Morgunblaðið - 24.04.1957, Síða 14
14
MOKCVNBLAÐIÐ
Miðvikud. 24. apríl 1957.
Hefi kaupanda
að 5—7 herb. einbýlishúsi í bænum eða nágrenni
hans. — Útb. kr. 200—300 þús. eða meira.
EINAR SIGURÐSSON
lögfræftiskrifstofa, — fasteignasala, Ingólfstr. 4, sími 6959
í Kvikmyndir *
sJWaddalena"
ÞAÐ hefur verið venja kvik-
myndahúsanna hér, að vanda
mjög val á kvikmyndum til sýn-
inga um páskana. Sú hefur einnig
orðið raunin á að þessu sinni.
Má heita, að allar kvikmyndir,
sem hér eru sýndar um þessar
mundir séu einkar góðar og sum-
ar ágætar.
Ein ágætust og áhrifamest er
þó tvímælalaust kvikmyndin
„Maddalena“, sem Laugarásbíó
sýnir. Myndin er ítölsk gerð af
Tilanusfélaginu, en það kvik-
myndafélag gerði einnig hina frá-
HONIG
TRADST MERKI
Hvar A ISLANDI, sem þér
verzllð, iriuniS þér finna þetta
vörumerkl frA elnnl þekktustu
matvöruverksmiðju Evrópu.
Þegar þér blSJlS um HONIG
Súputenlnga, Makkarónur,
Spaghettl, Súpur, BúSlnga o.fl.,
getlS þér treyat þvi aS kaupa
góða vöru & aanngjömu terSL
SAZ2
Laus sfaða
Fangavarðarstaða í hegningarhúsinu í Reykjavík
er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launalögum.
Umsóknir með upplýsingum um aldur og fyrri störf
sendist undirrituðum fyrir 8. maí n.k.
Reykjavík, 23. apríl 1957.
Sakadómara
Höfum ávallt fyrirliggjandi þessar
HOIMIG vörur
SÚPUTENINGAR
MACCARONI
SPAGHETTI
BÚÐINGSDUFT ýmsar tegundir
SÚPUR fjölda tegunda
Reynið hinar ágætu hollensku HONIG-vörur
ert
UR-WICK - AIR-WICK
Lykteyðandi og lofthreinsandi undraefni.
Njótið ferska loftsins innan húss ailt árið.
Aðalumboð:
ÖLAFUR GÍSLASON & CO. H. F.
Sími 81370
5 herbergja íbúð
við Blönduhlíð er til söiu. — Semja ber við
málflutningsskrifstofu
GÚSTAFS ÓLAFSSONAR
Austurstræti 17, sími 3354 og 1355.
Vekið stóraukna aðdáun...
Munið, að augu fjöldans hvíla á yður, —
það verður tekið eftir fötum yðar. Þér getið
fengið hretnan þvott með algengu þvotta-
dufti, en ekkert nema hið bláa Omo skilar
yður mjallhvítum þvotti. Mislitu fötin koma
líka skærari úr ilmandi Omo froðu heldur
en þér hafið áður séð. Þetta er af þvi, að
Omo nær burtu hverskonar óhreinindum,
hverjum bletti, hversu grómtekin sem föt-
in eru. Reynið hið bláa Omo næst. Þér
finnið muninn, þegar þér notið Omo.
H!Ð BLÁA OMO SKILAR^. VDUB
neiMsm wímm wáfmi
* OMO 15/.-2
bæru kvikmynd „Frakkann", sem
Laugarásbíó sýndi hér fyrir
nokkru.
