Morgunblaðið - 26.09.1957, Síða 16
16
M ORGUTVBI 4Ð1Ð
Flmmtudagur 26. sept. 1957
ÍA
!___
ustan
Edens
eftir
John
Steinbeck
1401
um skrefum. Hann hélt krepptum
hnefunum djúpt niðri í buxnavös-
unum: — „Ég hata hana, vegna
þess að hún fór frá pabba og —
okkur Aroni“, sagði hann“. Hann
var niðurlútur og röddin grát-
klökk.
Lee stökk á fætur. — „Hættu
J>essu“, sagði hann æstur. — „Og
nefndu aldrei móður þína við
nokkum lifandi mann — allra
sízt Aron bróður þinn. Ef þú ger-
ir það, þá skal ég brjóta hvert
einasta bein í þínum synduga
skrokk".
Þegar Cal var farinn, settist
Lee aftur í stólinn sinn.
„Hvað er eiginlega orðið af
minni kínversku ró?“ hugsaði
hann með sér,'dapur í skapi.
4.
Uppgötvun Cals viðvíkjandi
móður sinni var honum fremur
staðfesting á gömlum grunsemd-
um en ný vitneskja. Og afleiðing-
in varð tvöföld. Hann kenndi
nánast sigurgleði og gat
skilið merkingu orða og athafna,
skilið óljósar bendingar, jafnvel
endurmyndað atburði hins liðna,
en allt þetta mátti sín lítils á
móts við þann sársauka, sem hin
nýja vitneskja olli honum.
Líkamlega séð stóð hann á tak
mörkum bernsku og manndóms og
sviptivindar kynþroskaáranna
geisuðu í sál hans. Eina stundina
var hann hreinn og saklaus, en
aðra klúr og spilltur og þess á
milli var hann yfirkominn af
blygðun og sektarvitund.
□--------------------□
Þýðing
Sverru Haraldsson
□--------------------□
Uppgötvun hans jók á allar
þessar tilfinningar. Honum
fannst, að hann, sem hlotiö hafði
slíka arfleifð, hlyti að vera frá-
brugðinn öllum öðrum. Hann átti
erfitt með að trúa orðum Lees og
því, að aðrir drengir hefðu við
hið sama að stríða.
Sirkusinn hjá Kate vék eklci úr
huga hans. Stundum kveikti hugs
unin um hann kynferðislegan
funa í sál hans og líkama og
stundum fyllti hún hann við-
bjóði og ógeði. Hann gaf föður sín
um nánar gætur og kannske sá
hann dýpri sorg og sárari von-
brigði hjá Adam, en raunverulega
var. Og hjá Cal þroskaðist ástríðu
full ást á föðurnum og óskin um
að vernda hann og bæta honum
það upp, er hann hafði orðið að
þola. í hinum tilfinningaríka
huga Cal virtust þessar þjáning
ar óbærilegar með öllu. — Hann
læddist inn í baðherbergiö, með-
an Adam var að baða sig, sá hið
Ijóta ör á öxl föður síns og heyrði
sjálfan sig spyrja, þvert á móti
vilja sínum: — „Hvaða ör er
þarna á öxlinni á þér, pabbi?“
Adam greip um öxlina, til að
hylja örið og sagði: — „Það er
gamalt sár, Cal. Ég fékk það, þeg
ar við börðumst við Indíánana.
Ég skal einhvern tíma segja þér
frá því“.
Cal hafði horft á andlit Adams
og sá hvernig hann greip til lyg-
innar, til þess að bjarga sér með.
Cal hataði ekki lygina, heldur
hitt, að faðir hans skyldi neyðast
til að Ijúga. Cal laug, til þess að
öðlast eitt eða annað. Að vera
neyddur til að Ijúga virtist hon-
um smánarlegt. Hann langaði til
að hrópa upp: —‘ „Ég veit hvern-
ig þú fékkst það og það breytir
engu. Mér þykir jafnvænt um
þig fyrir það“. En í þess stað
sagði hann. — „Mig langar mjög
mikið til að heyra það“.
Aron fékk líka að kenna á um-
róti gelgjuskeiðsins, en tilhneig-
ingar hans og hvatir voru hægari
en hjá Cal. Kröfuóp líkama hans
voru ekki eins hávær. Ástríður
hans tóku trúarlega stefnu. Hann
ákvað að verða prestur. Hann tók
þátt í öllum guðsþjónustum í
biskupakirkjunni og aðstoðaði við
að skreyta kirkjuna með blómum
og laufi á hátíðunum og var mörg
um stundum hjá unga, hrokkin-
hærða prestinum, séra Hrólfi. —
Aron lærði um hættur heimsins
hjá ungum reynslulausum manni
og vandist þv! sjálfur á að álykta
og úrskurða að hætti þeirra, sem
enga reynslu hafa.
Aron var fermdur £ biskupa-
kirkjunni og hann söng með kirkju
kórnum á hverjum sunnudegi. —-
Abra var lengstum með honum.
