hætta við framboðið, ef Björn vildi koma í sinn stað og •/arð það að ráði. Síðar var ákveðið, að Ari skyldi boðinn fram í Stranda- sýslu, en framboð þar talið von- laust gegn Guðjóni Guðlaugssyni, :em verið hafði þingmaður kjör- dæmisins í 15 ár, búsettur í kjör- dæminu og vinsæll. Þó fóru leik- ar svo, eftir harða baráttu, að Ari var kjörinn þingmaður Strandamanna í þessum kosn- ingum. í næstu þingkosningum árið 1911 féll Ari með tveggja atkv. mun, vegna þess að bátur með níu kjósendum hans varð að hleypa í var undan veðri og kjósendurnir komust ekki á kjör. stað og sjálfum var honum neit- að um leyfi til þess að fara norð- ur í kjördæmið fyrir kosningar frá störfum sínum í stjórnarráð- inu. Ekki gaf Ari oftar kost á sér íil þingsetu og hætti hann að mestu afskiptum af stjórnmálum árið 1912. í endurminningum sínum seg- ir hann: „Ég minnist þess ekki, að í minni tið hafi föðurlands- ástin náð fastari tökum á hug alþjóðar en við alþingiskosning- arnar 1908“. Slíkt hið sama hafa mælt margir fleiri merkir menn. Barátta Landvarnarmanna á fyrsta tug aldarinnar sameinaði meirihluta þjóðarinnar um henn- ar helgasta mál, sjálfstæðismálið. Alltaf stóð Ari dyggilega á verði í sjálfstæðismálunum. Síð- ast tók hann virkan þátt í lýð- veldiskosningunum 1944 með ágætu útvarpserindi. Svo segir Ari: „....Það mun ekki hvíla minni vandi á hönd- um framtíðarkynslóðanna að varðveita fengið frelsi, en sá vandi hefur reynst að afla þess“. ★ ★ Ari gerðist árið 1909 aðstoðar- maður í fjármáladeild stjórnar- ráðsins. Skipaður var hann sýslu- maður í Húnavatnssýslu 1914 og sýslumaður í Norður-Múlasýslu og bæjarfógeti á Seyðisfirði 1918. Gegndi hann því starfi til ársins 1937. Fluttist hann til Reykja- víkur 1941 og starfaði í endur- skoðunardeild fjármálaráðuneyt- isins til ársins 1947. Ari gerði sér far um að jafna deilur manna og beita ekki sverði laganna að óþörfu, þó var hann röggsamt yfirvald og er talið, að hann hafi kveðið upp 1113 dóma og úrskurði í embættisferli sín- um. Stóðust dómar hans vel fyrir yfirrétti og Hæstarétti, þegar þeim var áfrýjað, sem sjaldan kom fyrir. Á síðustu æviárum sinum rit- aði Ari þrjár bækur, sem út hafa verið gefnar: Minningar, Sólar- sýn og Örlagabrot. Auk þess skrifaði hann fjölda greina í blöð og tímarit. Dagbækur hélt hann um langt skeið, en svo ilia vildi til að hann missti þær flest- ar ásamt öllum öðrum eigum sín- um í brunanum á Amtmannsstíg 17. nóv. 1946. Bjargaðist hann þá sjálfur nauðuglega. Ari var afbragðsvel ritfær og spái ég þvi, að Minningar hans muni oft verða endurprentaðar, enda seldust þær upp á skömm- um tíma. Ari var kvæntur glæsilegri konu, Matthildi, dóttur Einars Hjörleifssonar Kvarans, og eign- uðust þau þrjá syni, Sigurð heild- sala, Einar borgardómara og Þor- stein skrifstofustjóra. Þau hjón slitu samvistir. Ari tók sér ættarnefnið Arnalds árið 1916 og halda afkomendur hans því nafni. Ari Arnalds var mikill maður vexti og þreklega vaxinn, fágað- ur og kurteis í framkomu og all- ur hinn höfðinglegasti. Hann vakti því eftirtekt hvar sem hann kom og átti jafnan vmsældum að fagna. Hann var vinfastur og góð viljaður öllum mönnum, en hauð- vítugur og happasæll baráttu- maður í frelsismálum þjóðar sinn ar á yngri árum. Nafn hans mun varðveitast með sóma á spjöldum íslandssög- unnar á ókomnum öldum. Ari Arnalds andaðist á heimili sinu af hjartabilun á pálmasunnu dag hinn 14. þ. m., kominn hátt á 85. aldursár. Sveinn Benediktsson. „BARDAGAR OG BI.