Morgunblaðið - 10.05.1957, Side 19
Föstudagur 10. maí 1957
MGXGTJ1V SL'ABIÐ
19
Dæmi nm stnrlsliætii Alþingis
í GÆR var í Neðri deild til
annarrar umræðu frumvarp um
iðnfræðslu. Talaði Emil Jónsson
fyrir frumvarpinu og kvað nefnd
ina hafa orðið sammála um að
mæla með því. Einn nefndar-
manna Bjarni Benediktsson hefði
verið fjarverandi fundi nefndar-
innar.
Bjarni Benediktsson kvaðst
vera sammála meðnefndarmönn-
um sínum um afgreiðslu málsins.
Bétt væri hjá framsögumanni að
hann hefði ekki verið viðstadd-
ur fundinn. Kvaðst hann vilja
gera grein fyrir fjarveru sinni
FÁGÆTAR BÆKUR
Bækurnar eru flestar gamlar
og allt frá 1696, og er það fimmta
útgáfa Passíusálmanna, sem er
mjög vel með farin. Þá má nefna
meðal lítt fáanlegra bóka frum-
útgáfu af kvæðum Bjarna Thor-
arensen, Bréf til Láru, eftir f>ór-
berg Þórðarson, óuppúrskorið
eintak, Skanderbergsrímur séra
Hannesar á Kíp, Ferðabók Þor-
valdar Thoroddsen, sem aðeins
er til í frumútgáfu, frumútgáfu
Blöndalsorðabókar, Kvæði og
nokkrar greinir um skáldskap
eftir Benedikt Gröndal, sem gef-
in er út í Kaupmannahöfn 1853.
Er það mjög fágæt bók.
90 NÚMER
Alls eru 90 númer á uppboðinu
og er þar að finna hinar ágætustu
bókmenntir. Auk einstakra bóka
verða seldir nokkrir númeraðir
bókapakkar og fáeinar tilskipan-
ir. — Næsta bókauppboð mun
ÆRA SIMATRA
ER DÝR
HOLLYWOOD, 9. maí: — Kvik-
myndaleikarinn og dægurlaga-
söngvarinn frægi, Frank Sinatra,
hefur farið í skaðabótamál við
„Cowles Magazine“ og rithöf-
undinn Bill Davidson ,og krefst
hann 2.300.000 dollara (um 50
milljónir ísl. króna) í skaðabætur
fyrir rógburð og lygar, sem birzt
hafi um hann í grein, er kom
í síðasta hefti tímaritsins „Look“
undir fyrirsögninni „Talent, tan-
trums and torment“ (Hæfileikar,
reiðiköst og kvalir). Sinatra seg-
ir, að greinin sé klúr, viðbjóðs-
leg og klunnaleg.
Dagskrá Alþingis
Efri deild.
1. Innflutnings- og gjaldeyris-
mál, fjárfestingarmál o. fl.
2. Gjald af innlendum tollvöru-
tegundum.
3. Söfnunarsjóður íslands.
4. Háskóli íslands.
5. Sandgræðsla og hefting sand-
foks.
Neðri deild.
1. Fasteignaskattur, (Atkvgr.)
2. Tollskrá o. fl. (Atkvgr.)
3. Útflutningsgjald af sjávaraf-
urðum.
4. Fiskveiðasjóður fslands.
5. Iðnfræðsla.
6. Ríkisreikningurinn 1954.
7. Sala Kópavogs og Digraness
og fleira.
Nehnu, forsætisráðherra
Indlands mun fara til Ceylon
innan skamms til viðræðna
við forsætisráðherrann þar
um ýmis sameiginleg vanda-
mál.
þar sem hann í vetur hefði hvað
eftir annað látið í ljós undrun
sína yfir því að nefndin héldi
ekki fund. Á fjarveru sinni væri
sú einfalda skýring að hann
hefði ekki fengið fundarboð og
hefði ekki fengið um fundinn að
vita fyrr en eftir að hann hafði
verið haldinn.
Beindi hann þeim tilmælum
til forseta að forsetar þingsins
hefðu um það samráð við nefnda
formenn að betur væri boðað til
funda en gert hefði verið á þessu
þingi. Oft hefði komið fyrir að
fundir væru slælega boðaðir og
Sigurður væntanlega halda í
október.
Framköllun --- Kopiering
Fljót og góð vinna. — Afgr.
Orlofsbúðin, Hafnarstræti 21. —
_ _ &
SKIPAIÍTGCRB RIKISINS
/ESJA“
austur um land í hringferð hinn
14. þ.m. Tekið á móti flutningi til
Fáskrúðsfjarðar, Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar, Norðfjarðar, Mjóa-
fjarðar, Seyðisfjarðar, Raufar-
hafnar og Kópaskers, í dag. Far-
seðlar seldir á mánudag. —
með litlum fyrirvara og næðist j
oft ekki í alla þá þingmenn er í |
nefndunum ættu að starfa. Taldi
hann þetta koma af því að svo
fá mál kæmu fyrir nefndirnar.
Væru þær því eins og gripur,
sem lengi hefði legið og illa gengi
að bera fyrir sig fæturna þegar
hann þyrfti að fara að ganga.
