Morgunblaðið - 08.09.1957, Blaðsíða 11
Sunnudagur 8. sept. 1957
MORCUISBL AÐIÐ
11
Nokkur orð frá landsliðsnefnd KSI til
Atla Steinarssonar og Sig. Sigurðssonar
Leikir Akureyringa og Hafnfirbinga
NÚ að afstöðnum landsleikum
okkar íslendinga við Frakkland
og Belgíu, leyfir landsliðsnefnd-
in sér að óska eftir að fá eftirfar-
andi birt á íþróttasíðu Morgun-
blaðsins.
Landsliðsnefnd er einhuga um
þá skoðun að aldrei komi til
greina að hlutverk hennar verði
bundið umræðum á opinberum
vettvangi um val nefndarinnar í
landslið íslendinga. Það gefur
auga leið að slíkt gæti leitt til
blaðadeilna milli þeirra, sem ó-
hjákvæmlega yrði rætt um, þ. e.
knattspyrnumannanna sjálfra
annars vegar og landsliðsnefnd-
ar hins vegar. Slíkt er óhugsandi
og engum til ávinnings.
Vegna greinar Atla Steinars-
sonar í Mbl. 4. þ. m. á íþrótta-
síðu blaðsins þykir nefndinni ó-
hjákvæmilegt að eftirfarandi
komi fram.
Albert Guðmundsson var sem
kunnugt er valinn varamaður í
landsleiknum gegn Frakklandi.
Var hann boðaður til fundar og
samveru með liðinu til undirbún-
ings leiksins eins og aðrir leik-
menn, sem valdir höfðu verið.
Albert Guðmundsson mætti ekki.
Mætti hann ekki að heldur til
búningsherbergja landsliðsins
daginn, sem leikið var. Hann sást
því aldrei meðal þeirra, sem hann
ef til vill átti að leika með þá
tæpa tvo daga, sem undirbún-
ingurinn stóð yfir og sem honum
var ætlað að gera. Af þessum
sökum var A. G. m. a. ekki til
umræðu hjá nefndinni þegar val-
ið var í liðið gegn Belgíumönn-
tun.
Til þess að gera mönnum ljóst
hve nauðsynlegt er að varamenn
séu með í öllum undirbúningi,
Og séu jafn vel fyrirkallaðir og
aðalmenn liðsins, skal frá því
sagt, að það var ekki fyrr en 2
klukkustundum fyrir landsleik-
inn við Belgíu, að úr því var
skorið af tilkvöddum lækni, hvort
Halldór Halldórsson miðfram-
vörður landsliðsins gæti leikið
með eða ekki. Til áréttingar leyf-
ir nefndin sér að taka fram að
það hefur einu sinni áður komið
fyrir að einn varamanna í lands-
liði mætti ekki til leiks, þótt
heill hafi verið. Var þá sama af-
staða tekin og nú. Vísar þvi
nefndin algjörl, á bug aðdróttun
um A. St. o. fl. blaðamanna til
nefndarinnar m. a. um hatur o
þ u 1. í garð A G. Slikt er hin
mesta fjarstæða.
Að lokum leyfir landsliðsnefnd
in sér að skjóta því til Sigurðar
Sigurðssonar íþróttafréttaritara
útvarpsins, hvort hann telji rétt
að ráðast svo gegn landsliðsnefnd
inni í Ríkisútvarpinu eins og
hann leyfði sér að gera í síðasta
þætti sínum um íþróttamál.
Knattspyrnusamband íslands
reyndi að koma leiðréttingu í
útvarpið við málflutning Sigurð-
ar fyrir nokkru, er hann að dómi
stjórnar K. S. f. rangtúlkaði mál
formanns sambandsins, en án ár-
angurs. Það er að okkar dómi
mjög alvarlegt mál, ef það á að
líðast umtölulaust að opinber
starfsmaður, sem hefur aðgang
að Ríkisútvarpinu skuli líðast
slíkur málflutningur, þar sem
menn koma engum vörnum við,
og fá ekki einu sinni birtar leið-
réttingar. Hver ber ábyrgð á
slíku?
Þrátt fyrir moldviðri það sem
þyrlað hefur verið upp í þessu
máli, hefur landsliðsnefnd reynt
að halda vöku sinni og gert það
sem hún hefur talið rétt, hver
sem í hlut á.
Er þetta mál hér með útrætt af
hálfu landsliðsnefndar sem harm
ar að til þessara skrifa skyldi
þurfa að koma.
Reykjavík, 6. sept. 1957.
Landsliðsnefnd K.S.Í.
Svar landsliðsnefndar?!!
Dömur
Hef opnað aftur eftir sum-
arfn. Fjölbreytt úrval af
kápu- og dragtarefnum
fyrirliggjandi.
