Morgunblaðið - 03.10.1957, Síða 12

Morgunblaðið - 03.10.1957, Síða 12
12 MORCVNItLAÐlÐ Miðvikudagur 2. okt. 1957 \ Sendisvein og rœsfingakonu vantar okkur nú þegar. xuupimuu, Hringbraut 49 Siúlka Rösk og ábyggileg, óskast til afgreiðslustarfa Skósalan Snorrabraut 36 DÖmur athugið Höfum fengið nýtt litar Shampoo og góðar Permanent olíur Hárgreibslustofan LIÐUN Laugavegi 28 — Sími 33844 GeymiS auglýsinguna. Frönskunámskeið A&ðiance Francaise hefst mánudaginn 7. október. — Kennt verður í fjórum flokkum: 1. fl. (byrjendur), þriðjud. og föstud. kl. 6,10—7. 2. fl. mánud. og fimmtud. kl. 5,10—6. 3. fl. mánud. og fimmtud. kl. 6,10—7. 4. fl. þriðjud. og föstud. kl. 5,10—6. Kennarar verða ungfrú Madeleine Gagnaire sendi- kennari og Magnús G. Jónsson menntaskólakennari. Kennslan fer fram í Háskólanum. Innritun og nánari upplýsingar í Bókaverzlun Snæ- bjarnar Jónssonar & Co., Hafnarstræti 9, sími 11936. Véfritunarnámskeið hefjast í byrjun næstu viku. — Uppl. í síma 13196 milli kl. 2—7. íbúðir til sölu 3ja herbergja íbúðir á hæðum í húsi við Laugarnesveg. Fyrsti veðréttur er laus. Á 2. veðrétti hvíla kr. 50 þús. Sanngjarnt verð. Tilbúnar undir tréverk. — Nýtízku þvottavélar fylgja. 2ja og 3ja herbergja íbúðir í húsi í Hálogalandshverfinu, sem nýlega er byrjað að byggja. Hagstætt verð. — Andvirði miðstöðvarlagnar (án ofna) og utanhúss múrhúðun lánað til 2ja ára. Höfum til sölu íbúðir af ýmsum stærðum. FASTEIGNA & VERÐBRÉFASALAN (Lárus Jóhannesson, hrl.) Suðurgötu 4 — Símar 13294 og 14314 70 manna norrænt Jið á leið til keppni á írægum MþenuveJli ÞAÐ eru nokkur ár síðan fyrst var farið að ræða um möguleika á keppni í frjálsum íþróttum milli Balkanríkjanna annars vegar og Norðurlandanna hins vegar. — Þannig var haustið 1955 búið að ákveða keppnina þá um haustið, en pólitískar deilur á Balkan ollu því, að keppnin féll niður. Viljinn hjá frjálsíþróttasam- böndum viðkomandi landa va: áfram fyrir hendi, og á ráðstefnu fulltrúa frjálsíþróttasambanda í Evrópu, er fram fór í Lundún- um í janúar sl., var svo samið á ný um keppnina. Er nú endan- lega ákveðið að keppnin fari fram 4. til 6. október nk. á Pan- athéneen-leikvanginum í Aþenu, hinum sama leikvangi og Ólym- píuleikarnir fóru fram á 1896. Þrír keppendur frá hvorum að- ila keppa í öllum einstaklings- greinum, en þær éru allar lands- keppnisgreinar auk maraþon- hlaups, og ein sveit frá hvorum aðila í boðhlaupum, en þau eru 4x100 m, 1000 m og 4x400 m. Val Norðurlandaliðsins var framkvæmt í Stokkhólmi 16 sept. sl. af fulltrúum frá Dan- mörku, Finnlandi, Noregi og Svi- þjóð. ísland taldi sér ekki kleift, vegna þess hve fyrirvari var stutt ur og þess hve kostnaðarsamt það er, að senda fulltrúa til Stokkhólms til að taka þátt í þeim fundi. Stjórn FRÍ símsendi því lillögur sínar til Stokkhólms. Var lögð áherzla á Vilhjálm Ein- arsson í þrístökki (15,92) og lang stökki (7,46), Hilmar Þorbjörns- son í 100 m hlaupi (10,3) og 200 m hlaupi (21,3) og Valbjörn Þor- láksson í stangarstökki (4,40). Pétur Rögnvaldsson í 110 m grhl. (14,6) og Hallgrím Jónsson í kringlukasti (52,56). Auk þess var bent á sem mögulega kepp- endur: í kúluvarpi Skúla Thor- arensen (16,00 m) og Gunnar Huseby (15,95), í kringlukast: Þorstein Löve (51,57 m) og Frið- rik Guðmundsson (50,20). Aðeins þrír af þessum mönnum voru valdir, þeir Vilhjálmur Ein- arsson í þrístökki, Hilmar Þor- björnsson í 100 og 200 m hl. og 4x100 m boðhlaupi og Valbjörn Þorláksson í stangarstökki. —. Stjórn Frjálsíþróttasambands Is- lands telur, að í þessu efni hafi ísland verið hlunnfarið og hefur þegar mótmælt þessu, sérstaklega gagnvart 110 m grindahlaupinu, kringlukastinu og kúluvarpinu. Samtals