Morgunblaðið - 29.06.1957, Page 9

Morgunblaðið - 29.06.1957, Page 9
Laugardagur 29. júní 195Y MORGVNBLABÍÐ 9 Grein þessi birtist i Les- bók MorgnnblaSsins sunnu daginn 11. september 1938, »g er endurbirt hérna, með leyfi höfundar. 6-V^> M Þættir úr sænsku stúdentalífi Eftir SIGURBJÖRX „UPPSALIR standa á Fýrisvöll- nm, 70 km. norðaustur af Stokk- hólmi. Þar er fögur dómkirkja og fornfrægur háskóli. í gras- hreinskilin fyrirlitning á öllum garði borgarinnar stendur líkn- nýkeyptum montprikum. Nú er eski Linnés, hins fræga grasa- reynslan farin að tala sínu hvers- fræðings“. dagsmáli, sínum jarðneska prósa. Þessi upplýsing úr einhverri 1 Og hinar rúmhelgu þarfir munns Valborgarmessu-kvöld (30. apríl) í Uppsölum. Stúdentar fagna vori í Hallarbrekku. Dómkirkjan í baksýn. landafræði, vaktist upp fyrir mér, þegar ég sat í lestinni á leiðinni frá Stokkhólmi til Uppsala fyrir 5 árum. Stuttur og laggóður fróð- ltikur og réttur að tveim þriðju hlutum, sem verður að teljast gott, þegar um ræðir kennslu- bók í landafræði. í Uppsölum er raunverulega fögur dómkirkja og frægur háskóli. En styttunnar í „grasgarðinum" hefi ég leitað í 4 ár, — árangurslaust. En ann- ars hafði ég alls ekki sett mér að takmarki að sannprófa upp- lýsingar kennslubóka, hvorki um þetta ná annað. Og það var önn- ur upplýsing, sem dvaldi í með- vitund minni, og setti mót á hug- myndir mínar um þennan stað, Uppsali, ef til vill meir en ég gerði mér grein fyrir. Ég þekkti vitanlega — eins og flestir, sem yfirleitt kunna að nefna Uppsali — hinn djarfa dómsúrskurð Gunnars Wennerbergs: „Uppsala ar bást“. Ég vissi, að þessum dómsúrskurði hafði verið áfrýjað til reynslunnar af þúsundum stúdenta, vissi, að þessi heims- fleygi vitnisburður var þyrnir í augum annarra háskólabæja. En hafði honum verið hnekkt af þess um aðilum? Nýi stúdentinn, sem nálgast Uppsali, hlýtur að spyrja sjálf- an sig: Verður þessi dómsúr- skurður að persónulegri stað- reynd fyrir hann sjálfan? Svo koma fyrstu kynnin. Hann tekur sín fyrstu spor í hinni nýju, ó- ráðnu tilveru háskólaborgarans. Hann verður vafalaust fyrir von- brigðum fyrst í stað. Hann er ekki dottinn ofan í neinn ævin- týraheim með syngjandi stúdent- um, model 1840, henn er kominn í mjög svo jarðneskt umhverfi, smábæ, ekki neitt áberandi frá- brugðinn öðrum smábæjum í fljótu bragði. Þarna heyja menn sína lífsbaráttu rétt eins og ann- ars staðar, vinna sína sigra, bíða sína ósigra með sama ósögulega hætti eins og annars staðar, í hversdagsleikanum. Stúdentinum kann að finnast að hann hefði eins vel getað lifað hversdags- lífi heima í sínum eigin smábæ eins og á þessum stað. Það er aðeins eitt atriði, sem honum er áberandi nýtt: Hann er ekki líkt því eins merkileg persóna þarna, nýbakaður með hvítu húfuna og siafinn, eins og hann var heima prófessor í smábænum sínum. Nei, þetta' erfðum, á þannig sinn fulltrúa í nýja umhverfi er opinská lítils- I Uppsölum, og hver stúdent, sem virðing á öllu, sem er nýbakað, j til háskólans kemur, er þannig áfram í sínum jarðvegi að nokkru leyti, hann er enn í tengslum við uppruna sinn. Skiptingin í nation ir skapar meiri fjölbreytni í sjálft stúdentalífið, hún skapar skemmtilega hreppapólitík, holla samkeppni og metnað, án þess þó að lama getuna til sameigin- legra átaka, þegar þeirra gerist þörf. — Enginn getur tekið próf frá Uppsalaháskóla án þess að vera meðlimur í einhverri nation — sem sagt: Eftir hinar almennu móttökur í hátíðasal háskólans veitir hver nation hinum nýju meðlimum sínum sérstakar við- tökur. Þessar viðtökur eru eng- an veginn alveg sársaukalausar fyrir rússann: Nafn hans er kall- að upp, hann rís á fætur og geng- ur fram á mitt gólf, þar sem hann blasir við öllum, og síðan er þar til kjörinn fulltrúi nation- arinnar látinn gagnrýna persónu hans. Þar er með lítilli miskunn- arsemi dregið fram í dagsljósið hvað hann er í rauninni lítilmót- legur, bent á hvert líkamslýti, hvern ágalla í sköpulagi og fram- komu, sem kann að vera