Morgunblaðið - 24.04.1957, Blaðsíða 20
Yeðrið
Hvasst og rigning upp úr
hádeginu
®röiiwM®MIS>
91. tbl. — Miðvikudagur 24. apríl 1957.
Eldflaugar í loffhernaði
Sjá bls. 11.
Þúsundir bæjarbúa horfðu á
halastjornu i fyrrakvöld
A björtum kvöldum næstu vikur
verður hægt aÖ fylgjast með
göngu hennar
^OKKRU fyrir miðnætti í
fyrrinótt þustu þúsundir
bæjarbúa, sem enn voru á
stjái, út á göturnar til þess að
horfa á merkilegt fyrirbæri á
festingu himinsins: Hala-
stjörnu, — þá skærustu og
einu, sem hægt hefur verið að
greina með berum augum frá
því á árinu 1910. Hér var kom-
in Arend-Roland halastjarn-
an. Var það prófessor Trausti
Einarsson, sem fyrstur manna
vakti athygli á halastjörn-
unni á norðvesturhimni. Dans
Iagakynnir útvarpsins gerði
hlé á til þess að skýra hlust-
endum frá þessu. — í fyrra-
kvöld var stjörnubjartur him-
inn hér í Reykjavík.
... k
Stjörnufræðingar um heim all-
an hafa fylgzt með för þessarar
halastjörnu frá því hún birtist
fyrst hinn 8. nóvember síðastl.
stjörnufræðingum í Belgíu.
Ilalastjarnan séð ofan úr Rauðar-
árholti. — Út við sjóndeildar-
hringinn sjást ljósin á Akranesi.
(Ljósm. Mbl.)
og nær þangað í lok maímánaðar.
En eins og fyrr segir, þá verður
halastjarnan vart sýnileg hér á
landi um það leyti.
...-----+
83—176 MILLJÓNIR KM.
Þá skýrði próf. Trausti Einars-
son frá því til frekari glöggvunar,
að á miðnætti í fyrrakvöld, er
þúsundir bæjarbúa hafi horft á
halastjörnuna, hafi hún verið í
83. milljóna km. fjarlægð frá
jörðinni! Hali stjörnunnar sást
glögglega, en Benedikt Gröndal
lýsir honum snildarlega í kvæði
sínu: Halastjarnan 1958: „Eld-
faldin hrönn þér undan freyðir,
óttaleg bæði og meginfríð". Þessi
hrönn er hvorki meira né minna
en um 10 millj. km. á lengd, eða
um 1/15 fjarlægðarinnar milli
sólar og jarðar. — Þessar tölur
og aðrar er ég nefni hér á eftir,
sagði próf. Trausti, eru tölur sem
japan-kur stjörnufræðingur hef-
ur gefið upp um göngu þessarar
halastjörnu.
... - —
Á miðnætti á föstudagskvöldið
verður halastjarnan komin í 93.
millj. km. fjarlægð, hinn 6. maí
í 132. millj. km, og enn þokast
hún æ lengra og verður fjarlægð-
in milli hennar og jarðar orðin
146 millj. km. 6. maí. Um miðjan
maí, en þá telur próf. Trausti
sennilegt að ekki verði hægt að
greina hana með berum augum
hér; verður halastjarnan þá kom-
in í 176 millj. km. fjarlægð frá
jörðu.
Cleymd kvœði lesin
á sumarfagnaði
S túd entafélagsins
IKVÖLD efnir Stúdentafélag Reykjavíkur til sumarfagnaðar
í Sjálfstæðishúsinu. Verður þar margt til skemmtunar.
Friðfinnur Ólafsson forstjóri mun flytja ræðú á miðnætti og
fagna sumri. Stúdentafélagið hefir í mörg ár gengist fyrir sum-
arfagnaði sem þessum síðasta vetrardag og er ekki að efa að
hann verður fjölsóttur að venju.
