Morgunblaðið - 09.07.1957, Qupperneq 8
8
MOnCVlSBL 4Ð1Ð
Þriðjudagur 9. júJí 1957
m^pustMofrtfr
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Arni Óla, sími 33045
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 25.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
FaSl ÞSoSotoíSs
f skjali því, sem Krúsjev gaf
út til að útskýra fyrir heiminum
hinar nýju hreinsanir, var lang-
ur kafli um Molotoff. Aðalmni-
hald þessa kafla um hinn gamla
utanríkisráðherra er að hann hafi
verið „þröngsýnn" í starfi sínu og
stefnu og beinlínis „hindrað nauð
synlegar aðgerðir í þá átt að
skapa meiri ró í alþjóðamáium
og frið milli þjóða“.
Þessi harði dámur yfir þeim
mánni, sem um mörg ár fram-
kvæmdi utanríkisstefnu Sovét-
Rússa er svo rökstuddur all ýtar-
lega í skjali Krúsjevs. Fyrst er
það nefnt, að Molotoff hafi í ráð-
herratíð sinni vanrækt um lang-
an tíma að bæta sambúð Rússa og
Júgóslava og hvað eftir annað
komið í veg fyrir aðgerðir í þá
átt, sem flokksstjórnin vildi láta
framkvæma. Því er lýst yfir í
skjalinu, að þessi framkoma Molo
toffs hafi verið fordæmd á fundi
miðstjórnarinnar í júlí 1955,
vegna þess að hún væri andstæð
hagsmunum hins sovétska ríkis
og „leniniskri stjórnarstefnu",
eins og það er orðað.
Þá er Molotoff gefið að sök að
hafa reynt að hindra friðarsamn
inginn við Austurríki. Og því er
bætt við að þegar þessi samning-
ingur var loks gerður, gegn vilja
Molotoffs, hafi samningurinn
reynzt vera þýðingarmikið skref
í átt til alþjóðafriðar.
I framhaldi af þessu er svo far
ið mörgum orðum um, að Molo-
toff hafi gert það, sem honum
hafi verið unnt, til að koma í veg
fyrir að sambúð Rússa og Japana
hafi verið bætt. Loks kemur svo
þýðingarmesta sakaratriðið, sem
er að Molotoff hafi barizt af harð
neskju gegn þeim tillögum, sem
uppi hafi verið innan stjóvnar-
innar um möguleikana á að
hindra styrjaldir, undir núver-
andi kringumstæðum og neitað
rétti þjóða til að finna þæv leiðir
til sósíalisma, sem bezt hæfi þeim.
Molotoff haldi fast við úreltar
kennisetningar og aðferðir og
hafi engan skilnig á nýjum við-
horfum og leiðum til að mæta
þeim. Molotoff er sakaður um að
hafa „ eintrjáningslegan og þröng
sýnan skilning á marxisma —
leninisma og viðurkenni ekki
ályktanir 20. flokksþingsins um
það í hverju hann sé nú fólginn“
Síðan kemur svo löng útskýring
á því hver sé hinn nýi „marxismi
— leninismi** og er sumt í því
ekki vel aðgengilegt fyrir aðra en
þá, sem vanir eru að lesa úr því
flókna orðahröngli og kenninga-
moldviðri, sem jafnan einkennir
stj órnmálayfirlýsingar kommún-
istaleiðtoganna eystra.
Krúsjev lét ekki við það sitja,
að gefa út hið langa ákæruskjal,
heldur áréttaði hann það síðar í
ræðu, sem útvarpað var um öll
Sovétríkin, að Molotoff hefði ver-
ið „samsærismaður" sem hefði
ætlað að hrifsa stjórn landsins í
sínar hendur, ásamt með hinum,
sem nú hafa verið brottreknir.
Hefði slík ákæra verið borin
fram á dögum Stalins. hefði af-
leiðingin verið líflát, annað hvort
að undangengnum hinum al-
þekktu réttarhöldum eða gersam-
lega án slíkrar f?. irhafnar.
