Morgunblaðið - 28.07.1957, Page 16

Morgunblaðið - 28.07.1957, Page 16
167. tbl. — Sunnudagur 28. júlí 1957. 2-24-80 . ' ..—■i—Si ■! i ' mm 2-24-80 I Ljósmyndari blaðsins tók þessa mynd á Amtmannsstígnum fyrir nokkrum dögum. Þeir áttu báðir leið um götuna, sr. Friðrik Frið- riksson og snáðinn. Sr. Friðrik gat ekki gengið svo hjá að hann ræddi ekki við þennan litla vin sinn. Víða vatnsskortur ó íslandi — jafnvel Vatnsdalur þurr HOFI í Vatnsdal, 27. júlí. — Það®---- sem af er þessu sumri hefur ver- ið mesti þurrkur sem menn muna eftir. Horfir til stórvandræða með neyzluvatnsskort í héraðinu og er vatn sótt í árnar og því ekið heim á bæina á dráttarvél- um. — Bændur eru nú allir búnir með fyrri slátt, en hey er ekki allt komið í hlöð, heldur er í sæti á túninu. — Sumir eru jafnvel byrjaðir á seinni slætti en þurrk- urinn hefur nokkuð tafið fyrir sprettunni. Annars má segja að heyskapar- horfur séu mjög góðar og spretta á engjum er mjög góð. — Ágúst. Malreiðslunsenn unnu Frestur til að skila tillögum um frímerki framlengdur PÓST- og símamálastjórnin hef- ur ákveðið að framlengja frest- inn til skila á tillögum um gerð frímerkja með mynd af íslenzk- um blómum, til 15. ágúst 1957. Hverjum þátttakanda er heimilt að senda allt að 4 tiilög- ur, sem skulu sendar póst- og símamálastjórninni fyrir ofan- greindan tíma. Tvenn verðlaun, að upphæð kr. 1500,00 og kr. 1000,00 verða veitt fyrir tillögur, sem taldar verða bezt hæfar fyrir fyrirhuguð frímerki. Grettir dýpkar Eltingaleikur við drukk- inn mann á stolnum bíl UM KL. 2 í fyrrinótt komst lög- reglan í mikinn eltingarleik við hörku-ökuþór, sem ók á yfir 100 km hraða um götur bæjarins — á stolnum bíl. Þetta næturævintýr hófst þannig að um kl. 2 var lögreglu- bíll einn að lóna um Vesturbæ- inn og kom þar sem Ánanaust er. Tók lögregluþjónn sem í bilnum var þá eftir því að bifreiðin R-4054, Skodabifreið, fór með rykkjum eftir götunni og öku- maðurinn virtist ekki viss um hvar gatan lá. Héldu lögreglu- þjónar þá að maðurinn kynni að hafa bragðað það og ákváðu að veita honum eftirför og spjalla við hann. En ökumaður var ekki á því að láta grennslast fyrir um ferðir sínar. Brenndi hann beina leið upp á Hringbraut og austur Sérsfæð heyskap- arfíð BORG í MIKLAHOLTSHR., 22. júlí — Síðan sláttur hófst um síð- ustu viku júnímánaðar, hefur ver- ið hin ókjósanlegasta veðurátta, ein sú bezta og blíðasta sumartíð, sem unnt er að fá. Stöðugir þurrk- ar, náttfall, logn og heitir sólskinsdagar. — Þannig hefur hver dagurinn af öðrum verið hér síðan heyskapur hófst á þessu sumri. Komið hafa tveir dagar, sem bleytt hefur á steini, og voru þeir daggardropar dýrmætir fyrir allan jarðargróður. Segja má að heyskapur hafi gengið sérstaklega vel, grasspretta ágæt og nýtingin þar eftir. Töðu- fall mun 'reiðanlega verða með langmesta móti. Víða er túnaslátt- ur langt á veg kominn og einstaka bóndi, sem þyrjaði eftir miðjan júní er búinn að slá bletti í túnum sínum í annað sinn, svo útlit er fyrir að af einstaka blettum muni nást þreföld uppskera, verði þríslegið. hana. Þar sté hann benzínið í botn