voru valdir 56 kepp- endur í Norðurlandaliðið og skiptast þeir þannig: 24 Finnar, 18 Svíar, 10 Norðmenn, 3 íslend- ingar og 1 Dani. Auk þess verður 9 manna farastjórn — 3 frá Sví- þjóð, 3 frá Finnlandi, 2 frá Nor- egi og 1 frá íslandi — 1 læknir, 3 þjálfarar og 1 nuddari. Samtals eru þetta um 70 menn. — Þess skal getið, til þess að valda ekki misskilningi, að áður en lið Norð- urlanda var valið, hafði verið ákveðið af hinum Norðurlöndun- um að einn Islendingur skyldi vera í farastjórninni án nokkurra skuldbindinga um hvort nokkur íslenzkur keppandi yrði valinn eða ekki. Þriðjudaginn 1. okt. fór Norð urlandaliðið fara með flugvél frá Norðurlöndum til Aþenu. En Is- lendingarnir, að undanskildum Vilhjálmi Einarssyni, sem stadd- urlandaliðið með flugvél frá mannahafnar hinn 30. sept. og sameinuðust liðinu. Frá Aþenu er svo ráðgert að fara sömu leið til baka heim þann 7. eða 8. okt. Balkanríkin kosta ferðir liðs- ins Stokkhólmur—Aþena fram og til baka og uppihald í Aþenu, en ferðir innan Norðurlandanna verða Norðurlöndin að greiða sjálf. Balkanríkin hafa nú þegar val- ið lið sitt og er það skipað 17 Júgóslövum, 12 Búlgurum, 12 Rúmenum og 10 Grikkjum, eða samtals 51 keppandi á móti 56 keppendum frá Norðurlöndum. Bæjakeppni á sunnudag Lið Reykiavíkur valið Á SUNNUDAGINN klukkan 4 e. h. fer fram bæjakeppni í knatt- spyrnu milli Reykjavíkur og Akraness. Lið Reykjavíkur hefur KRR valið og er það þannig skip- að: Björgvin Hermannsson, Val, markvörður, Hreiðar Ársælsson, KR, h.bakv., Guðm. Guðmunds- son, Fram, v.bakv., Páll Arons- son, Val, h.framv., Halldór Hall- dórsson, Val, miðvörður, Hinrik Lárusson, Fram, v.framv., Dag- bjartur Grímsson, Fram, h.úth., Árni Njálsson, Val, h.innh., Þor- björn Friðriksson, KR, miðherji, Guðm. Óskarsson, Fram, v.innh. og Skúli Nielsen, Fram, v.úth. Varamenn: Karl Karlsson, Fram, Magnús Snæbjörnsson, Val, Halldór Lúðvíksson, Fram, Garðar Árnason, KR, Villiam Sheriff, Þrótti og Sig. Sigurðs- son. í fremri röð Guðmundur Gíslason, Ágústa Þorsteinsdóttir, Einar Kristinsson. t aftari röð, Pétur Kristjánsson, Helgi Sig urðsson, ögmundur Guðmundsson og Ernst Backmann. 5 manna hópur sund- fóSks í keppnisför til Rostock I GÆR fóru utan flugleiðis með Flugfélaginu fimm manna hópur ís- ænzks sundfólks. Heldur hópurinn til Rostock í A-Þýzkaalndi og tekur þar þátt í miklu sundmóti, 5. og 6. október, eða á laugar- daginn og sunnudaginn. Keppnisgreinar Pétur Kristjánsson skýrði blað- inu svo frá, að hér væri um gagnkvæmt boð að ræða. 5 austur-þýzkir sundmenn komu hingað á vegum Ármanns 1956. Þá greiddi Ármann allan kostnað, nú greiða Þjóðverjar kostnaðinn. Þau sem fóru utan eru Ágústa Þorsteinsdóttir, Á, sem keppir 1 100 m skriðsundi og 100 m flug- sundi, Pétur Kristjánsson, Á, sem keppir í 100 m skriðsundi, Einar Kristinsson, Á, sem keppir í 200 m bringusundi, Guðm. Gíslason, ÍR, sem keppir í 100 m baksundi og 100 m skriðsundi, Helgi Sig- urðsson, Æ, sem keppir í 400 m skriðsundi. Karlmennirnir taka svo þátt í 4x100 m fjórsundi. Fararstjóri er Ögmundur Guðmundsson, yfirtollþjónn og utan fór einnág Ernst Backmann, þjálfari. Á þessu móti verða meðal þátt- takenda sundmenn frá öllum Norðurlöndimum auk Þýzka- lands og ef til vill fleiri stöðum. Það verður því mikil keppni og hörð. — Heim kemur flokkurinn 10. október. Vilhjálmur sigraði í Fiimlandi VILHJÁLMUR Einarsson keppti sem gestur á móti í Finnlandi á sunnudaginn. Keppti hann í þrí- stökki og vann yfirburðasigur. Stökk hann 15,74 metra. Enginn annar keppenda fór yfir 15 metra. Vilhjálmur er nú á leið til Aþenu í Norðurlandaliðinu, ásamt Hilmari og Valbirni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.