I 2—3 VIKUR
í gær átti Mbl. stutt samtal við
próf. Trausta Einarsson um hala-
stjörnu þessa. — Prófessorinn
kvaðst telja líklegt að hægt yrði
á björtum kvöldum næstu tvær
til þrjár víkurnar að fylgjast með
ferðum halastjörnunnar, á leið
hennar um stjörnuhimininn. Hún
mun smám samán þokast til vest-
urs, og hærra, og þá jafnframt
fjarlægjast jörð og sól. Einnig
kemur þar til greina að nóttin
verður nú bjartari og eftir því,
sem halastjarnan færist fjær jörð
og sól mun ljósmagn hennar
dvína og verður um miðjan maí
aðeins kringum 1/15 af því, sem
nú er.
...----
GANGA STJÖRNUNNAR
1 gærkvöldi var halastjarnan í
Andromedumerki, fer í kvöld,
miðvikudagskvöld, inn í Perseus-
merki og að kvöldi 27. apríl fer
hún rétt ofan við aðalstjörnuna í
því merki Algenib, sem er björt
stjarna af II. stærð. — Að kvöldi
29. apríl er hún komin inn í
Giraffamerki og gengur þar all-
langt fyrir ofan Kapellu, sem er
aðalstjarnan í ökumannsmerki,
með stefnu á stjörnuna O í Stóra-
Birni, sem er III. stærðar stjarna
GÖMLU KVÆÐIN
Til skemmtunar verður það að
Guðmunda Elíasdóttir mun
syngja einsöng. Þá fer Ævar
Kvaran leikari með gömul kvæði.
Hér er um að ræða gömul skóla-
kvæði góðkunnra borgara sem
þeir orktu endur fyrir löngu á
skólaárum sínum í Menntaskólan-
um í Reykjavík, og hafa sumir
hverjir lítt verið við yrkingar
kenndir síðan. Hefir Einar Magn-
ússon menntaskólakennari grafið
kvæðin og lausavísurnar upp og
safnað þeim saman í þessu tilefni.
Eru kvæði þessi mörg hm
skemmtilegustu og ekki þarf að
taka það fram að hvergi hafa
þau birzt áður.
Þá fer og fram Ijóðagetraun,
sem allir viðstaddir taka þátt í.
Alþingi
f DAG kemur Alþingi aftur sam-
an til funda að loknu páskaleyfi.
Er aðeins fundur í Sameinuðu
þingi í dag og er þetta á dag-
skrá:
1. Minnzt látins fyrrv. alþing-
ismanns. — 2. Alþjóðasamþykkt
varðandi atvinnuleysi, þáltill.
Hvernig ræða skuli. — 3. Skóla-
skip, þáltill. Fyrri umr.
YVormót S.U.S.
Hið fyrslít verður að
Hellu n.k. laugardag
í UNDANFÖRNUM árum hefur Samband ungra Sjálfstæðismanna
fl efnt til vormóta víðsvegar um landið. Þessi mót hafa jafnan
tekizt mjög vel og verið f jölsótt, enda alltaf vel vandað til dagskrár.
Fyrsta mót S.U.S. á þessu vori verður haldið n.k. laugardag,
þ. 27. apríl að Hellu á Rangárvöllum og hefst kl. 8,30 e.h.
Að þessu sinni munu m. a. þeir Kristinn Hallsson, óperusöngvari
og Ævar Kvaran, leikari lesa upp og syngja einsöng og tvísöng.
Síðan verður dansað.
Ennfremur er fyrirhugað að halda vormót á Akranesi þ. 18. maí.
Nánar verður frá móti þessu greint á næstunni.
Æfingar á Kefla-
víkurflugvelli
UM ÞESSAR mundir standa yf-
ir æfingar varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli. í gær mun hafa
farið fram æfing þar, og var þá
öllum Bandaríkjamönnum, bú-
settum í nágrenni flugvallarins,
svo sem í Keflavík og Njarðvík-
um, sagt að koma á tiltekinn
stað á flugvellinum, undir það
búnir að vera fluttir á brott það-
an. Sömu fyrirskipanir munu
Bandaríkjamenn á flugvellinum,
aðrir en hermennirnir, hafa feng-
ið.
Haldið mun verða áfram öðrum
svipuðum æfingum næstu daga.
