Morgunblaðið - 03.10.1957, Qupperneq 8
8
MOHCllTSfíf 4 ÐÍÐ
Fimmtudagur 3. okt. 1957
Vilja að biskap sitji
ólram í Reykjavák
HERAÐSFUNDUR Borgarfjarð-
arprófastsdæmis var haldinn að
Hvanneyri sunnudaginn 15 sept-
ember. Fundurinn hófst með
guðsþjónustu. Prédikaði sr Jón
M. Guðjónsson á Akranesi en
sóknarpresturinn, sr. Guðmundur
Þorsteinsson, þjónaði fyrir altari.
Altarisganga fór fiam í guðs-
þjónustunni.
FORÐIZT
8LVSIN
UMFEPÐARSLYS nr. 1294/1956.
UM miðnætti mánudaginn 1. okt.
1956 var bifreið ekið eftir þjóð-
veginum rétr fyrir ofan Kolviðar-
hól, og var hún á leið til Reykja-
víkur.
Mætti hún þá annarri bifreið,
sem kom úr gagnstæðri att og
rákust bifreiðirnar saman. Um
orsök slyssins segir ökumaður
bifreiðarinnar er vestur ók að
hann hafi ekið með ca. 40 km
hraða. Hann hafi mætt tveim
bifreiðum með skömmu millibili.
Hafi Ijós fremri bifreiðarinnar
verið eðlileg, en ljós þeirrar stð-
ari verið mjög sterk, þó sérstak-
lega annað ljósið.
Telur ökumaöurinn sig fljót-
lega hafa orðið fyrir óþægindum
af ljósum þessum og LOKS
BLINDAZT ALGERLEGA er um
20 metrar voru milli bifreiðanna.
Hann telur sig hafa hemlað stnx
og hann blindaðist, en þó vissi
hann ekki fyrr til en bifreiðirnar
lentu saman.
Við þetta skemmdist bifreiðin
á vesturleið svo mikið, að fá varð
kranabíl tii að flytja hana til
Reykjavíkur.
Munið. að ranglega stillt ljós
eru hættuleg og geta valdið stór-
slysum.
Látið athuga ljós bifreiðar yð-
*r. Það er gert yður að kostnaðar-
lausu á bifreiðaverkstæðunum í
Reykjavík millj kl. 18 og 2? dag-
Héraðsprófastur, sr. Sigurjón
Guðjónsson í Saurbæ setti fund-
inn og stjórnaði honum Minntist
hann tveggja manna er látizt
höfðu á þessu ári, Guðmundar
Jónssonar á Hvítárbakka, er lengi
hafði verið safnaðarfulltrúi Bæj-
arkirkju og Jóns Sigurðssonar í
Hraunsási, sóknarnefndarmanns í
Stóra-Assókn. Heiðruðu fundar-
menn minningu þeirra með því
að rísa úr sætum.
Prófastur gaf yfirlit um messu-
gjörðir og altarisgöngur í Borgar-
fjarðarprófastsdæmi fyrir árið
1956, og gat um helztu nirkju-
lega viðburði innan prófasts-
dæmisins á árinu, sem nú er að
líða. — Þá ræddi hann nokkuð
kirkjulögin frá 21. rnaí s.l. og
lét í ljós ánægju sína yfir þeim.
Sr. Guðmundur Sveinsson
skólastjóri flutti guðfræðilegt er-
indi: Meyjarfæðingin.
í lok fundarins las prófastur
ritningarorð og flutti bæn.
Fundinn sóttu allir prestar pró-
fastsdæmisins og flestir safnaðar-
fulltrúarnir, auk gesta.
Þessar ályktanir voru sam-
þykktar:
I. Héraðsfundur Borgarfjarðar-
prófastdæmis, haldinn að Hvann-
eyri 15. sept. 1957, lýsir sig and-
vígan frumvarpi, er kom fiam
á síðasta Alþingi, þess efnis að
biskupssetur landsins verði flutt
frá Reykjavík til Skálholts, og
vísar til ályktunar sinnar frá 1955,
að landinu verði skipt í þrjú
biskupsdæmi.
