Morgunblaðið - 08.09.1957, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 08.09.1957, Qupperneq 7
Sunnudagur 8. sept. 1957 M O R n V JV B r 4 f) IÐ Torfbæirnir og Kaliforníuhúsin sefja svipmót á byggðirnar Bjarni Sigurbsson arkitekt frá Gautaborg / heimsókn hér ¥ TNDANFARIÐ hefir verið hér á ferð einn þeirra ís- lendinga sem ílenzt hafa er- lendis eftir háskólanám, og unnið sér góðan frama í hinu nýja fósturlandi sínu. í>að er Bjarni Sigurðsson arkitekt, Hún syngur og oft í útvarpið sænska frá Gautaborg og hefir einnig víða sungið um Norður- lönd. Þetta er í fyrsta skipti sem frú Norlin kemur hingað til lands en Bjarni kom hér síðast fyrir 9 árum. TORFBÆIRNIR OG HÚ S AGERÐ ARLIST — Við vorum uppi í Borgar- firði, segir Bjarni og brosir. Ég var að heimsækja æskustöðvarn- ar á nýjan leik og víðar höfum við ferðazt hér um Suðurlandið. Það er gaman að veita breyt- Bjarni Sigurðsson arkitekt og frú Gunnvor Norlin kona hans, er þau Iiiu inn til Mbl. í vikunni. (Ljósm. Mbl. Gunnar Rúnar). sem búsettur hefír verið á þriðja tug ára í Gautaborg. ★ Bjswmi *r ættaður úr Borgar- firðinum frá Skógum i Flókadal, en þar er hann uppaiinn. — Fór hann til náms í húsagerðar- list eftir að hafa lokið stúdents- prófi frá Menntaskólanum hér í Reykjavík 1926. Hélt hann til Stokkhólms og lauk þar prófi, en svo skipuðust málin, að hann sneri ekki heim heldur hefir síðan látið Svía njóta starfs- krafta sinna og eru þau orðin þó nokkur húsin í Svíaríki sem nú búa að Bjarna fyrstu gerð. Bjarni hefir um langt skeið ver- ið búsettur í Gautaborg, og starf- að við skipulagningu og bygg- ingu nýrra hverfa, Möldal og Kungsbakka. Aður var hann starfandi hjá Gautaborgarbæ en rekur nú sjálfstætt firma. LITIÐ VIÐ í GA9TABORG Bjarni hefir manna bezt fagn- að íslendingum sem lagt hafa leið sína til Gautaborgar og reynzt þeim góður haukur í horni. Hefi ég kynnzt því af eig- in raun, er við fimm ísienzkir blaðamenn dvöldumst um viku- skeið í Gautaborg fyrir fjórum árum. Var hann þá oft í fylgd með okkur um borgina og na- lægar byggðir og varð ekki a betri leiðsögumann kosið en Bjarna. íslendingafélag var stofnað í Gautaborg fyrir féum árum og er Bjarni varaformaður félags- ins en formaður þess er Peter Hallberg, Laxnessþýðandi. Ég hitti Bjarna að máli einn daginn í vilcunni og við rifjuð- um upp gamlan kunningsskap Með honurn á ferð var hér kona hans sænskrar ættar, frú Gunn- vor Norlin, en hún er kunn vísnasöngkona frá Gautaborg. Hún er fædd í Gautaborg og er ein vinsælasta vísna- og revíu- söngkonan þar í borg. Hún hefir á hverju sumri sungið í einum stærsta skemmtistað Gautaborg- ar, Liseberg og víða annars staðar og hlotið ágætar viðtök- ur. ingunum athygli. Þegar ég fór úr föðurgarði var enginn bær utan torfbæja í Reykholtsdam- um. Nú eru þeir orðnir í minni- hluta. Það er mikil breyting á fáum árum og góð breyting þrátt fyrir það að í augum arkitekts- ins eru torfbæirnir gæddir sín- um töfrum. Þeir falla svo vel inn í hið íslenzka sveitalandslag. Síðan spjöllum við áfram um húsagerðarlist og byggingarmál. við tölum um nýju húsin, sem hér hafa risið upp í Reykjavík á síðustu árum, í „Snobbhill" og víðar, í öllum regnbogans litum, og af flestri lögun og formum. — Það er gaman að sjá þetta, segir Bjarni og hér kennir margra grasa í húsagerð og bygg ingarlist. Reynslutími er alltaf nauðsynlegur og með árunum kemur í ljós hvaða byggingar- stíll og hvers konar húsagerð er hér hentugust. í GAUTABORG Við ræðum um íslendingafé- lagið í Gautaborg. í því eru nú um 100 manns, segir Bjarni. í Gautaborg hafa alltaf verið all- margir Íslendingar búsettir, enda er borgin í þjóðbraut Nú eru um 20 íslendingar í félaginu og margt sænskra íslandsvina að auki. Við höldum árlega hátíð, förum í sumarferðalög og hitt- umst ef eitthvert sérstakt lilefni gefst svo sem þegar Halldór Kilj- an Laxness kom til Gautaborg- ar eftir að hann hlaut Nóbels- verðlaunin. Þá las hann upp í íslendingafélaginu við lof allra manna. Og ef þú skrifar eitthvað af því niður á blað, sem ég er að segja- þér þá bið ég þig þess lengstra orða að koma því á framíæri, að okkur þykir vænt um, er þeir íslendingar sem um Gautaborg fara eða þar dveljast hafa samþand við okkur og láta vita af sér. — Glsymdu ekki að geta um það! Sgs. Kristéán GuðSaugssor hæstc.'réttarlögma(Vur. Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5. Austurstræti 1. — Sími 13400. Giæsileg 1. hæð í nýju húsi á góðum stað í vesturbænum til sölu. íbúðin er 130 ferm., 4 herbergi (geta verið 5), eld- hús og bað. Sér inngangur. Geislahitun. Bílskúr. Lysthafendur leggi nöfn sín á afgr. Mbl. fyrir þriðjudagskv. merkt: Góður staður — 6429. Auglýsing Kærur út af úrskurði landsnefndar fasteigna- matsins um mat á lóðum til yfirnefndar, sbr. 2. gr. 1. nr. 44/1957 um skatt á stóreignir, ber að senda til Gizurs Bergsteinssonar c/o Hæstiréttur. ^jfjá nnálará&uney ti & Afgreiðslustarf Stúlka óskast il afgreiðslu í snyrtivörudeild. Sér- þekking nauðsynleg. Umsóknir, er greini frá aldri og fyrri atvinnu sendist afgr. Mbl. sem fyrst merkt. ar: ,,Snyrtimennska — 6426“. 'jSlLNÆMUR OSTUR • • HQAUST 3ÓQN GRÁDAOSTUR SWSUROSTUR GODOSTUR RJÓMAOSTU* MYSUOSTUR MYSINGUR 45% ostur • 40% ostur . 30% 0#tt«r Karlmannasokkar Einungis framleiddir úr beztu fáanlegum efnum, s.s. Krep næSon Spun nælon UBl & nælon Perlon Ný mynstur eru að koma á markaðinn Framleiðandi: Sokkaverksmiójan hf. Pöntunum veitir möttöku Samein^^jye^ksmi^/uaj^reidsfan BRÆÐRAB0R6ARSÍÍ6 7 - REYKJAVÍK Sími: 22160 — 5 línur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.