Saumastofa
GuSnýjar Indriðadóttur
Miklubraut 74 Sími 23771
Síntini er:
22-4-40
BORGARBlLSTÖÐlN
★
Það er eins með þetta svar
landsliðsnefndar KSÍ og fleiri
verk hennar á þessu sumri — það
er illa gert og hefði betur, lands-
nefndarmannanna vegna, verið
látið ógert, úr því að þeir eru svo
feimnir með sínar eigin skoðan-
ir að þeir þora ekki að láta þær
uppi við nokkurn mann!!
Það er að sjálfsögðu skylt og
mjög Ijúft að þakka það að ég
framar öðrum blaðamönnum fæ
svar frá landsliðsnefndinni.
En getur það verið að ein-
hverjar annarlegar ástæður liggi
til þess að landsliðsnefnd svar-
ar? Á hvern hátt hún svarar,
bendir til að svo sé.
Hún segir í upphafi, að ALDR-
EI (lbr. Mbl.) komi til
greina að hlutverk hennar
verði bundið umræðum á op-
inberum vettvangi um val nefnd-
arinnar í landslið íslendinga.
Það gæti leitt til blaðadeilna
milli þeirra er rætt væri um og
landsliðsnefndarinnar. „Slíkt er
óhugsandi og ENGUM TIL
AVINNINGS“. (lbr. Mbl.)
En hún svarar hálfum lið í
grein minni frá 4. sept. þeim er
víkur að Albert Guðmundssyni,
og kemur þar með nýtt sjónar-
mið í málinu sem væntanlega
verður rætt til hlítar. Svarar
nefndin þessum lið greinar mmn-
ar, vegna þess að henni er sama
um Albert — sama hvort um
hann er rætt í blöðum „engum
til ávinnings" — og vill jafnvel
kasta fyrsta steininurpgsjálf?
Sé fljótlega farið yfir grein
mína frá 4. sept. má finna í henni
eítirfarandi atriði sem beint er
til landsliðsnefndar:
1. Að dómi flestra voru 3—5
hlekkir í íslenzka landsliðinu
gegn Frökkum veikir. Hví
gerði nefndin ekki breyting-
ar til að bæta þar um?
2. í landsleiknum við FVakka
voru Albert og Skúli Nielsen
varamenn framherjanna. Einn
aðalmaður liðsins er settur út
úr því. Hví var hlaupið fram
hjá Albert og Skúla (mat
landsliðsnefndar á peim
hlaut að vera hið sama 2.
sept. og 27. ág.), en þriðji
maðurinn tekinn inn í liðið?
(Og bæta má við: Hví gerir
nefndin grein fyrir því, að
Albert var ekki valinn, en
minnist ekki á Skúla?)
3. Gunnlaugur talaði 27. ágúst
um nauðsyn þjálfunar lands-
liðsmanna og kvað Albert
Guðmundsson ekki vera í
þjálfun og eltki einn af 11
beztu mönnum okkar. Svo
var spurt: Vilja Gunnlaugur
og félagar hans halda því
fram að Ragnar sé í þjálíun?
4. Er skipunarbréf núverandi
landsnefndar til fleiri ára?
AKUREYRI laugardaginn 24.
ágúst. Akureyri vann Hafnar-
fjörð í skemmtilegum og spenn-
andi leik á grasvellinum á Akur-
eyri í dag, með 2:1. Veðrið var
ekki sem ákjósanlegast, nokkurt
regn og norðankaldi og spillti
það nokkuð fyrir góðum leik.
Sérstaka ánægju vakti það að
sjá Hermann Hermannsson verja
mark Hafnfirðinga, hvað hann
gerði með ágætum, og minnti
nærvera Hermanns ýmsa Akur-
eyringa á fjölmarga skemmtilega
leiki, sem Valur hefur háð á
Akureyri, en því miður fækkar
nú óðum þeitn góðu heimsóknum.
Hafnarfjarðarpiltarnir voru
léttir og hreyfanlegir og léku
góða knattspyrnu, en nokkuð
skorti á öryggi markskotanna.
Mörgum þótti bezti maður Haín-
firðinga Einar Sigurðsson að und
anteknum Albert Guðmundssyní,
sem hafði samleik og nákvæmar
knattsendingar á hávegum.
Beztu menn í liði Akureyringa
voru Guðmundur Guðmundsson
og Ragnar Sigtryggsson og svo
markvörðurinn Einar Helgason,
sem vSrði ágætlega.
Lið Akureyringa náði vel sam
an á köflum, en öðru hverju
tókst miður um samleik og sam-
heldni og áttu þeír nokkur skot
framhjá marki Hafnfirðinga í
upphafi leiks af góðu færi. Bæði
mörk Akureyringa voru hrein og
óverjandi. Fyrra markið sett af
Birni Olsen, kom innan í stöng
úr þvögu af stuttu færi, og því
óverjandi. Seinna mark Akur-
eyringa var einig óverjandi, skor
að af Jakobi Jakobssyni.