II. Héraðsfundur Borgarfjarðar
prófastsdæmis, haldinn að Hvann
eyri 15. sept. 1957 beinir þeirri
áskorun til Alþingis, að árlegt
framlag til kirkjubyggingarsjoðs
verði hækkað til helminga frá því
sem nú er.
III. Héraðsfundur Borgarfjarð-
arprófastsdæmis þakkar biskupi,
Alþingi og ríkisstjórn fyrir setn-
ingu kirkjuþingslaganna frá 21.
Á efri myndinni, sem birtist ný
lega í íslendingi á Akureyri,
sést safn Akureyringa rekið tii
Glerárréttar s. 1. laugardag, og
má af henni marka, að Akur-
eyringar eru allmiklir búmenn,
Neðri myndin er tekin, eftir að
réttað var, og fjáreigendur
standa í sundurdrætti.
—Ljósm.: Gísli Ólafsson.
Matreiðslunámskeið
KVENFÉLAGIÐ í Stykkishólmi
gekkst fyrir matreiðslunámskeiði
fyrii húsmæður fyrir nokkrum
dögum. Sóttu námskeiðið um 30
konui og var kennari Steinrnn
Ingimundardóttir húsmæðraráðu
nautur. — Á.
Sýning Jóhann-
esar Jóhaaiaaes-
sonar
ÞAÐ munu nú liðin tíu ár, frá
því er Jóhannes Jóhannesson
kom fyrst fram sem listamaður.
Þá hélt hann stóra sýningu á
verkum sínum í Listamannaskál-
anum. Sú sýning var illa sótt, lít-
ið seldist, og var síður en svo
örvandi fyrir hinn unga lista-
mann. En fall er farar heill. Síð-
an hefur Jóhannes fyrir löngu
vakið verðuga eftirtekt með
verkum sínum og jafnan staðið,
þar sem bardaginn var harðast-
ur.
Nú er nokkuð langt síðan hann
hefur komið fram með einkasýn-
ingu, en hann hefur tekið þátt í
fjölda sýningá og unnið í kyrrþey
að list sinni. Sú sýning, sem nú
hefur verið opnuð á verkum Jó-
hannesar í Sýningarsalnum við
Hverfisgötu, er afrakstur sein-
ustu ára af verkum hans.
Við, sem fylgzt höfum með
þessum listamanni, frá því er
hann hélt sína fyrstu sýningu, er-
um ekki lengi að gera okkur
ljóst, hversu alvarlega listamað-
urinn vinnur verk sín, hvernig
honum tekst hægt og sígandi að
ná öruggu valdi yfir viðfangs-
efnunum. — Litsjónin hefur
styrkzt og magnazt, og efnis-
kennd verkanna er áberandi lif-
andi og persónuleg. Myndbygg-
ingin er oft nokkuð fjölþætt, en
virðist stundum það vandamál
er listamaðurinn glímir einna
mest við. Jóhannes hefur nokkuð
þrönga litsjón, sem honum verð-
ur tamt að síendurtaka í verkum
sínum. Hér er um svo ríkan þátt
í persónuleika Jóhannesar að
ræða, að maður mundi ekki
kunna því vel, ef hann temdi sér
annað.
Flest verk listamannsins eru
unnin í olíu, en nokkrar mjög
litlar vatnslitamyndir eru á
þessari sýningu, og vil ég vekja
athygli á, hversu vel Jóhannesi
hefur þar tekizt. Hér verður mað
ur þess fullviss, að hann hefur
sérstaka hæfileika til að gera
frummyndir að glermynduih
(gluggum), og er engu líkara en
að Jóhannes hafi sérstaklega
hugsað þessar litlu myndir sem
slíkar. Það er ánægjulegt að sjá
svo góða sýningu frá hendi Jó-
hannesar Jóhannessonar, og ég
vonast til, að þessi sýning lista-
mannsins veki verðskuldaða eft-
irtekt.
Valtýr Pétursson.
KVIKMYNDIR
,,Cirnd" í Stiornubíói
ÞESSI ameríska mynd er byggð
á smásögu eftir Zola, en stað-
færð. — Hún gerist meðal járn-
brautarstarfsmanna og segir fra
manni, Carl Burcley að nafni, er
sakir drykkjuskapar missir stöðu
sína, en sendir konu sína til
Johns Owens, áhrifamikils manns
í stjórn járnbrautarfélagsins, til
Nýtt póst- og símahús í Keilovík
Keflavík, 30. sept.
