Morgunblaðið - 28.07.1957, Blaðsíða 2
2
MORCirNBL 4Ð1Ð
Sunnudagur 28. Júlí 1957
Togarinn Bjarni Ólafsson.
10 ára
AKRANESI, 27. júlí — Það hljóp
mörgum Akurnesingum kapp í
kinn hinn 29. júlí 1947 þegar ný-
sköpunartogarinn Bjami Ólafs-
son renndi fánum skreyttur í
blíðu veðri að hafnargarðinum.
Fögnuður fóllasins, ungra sem
gamalla var óblandinn og inni-
legur. Fyrsti togari Akurnesinga
var fallegt skip og baejarstjórnin
valdi honum einróma nafn
Bjarna heitins Ólafssonar skip-
stjóra frá Litla-Teigi.
Það var mikil viðurkenning á
lífsstarfi Bjarna, eins orkudjarf-
asta og harðduglegasta manns
sem lifað hefir á Akranesi. Bjarni
var skipstjóri frá tvítugsaldri á
eigin skipum til hinztu stundar
og alltaf í fremstu víglínu á haf-
inu.
Togarinn Bjarni Ólafsson var
keyptur hingað á vegum bæjar-
sjóðs Akraness fyrir fulltingi
ríkisins og er því bæjarútgerð
Akraness réttra 10 ára í dag.
Rúmum fjórum árum síðar í
nóvember 1951 var keyptur hing-
að togarinn Akurey frá sam-
nefndu félagi í Reykjavík, einnig
fyrir fulltingi ríkisins. Síðan hafa
bæjartogararnir verið tveir.
Þess gætti framan af að skoð-
anir manna voru skiptar um tog-
arakaup bæjarins. En reynzlan
hefur sýnt og sannað að hvergi
nærri er einhlýtt að eiga góðan
bátaflota. Kaupstaðirnir þurfa
einnig að eiga stærri skip, sem
geta sótt á fjarlægari mið og því
takmarki hafa Akurnesingar náð
hvernig svo sem rætist úr um
bæjarútgerð þeirra.
1 fyrstu varð að fá flesta menn-
ina að til togarastarfanna en
nú hygg ég að svo sé komið að
manna mætti þriðja togarann
með vönum Akurnesingum til
þessara starfa ef skipstjórarnir
eru undanskildir.
Skipstjóri á Bjarna hefur verið
nær óslitið frá byrjun Jónmund-
ur Gíslason úr Reykjavík, far-
sæll maður og vellátinn. En á
Akurey hefir Kristján Kristjáns-
son frá Hafnarfirði verið skip-
stjóri síðan í febrúar 1955 og
reyndist ötull og aflasæll.
Á 10 árum hefur Bjarni fisk-
að 46.718.616 kg. Verðmæti afl-
ans (reiknað upp úr skipi) mun
vera um 41 millj. kr. Af þessu
aflamagni hafa verið lögð upp
til vinnslu á Akranesi um 36.5
millj. kg. Skipið hefir greitt í
vinnulaun á sjó og landi rösklega
20 millj. kr.
Á sex árum hefur Akurey lagt
afla á land á Akranesi sem nem-
ur um 23,5 millj. kg. en greitt
í öll vinnulaun tæpar 13 millj. kr.
Samanlagt hafa bæði skipin
því lagt hér á land meira en 70
þús. lestir og greitt í vinnulaun
tæpar 34 millj. kr.
Hér eru þó ekki talin vinnu-
laun við netagerð sem árlega
nema stórum fjárhæðum. Afla-
föng togaranna hafa haft mikil-
væga þýðingu fyrir atvinnulífið
afmœli
í bænum og afkomu vinnandi
fólks og frystihúsanna.
Útgerðarstjórnina skipa nú:
Hallfreður Guðmundsson, Ólafur
B. Björnsson og Sigurður Guð-
mundsson.