Þessi mynd er af einu málverka Örlygs Sigurðssonar, listmálara,
sem nú er til sýnis á vegum Listkynningar Mbl. Nefnir listamaður-
inn hana „Sjúkraheimsókn í „þurrkví“ “
Fjögur rússnesk skip
hofu legið í viku inni
ú Hesteyrurfirði
ísafirði, 23. apríl:
RÚSSNESKU SKIPIN, sem komu inn á ísafjarðardjúp miðviku-
daginn fyrir páska og lögðust við akkeri inni á Hesteyrarfirði
í Jökulfjörðum hafa legið þar nær samfieytt síðan. Skipin eru
fjögur en tvö þeirra fóru um skeið burtu. I morgun munu þau
aftur hafa legið öll á Hesteyrarfirði.
Einhver skipa þessara munu
vera selveiðiskip, sem unnið er að
viðgerð á, þar sem þau liggja.
Hér vestra hafa ferðir þessara
skipa vakið mikla athygli, ekki
sízt vegna þess að þau hafa dval-
ið í viku inni á fjörðum í ís-
lenzkri landhelgi, án þess að
ganga frá skilríkjum sínum. En
samkvæmt íslenzkum lögum ber
þeim að gera það innan 24. klst.
frá því að þau leituðu lands.
Engin byggð er nú í Hesteyrar-
firði. Næsta byggð við hann er í
Aðalvík, þar sem unnið hefir ver-
ið að byggingu radarstöðvar fyr-
ir varnarliðið.
Dauðaslys á Rifi
ísafirði, 23. april.
MIÐVIKUDAGINN fyrir páska vildi það slys til að Björn Krist-
jánsson frá Sandi drukknaði skammt frá höfninni á Rifi, er
hann var á hrognkelsaveiðum ásamt bróður sínum, Jóhanni Gunn-
ari Kristjánssyni.
Þeir bræður höfðu farið frá
Sandi laust eftir hádegið til að
gæta netja sem þeir áttu í sjó.
Suðvestan stormur var og brim
og gekk á með snjóéljum.
Bátnum hvolfdi undir þeim. —
Vélbáturinn Ver frá Isafirði, sem
fór frá Rifi um klukkan 2 um
daginn til að leita loðnu. Var
báturinn kominn að innstu bauj-
unni við innsiglinguna á Rifi, er
skipverjar á bátnum sáu hvar
lítill bátur maraði í sjórvum
og var maður uppi á bátnum.
Skammt þar frá sáu þeir hvar
maður flaut í sjónum.
Skipverjum á Ver tókst fljótt
og vel að bjarga báðum mönnun-
um. Síðan var haldið til Ólafs-
víkúr, en þangað er um 20 mín.
sigling. Strax tókst að ná sam-
bandi við Ólafsvík í gegnum tal-
stöð bátsins. Var héraðslæknir-
inn þar kominn fram á bryggj-
una er Ver kom þangað. Jóhann
Gunnar er verið hafði á kjöl báts-
ins var mjög meðvitundarlítill
er honum var bjargað, en hresst-
ist brátt. Hann hafði meiðzt lítils
háttar á fæti. Lífgunartilraunum
við Björn var haldið áfram sleitu
laust í tvo klukkutíma, en þær
báru ekki árangur. — J.
Hópíerð uð Hellu
HEIMDALLUR, fél. ungra Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík mun á
laugardaginn kemur efna til hóp-
ferðar að Hellu á Rangárvöllum,
en þar gengst SUS fyrir vormóti
um kvöldið.
Er ekki að efa að Heimdelling-
ar muni fjölmenna í þessa fyrstu
ferð félagsins á þessu surnri.
Ráðgert er að leggja af stað
frá Valhöll við Suðurgötu kl. 5,30
á laugardag.
•-----------
Heimdallur hefur undanfarin
sumur efnt til ferða víðsvegar um
landið og hafa þær átt miklum
vinsældum að fagna meðal félags
manna.
Allar nánari upplýsingar verða
gefnar á skrifstofu félagsins í
dag og föstudag frá kl. 10—5 og
á laugardag frá kl. 10—5. —
Sími 7103.