Morgunblaðið - 08.09.1957, Page 6

Morgunblaðið - 08.09.1957, Page 6
9 MORGVN BL AÐIÐ Sunnudagur 8. sept. 1957 Ríkisstjórinn sem notnr lögreglu til lögbrotn SKÓLAÁR er að hefj.ast í Bandaríkjunum og við það hefur athyglin enn einu sinni beinzt að kynþátta- vandamáli Suðurríkjanna. í fyrra kvað hæstiréttur Banda- ríkjanna upp úrskurð um að þau grundvallar-mannréttindi skyldu virt í Bandaríkjunum, að öll börn skyldu hafa jafnan aðgang að skólum landsins og aðskilnaður kynþátta í skólunum, sem tíðk- ast hefur fram til þessa í Suður- ríkjunum, skuli bannaður. Eftir úrskurðinn lýsti stjórn Eisenhowers því yfir, að hún myndi gera ráðstafanir til að framfylgja honum. Ekki treysti hún sér þó til að gera það í einu Faubus ríkisstjóri vetfangi, því að vandamálið er örðugra en svo viðfangs. En hún samdi áætlun um það hvernig aðskilnaður í skólum skildi smám saman afnuminn og skyidi hann alveg úr sögunni 1963. ★ Með þessu skólaári er fyrsta skref áætlunarinnar stigið. Nú skulu kynþættirnir saman bland ast í öllum Miðskólum eða „High Schools". Og sambandsstjórnin hefur eitt öflugt ráð til þess að framfylgja þessari skipun. Hver sá skóli sem uppi heldur aðgrein- ingu kynþáttanna verður svipt- ur fjárframlagi frá sambands- ríkinu. Þótt hvergi sé sá staður í Suð- urríkjunum, þar sem hvitir menn vilja fúslega viðurkenna jafn- rétti svertingja, þá hefur Hæsta- réttardómurinn nægt til þess að samblöndun kynþáttanna hefur víðast gengið slysalaust. Þeir sem kynnt hafa sér kynþátta- vandamálið í Suðurríkjunum ættu að vita, hve stórfelld bylt- ing hefur verið að gerast þar, þegar það gerðist sl. þriðjudag, að negraunglingar gengu í 712 miðskóla, sem þeim var áður meinaður aðgangur að. ★ Það er ekki þýðingarlítil frétt, að samblöndun kynþáttanna hef- ur t.d. verið framkvæmd í skól- um Norður Karolina, eins svæsn asta bælis svertingjahatursins. Það hefði þótt ótrúlegt fyrir fá- um árum, að blökkubörn fengju að setjast á skólabekk við hlið- ina á hvítum jafnöldrum sínum í borgum eins og Charlotte, Greensboro eða Winston Salem. Sá atburður gerðist einnig í Clinton-miðskólanum í Tennes- see, þar sem mestu lætin urðu í fyrra vegna svertingjastúlkunn- ar Autherine Lucy, að blakkir unglingar gengu hægt og rólega inn í skólann, eins og ekkert hefði í skorizt og settust á víð og dreif innan um hvíta jafnaldra sína. í Kentucky gengu 100 svartir ungl ingar inn í Sturgis-miðskólann, sem aðeins hvítir unglingar höfðu áður aðgang að. Þetta eru merkilegar fréttir um sögulega þróun. Samt hafa þessir merkisatburðir, sem gerzt hafa við yfir 700 skóla í Suðurríkjunum ekki þótt nægilegt efni til stórra fyrir- sagna hjá blöðunum. Þau hafa hins vegar, eins og þeirra er oft vani, valið úr hið æsi- lega efni og hafa ðagblöð um víða veröld sagt meira frá einum skóla en hinum 700. f þessum eina skóla var veitt eina skipulega mótspyrnan gegn samblöndun kynþátt- anna. ★ Arkansas heitir eit ríki í Banda ríkjunum. Það er í hinu „svart- asta“ suðri, næsta ríki fyrir norð an Louisiana og stendur við þver- ána Arkansas, sem fellur í Missi- sippi sunnarlega. í höfuðborg þessa ríkis, Little Rock (125 þús. íbúar) dró til allmikilla tíðinda á þriðjudaginn, þegar fjölmenn- ir og vopnaðir hópar hvítra manna stilltu sér í þéttar fylk- ingar kringum Miðskóla