En það er ekki nóg með, að
Krúsjev hafi í frammi allar þess-
ar ákærur, heldur tók Zukov
marskálkur í sama streng í
ræðu, sem han hélt á föstudaginn
var. Markskálkurinn sagði, að
Molotoff hefði verið „samsæris-
maður“ og væri mikið unnið við
fall hans. Molotoff hefði alls ekki
skilið Lenin, eins og það var
orðað, hann hefði gleymt skyld-
um sínum, en einbeitt sér að
klíkustarfsemi, en fyrir slíkt
hefðu Sovét-ríkin enga þörf. Svo
djúpt var fall Molotoffs. %
Á Vesturlöndum hefur kalda
stríðið og afleiðingar þess verið
tengdar nafni Molotoffs meir en
nokkurns annars stjórnmála-
manns, að Stalin sjálfum ur.dan-
teknum. Þær ákærur, sem vest-
rænir menn hafa á liðnum áium
haft uppi gagnvart stjórnarstefnu
Rússa eru allar staðfestar í skjali
Krúsjevs. Molotoff var í augum
vestrænna stjórnmálamanna og
raunar alls almennings, hinn
staðfasti maður nei-sins, málpípa
Stalins, sem ætíð sagði nei, þegar
tillögur komu fram, sem miðuðu
að lausn deilumála og þar með að
því að draga úr viðsjám kalda
stríðsins. Þegar Stalin var afhjúp
aður var allt það staðfest og meira
til, sem sagt hafði verið á Vestur-
löndum um harðstjórn og grimd-
aræði hans. Á sama hátt er nú
viðurkennt í ákærunum gegn
Molotoff að það sé rétt, sem hald-
ið hefur verið fram að hann hafi
verið vargur í véum á alþjóða-
þingum til að bæta sambúð þjóða.
En það er ekki iangt síðan að
stéfna sú, sem Molotoff túlkaði,
var stefna allra kommúnista, hvar
sem var í heiminum. í hvert
skipti , sem þessi voldugi maður
sagði nei, endurrómaði það meðal
allra kommúnista hvar sem var.
Er það að vonum að gamlir að-
dáendur Molotoffs, bæði hér og
annars staðar, verði nokkuð átta-
viltir, a.m.k. nú fyrst í stað.
Það munu fáir gráta hið mikla
fall Molotoffs. Það er nú haft
eftir Awé’rell Harriman, sem eitt
sinn var sendiherra Roosevelts í
Moskvu, að hann hafi í 16 ár
hlakkað til þess tíma, þegar
skuldadagar Molotoffs kæmu.
Þegar eftir að Rússar urðu þátt-
takendur í stríðinu, kveðst Harri-
man hafa skýrt forsetanum frá
þeirri skoðun sinni, að samstarf
mundi aldrei takast við Rússa,
meðan Molotoff hefði þar áhrif.
Það á svo eftir að sjást hvort fall
Molotoffs, boðar raunverulega
tímamót í afstöðu Rússa í alþjóða
málum, eða hvort hér er aðeins
um að ræða einn þáttinn í þeim
blóðuga hrikaleik, sem kallaður
hefur verið valdabaráttan í
Kreml. Hingað til hefur engin
breyting orðið til batnaðar, frá
vestrænu sjónarmiði, hvað sem
orðið hefur ofan á í valdastyij-
öldunum í Moskvu.
Þess er nú vert að minnast að
allir þeir þrír, sem tóku við af
Stalin, Beria, sem drepinn var,
Malenkoff og Molotoff, eru horfn-
ir. Þeir hafa orðið fórnardýr
valdabaráttunnar. Má nú enn
einu sinni rifja upp hin gamal-
kunnu orð Pierre Vergniaud:
„Það er ástæða til að óttast, að
byltingin muni, rétt eins og Sat-
urnus, éta börn sín upp til agna,
I eitt eftir annað“.
