Morgunblaðið - 11.05.1957, Side 1
16 síður og Lesbók
Richards fékk vinsamlegar
viðfökur, nema í 3 ríkjum
Washington, 10. maí. — Frá Reuter-NTB.
JAMES B. RICHARDS sem hefur að undanförnu ferðazt um ná-
læg Austurlönd sem sérstakur sendiboði Eisenhowers forseta
til að kynna þjóðum þar Eisenhower-áætlunina, er nú kominn
heim og gefur skýrslu um árangur ferðar sinnar.
Hann ferðaðist 48 þúsund km og heimsótti 15 lönd til að skýra
Aætlun forsetans um aðstoð við nálæg Austurlönd. Á ferð sinni
fylgdi hann þeirri reglu að heimsækja ekkert land, nema ríkis-
■tjórn þess óskaði þess að fyrra bragði.
Öll ríki á umræddu svæði buðu honum heim, nema Sýrland,
Jórdanía og Egyptaland.
1 sjónvarpsræðu, sem Richards
flutti í kvöld skýrði hann stefnu
Eisenhowers fyrir bandarískum
almenningi og gerði grein fyrir
því, að í öllum þeim löndum sem
hann heimsótti hefði áætluninni
verið tekið mjög vinsamlega. Það
varð Ijóst að þjóðir nálægra
Austurlanda þurfa verulegan
Framh. á bls. 2.
Vitni segir að morðið á
Röhm hafi verið eðlilegt
Við undirritun samninga í gær. Sitjandi Árni Snævarr og Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, stand-
andi Ólafur Jensson og Kay Langvad.
Hann hugði á byltingu gegn Hitler 1934
Múnchen. 10. maí.
WERNER BEST, sem var háttsettur foringi í SS-sveitunum, 1934,
þegar Hitler lét myrða Röhm á „nótt löngu hnífanna“, hefur
lýst því yfir í réttinum í Múnchen, að aðgerðir Hitlers gegn Röhm
hafi verið fullkomlega réttlætanlegar, vegna þess að Röhm hafi haft
í hyggju að gera byltingu gegn Hitler með SA-sveitum sínum.
Samningar um framkvæmdir víð
virkjun Efra-Sogs undirritaðir
BEST, SEM DANIR
PEKKJA BEZT
Vitni þetta, Werner Best, hefur
unnið sér það helzt til frægðar,
að á styrjaldarárunum var hann
sérstakur umboðsmaður Hitlers í
hinni hernumdu Danmörku. En
árið 1934, þegar nótt hinna löngu
hnífa var þann 30. júní, var Best
þegar orðinn háttsettur í SS-
sveitum nasista. Var hann flækt-
ur í þessa hræðilegu atburði.
BYLTING GEGN IIITLER
FYRIRHUGUÐ
Hann viðurkenndi í réttarsaln-
um í Múnchen að hafa stjórnað
flutningi á sveitum SS-manna,
sem fóru á laun til Múnchen. —
Telur hann að leyniþjónusta
SS hafi haft öruggar heimildir
fyrir því að Röhm og SA-sveitir
hans hugðu á byltingu gegn
Framh. á bls. 2.
Ákærðir fyrir morðin á „langlmífanótt“, Sepp Dietrich og Michael
Lippert, báðir gamlir SS-menn.
Sfetnubreyting Bandaríkjanna gagnvart Nasser:
Hætta stuðningi við hann og hjálpa
Evrópu að verða óháð Súez-skurði
Viðlal við Sleingrím Jónsson rafmagnsstj.
Eftirfarandi tilkynning barst blaðinu í gær
frá stjórn Sogsvirkjunarinnar:
IDAG voru undirritaðir samningar um byggingaframkvæmd-
irnar við virkjun Efra-Sogs, sem vonir standa til að geti
hafizt nú þegar. — Eru samningarnir gerðir við firmað E. Pihl &
Sön, Kaupmannahöfn, sem var lægst bjóðandi á sínum tíma, og
islenzku byggingafélögin h.f. Almenna Byggingafélagið og h.f.
Verklegar framkvæmdir.
Er samið samkv. tilboðum, sem voru gerð snemma árs 1955 og
eru samningsupphæðir kr. 37.875.000.00 miðaðar við þáverandi verð-
lag, en nú er áætlað að kostnaður verði um 50 millj. krónur.
Fyrir hönd stjórnar Sogsvirkjunarinnar undirritaði formaður
stjórnarinnar, Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, samningana.