Hafnfirðingar fengu sitt mark
skorað úr vítaspyrnu. Var spyrn-
an vel framkvæmd af Ásgeiri
Þorsteinssyni. Margt var áhorf-
enda, jafnvel voru gamlir knatt-
spyrnumen komnir utan úr Greni
vík. Slíkar knattspyrnuheim-
sóknir vekja óblandna gleði á
Norðurlandi, en mikill áhugi hef-
ur löngum verið ríkjandi þar
á íþróttinni. Nokkuð skyggði
það á gleði áhorfenda, að við
sjálft lá að leikmenn hættu knatt
spyrnunni í miðju kafi, vegna
ágreinings milli Alberts og dóm-
arans, Rafns Hjaltalíns.
★
AKUREYRI, 25. ágúst. — Mikill
mannfjöldi horfði á leik Akur-
eyringa og Hafnfirðinga í dag,
enda var sólskin og gott veður.
Leikurinn var á köflum mjög
spennandi. í fyrra er sömu aðilar
áttust við hér á grasvellinum, var _
leikurinn harla ójafn. Þá höfðu
Akureyringar algera yfirburði
(13:4), en nú hafa Hafnfirðingar
með stöðugri þjálfun undir for-
ystu Alberts Guðmundssonar tek-
ið skjótum og miklum framförum
og mátti nú vart á milli sjá, hvor
sigra mundi.Akureyringar virðast
hafa lagt niður nokkuð af hinum
stutta samleik, sem var styrkur
þeirra á grasvellinum.
Hafnfirðingar hófu sókn þegar
í byrjun leiks og náðu fljótiega
að skora. Var Ásgeir Þorsteinsson
þar að verki. Nokkru seinna
gerðu Akureyringar harða hríð
að marki Hafnfirðinga og áttu
margar góðar sóknarlotur, sem
gáfu þeim 2 mörk (Jón Stefáns-
son og Tryggvi Georgsson).
Hermann Hermannsson varð að
yfirgefa mark Hafnfirðinga
snemma í leik, vegna smámeiðsla,
og upp úr því voru mannaskipti
í liði beggja alltíð, enda leikurinn
of harður á köflum. Annað mark
Hafnfirðinga fengu þeir, er mið-
vörður Akureyringa Haukur
Jakobsson hugðist gefa knöttinn
til markvarðar síns, sem hlaupinn
var út, og hafnaði knötturinn í
netinu.
Sigurmark Hafnfirðinga skor-
aði Albert Guðmundsson eftir
mistök hjá vörn Akureyringa, og
var Einar, markvörður þá „að
heiman" öðru sinni.
Hafnfirðingar sátu að leik
loknum kaffiboð heimamanna.
Dómari í síðari leiknum var
Sveinn Kristinsson. — GuS.
Telji landsliðsnefndin að hún
sé búin með ofanskráðu svan
sínu að svara þessum spurning-
um, þá staðfestir þetta svar
hversu mikið kák og fum hefúr
einkennt öll hennar störf. Hún
hefur svarað 2. lið að hálfu leyti.
— 1.—3. og 4. lið er ósvarað —
Það trúa víst fáir nema hún sjálf
(ef hún þá trúir því!!) þessum
orðum hennar: „... .hefur lands-
liðsnefnd reynt að halda vöku
sinni og gert það sem hún hefur
tálið rétt, hver sem í hlut á“.
A. St.
UnglSng
vanfar til blaðburðar við
KrHnglumýri
Selfossbíó
Dansleikur í kvöld
HLJÓMSVEIT Gunnars Ormslev.
Söngvari Haukur Morthens.
leika og syngja nýjustu rock og dægurlögin.
Ódýr sófasett
Sófi og tveir stólar kr. 5400,00
Sófi og tveir stólar kr. 5.550.00 og 5.750.00.
Svefnsófar eins og tveggja manna. Áklæði eftir vali.
Sófaborð og smáborð.
Fjórar gerðir af unglingaskrifborðum.
Verzlunin Skeifan
húsgagnaverzlun — Snorrabraut 48, sími 19112
Feguriíarsamkeppni karla
Slysavarnadeildin Ingólfur efnir til fegurðarsam-
keppni karla um titilinn
„ÍSLENDINGURINN 1957“,
í Tívolígarðinum í dag, klukkan 3,30 e. h.
Garðurinn opnaður kl. 1,30
Fjölbreytt skemmtiatriði:
Flugvél varpar niður gjafapökkum.
Dansað á Tívolípallinum.
Aðgöngumiðasala í Tívolí og söluturninum við
Arnarhól og Laugaveg 30.
Ferðir frá Búnaðarfélagshúsinu.
Hver verður ÍSLENDINGURINN 1957?
Slysavarnadeildin Ingólfur.
Vegno veikindaforíolla
geta tveir nemendur komizt að í heimavist
Húsmæðraskóla Reykjavíkur.
Upplýsingar í síma 11578.
Skólastjóri.