og lögreglubíllinn á eftir. Upphófst hinn mesti eltingarleik- ur sem endaði með því að Skoda- bíllinn skauzt út af hjá Þórodds- stöðum og stöðvaðist við um- ferðarskilti á Eskitorgi. Ökumað- urinn þau út úr bílnum og elt- ingarleikurinn hélt áfram. Lykt- aði svo eftirförinni að ökuþórinn fannst í runnum í garði við Blönduhlíð og játaði bæði að vera drukkinn og hafa stolið bílnum. Seinni sláttur liaf- inn í Eyjafirði AKUREYRI, 27. júlí. — Hey- skapur heflur gengið mjög vel í Eyjafjarðarsýslu að undanförnu. Hafa þurrkar verið upp á hvern dag síðustu vikur. Nýting heyja er mjög góð og heyafli vel í J meðallagi. Velflestir eða allir eru i búnir að alhirða fyrri slátt og I nokkrir eru byrjaðir á öðrum slætti. Spretta er nokkuð misjöfn í héraðinu. Þurrkar hafa staðið fyrir sprettu í útsveitum. í sumar hefur verið mikið unn- ið að jarðrækt og skurðgreftri. Má segja að það sem af er þessu sumri hafi athafnir staðið með blóma svo sem kostur er. — Vignir. Síldarfréttir SIGLUFIRÐI, 27. júlí: — Héðan er lítið að frétta í dag. Um tvö- hundruð skip hafa legið hér við og engin veiði verið síðasta sól- arhringinn. En nú er komið gott veður, sólskin og lygna og eru fyrstu skipin að fara á miðin. núna eftir hádegið. — Guðjón. RAUFARHÖFN, 27. júlí: — f gær kvöldi komu um 10 þúsund tunn- ur síldar hingað til Raufarhafnar og voru saltaðar um 7 þús. tunn- ur í nótt. — Hér er nú glansandi sólskin en kaldi á miðunum sem hamlar veiðinni. Hefur frétzt um aðeins eitt skip, Hilmir frá Kefla vík sem hefur fengið 100 tunnur um hádegisbilið í dag. Engin skip liggja hér í höfn, nema rétt á meðan er verið að losa, og halda öll aftur á miðin jafnóðum. — Einar. Afbragsgóð hand- færaveiði SUÐUREYRI, Súgandafirði, 27. júlí. — Handfæraveiði var af- bragðsgóð hjá trillubátunum í júlímánuði. Voru dæmi þess að einn maður dróg 14 lestir af fiski yfir mánuðinn. Afli hefur verið stopulli í júlí en alltaf reytingur. Reknetjaveiðar hafa gengið sæmilega hér. Þrír bátar munu stunda þær héðan til að byrja með. í nótt fékk einn bátur 80 tunnur af síld út af Vestfjörðum. — Óskar. Banaslys í Vestmannaeyjum VESTMEYJUM, 27. júlí. — Það hryggilega slys vildi til hér í kaupstaðnum um hádegisbilið, að lítil stúlka, Soffía Bogadóttir, 7 ára gömul, varð fyrir bifreið og beið þegar bana. Slysið vildi til með þeim hætti, að vörubifreiðinni V-166 var ekið niður Vestmannabraut. Ætlaði bifreiðin að beygja niður á Báru- götu, en á gatnamótunum hljóp litla stúlkan fyrir bifreiðina. — Varð hún fyrir framhjóli bifreið- arinnar og beið þegar bana. Soffía litla var dóttir Halidóru Björnsdóttur og Boga Jóhanns- sonar rafvirkja að Hóli í Vest- mannaeyjum. Soffía litla var yngst af fimm börnum þeirra hjóna. — Björn. Av»iý»tn«e»hw1 TÍMAWS 'ér nól 1 95 33 * Af»r*l8sIoidmí TÍMANS: I 23 23 Reykjavik laugardaginn 27. jtilí 1957. m. hitð um land allt Byggíngar stöSvaííar, rekstrarvonir uppgengnar, nautisyniavarningur liorrinn á ýmsum stoÖura, en MorgiinblaÍÉiS hælist um aÖ langt sé komiÖ aS ferekja stjórnina frá völdum meS bessum aSförum WOíf:- 8. KNATTSPYRNUKAPPLEIK- UR milli