Þjóðhátíðin fyrst
í ágúst
SVO SEM alþjóð er kunnugt er
Þjóðhátíð Vestmannaeyja til-
komumesta útiskemmtun lands-
ins, enda skipar hún í hugum
Vestmanneyinga svo og annarra
er sótt hafa þessa skemmtun
virðulegan sess, svo er hún frá-
brugðin og sérstæð.
Það hefur jafnan verið svo að
gamlir Vestmannaeyingar, sem
fluttir eru úr bænum, og þeir
aðrir sem á einn eða annan hátt
eru tengdir Vestmannaeyjum
hafa notað þjóðhátíðardagana til
þess að heimsækja vini, kunn-
ingja og venzlamenn. Með hlið-
sjón af þessu hafa forráðamenn
Knattspymufélagsins Týs, sem
sér um hátíðina að þessu sinni
ákveðið að hafa hana í 3 daga,
eða 2., 3. og 4. ágúst. Nú vill svo
til að þessa daga ber upp á verzl-
unarmannahelgina, og sýnist því
gullið tækifseri fyrir þá sem vilja
nota þessa helgi til að sækja Eyj-
amar heim, að skreppa á Þjóð-
hátíðina.
Eins og fyrr er sagt sér knatt-
spyrnufélagið Týr um Þjóðhá-
tíðina. Hafa fyrirsvarsmenn fé-
lagsins hug á að gera veg þessar-
ar Þjóðhátíðar sem mestan, og
hafa í því skyni tryggt sér
úrvals skemmtikrafta, sem
skemmta munu alla dagana. Þar
að auki verður svo á dagskránni
fjölbreytt íþróttakeppni í frjáls-
um íþróttum, knattspyrnu og
handbolta, og svo verður að sjálf-
sögðu sýnt bjargsig báða dagana.
Á kvöldin verður svo Herjólfs-
dalur uppljómaður og á miðnætti
er flugeldasýning og þá er kveikt
í bálkesti miklum og við skin af
honum verður stiginn dans á
tveim pöllum — gömlu og nýju
dansamir — en hljómsveit Guð-
jóns Pálssonar leikur undir.
Ferðamanna-
straumur
á Egilsstöbum
EGILSSTÖÐUM, 27. júlí. — Hér
hefur verið mjög mikið um ferða
fólk undanfarið. Mest hefur borið
á fólki í litlum fólksbílum, en
svo hafa einnig komið hópferðir
í stórum bílum frá ferðaskrif-
stofunum. — Fólkið gistir á Hall-
ormsstað og Egilsstöðum og tjald
ar víðs vegar í skóginum. — Ari.
Afbragðs tíðarfar
ÞINGEYRI, 27. júlí. — Hér í
Dýrafirði hefur verið einmuna
blíða undanfarið, bæði til sjós og
lands. Heyskapur hefur gengið
mjög vel, enda muna bændur vart
eftir annarri eins tíð.
Afli hjá bátunum hefur verið
ágætur allt upp í 1300 kíló á
mann eftir einn róður. Atvinna
er mikil í kauptúninu.
— Magnús.
Góð heyskapartíð í
Súgandafirði
SUÐUREYRI, Súgandafirði, 27.
júlí. — Sláttur gengur afbragðs-
vel hér I Súgandafirði. Þurrkur
hefur verið sérstaklega góður og
eru nokkrir þegar búnir að ljúka
fyrri slætti. Spretta er ágæt og
nýting heyja prýðileg. — Óskar.
spretfa
í Hornafirði
HÖFN í Hornafirði, 27. júlí. —
Tíðarfar hér er nú orðið mjög
gott en framan af mánuðinum
voru sæmir þurrkar. En nú eru
ýmsir búnir með tún sín. Sprett-
an er yfirleitt sæmileg.
— Gunnar.
Mikil byggingar-
vinna i Höfn
HÖFN í Hornafirði, 27. júií. —
Talsvert mikil byggingarvinna
hefur verið hér undanfarið. Fyrir
utan nokkur ibúðarhús sem eru
í smíðum er verið að byggja fé-
lagsheimili og nýjan barnaskóla.
f gær var lokið við grunn fé-
lagsheimilisins, en langt er komið
að steypa barnaskólann.