Hin kvenlega skynsemi hennar
skildi að slíkt var nauðsynlegt, en
ekki að sama skapi mikilvægt. —
Það var eðlilegt, að Aron, sem
svo nýlega hafði orðið fyrir slíkri
hugarfarsbreytingu, reyndi að
hafa áhrif á Cal. Fyrst bað Aron
fyrir Cal, en að lokum talaði
hann alvarlega um fyrir honum.
Hann fordæmdi Guðleysi Cals og
krafðist þess að hann bætti líf-
emi sitt.
Ef Aron hefði farið skynsamleg
ar að ráði sínu, er mjög líklegt að
Cal hefði reynt að þóknast honum.
En Aron hafði náð stigi svo öfga-
fulls skírlífis ogf hreinleika, að
allir aðrir v«ru óhreinir og viður-
styggilegir í hans augum. Eftir
nokkrar siðaprédikanir fannst
Cal hann vera óþolandi dygða-
ljós og sagði honum það afdráttar
laust. Það varð þeim báðum til
mikils léttis, þegar Aron dæmdi
hann eilíflega glataðan.
Það fór ekki hjá því að- tr1’' Ar-
ons sveigðist inn á kynferðisbraut-
ina. Hann talaði við Öbru um nauð
syn þess, að vera hófsamur og skír
lífur og ákvað að lifa lífi sinu í
algeru einlífi. Abra var svo skyn-
söm að lýsa yfir samþykki sínu,
því að hún vonaði og trúði því að
hann myndi fljótlega skipta um
skoðun í þessum efnum. Einlífið
var það eina ástand sem hún hafði
þekkt. Hún vildi giftast Aroni og
ala honum mörg -börn, en sl{kt
nefndi hún ekki við hann, að svo
komnu máli. Hún hafði aldrei ver-
ið afbrýðissöm fyrr, en nú fór hún
að finna til ósjálfráðrar og
kannske réttlátrar reiði gagnvart
séra Hrólfi.
Cal sá bróður sinn hrósa sigri
yfir syndum, sem hann hafði
aldrei drýgt. Hann hugsaði um
það með kaldhæðni að segja hon-
um sannleikann um móður þeirra,
til þess að sjá, hvernig hann
myndi taka þeim fréttum, en hann
flýtti sér að vísa þeirri hugsun
frá sér. Hann áleit Aron ekki
nðgu sterkan til að þola slíkt
áfall.
39. KAFLI.
I.
Með vissu millibili fóru vægir
siðferðislegir jarðskjálftar yfir
Salinas. Atburðirnir voru oftast
mjög svipaðs eðlis. Einn kippur-
inn var líkur öðrum. Stundum
áttu þeir upptök sín £ prédikunar
stólnum. Stundum olli þeim nýr
metorðagjarn formaður £ kvenfé-
lagi borgarinnar. Fjárhættuspil
var ávallt iú syndin sem skilyrð-
islaust varð að upprætast. Það
var ýmislegt sem gerði viðureign
ina gegn fjárhættuspili auðveld-
ari. Maður gat talað um það op-
inberlega, sem ekki var hægt, t.
d. um skækjulifnað og hóruhúsa-
rekstur. Spilahúsin voru augljóst
þjóðfélagsböl og flest rekin af
Kinverjum. Það var þvi litil hætta
á að maður hyggi nálægt frænda
eða vini, þótt ráðizt væri á slík
spilavíti.
Dagblöðin tvö, sem gefin voru
út í Salinas, gengu þegar £ lið
með kirkjunni og kvenfélaginu. I
harðorðum ritstjórnargreinum
var krafizt gagngerðra hreinsana.
Lögreglan samþykkti fyrir sitt
leyti, en afsakaði sig með þvf,
hve liðfá hún væri, krafðist auk-
inna fjárfestinga og ekki alltaf án
árangurs.
Þegar menn lásu ritstjórnar-
greinar blaðanna, vissu allir,
hvað f vændum var. Það sem á
eftir fylgdi var framkvæmt með
varfærni og gætni, eins og vel
undirbúinn ballet. Lögreglan beið
tilbúin. Spilavítin biðu tilbúin og
blöðin birtu fyrirfram skrifaðar
VERJIÐ TEIMNUR YÐAR
SKEMMDIJM
og látið ekki holur myndast!
Farið reglulega til tannlæknis
og spyrjið hann um
NÝTT „SUPER“ AMM-I-DENT
með hinu undraverða
FLUORIDE
hamingrjuóskir. Svo kom innrás-
FjöBskylda
ÞJóðanna
Alþjóðleg ljósmynda-
sýning.
Opin daglega frá kl. 10
til 22.
Aðgangur ókeypis.
Iðnskólinn við Vitastíg.
M A R K U S Ef tir Ed Dodd
in, núkvæmlega undirbúin og
skipulögð. Tuttugu til þrjátiu
Kínverjar, innfluttir frá Pajaro,
nokkrir rónar, sex til átta farand-
salar, sem ekki höfðu fengið nein
ar aðvaranir, vegna þess að þeir
voru utanbæjarmenn, festust í
neti lögreglunnar, voru fluttir á
lcr-reglustöðina, settir í varðhald,
selctaðir morguninn eftir og síðan
látnir lausir. Svo komst aftur
kyrrð á í borginni, sem nú naut
langþráðs flekkleysis og spilavítin
töpuðu aðeins tekjum einnar næt-
ur, að viðbætturr fjársektunum.