í samningum er við það
miðað að rafmagnsframleiðsla
nýju stöðvarinnar geti hafizt
í nóvember 1959, en vitað er
að sá tími er mjög naumur.
Framkvæmdastjóri verktak
anna verður Kay Langvad
verkfræðingur, en yfirverk-
fræðingur á vinnustaðnum
verður Árni Snævarr verk-
fræðingur.
I stjórn félagsskapar, er
verktakar mynda með sér,
verða verkfræðingarnir Gúst-
af E. Pálsson, Ólafur Jensson
og Kay Langvad.
Eftirlitsmaður við bygging-
arframkvæmdirnar verður A.
B. Berdal verkfræðingur í
Oslo, sem hefur verið ráðu-
nautur um virkjanir Sogsins
frá byrjun.
Fyrir nokkru síðan voru und-
Framh. á bls. 2
„Óbeypis" Iramleiðsluoukning
Þegar Dulles var á leiðinni
heim frá NATO-fundinum í
Bonn, kom hann við í París,
dvaldist þar í þrjá daga og sat
löngum á fundum með Mollet
forsætisráðherra. Ekkert var op-
inberlega tilkynnt um þessar við-
ræður, nema að báðir hafi verið
sammála um að tilboð Nassers
um rekstur Súez-skurðarins sé
ófullnægjandi og brjóti í bág við
ályktun SÞ um það mál.
En nú kveðst Le Monde hafa
það eftir öruggum heimildum, að
Dulles hafi lýst yfir breyttri
stefnu Bandaríkjanna gegn Nass-
er. Kveður það Dulles hafa skýrt
afstöðu Bandaríkjanna svo, að
þau hafi viljað þrautreyna, hvort
hann ætlaði að hlíta fyrirmælum
SÞ um rekstur skurðarins. Nú
sé ljóst að hann ætli ekki að gera
það, og sé því óhjákvæmilegt
að breyta til um hina vinsamlegu
stefnu gagnvart Nasser, en engir
Frh. á bls. 2.
Moskva, 10. maí.
Einkaskeyti frá Reuter-NTB.
★ KRÚSJEFF leiðtogi komm-
únista hefur lýst því yfir í
sambandi við tillögur sínar
París, 10. maí.
FKANSKA stórblaðið „Le Monde“ birtir þær athyglisverðu
fregnir, að Dulles utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi
lýst því yfir á fundum með Mollet forsætisráðherra Frakka,
nð Bandaríkin hafi í hyggju að breyta verulega um stefnu
gagnvart Nasser einræðisherra Egyptalands. Sé sú stefnu-
breyting aðallega í því fólgin, að Bandaríkin ætli að láta
af stuðningi við Egypta. Þess í stað muni þeir vinna að því
að einangra Nasser og koma málum svo fyrir, að Súez-
skurður verði æ þýðingarminni sem lífæð Evrópu.
Bássor segjast mótiallnir
tilraunam með kjurnorkuvopn
Moskva, 10. maí. — Frá Reuter.
ÆÐSTARÁÐ Sovétríkjanna samþykkti í dag ályktun, þar sem
þeirri áskorun er beint til brezka „parlamentsins“ og banda-
ríska þjóðþingsins að láta þegar í stað stöðva aliar tilraunir með'
kjarnorkuvopn.
Fáir dagar eru síðan Rússar luku víðtækum tilraunum með
kjarnorkusprcngjur inni í Síberíu. Þar sprengdu þeir m. a. vetnis-
sprengju.
um endurskipulagningu iðn-
aðarins í Sovétríkjunum, að
þær muni hafa í för með sér
framleiðsluaukningu, án þess
að leggja þurfi í nýja fjár-
festingu í iðnaðinum.
★ Allmiklar umræður hafa
verið um tillögurnar á fund-
um Æðstaráðsins og nokkrar
breytingatillögur verið sam-
þykktar. Þykir Ijóst að meg-
inefni tillagna Krúsjeffs fái
yfirgnæfandi fylgi á þinginu.
★ Fram hafa komið tillög-
ur um, hvort ekki væri líka
hagkvæmt að dreifa yfirstjórn
hergagnaiðnaðarins. En Krú-
sjeff hcfur lýst því yfir, að
slíkt sé ekki hægt, hætt yrði
við að hergagnaframleiðslan
myndi veikjast ef yfirstjórn
hennar væri dreift í stað þess
að sitja öll í Moskvu.