— Gunnar.
1,100 m á sekundu
MANITOBA, Kanada, 24. júlí —
Bandarískir vísindamenn skutu í
dag á loft rakettu af nýjustu
gerð, sem náði meira en 80 km.
hæð. Náði rakettan 1,100 metra
hraða á sekúndu.
Tilraun þessi fór fram í her-
stöð í N-Kanada. Var hún liður
í rannskónum Bandaríkjamanna
í sambandi við alþjóðlega jarð-
eðlisfræðiárið. — Vísindamenn
fylgdust með síðasta hluta flugs-
ins á þann hátt, að rakettan gaf
ljósmerki tíundu hverja sekúndu
— og á þann hátt var hægt að
mæla hraða hennar og mismun-
andi loftmótstöðu í lofthjúpnum.l
Angistarópum breytt
í fagra hljómkviðu
ÞEGAR nærri 200 íslendingar,
sem voru á leið á æskulýðsmót
kommúnista í Moskvu, fóru frá
járnbrautarstöðinni í Kaup-
mannahöfn, notuðu dönsk æsku-
lýðsfélög tækifærið og dreifðu
meðal íslendinganna miðum, sem
eftirfarandi var letrað á:
Dauðahrópum Ungverjalands á
að breyta í fagra hljómkviðu á
hátíðinni i Moskvu.
Ungverskir stúdentar hafa lýst
því yfir, að gleði og leikar hátíða-
haldanna í Moskvu séu kostuð
með blóðugu striti kúgaðra þjóða
og þrælabúðafanga. Einn tilgang-
urinn með þessari hátíð er að
breyta dauðhrópum ungversku
þjóðarinnar og annarra kúgaðra
þjóða í fagra hljómkviðu, segir í
yfirlýsingu, sem samtök ung-
verskra stúdenta í Noregi hafa
samið í tilefni hátíðahaldanna í
Moskvu.
í yfirlýsingunni segir m. a.:
Sorglegt og djöfullegt ástand
grúfir yfir hátíðahöldunum í
Moskvu: Gleði þeirra og leikir
verða kostuð með blóðugu striti
kúgaðra þjóða og þrælabúða-
fanga. Sú spurning hlýtur að
vakna: Bætir það nokkuð úr
skák, að í hátíðahöldunum taka
þátt unglingar, sem ekki eru
kommúnistar? Við höfum reynslu
af því frá líkum atburðum,
halda ungversku stúdentarnir
áfram, að þeir verða til lítilla
bóta og hvað viðvíkur þátttöku
ungverskra unglinga í slíkum
mótum, þá verður ungverska
þjóðin að fyrirgefa þátttöku
þeirra í mótinu, þar sem þeir eru
þvingaðir til þátttöku. Tilætlun-
in með hátíðahifldunum er ekki
sízt sú að breyta dauða og and-
istarhrópum hinna kúguðu þjóða
í fagra hljómkviðu.
Danskur æskulýður hefur á
þingi æskulýðsins hafnað þátt-
töku danskra ungmenna í hátíða-
höldunum:
„í hugaræsingi yfir hinni
grimmilegu valdbeitingu, viljum
við algerlega hafna aðild í hinum
fyrirætluðu hátíðahöldum Al-
þjóðasambands lýðræðissinnaðr-
ar æsku í Moskvu 1957. Ástandið
í Ungverjalandi hefur afhjúpað
svo öllum ætti að vera Ijóst, hve
slíkt mót er tilgangslaust og við
vörum danska æsku ákveðið við
því að taka þátt í mótinu".
Góða ferð.
Um 400 manns á ánœgju
legu íþróttamóti UMSH
BORG í Miklaholtshreppi, 22.
júlí: — Sl. sunnudag var hið ár-
lega íþróttamót ungmennasam-
bands Snæfellsness- og Hnappa-
dalssýslu, haldið í Stakkhamars-
nesi. Veður var hið ákjósanleg-
asta, sólskin og blíða allan dag-
inn.