borgar- innar og meinuðu 12 svertingjum aðgang að skólanum. Það er þó álit kunnugra, að samblöndun kynþáttanna hefði einnig þarna farið fram með kyrrð og spekt, ef sá undarlegi atburður hefði ekki gerzt, að sjálf ur ríkisstjóri Arkansas stofnaði til æsinga í sambandi við þessa atburði. Ríkisstjórinn í Arkansas Orval E. Faubus, er 47 ára. Hann er af bláfátækum „hill- biliy“-ættum kominn og hlaut mjög takmarkaða skólagöngu. En hann hefur verið dugleg- ur að bjarga sér og sjálfmennt að sig er hann var kominn á miðjan aldur. Hann er t.d. á- gætur ræðumaður. Hins veg- ar hefur hann komizt til met- orða með öfgum og kynþátta- æsingum. Við pólitískar kosn- ingar hefur hann lýst því helzt sér til gildis, að hann skyldi verja hvítu mennina gegn svörtum, og nú þegar sam- blör.dun kynþáttanna hefur verið á döfinni, hefur hann fiutt margar æsingaræður, þar sem hann hótaði því að fyrr skyldi skerast alvarlega í odda, en að skitugu svertingj- arnir fengju aðgang að skól- um hvítra manna. Og nú vildi svo undarlega til, að valdamesti maður Arkansas, maðurinn sem í rauninni bar skylda til að láta framfylgja lög- um og dómi hæstaréttar, tók til sinna aðgerða til að hindra að lögin næðu fram að ganga. ★ Mánudaginn 2. september kom skólaráð Miðskólans í Little Rock saman og ákvað fyrir sitt leyti, að ekkert væri því til fyrirstöðu, að 12 svertingjar, sem óskað hefðu setu í skólanum, fengju þar inngöngu. - En um kvöldið sendi Faubus ríkisstjóri út tilkyhningu. Hann kvaddi saman allt lögreglulið og þjóðvörð borgarinnar, og skyldu þessir „verðir laganna" koma að skólanum árla morguns á þriðju- dag. Þriðjudagurinn rann upp. Þá höfðu verðir laganna tekið sér stöðu í þéttum fylkingum allt í kringum skólann. Þeir voru vopn aðir trékylfum og rifflum með stálhjálma á höfði. Þegar nem- endurnir komu að skólanum, var hvítum unglingum hleypt í gegn viðstöðulaust en þegar blökku-unglingarnir komu stóð þjóðvörðurinn fastur fyrir og mundaði kylfurnar. Einn blakki unglingurinn reyndi margsinnis að komast í gegn en árangurs- laust. Opinberlega lét Faubus ríkis- stjóri í veðri vaka, að hann hefði kallað saman þjóðvörðinn vegna þess að hann hefði óttast óeirð- ir í borginni, þegar svertingjarn ir fengju inngöngu í skólann. En litlar röksemdir virðast fylgja því. Allt var kyrrt og rólegt í borginni að öðru leyti og í öðrum bæjum Arkansas fór samblöndun fram með mestu spekt. Það virðist því ljóst að ríkisstjórinn kallaði þjóðvörð- inn saman í þeim tilgangi einum að efna til æsinga. Hafa hugs- andi menn mjög harmað að hann gerði það, því að ella hefði skóla ár þetta í Suðurríkjunum hafizt slysalaust og þetta hefur valdið Bandaríkjunum enn einu sinni álitshnekki. Stærsta blaði Arkansas „Little Rock Gazette" fórust svo orð um þennan atburð: — Þetta ástand getur ekki hald izt svo til lengdar, að hvítir menn í þjóðverðinum viðhaldi löglausri kynþáttaaðgreiningu í skólanum. En sannleikurinn er sá, að þessi skrípalæti eru ómiss- andi fyrir Faubus ríkisstjóra, ef hann á að geta veitt úrskurði Hæstaréttar mótspyrnu. Til þess að geta veitt slíka mótspyrnu verður hann að hafa ofbeldishót- un. Og þannig er það sem hann notar sjálfa lögregluna og þjóð- Framh. á bls. 15 Guðrún Gísladóttir nírœð ÞÓTT allt hafi breytzt hér á íslandi á þessari öld, þá er