Kvöld nokkurt, haustið 1916,
stóð Cal og horfði á menn- spila
fan-tan hjá Shorty Lime, þegar
ein slík innrás var gerð og hann
barst með hópnum, er handtekinn
var. 1 myi'krinu veitti enginn hon
um athygli og lögreglustjóranum
brá ónotalega i brún, þegar hann
fann hann í fangelsinu morguninn
eftir. Lögreglustjórinn hringdi til
Adams, sem var nýseztur við
morgunverðarborðið. Adam gekk
þegar til ráðhússins, sótti Cal,
gekk yfir götuna að pósthúsinu,
náði í póstinn sinn og svo fóru
þeir báðir heim.
Lee hafði haldið eggjum Adams
heitum og steikt tvö handa Cal.
Aron gekk í gegnum borðstof-
una, á leið í skólann.
„Viltu að ég bíði eftir þér?“
spurði hann Cal.
„Nei“, sagði Cal. Hann leit ekki
upp, en hélt áfram að borða egg-
in.
Adam hafði ekkert sagt nema:
„Korndu", þegar hann gekk út úr
ráðhúsinu. Síðan hafði hann ekki
mælt orð af vörum.
Cal neyddi sig til að borða mat-
inn, sem hann hafði alls enga lyst
á, og Öðru hvérju stalst hann til
að gefa föður sínum hornauga.
Hann gatt ekki ráðið neitt af svip
Adams. Hann virtist allt í senn,
ráðþrota og reiður, hugsandi og
sorgbitinn.
Adam starði niður £ kaffiboll-
ann sinn og þögnin hélt áfram að
vara, unz hún var orðin ægiþung
sem heil öld og óbærileg þeim sem
í stofunni sátu.
Lees rak hausinn inn um dyrn-
ar: — „Kaffi?“ spurði hann.
Adam hristi höfuðið hægt og
seinléga. Lee hvarf úr gættinni og
lokaði nú eldhúsdyrunum á eftir
sér.
Þögnin var farin að gera Cal
hræddan. Hann fann einhvern
kraft sem hann hafði ekki vitað
að væri þar til. Hann fékk nála-
dofa í báða fætur, en þorði samt
ekki fyrir sitt litla líf að hreyfa
SHUtvarpiö
Fimmtudagur 26. september:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 „Á frívaktinni', sjó-
mannaþáttur (Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir). 19,30 Harmonikulög
(plötur). 20,30 Úr sjóði minning-
anna: Dagskrá Menningar- og
minningarsjóðs kvenna, gerð úr
ritum Ölínu Jónasdóttur. — Karó-
lína Einarsdóttir og Valborg Bents
dóttir velja efnið og búa til flutn-
ings. Flytjendur aukþeirra: Halla
Loftsdóttir og Andrés Björnsson.
21,30 Útvarpssagan: „Br.rbara“
eftir Jörgen-Frantz Jacobsen;
VII. (Jóhannes úr Kötlum). —-
22,10 Kvöldsagan: „Græska og
getsakir" eftir Agöthu Christie;
XIII. (Elías Mar les). 22,30 Sin-
fónískir tónleikar (plötur). 23,10
Dagskrárlok.
SOON THE FIRE BEGINS
TO EAT INTO THE PUNK.
ON THE FOREST FUOOR
AND HEAVY GREY SMOKE
ENVELOPES THE SWAMP
* SAY, I'D BETTER GET
OUTA HERE...THIS SMOKE'S
. GETTING THICKER/
Les price is so busy
BUILDING A POLE CORRAL, HE
FAILS TO NOTICE THE WIND
HAS SUDDENLY CHANGED
AND IS HEADING THE FIRE
TOWARD HIM/
1) Láki er svo önnum kafinn
▼Í8 að byggja kví kringum fol-
aan, að bann veitir því ekki at-
hygli, að vindáttin breytist og
ste/nir nú að honum.
2) Eldurinn breiðist óðfluga út
eftir skógarkjarrinu.
3) — Hvað hefur komið fyrir.
Mér er ekk vsert lengur hérna.
Kösiudagur 27. september:
Fastir liðir eins og venjulega.
13,15 Lesin dagsxrá næstu viku.
19,30 Létt lög (plötur). 20,30 „Um
víða veröld“. — Ævar Kvaran
leikari flytur þáttinn. 20,55 ís-
lenzk tónlist: Lög eftir Skúla Hall
dórsson (plötur). 21,15 Þýtt og
endursagt: „Óþekkt orð Jesú“
grein eftir dr. Joachim Jeremias
prófessor í Göttingen (Séra Magn
ús Guðmundsson á Setbergi). —-
21,35 Tónleikar (plötur). — 22,10
Kvöldsagan: „Græska og getsak-
ir“ eftir Agöthu Christie; XIV.
(Elías Mar Ies). 22,30 Harmon-
ikulög: Charles Demaele o. fl.
leika (plötur). 23,00 Dagskrárlok.