NÝLEGA var hafin smíði á húsi
pósts og síma hér í Keflavík. Er
hér um að ræða viðbyggingu við
gamla stöðvarhúsið, er byggt var
árið 1937, en það er um 120 ferm
að stærð. Verður núverandi stöðv
arhúsi gerbreytt í samræmi við ný
bygginguna. í því verður öll póst-
afgreiðslan og ennfremur skrif-
stofur póst- og símstöðvarstjóra.
Aðalinngangur verður hafður í
gamla húsið og verður gengið
inn af Hafnargötunni. Nýbygging
in kemur vestan við stöðvarhús-
ið meðfram Ránargötu. öll ný-
byggingin verður um 1840 rúm-
metrar.
Nýbyggingunni er skipt þannig,
að næst gamla stöðvarhúsinu
kemur um 80 fermetra milli-
bygging og verður aðsetur allrar
símaþjónustu í þeim hluta húss-
ins. Þá er vélasalurinn fyrir hina
væntanlegu sjálvirku símstöð og
er stærð hans 183 fermetrar. Tæki
til hinnar sjálfvirku símstöðvar
eiga öll að vera komin hingað
á miðju ári 1959, en gert er ráð
fyrir að sjálfvirka símstöðin geti
tekið til starfa um áramótin 1959
—60. Teikningar af símstöi . :u'-
húsinu gerði Gísli Halldórsson
arkitekt. Það er Byggingarverk-
taki Keflavíkur sem framkvæmd
ir verksins hefur með höndum,
en verkinu stjórnar Sigurbjörn
R. Eiriksson trésmíðameistari. Á
félagið að hafa lokið verkinu 1.
september 1959. Jafnhliða þessu
verki hefur Byggingarverktaki
Keflavíkur einnig tekið að sér
byggingu símstöðvarhúss í Garð-
inum. Byggingarverktaki Kefla-
víkur var stofnað á sl. vori og eru
hluthafar þess nokkrir iðnmeist-
arar hér í bæ. Formaður þess er
Sigurður Jónsson trésmíðameist-
ari, en með honum í stjórn eru
þeir Halldór Guðmundsson tré-
smíðameistari og Skúli H. Skúla-
son byggingarfulltrúi. — Ingvar.
þess að fá hann til að taka sig
aftur í vinnu. — Ferð konunnar
ber góðan árangur, en við það
vaknar tryllt afbrýðisemi manns
hennar, enda verður hún að játa
að grunur hans sé á rökum reist-
ur. Leiðir þetta til þess að Burc-
ley myrðir Owens. Starfsbróðir
Burcleys, Jeff Warren, kemst í
kynni við konu Burcleys og verð-
ur ástfanginn af henni og biður
hana að skilja við Burcley, svo
að þau geti gifzt. Hún kveðst
ekki þora það og segir nú Warr-
en frá glæpi manns síns, en eggj-
ar Warren jafnframt á að myrða
Burcley. Warren neitar því harð-
lega og sér nú hvers konar konu
hann hefur ánetjazt. Hann segir
því skilið við hana, enda bíður
hans ung og fögur stúlka, dóttir
vagnstjórans Alec Simmons, sem
er vinur hans. — En í öðru reiði-
kasti og undir áhrifum víns myrð
ir Burcley konu sina. — Spenna
þessarar myndar er mikil og
hún er prýðilega leikin. Glenn
Ford leikur Jeff Warren, en
Gloria Grahame Vickie Burcley.
en mann hennar, Carl Burcley,
leikur Broderick Crawford. Eru
þessir leikarar gamalkunnir bíó-
gestum hér og fara þeir allir á-
gætlega með hlutverk sín.
Ego.
RÁÐSTJÓRNARRlKIN og
leppstjórn þeirra Ungverja-
landi hafa höggvið stórt skarff
í æsku Ungverjalands.
— 46.000 Ungverjar á aldr-
. inum frá 12 til 22 ára hafa
verið settir í fangabúðir í
Ráðstjórnarríkjunum.
ana 30. sept. til 3. október.
maí s.l.
Teikning af nýja póst- og símahúsinu 1 Keflavik.