UTAN UR HEIMI
190 jbús. flúðu Ungverjaland
I yfirliti um efnahags-
mál Evrópulanda, sem nær
yfir fyrsta árshelming þessa árs,
gerir Efnahagsnefnd Sameinuðu
þjóðanna fyrir Evrópu (ECE)
grein fyrir ástandi og horfum í
þessum efnum í álfunni. í yfir-
litinu, sem birt er í tímariti nefnd
arinnar segir, að jafnvægi sé nú
að skapast í efnahagsmálum Ev-
rópu, þótt enn vanti nokkuð á að
algjört jafnvægi sé komið á. Það
er t.d. bent á, að launasveiflur
hafi ekki verið eins örar á þessu
ári og undanfarin ár. Hins veg-
ar séu verðsveiflur, sem orðið
hafa á fyrra helminig ársins sök
Súez-vandamálsins og hefði
sennilega verið hjá þeim komizt
ella. Fæstar ríkisstjórnir Evrópu
hafa séð sér fært, að létta á við-
skiptahöftum og öðrum ráðstöf-
unum, sem gerðar voru í þeim
tilgangi að forðast verðbólgu.
etta er í stuttu máli
niðurstöður nefndarinnar um
efnahagsmálin í Evrópu, en þau
eru rædd mjög nákvæmlega í
skýrslu ECE. Bent er á, að Finn-
land og Vestur-Þýzkalnd hafa
heldur hert á ráðstöfunum til
þess að koma i veg fyrir verð-
bólgu og ríkisstjórnir, sem til
þessa hafa ekki séð ástæðu til
þess að beita ströngum efnahags-
legum ráðstöfunum vegna verð-
bólgu, t.d. franska stjórnin, hafa
nú gert ráðstafanir í þessa átt.
ECE telur, að ekki sé hægt að
reikna með, að framleiðslan í
Vestur-Evrópulöndunum aukizt
að sama skapi eins og hún gerði
á árunum 1954—1956. Það séu
meiri líkur til þess að framleiðsl-
an verði álíka mikil og hún var
árið sem leið.
I efnahagsyfirliti ECE
er sérstakur kafli helgaður efna-
hagsmálum í Sovét-ríkjunum og
Austur-Evrópuríkj unum. Þar seg
ir t.d., að Sovét-ríkin hafi neyðzt
til að endurskoða 5 ára áætlun
sína, sem nú stendur yfir (1955—
1960). Það hafi komið í Ijós, að
ekki sé hægt að gera ráð fyrir
jafnmikilli framleiðsluaukningu
árið 1957 og gert hafi verið ráð
fyrir upphaflega.
Þess er getið, að eldsneytis-
vandamálið sé erfitt viðureignar í
Austur-Evrópulöndunum. Sagt er
að ríkisstjórnir Rúmeníu, Búlg-
aríu og Ungverjalands neyðist
til að draga úr fjárfestingu sinni
miðað við fjárfestinguna 1955 í
þessum löndum.
Um efnahagsmálin í
Ungverjalandi segir í yfirliti ECE,
að iðnaðarframleiðslan þar í
landi hafi hrapað ískyggilega
síðustu mánuði ársins 1956 vegna
stjórnmálaástandsins í landinu,
en í marzmánuði hafi verið svo
komið að iðnaðarframleiðslan
hafi verið komin upp i 80% af
því, sem hún hafði verið
fyrir byltinguna. Framleiðsla
nauðsynjavarnings er sögð hafa
verið 10% meiri í Ungverjalandi
á fyrstu mánuðum ársins, en á
sama tíma árið áður. Það er tekið
fram, að tekizt hafi að varðveita
kaupmátt launanna, þrátt fyrir
þessar sveiflur í efnahag lands-
ins. Þetta hefir þó ekki tekizt án
þess, að gengið hafi verið á birgð
ir í landinu. Þjóðin hafi tekið
víxla út á framtíðina með því að
ríkisskuldirnar hafi hækkað.
Fjárfesting hafi minnkað til
muna. Það ríði á miklu fyrir Ung
verjaland, segir í yfirlitinu, hvort
því tekst að fá lán erlendis til hrá
efnakaupa fyrir iðnaðinn og elds
neytis kaupa.
Loks tekur yfirlitið fyrir hið
ískyggilega ástand í allri álfunni
hvað snertir skort á faglærðu
verkafólki. Talið er, að hér sé
mikið vandamál á ferðinni, sem
verði æ ískyggilegra.