eitt sem verður og er jafnöruggt og traust eins og fjöllin. Það er móðurást göfugrar konu. Tryggð hennar brúar öll heimshöf. Hvar sem sonurinn eða dóttirin dvelst að lokinni ferð um háloftin, þá er bæn og ástúð móðurinnar vís eins og sólskinið eða döggin Helgasti gróður íslenzkrar þjóð- arsálar eru dygðir þær, sem birtast í handtökum og hljóðlátu starfi, hvíslandi ljóði og heitri bæn móður, sem kannske eng- inn þekkir nema ástvinir hennar og börn. Og hve miklu slíkar mæður hafa fórnað, hve þolinmæði þeirra og trú er sterk veit aðeins lifandi vitund íslenzkrar sögu, sem líkt og bylgjan við strönd- ina og blóðstraumur hjartans marka óræð spor lífsins meðal kynslóðanna. Án þeirra fórna, án þess kraftar, án þess kærleika, sem allt kann að fyrirgefa, mundi allt farast og týnast, jafn- vel sólin missa birtu sinnar. Og máttur sliks kærleika er hljóður og leitar ekki síns eig- in, æðsta gleðin er að gefa og gleðja, bæta og græða. Ein slíkra mæðra hefur á morg un litið sól níu áratuga. Samt er hún furðu hress og glöð, ótrúlega sterk og -kannske aldrei í sann- leika fegri né skyggnari á leynd - ardóma tilverunnar, gjafir lífs og dauða. Hún heitir Guðrún Gísladóttir og bjó lengi á Eyrarbakka, með manni sínum Ólafi Árnasyni, sem er dáinn fyrir 22 árum síðan. Hún fæddist 9. sept. 1867 í Stokkseyrarseli í Flóa og voru foreldrar hennar Gísli Andrés- son bóndi þar og kona hans, Guð- ný Hansdóttir. En hann var þekktur fyrir frábæra hand- lagni og smekkvísi, en hún fyrir þolgæði og fórnarlund, er hún hjúkraði honum árum saman limafallssjúkum. En það mun hafa verið eitt hið örðugasta hlutskipti, sem nokkurri konu veittist. Guðún Gísladóttir hefur erft verklagni föður síns og þolgæði og trúartraust móður sinnar í ríkum mæli, að því er kunnugir telja. Hún er og sérstaklega þróttmikil og dugleg kona, sem hefur mætt erfiðleikum lífsins með bænrækni og guðstrú. Hún á sex börn, sem öll hafa reynzt henni góð og umhyggju- söm og ágætir þegnar íslands og bera því vitni góðu uppeldi og hollum erfðum. Og þrátt fyrir þröngan efnahag hafa þau öll hlotið góða menntun. Þau eru þessi: Magnea, gift Ferdinand Eiríkssyni, skósm., Arni útvarps- virki, Sigríður, kaupkona, Gísli, bakarameistari, Guðni, cand pharm., Sigurjón, myndhöggvari. Guðrún nýtur þess óvenjulega og um leið frábæra hlutskiptis að vera nokkurs konar táknmynd íslenzkrar móður í allri sinni hljóðlátu tign, sinni nafnlausu fórn. Snillingurinn, Sigurjón Ólafs- son, yngsti sonurinn, hefur gjört hana ódauðlega með mynd, sem hefur verið keypt á ríkissöfn þriggja Norðurlandanna. Þannig hlýtur hún að verðleikum ódauð- lega frægð vegna þess svipmóta, þeirrar göfgi og heiðríkju sálar- innar, sem listamanninum hefur tekizt að gæða mynd þessar elsk- uðu móður sinnar. í öllu sinu látleysi nefnist myndin aðeins „Gömul kona.