matreiðslumanna og framreiðslumanna var háður á Framvellinum fimmtudaginn 25. júlí s.l. og sigruðu matreiðslu- menn með 4 mörkum gegn 1. Keppt var um bikar, er Egill Benediktsson veitingamaður hef- ur gefið til þessarar keppni. Ef sigurinn hefði fallið í skaut fram reiðslumanna hefðu þeir eignazt bikarinn. Hvort lið hefur unnið bikarinn fjórum sinnum, en hann vinnst til eignar á næsta ári. Viðskiptasamningur framlengdur VIÐSKIPTASAMNINGURINN milli íslands og Sambandslýð- veldisjns Þýzkalands, sem féll úr gildi hinn 30. júní 1957, hefur verið framlengdur óbreyttur til 30. júní 1958. Bókunin um framlenginguna var undirrituð í Bonn hinn 15. júlí 1957 af Helga P. Briem, sendiherra, og prófessor Hallstein ráðuneytisstjóra utanríkisráðu- neytis Sambandslýðveldis Þýzka- lands. höfnina i Hornafirði HÖFN í Hornafirði, 27. júlí. — Dýpkunarskipið Grettir er byrj- aður að grafa hér í höfninni. — Ætlunin er að dýpka hana, og gengur verkið sæmilega miðað við að mjög erfitt er að komast að því og ekki hægt að vera við það alltaf, þar sem straumar eru miklir. — Gunnar. Hafnargerðinni í Súgandafirði að Ijúka SUÐUREYRI, Súgandafirði, 27. júlí. — Stöðugt er nú unnið hér við hafnargerðina. Er fyrirhugað að Ijúka henni í sumar. í fyrra var sett niður í höfnina 57 metra langt ker og er nú verið að steypa ofan á það. Er verkið langt kom- ið. Er steypunni er lokið er höfn- in tilbúin og geta þá allt að 4000 lesta skip lagzt að hafnargaiðin- um. Fyrir skömmu var hafin bygg- ing nýs barnaskólahúss. Er fyrir- ÞETTA er eftirmynd af aðaifyr- irsögn á 1 .síðu Tímans í gær. Sést þarna svart á hvítu hvernig Framsóknarmenn reyna að nota vandræðin, sem leiða af far- mannadeilunni sér til framdrátt- ar. Aðferðin er sú, að Tíminn og önnur stjórnarblöð reyna að telja almenningi trú um, að Sjálfstæð isflokkurinn haldi uppi far- mannaverkfallinu, og að öðrum þræði eru svo menn sendir út um allt land til að breiða það út, að Sjálfstaeðismenn múti farmönn- uimm til að halda verkfallinu á- fram. Eins og getið hefir verið um í blaðinu, breiða Framsókn- armenn þá sögu út, að Eimskipa félag íslands hafi borgað hverj- um farmanni, sem er í þess þjón- ustu, 1000 krónur í mútufé þann dag, sem atkvæðagreiðsla fór fram um sáttatillögu sáttanefnd- arinnar. Þe.ssum og þvílíkium á- róðri er nú haldið uppi um allt land. Þegar litið er á þessar aðgerðir Framsóknarmanna og stjórnar- blaðanna, gæti svo virst, sem þeir iáti sér vei Iynda, þótt farmanna- verkfallið dragist á langinn. Fer þá að vakna sú spurning, hvort ástæðan til þess að ríkisstjórnin vinnur svo slælega að því að leysa deiluna er sú, að henni og blöðum hennar þykl hagkvæmt að deilan haldi áfram svo hægt sé að nota hana í pólitísku áróðurs- skyni gegn Sjáifstæðisflokknum, eins og nú er gert. Sé svo, sem ýmislegt virðist benda til, verður að skoða afstöðu ríkisstjórnarinn ar til verkfallsins í nýjiu ljósi, og fer þá líka sumt, sem komið hef- ir fram í sambandi við fálm og vetlingatök ríkisstjórnarinnar við lausn verkfallslns að verða auðskildara en áður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.