sýni- legur, og mörgum bætt við, sem enginn maður sér. Það er ekki mikið eftir að sjálfstrausti vesa- lings rússans, þegar þessari at- höfn er lokið, og hann tekur því með þögn og þolinmæði, þó á eftir komi nokkrar nærgöngular áminningar, um að leggja niður allan grænjaxlaskap, sýna eldri þú sért langur orðinn nú og merkilegur, þá er ekki langt síð- an ég sá storkinn hirða þig upp úr þöngulhausunum í fjörunni, það er ekki langt síðan ég sá hvernig rúmið þitt var verkað! Þetta er síðasta auðmýkingin, sem rússinn fær með sér út í háskólalífið. Nú er hann loksins kominn undir akademisk lög og réttindi. og maga elta hann inn í háborg stúdentarómantíkurinnar og gera sínar öndvegiskröfur, þar sem annars staðar. Hann verður að leita á náðir einhverrar af þess- um gömlu, góðu konum, sem eru í öðru hvoru húsi í Uppsölum og Fýris-áin og dómkirkjan í Uppsölum. lifa á því að selja stúdentum fæði og húsnæði. Og vitanlega er stúdentinn ekki merkileg per- sóna í þeirra augum. Þær hafa flestar horft á margar kynslóð- ir stúdenta koma og hverfa og eru ekki uppnæmar lengur fyr- ir smámunum. Það rofar til í bili. Loksins kemur að því, að háskólinn veiti nýju stúdentunum, „rússunum", formlega móttöku. Eina stutta stund fellur háskólabærinn þeim til fóta og veitir þeim sína k>tn- mgu. Þeir eru látnir ganga fremst ir í skrúðgöngu stúdentanna, þeim er vísað í öndvegissætin í hátíðasal háskólans, þeim er heilsað með föðurlegum og bróð- urlegum ræðum, hljóðfæraslætti o. s. frv. En eftir þessar móttök- ur háskólans í heild hefjast mót- tökurnar á „nationinni". Ég verð að geta þess hér, að stúdentar við Uppsala háskóla (þeir eru nú um 3000 innritaðir) skiftast niður í s. k. nationir (þjóðir), 13 að tölu. Það er þetta, sem framar öllu öðru einkennir stúdentalíf- ið í Uppsölum. Þessi skipting í nationir er forn og fer eftir lands hiutum. Hver landshlut-i með sín- um sérkennum, sinum sérstöku félögunum skilyrðislausa virð- ingu og undirgefni og virða og varðveita fornar dyggðir og erfða venjur nationarinnar. Þegar þess- u*n alvarlegu athöfnum er lokið er setzt að snæðingi. Hver nation hefir sínar sérstöku matarvenjur í samræmi við sið og lenzku heimahéraðsins. Við Norrlending- ar (meðiimir í Norrlands nation) látum þá bera á borð rétt, sem er sérstakur fyrir Norður-Sví- þjóð, þ. e. a .*. „surrströmming". Þessi réttur er að lykt og bragði ekki óáþekkur islenzkura skyr- hákarl, og það er með hann eins og hákarlinn, að ekki þykir óvið- eigandi að renna honum niður með einhverju sterku, þó engar kvaðir séu á menn lagðar í þeim efnum, og nú er þessi forláta fiskur þarna kominn, til þess að heilsa upp á rússana. Og þegar tími er kominn til, þá er sung- inn ávarpssöngur til rússanna í nafni fisksins og er þetta aðal- efni hans: Fyrst þegar ég sá þig, vinur minn, rússi, þá lástu enn grenjandi í vöggunni þinni. Og þar sem þú varst svo ungur að árum, þá var ekkert tiltökumál þó vaggan þín væri jafn blaut, eins og þú varst sjálfur sætur. í'arðu því varlega, lagsi minn! Þó Og svo byrjar vinnan. Og í Uppsölum er mikið unnið. Stú- dent frá tímum Gluntanna, frá því fyrir 100 árum, ætti ef til vill erfitt með að kannast við sig í Uppsöulm í dag. Vinnubrögðin eru önnur, alvaran þyngri. Líf stúdentsins nú er ekki leikur að augnablikunum eins og þá, ekki áhyggjulaus dans við mennta- gyðjurnar, heldur fangbrögð upp á líf og dauða. Þó eru Uppsalir efalaust ósnortnari en flestir aðr- ir staðir af vandkvæðum nútím- ans. Og Svíar eru öfundsverðir af þvi að hafa fjárhagsleg og menningarleg efni á að halda slík an stað. Þetta fyrirbrigði, að halda fullkominn nýtízku há- skóla á svona smáum stað, í kot- bæ, eingöngu af rækt við sögu- legar erfðir, er ekki það hnefa- högg framan í alla raunhyggju og vélhyggju nútímans? Það hlýt- i ur alltaf að varðveitast á slík- um stað eitthvert hugboð um að maðurinn lifir ekki á brauði einu saman, einhver tilfinning fyrir því, að mannkynið var ekki skap- að í gær. Meginregla Uppsalastúdentsins er: „Arbeta förnuftigt, roa dig förnuftigt", þ. e. a. s. Lesa með kappi, en forsjá og leita sál og líkama skynsamlegrar hressing- ar. Fyrir hvorutveggja er vel séð í Uppsölum. Sænskir stúd- entar skipa heiðurssess í öllum greinum íþrótta, enda er vel fyr- ir séð leikfimis og íþróttaþörf þeirra og verður þó betur innan skamms. — Svo kemur sunnu- dagurinn, þegar dómkirkjuklukk- urnar hringja helgum friði yfir bæinn og kalla til hámessu. Sænskir stúdentar eru ekki eins almennt og þeir íslenzku vaxnir upp úr því að ganga í kirkju, enda er kristilega stúd- entafélagið fjölmennasti og fjör- ugasti stúdentafélagsskapurinn í Uppsölum. Hvergi skynjar stúd- entinn betur en undir hvelfing- um dómkirkjunnar, helguðum af tilbeiðslu og trú fimm alda, sam- hengið í starfi og stríði kynslóð- anna, og samhengið í skynjun kynslóðanna á því, sem er ofar öllu rúmhelgu striti mannsins og gefur því þýðingu og innihald. Og þannig líða misserin. Smátt og smátt ljúka menn prófum sín- um. Hver sannur Uppsalastúd- ent reynir að koma einhverju af, helzt á hverju misseri — það er regla, sem almenningsálitið í stúdentahópnum setur upp og fyrirkomulag námsins og prót- anna gerir kleift að fylgja. En hvernig sem á prófum stend ur og námi, þá varpa menn frá sér öllum áhyggjum, þegar Val- borgarmessan kemur með fagn- aðarboðskap sinn um að vorið sé að koma eða komið. Rétt fyrir kl. 3 síðd. á Valborgarmessu (30. april) safnast allir Uppsalastúd- , entar saman á aðalgötu bæjarins. Þegar dómkirkjuklukkan slær 3 er skipt um höfuðfat, hattinum, tákni vetrarins, sem menn höfðu orðið að bera síðan 1. okt., tr svipt af og honum kastað í Fýris- ána, og stúdentahúfan sett upp í staðinn. Á einu vetfangi breið- ist hinn hvíti sólskinslitur stúd- entahúfunnar út um bæinn og boðar komu sumarsins. Þann sól- arhring allan er það ókurteisi, ef stúdent tekur ofan húfu sína. Klukkan 7 um kvöldið safnast stúdentarnir aftur saman, þá á aðaltorgi bæjarins, fylkja liði hver nation undir sinn fána, og ganga síðan syngjand gegnum bæinn upp að gömlu konungshöll inni, sem enn stendur á hæsta stað í bænum, til minja um það, að einu sinni var Svíþjóð stjórn- að frá Uppsölum. Þarna uppi undir múrum gömlu Vasa-hall- arinnar, með blaktandi Valborg- arelda hringinn í kring um alla Upplandssléttuna, er vorinu fagn að með söng og ræðum. Þessa nótt, Valborgarmessu- nótt, fer enginn heiðarlegur stúd- ent úr fötum, heldur fylgir hver sinni nation í blíðu og stríðu. Stríðu, segi ég, því þessi nótt er líka helguð alvarlegum hlutum. Það er sem sé föst venja, að þessa nótt sækja nationirnar hver aðra heim og er þá ekki siður að fara með neinni hógværð né friðsemi. í fyrravor komu t. d. Vestmann- lendingar til okkar Norrlendinga, til þess að hrakyrða okkur og okkar notion. En við svörðum þeim eins og þeir voru maklegir til. Þegar leið á nóttina tókum við okkur upp og sóttum heim Stock- holms nation, settum þann, sem fyrir okkur var, upp á borð, þar sem sá var fyrir, sem þeirra var æðstur, og taldi okkar fyrir- liði þar fram ýmislegt óþvegið í garð þeirra Hólmverjanna, en þeir guldu sem máttu. Það koma þær stundir í lífi hvers Uppsalastúdents, þegar hon um finnst hann geta sagt með Wennerberg: „Varst utav allt ár att vistas, ár eftir ár hár vid akademien". Allir eru þangað komnir til þess að losna þaðan aftur, því fyrr, því betra. En þegar stundin loksins kemur, þeg ar stúdentinn hlustar í síðasta sinn á silfurtóna Gunnilla-klukk- unnar, þegar hann horfir úr lest- arglugganum á höllina og dóm- kirkjuturnana, sem hverfa á bak við grenilundina, á Upplands- sléttunni, þá kann að hvarfla að honum eins og ósk í þá átt, að hann væri nú í staðinn sem rússi á leiðinni til Uppsala, að hið .liðna mætti endurtaka sig. Því á því augnabliki er haxui naunv- ast í efa um úrskurðinn: Uppsala ár bást. En hvorki lestin né lífið snýr vrð fyrir það. Hvort tveggja heldur áfram að ruasta áfanga- stað. Háskélian í Uppsélum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.