“ En hún bir'.ir skýrt hina íslenzku alþýðukonu, móðurina, sem fann æðstu ham- ingju lífsins í því að gefa allt og krefjast einskis handa sjálfri sér. Hún dvelst á morgun hjá Sig- ríði dóttur sinni, Hjarðarhaga 42, og tekur þar á móti gestum sín- um. íslenzka þjóðin er henni þakklát fyrir gifturíkt starf og vinir hennar óska henni af hjarta allrar blessunar Guðs. Árd, sferifar úr daglega lífinu ÞAU tíðindi Hafa gerzt að í dag 1 fer fram svokölluð fegurð- arsamkeppni karla hér í Reykja- vík. Heimsmet í fíflsku ÞÁ höfum við íslendingar enn einu sinni sett heimsmet mið- að við fólksfjölda, að þessu sinni í fíflskap og heimsku. Fegurðarsamkeppni karla er einsdæmi í veröldinni. Hingað til hafa konur einar verið við fegurð kenndar, en fríðleikinn aldrei þótt einn af þeim kostum sem gjörvulegan karlmann prýð- ir, og samkvæmt síðustu tréttum hefir engin breyting á því mati orðið. Því er það algjöilega úr lausu lofti gripið, að láta sér detta í hug að ætla að vaða upp á pall með halarófu af karlmönn- um og láta dæma um það hver þeirra sé fegurstur. Slíkt mundi í öðrum löndum talin slík ónátt- úra að næstum varðaði við hegn- ingarlögin. Fyrirmyndin að þessari keppni mun vafalítið sótt til Banda- ríkjanna þar sem eina hlið- stæða þessa dæmalausa fíflháttar tíðkast, þar halda þeir menn sem lifa af því að belgja upp vöðva sína á hverjum degi með alls- kyns æfingum og kúnstum og eru nefndir Atlasmenn mót sitt einu sinni á ári og velja þá jafn- an þann vöðvabúnkann sem sver- astur er um upphandlegg og bringsmalir sem dæmi um það hvernig maðurinn eigi að vera. Síðan nota þeir vöðvamennið í auglýsingarskyni fyrir sjálfa sig, hvernig ungir drengir geti orðið stór vöðvabúnt á skömmum tíma. Það versta apað eftir ÞAÐ er sorglegt að þessi neðri endi á amerískri „menn- ingu“ skuli vera tekinn upp hér á landi, svo nauðaómerkileg, og hégómleg sem þessi fegurðar- samkeppni er. Og hitt er enn leiðinlegra að það skulj vera merkt og gott slysavarnarfyrir- tæki sem að dáraskapnum stend- ur. Það er ekki verið að verð- launa þann unga manninn sem mestan fiskinn dró úr sjó á þessu ári, eða þann unga bóndann sem fallegast á féð. Néi, sá er valinn íslendingur- inn 1957 sem fegurst hefir smett- ið og bústnasta vöðvana. Þeir tímar virðast liðnir á íslandi er gáfur og andlegt atgjörvi þykir nokkurs manns prýði, kroppur- inn er allt, brjóstvídd karlmanns ins og vöðvasverleiki hans gera hann landsfrægan á einum degi og fá honum heiðurstitilinn ís- lendingurinn 1957. Illa er nú vorum heiðri komið, góðir íslendingar. — Sveinn. Hrútasýning — dans á eftir! OG hér tekur annar til máls um ósómann. í Morgunblaðinu 6. sept. s.l. getur að líta eftirfarandi stór- frétt: „Fegurðarsamkeppm karla í Tívolí". Þetta minnir óneitan- lega á hina víðfrægu frétt! „Hrútasýning á Fosshóli dans á eftir". Slysavarnadeildin Ingólfur í Reykjavík efnir til „fegurðarsam keppninnar" og er slíkt náttúr- lega ekki gert að ófyi'irsynju og sýningin haldin til varnaðar ólof- uðum kvenkosti landsins. Er þaS vonum seinna sem slysavarnar- félög taka slík mál á dagskrá sína. í dag fer sem sé fram keppni um hver sé Glæsir landsins. Af- skaplega verður gaman að sjá hver fyrir valinu verður, og þó sér í lagi hvað hver líkamshluti mælist. Ekki er mér kunnugt um hverj- ir skipa eigi dómnefndina, en ég vildi leyfa mér að stinga upp á þeim dr. Halldóri Pálssyni og Gunnari Bjarnasyni. Ég óska svo forráðamönnum fyrirtækisins til hammgju með uppátækið. Vonandi dregur ekki til muna úr aðsókn að dýrasýn- ingu „skemmtigarðsins" meðan sýning stendur yfir. Hver verður Glæsir íslands, anno domini 1957? Nú þetta er gáta, en ég á von á að dagbækur Kvíabryggju leysi vandann ef allt ura þrýtur. — LENNI.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.