í Stakkhamarsnesi hefir aldrei
verið háð íþróttamót fyrr. Er það
hinn ákjósanlegasti staður á all-
an hátt. Þar eru sléttar sandöldur
og íþróttasvæði mjög gott. Þar
er einnig hið yndislegasta út-
sýni, Snæfellsnesfjallgarður,
Skarðsheiði og Akrafjall mynda
stóran fjallaboga, sem var loga-
gylltur af geislum sólarinnar á
sunnudaginn. Þá lokar útsýni haf
brún Faxaflóans til suð-vesturs.
Það var gaman að vera stadd-
ur í Stakkhamarsnesi á sunnu-
daginn og horfa á þróttmikið
æskufólk þessa héraðs hefja í-
þróttir af miklu kappi og lífi og
sál. Það sannaðist þar bezt að
þar var hraust sál í hraustum
líkama. Mótið hófst kl. 2 e.h.
Formaður ungmennasambands-
ins, Þórður Gíslason bóndi á Öl-
keldu, setti mótið. Síðan hófst
guðsþjónusta séra Magnús Guð-
mundsson prestur í Ólafsvík pré
dikaði. Síðan hófst íþróttakeppni.
Kl. 8 um kvöldið hófst svo
dansleikur að Breiðabliki. Mótið
sóttu um 400 manns.
Dómarar á mótinu voru þeir:
Sigurður Helgason, íþróttakenn-
arí, Stykkishólmi og Stefán Ás-
grímsson, bóndi Stóru-Þúfu.
Ungmennafélagið Snæfell í
Stykkishólmi vann mótið. — PálL
Afmœlissýningin
í Handíðaskólanum
SÚ kennslugrein Handíða- og<
myndlistarskólans, sem flestar
kennslustundir eru helgaðar, tr
teiknun. Teiknun er rauði þráð-
urinn í gegnum allar kennslu-
deildir skólans, teiknikennara-
og myndlistardeild, listiðnaðar-
deild kvenna og kennsludeild
hagnýtrar myndlistar. Börnum á
ýmsum aldri er kennd teiknun á
dag- og síðdegisnámgkeiðum.
Ýmsar tegundir teiknunar, m. a.
fríhendisteiknun, tækniteiknun,
mynzturteiknun, tízkuteiknun og
auglýsingateiknun eru kenndar á
síðdegis- og kvöldnámskeiðum.
Myndin, sem fylgir þessum
línum, er pennateikning eftir
Flóka Nielsen, sem undangengin
tvö ár hefur verið nemandi í
myndlistardeild skólans.
Afmælissýningu Lúðvígs skóla-
stjóra lýkur eftir 3 daga. Hún
er í Skipholti 1, opin virka daga
kl. 5—10 síðd., en sunnud. kl.
2—10 síðd.
Þess skal hér getið, að nokkrir
sýningarmunanna eru til sölu,
m. a. nokkur málverk, stein-
prentanir o. fl. Upplýsingar eru
gefnar á sýningunni.
Kjörbúð í Vesf-
mannaeyjum
FÖSTUDAGINN 19. júlí bauð
Kaupfélag Vestmannaeyja frétta-
mönnum útvarps og blaða að
skoða fyrstu kjörbúðina, sem
gerð hefur verið hér í bæ.
Búð þessi er í nýjum húsa-
kynnum að Hólagötu 28. Vel er
til byggingarinnar og húsbúnað-
ar vandað og öllu mjög snyrti-
lega fyrir komið.
Þarna verða allar helztu heim-
ilisnauðsynjar á boðstólum, s.s,
matvörur, hreinlætisvörur o. fl.
Fyrrislátfur alhirtur
VESTMEYJUM, 27. júlí. — Hey-
skapur hér í Eyjum hefur gengið
mjög vel og eru allir búnir að
hirða fyrri slátt. — Nokkuð var
farið að bera á vatnsskorti hér
fyrir rigningardagana tvo, en var
það furðanlega lítið, þar sem
miklar rigningar voru hér í vor
og fólk átti góðar vatnsbirgðir.
— Björn.