ÓÐSÚT- HELLINGAR, ÁVAX \LEYSI JARÐAR“. „Um veturinn (nærri hálfum mánuði) fyrir jól, sást hala- stjarna í vestri með löngum geisla rétt upp í loptið, sem regn- bogi; var fyrst lágt við vestur- hafið en hækkaði síðan óðum dag frá degi (sást fram á þorra á eptirkomandi vetri). Lærðir menn segja, að cometurnar boði stóran háska og umbreytingar, bæði í andlegri stétt og verald- legri, sem væri bardagar og blóðs úthellingar, ávaxtaleysi jarðar, hungur og sjúkdómar meðal manna og margan meðfylgjandi voða, hvað sérdeildis fyrirsagt var af lærðum mönnum um þá cometu (eða halastjörnu) sem sást á jólum öndverðum 1664. Ljós og teikn sáust í loptinu viða. í Frankaríki náðist fiskur með mannsásjónu, en hitt neðra eins sem fiskur, það allt utan fullt með stríðsvopn, pístólur, korða. Pest gekk mikil í Þýzkalandi; fyrir henni sást um nótt líkför með brennandi fackelum fyrir framan, klukkur hringdu sér sjálfar, fólk sýndist fylgja í sorgarklæðum". I ! I Tæpum tveim öldum síðar ern menn teknir að hugsa á vísinda- legri hátt. Þá skrifaði Jónas Hall- grímsson svo: „EKKERT VIT ER NÚ SAMT í NEINU AF ÞVÍ". „Opt hafa menn eignað hala- stjörnum margskonar atburði og gjöra það sumir enn, til að minda, breítíngu á á veðráttu- fari og heílsufari manna, og meíra að seígja, stríð og stirjöld, og dauða margra merkra og ó- merkra konúnga; ekkjert vit er nú samt í neínu af þvi. Ef vjer söfnum oss frásögnum um veðr- áttufar úr fornöld og til vorra daga, sjáum vjer, að komið hafa harðir vetur og blíðir, og köld sumur og heit, hvurt sem að halastjörnur hafa verið á himni eður ekki. Hvurnig ættu og hala- stjörnur, eður nokkur annar himinknöttur að ráða veðri á jörðunni, sem aldreí er eíns á henni allri? optlega er harður vetur á íslandi og vægur firir sunnan Mundíafjöll, og aptur ber svo undir, að þar er vondur vet- ur og blíðviðri aptur á Islandl og í Rússlandi; sumstaðar gánga einlægir brakaþurkar, þegar vjer sjáum ekki regnlausan dag, og þó má nærri gjeta, aö hala- stjörnunrnar irðu að valda svip- uðu veðráttufari um öll lönd, ef þær hefðu nokkur áhrif á það á það á annað borð. Svo er og um sóttir, að þær koma ekki ifir alla jörðu í eínu, og þótt ára- skipti verði að þeím, og þær fari stundum víða um lönd, eins og svarti dauði ,er samt lángt frá, að halastörnurnar gjeti átt nokkurn þátt í þeim; því þegar að er gáð, höfðum vjer að tiltölu jafnmargar sagnir um drepsóttir þegar halastjörnur voru á lopti og þegar aungvar þeirra var að sjá. Vjer skulum nú taka oss dæmi; Svarti dauði kom first upp 1347, norðaustur í Asíu, og gjekk ifir öll lönd Norðurálfunnar; hann gjeisaði first um strendurn- ar, og færðist svo innum lönd- in. Þjóðirnar hnigu firir sverði morðeíngilsins, og konúngarnir og hetjurnar dóu. 5 ár, frá 1347 til 1351, gjekk dreppsóttin mest ifir Európu, og bæði þessi ár sáust miklar halastjörnur; þær hefðu þá átt að gjera hvurt- tveggja, að koma með pestina og ljetta henni af.!! Svarti dauði gaus upp aptur 1356 og var þá verri en nokkru sinni áður; og seínna gjeísaði hann ifir löndin 1367 til 1374; enn þá sást eíngin halastjarna, firr enn ári seínna, þegar drepsóttinni var afljett, og laungu seínna komst sóttin út á Island, og var þá ekki annarstað- ar um sama leiti“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.