Emil Jónsson kvaðst hafa boð-
að fundinn með sólarhrings fyr-
irvara. Ennfremur sagði hann að
mál þetta hefði ekki legið lengi
fyrir nefndinni. Hjá henni hefði
aðeins legið fyrir eitt mál og
hefði það þegar með fjárlögum
fengið óbeina afgreiðslu.
Bjarni Benediktsson kvaðst
ekki hafa verið að átelja það að
málið hefði legið lengi hjá nefnd-
inni. Hins vegar stæði það óhagg-
að að hann hefði ekki fengið
fundarboðið.
Vinno
Hreingerningar
Vanir menn. Fljót og góð vinna.
Sími 7892. — ALLI.
Hreingerningar
Vanir menn. Fljót og vönduð
vinna. Hringið í síma 9883.
Félogslíi
Ungmennaféiag Reykjavíkur
Unglingadeild
Skemmtifundurinn verður á
sunnudag kl. 3,30 stundvíslega. —
— Unglingaráð.
Ferðafélag íslands
fer tvær skemmtiferðir á sunnu
daginn. Suður með sjó, og göngu-
ferð á Hengil. Lagt af stað í báð-
ar ferðirnar á sunnudagsmorgun-
inn kl. 9 frá Austurvelli. Farmið-
ar seldir við bílana. Upplýsingar
í skrifstofu félagsins, Túngötu 5.
sími 82533. —
RAGNAR JÓNSSON
hæstaréttarlöginaSur.
Laugavegi 8. — Sími 7752.
Lögfræðistörf. — Eignaumsýsla.
Félag Suðurnesjamanna:
heldur
lokadagsfagnaB
í SjálfstæSishúsinu fimmtudaginn 16. þ. m. kl. 20.
SKEMMTIATRHEH:
Revian „Gullöldin okkar“ — Dansaff til kl. 1.
Aðgöngumiðar fyrir félagsfólk og gesti til þriðjudags-
kvöldsins 14. þ. m. hjá Þorbirni Klemenzsyni, Lækjargötu
10, Hafnarfirði og verzluninni Aðalstræti 4, Reykjavík —■
Sírni 1041.
Skemmtinefndin.
Skrifstofa
Happdrættisins verður lokuð í dag frá hádegi,
vegna jarðarfarar
prófessors JÓNS JÓHANNESSONAR
Happdrætti Háskóla íslands
Sigurður Benedikfsson
heldur bókauppboð í dag
Þar eru hœkur allf frá 1696
IDAG heldur Sigurður Benediktsson bókauppboð I Sjálfstæðis-
húsinu og er það 28. uppboð hans frá byrjun, en þriðja bóka-
uppboð vetrarins. Hefst það kl. 10 í dag og stendur yfir til kl. 4.
Voru bækurnar til sýnis í gærdag milli kl. 2 og 7.
Innilegt þakklæti færi ég skipshöfn dýpkunarskipsins
| Grettis, svo og öðrum vinum og ættingjum nær og fjær,
] sem heiðruðu mig með höfðinglegum gjöfum, heillaskeyt-
j um og á annan hátt sýndu mér vinsemd á 60 ára afmæli
mínu. — Lifið heil.
Guffjón Guðbjömsson.
„Syngjandi
páskar“
Vegna fjölda áskorana verður
skemmtun vor endurtekin í
SELFOSSBÍÓI
annaff kvöld, laugardagskvöld (lokadaginn)
Ennfremur verður haldinn
Dansleikur
Hljómsveit Björns R. Einarssonar leikiur.
Skemmtunin hefst kl. 9 e. h. — Aðgöngum. í Selfossbíói.
Félag íslenzkra einsöngvara
Hjartkær eiginkona mín
THELMA ÓLAFSDÓTTIR
andaðist í Landspítalanum að kvöldi miðvikudags 8. maí.
Jóhannes G. Jóhannesson.
Hrísateig 9.
Eiginmaður minn, faðir okkar og stjúpfaðir
BJARNI JÓSEFSSON
efnafræðingur, andaðist að Sólvangi, Hafnarfirði, 6. maí. —-
Bálförin hefur farið fram. — Þeim, sem vildu minnast hans
er vinsamlega bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra.
Rósa Eggertsdóttir, Anna Bjarnadóttir,
Bergur Bjamason, Guðrún Bergsdóttir.
Útför
GUÐMUNDAR JÓNSSONAR
frá Nesi, fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudag-
inn 13. þ. m. kl. 1,30. Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Afþökkum blóm.
Aðstandendur.
Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
ÓSKARS THORBERGS JÓNSSONAR
bakarameistara.
Edith Thorberg Jónsson, böm og tengdabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför
GUNNARSBACHMANN
símritara.
Hrefna Bachmann, böra og tengdabörn.
RRRMMWRRMMMMWMBMMWWWRMMRMMWRBBRMWWiI IBW—W———n
Við þökkum innilega öllum þeim, er tóku þátt í leit að
bróður okkar
BALDVTNI SKAFTASYNI,
og sýndu vinsemd við útför hans.
Fyrir hönd aðstandenda,
Systkinin.