Frá því að fyrri heims-
styrjöldinni lauk hefir ríkt flótta-
mannavandamál í heiminum. í
hvert sinn, sem útlit hefir verið
fyrir að það væri að leysast hef-
ir eitthvað gerzt, sem hefir auk-
ið vandamálið á ný. Hin mikla út-
rás flóttafólks frá Ungverjalandi
eftir uppreisnina þar í landi í
fyrrahaust hefir sízt bætt úr
skák í þessum efnum. Fyrir
skömmu boðaði flóttamannaráðu-
nautur Sameinuðu þjóðanna til
alþjóða ráðstefnu í Genf um þessi
mál. Á fundinum voru mæltir
fulltrúar frá ýmsum líknarstofn-
unum og frá ríkisstjórnum.
Fulltrúar urðu sam-
mála um, að æskilegt væri, að
gera slíkar alþjóðaráðstafanir í
flóttamannavandamálunum, að
ekki kæmi aftur til þess öng-
þveitis, sem ríkti eftir síðustu
heimsstyrjöld.
Flóttamannaráðunautur Sam-
einuðu þjóðanna, Svisslendingur-
inn Dr. Auguste Lindt, benti á,
að engin sanngirni væri í því, að
það land, sem flóttamenn leita
fyrst hælis í verði að bera allan
kostnað að dvöl flóttafólksins.
Þetta sé vandamál, sem allar
þjóðir verði að taka að sér að
ráða fram úr og standa straum
af.
c
amkvæmt skýrslum
Sameinuðu þjóSanna flúðu rum-
lega 190,000 manns land eftir upp
relsnina í Ungverjalandi s.l. vet-
ur. Um 170,000 leituðu hælis í
Austurríki og um 20,000 í Júgó-
slafíu. Nú hefir tekizt að koma
rúmlega 150,000 manns fyrir, til
bráðabirgða og til frambúðar. Um
69,000 hafa flutt til landa utan
Evrópu (Ameríku, Ástraliu), um
70,000 hafa setzt að í öðrum Ev-
rópulöndum, rúmlega 4000 kusu
að snúa heim til Ungverjalands
aftur. Eftir eru um 38,000 manns,
þar af um 20,000 í Austurríki
og 18,000 í Júgóslafíu.
■Flóttamannaráðunautur-
inn hefir verið á ferðalagi víða
um lönd, m.a. á Norðurlöndum,
til þess að ræða við ríkisstjórnir
um lausn flóttamannavandamáls-
ins. Telur hann mikla nauðsyn
bera til þess, að flóttamannavanda
málið sé leyst sem allra fyrst og
komið verði í veg fyrir, að flótta-
menn dvelji lengi í flóttamanna-
búðum. Því miður hefir það ált
sér stað að flóttafólk hefir dvalið
og dvelur enn í flóttamannabúð-
úm frá því eftir lok síðustu heims
styrjaldar — 10—12 ár — Og því
lengur sem flóttafólk dvelur í
flóttamannabúðum þeim mun erf
iðara verður að koma því fyrir og
gera því kleift að verða nýtir
borgarar á ný.
L istaverk eftir Tino-
retto, Goya, van Gogh og Mattise,
svo nokkrir séu nefndir, verða
meðal listaverka á alþjóðalist-
sýningu, sem haldin verður í
Genf í sumar á vegum Alþjóða-
vinnumálaskrifstofunnar (ILO).
Sýningin nefnist „Listin og vinn-
an“ og er haldin til minningar
um fyrsta framkvæmdastjóra
ILO, Albert Thomas. Sýningin
verður opin þar til 22, september
í haust.
Borgarstjóri Genfarborgar hef-
ir lánað sögusafn borgarinnar
undir sýninguna endurgjalds-
Myndin er tekin á Rauða-torginu í Moskvu 1. maí sl., en þar fóru
fram „hátíðahöld verkalýðsins“ og tók Rauði herinn drýgstan
þátt í þeim að venju. Enda þótt Krúsjeff bannaði erlendum að
taka ljósmyndir við þetta tækifæri, náði franskur ljósmyndari
þessari mynd ásamt nokkrum fleiri. Svo sem kunnugt er, þá
hafa þeir Moskvufélagar afnumið alla persónudýrkun, en menn
eru sennilega ekki á einu máli um sanngildi þess — eftir að hafa
séð þessa mynd.