,,Maddalena“ er vissulega vel
fallin til sýningar um páska, því
að hún fjallar um páskahátíð og
gamlar siðvenjur við það tæki*
færi, í litlu ítölsku þorpi. Hefur
það verið venja um langan aldur
í þorpi þessu, að efna til helgi-
göngu á föstudaginn langa. Er
þar rakin píslarganga Frelsar-
ans og koma þar fram helztu
persónur píslarsögunnar. — Að
þessu sinni er ekki hægt að fá
í þorpinu unga stúlku, er hæfi
í hlutverk Maríu meyjar. — Það
verður því úr fyrir hrekkjabrögð
eins áhrifamesta mannsins þar,
sem vill ná sér niðri á prestin-
um, að valin er í hlutverkið ung
stúlka, sem hann sækir í hús
vændiskvenna í næstu borg. —
Stúlka þessi, sem er fögur ásýnd-
um hefur orðið fyrir sárum von-
brigðum í lífinu, tekst hlutverk-
ið á hendur mest til þess að hefna
sín á Maríu mey. — Henni er í
fyrstu tekið illa af þorpsbúum —
og nú hefst hennar eigin píslar-
ganga. í þeim miklu og áhrifa-
ríku átökum sýnir þessi stúlka,
að þrátt fyrir liferni sitt á braut
vændiskonunnar, er hún hjarta-
hrein og gædd göfgi og mann-
kærleika, — svo að jafnvel krafta
verkið gerist fyrir áhrif hennar.
— Mannfjöldinn hyllir hana því
og dáir. — En þá kemur hinn
ófyrirleitni áhrifamaður, sem
valdi hana i hlutverkið aftur til
sögunnar. Hann hefur reynt
árangurslaust að ná ástum stúlk-
unnar og í reiði sinnar brýst
hann inn í mannþyrpinguna og
segir nú öllum lýðnum hver þessi
„María mey“ raunverulega er.
Mynd þessi er átakanleg og
hrífandi og gefur glögga hug-
mynd um einlægan trúarhita
kaþólskra manna í suðrænum
löndum. Og boðskapur hennar á
erindi til allra manna hvaða trú
sem þeir kunna að játa. Myndin
er ágætlega tekin og sett á svið
og aðalhlutverkin frábærlega vel
leikin. Má þar fyrst nefna sterk-
an og innlifaðan leik Mörtu
Toren í hlutverki Maddalenu,
hinnar ungu stúlku og Gino
Cervi er leikur snilldarlega prest-
inn og Chales Vavel í hlutverki
Giovanni’s þess er ógæfunni veld-
ur.
Myndin er í litum. Er hér um
óvenjugóða mynd að ræða.
„Óskabrunnurinn**
MYND þessi gerist aðallega f
hinni fögru borg, Róm, og einnig
lítilsháttar í Feneyjum. — Þrjár
ungar stúlkur, amerískar, sem
þar vinna, eru staddar við „Óska-
brunninn", fagran gosbrunn I
borginni eilífu, en hver sem kast-
ar pening í þennan brunn áður
en hann fer úr borginni og óskar
sér að mega sjá hana aftur, fær
ósk sína uppfylta. — Þessar ungu
stúlkur henda hver sínum pening
í brunninn, — og nú er að vita
hver verða örlög þeirra. Um það
fjallar myndin. Efni myndarinn-
ar er ekki stórbrotið og því ekki
ástæða til að rekja það. En þaS
er þó ekki leiðinlegt og enda
fremur skemmtilegt á köflum og
vel leikið. — Það sem þó gefur
myndinni verulegt gildí er að
áhorfandanum gefst kostur á að
sjá fegurstu hverfi Rómaborgar
og Feneyja og dásamlegt lands-
lag ítalskrar sveitabyggðar. —
Verður það út af fyrir sig áhorf-
andanum ógleymanlegt og þykir
mér líklegt að vakni með mörg-
um sem myndina sjá, sterk löng-
un til þess að fá að njóta allrar
þessarar fegurðar í veruleikan-
um. — Myndin er í litum og sem
sagt mikið augnayndi, þrátt fyr-
ir lítið efni.
Ego.
þíRARtmtJbnsscM
lOGGIlTUR SIUALAÞYOANDl
Kirm*